Þjóðviljinn - 25.06.1985, Qupperneq 9
MINNING
Kristinn D. Guðmundsson
Kristinn D. Guðmundsson,
fyrrverandi sjúkrahússráðsmað-
ur og bæjargjaldkerfi á ísafirði,
er látinn. Útför hans fer fram frá
ísafjarðarkirkju í dag. Með
Kristni er genginn öðlings- og
sómamaður sem við starfsmenn
bæjarskrifstofunnar á ísafirði
höfum ríka ástæðu til að sakna.
Við fráfall hans, sem bar skyndi-
lega og óvænt að vinnustað, hefur
ísafjarðarkaupstaður misst einn
sinn allra besta starfsmann, því
þrátt fyrir þá staðreynd að hann
væri fyrir nokkru kominn á eftir-
launaaldurinn, þá vann hann enn
vandasöm störf fyrir bæjarfé-
lagið. Starfsaldurinn var orðinn
langur því Kristinn hóf störf á
skrifstofu bæjarstjóra ísafjarðar
árið 1955 og í yfir aldarfjórðung
hafði hann með höndum tvö af
vandasömustu og erfiðustu störf-
unum, var bæjargjaldkeri og
jafnframt framkvæmdastjóri
Fjórðungssjúkrahússins.
Kristinn D. Guðmundsson var
Önfirðingur og ólst upp á Víf-
ilsmýrum í Önundarfirði. Hann
var fæddur 18. janúar 1913. Ön-
undarfjörður var honum ávallt
kær, þótt fátækt hafi ráðið ríkjum
í æsku hans. Hann mat þess meir
velmegun nútímafólks og gerði
sér grein fyrir þeirri stórkostlegu
breytingu, sem orðið hefur á
högum þjóðarinnar á ör-
skömmum tíma. Hann var raun-
sær og sanngjarn. Hann var trú-
lega sósíalista alla tíð, en eindreg-
inn unnandi frelsis og lýðræðis.
Margt var það í fari Kristins
sem vakti aðdáun. Snyrti-
mennska í klæðaburði mætti vera
mörgum til fyrirmyndar og hirðu-
semi með hús, bíl og aðrar eigur
var aðdáunarverð. í>ó bar garð-
urinn hans við Hlíðarveg lífs-
skoðun hans og viðhorfum
gleggst vitni. Hann sannaði, svo
eftir hefur verið tekið, að skóg-
rækt á íslandi þarf ekki að vera
neinn hégómi. Húsið hans er um-
kringt skógi, barr- og lauftrjám,
sem hann sýndi sérstaka natni og
umhyggju. Virðing hans fyrir
móður jörð og öllu því sem lifir
var ótakmörkuð. Og þó höfum
við sjaldan séð hann sárari en
þegar kettir höfðu lagt þrastar-
hreiður í einu trénu í garðinum
hans í rúst nú fyrir skömmu. Þeim
var þó ekki refsað á annan hátt en
þann að gefa þeim væna vatns-
gusu, þegar til þeirra náðist. Lífs-
keðjuna mátti ekki brjóta og taka
varð tillit til meðfætts eðlis dýra
og manna. Hann var sannur nátt-
úruunnandi og nátúruverndar-
maður.
Reglusemi í vinnubrögðum og
vandvirkni voru aðalsmerki
Kristins, en orðheldni og skiln-
ingur á mikilvægi mannlegra
samskipta vó þó enn þyngra.
Hann átti marga aðdáendur í
hópi samstarfsmanna, sem nutu
þess að rabba við hann um bók-
staflega allt milli himins og jarð-
ar. Minningaínar frá þessum
samræðum eru vissulega
skemmtilegar og góðar.
Kristinn naut ekki langrar
skólagöngu en var sjálfmenntað-
ur maður, vel að sér í íslenskum
bókmenntum, sögu og fleiri
fræðum. Hann var ljóðelskur og
kunni að meta góðan skáldskap.
Hógværð hans og lítillæti varð þó
til þess að fáir fengju notið þess
og það var einna helst þegar
menn settust niður tii að kveðja
starfsfélaga eða til að fagna ein-
hverjum áföngum eða tíma-
mótum að hann lét þetta ljós sitt
skína. En þá var líka verulega
gaman.
Kristinn átti sér áhugamál, og
þó meir hér áður fyrr, en það var
ljósmyndun. Myndir hans eru
margar sérstaklega skemmtilegar
og þá ekki síst myndir af fjöl-
skyldunni, börnum og barna-
börnum, en barnabörnin voru afa
sínum sérlega kær og komu oft að
heimsækja hann á skrifstofuna.
Og ekki gat hann leynt aðdáun
sinni þegar hann frétti af vel-
gengni þeirra í skóla, sagðist þó
ekki geta skilið að þau hefðu gáf-
urnar frá sér.
Á árunum 1946 til 1954 var
Kristinn varabæjarfulltrúi fyrir
flokk sinn, Sósíalistaflokkinn, en
vegna forfalla og fjarveru aðal-
fulltrúa var hann viðloðandi
bæjarstjórnina sem aðalmaður
um langt skeið. Hann var mikill
framfarasinni og gladdist yfir
vexti og viðgangi Isafjarðar og
stuðlaði eftir megni að framgangi
allra góðra mála. Á þessum árum
gekk flokkur Kristins til sam-
starfs við Sjálfstæðisflokkinn og
mæddi þá mjög á Kristni sem
oddamanni í bæjarmálunum.
Hann mat þó málefnin meir en
mennina og á þessum árum kom-
ust í framkvæmd mörg af stærstu
og mikilvægustu velferðarmálum
kaupstaðarins. Um árabil var
Kristinn ritari bæjarstjórnarinnar
og hafði þá rnikil samskipti við
bæjarfulltrúa. Hann þekkti því
betur en flestir aðrir innviði
bæjarmálanna og gat miðlað öðr-
um af þekkingu sinni og reynslu.
Kímnigáfu hafði Kristinn góða
og beitti henni óspart og þá ekki
sjaldnar gegn sjálfum sér en öðr-
um. Hann var vissulega fundvís á
það spaugilega í tilverunni. Við-
mót hans til nýrra starfsmanna,
sem oft voru ungir að árum þegar
þeir komu til starfa á bæjarskrif-
stofunni, lýsir honum einkar vel.
Hann var tillitssamur og nærgæt-
inn og aldrei örlaði á hroka né
mikilmennsku. Þannig aflaði
hann sér vináttu og virðingar.
Um Kristinn D. Guðmundsson
mætti rita langa minningargrein,
en það hefði varla verið honum
að skapi. Hann var hæglátur og
prúður maður sem unni heimili
sínu og fjölskyldu. Hann gekk að
eiga sína góðu konu, Guðrúnu
Jennýju Jónsdóttur árið 1941.
Þau eignuðustu þrjú börn,
Hrafnhildi, Sólveigu og Guð-
mund. Fyrir hjónaband hafði
Kristinn eignast tvær dætur með
Guðfinnu Vilhjálmsdóttur,
Brynhildi og Selmu. Barnabörn-
in eru orðin 16 og barna barna
börnin 3. Við fjölskyldu sína alla
hafði Kristinn náið og gott sam-
band.
Að leiðarlokum viljum við
samstarfsfólk Kristins á bæjar-
skrifstofu og skrifstofu sjúkra-
hússins þakka honum samfylgd-
ina sem var ánægjuleg og góð.
Við vottum eftirlifandi eiginkonu
hans og aðstandendum öllum
samúð.
Samstarfsfólk.
FREITIR
Húsgögn
Sóley fékk verðlaun
Á umdæmisþingi íslensku
Rotaryhreyfingarinnar, sem
haldið var á Hótel Sögu þann 22.
júní, var tilkynnt að Valdimar
Harðarssyni arkitekt, hafi verið
veitt viðurkenning úr Starfs-
greinasjóði Rotary á Islandi, að
upphæð 75 þús. kr, fyrir stólinn
Sóley.
Þetta er í fyrsta skipti, sem veitt
er viðurkenning úr Starfsgreina-
sjóði Rotary á Islandi. Sjóðurinn
var stofnaður á 50 ára afmæli ís-
lensku Rotaryhreyfingarinnar á
sl. ári. Tilgangur starfsgreina-
sjóðs Rotary á Islandi er að veita
árlega viðurkenningu með fjár-
framlögum fyrir nýjungar eða
afrek, unnin af einstaklingum í
einhverri starfsgrein.
Leitað skal eftir ábendingum
um aðila til að hljóta viðurkenn-
injgu úr sjóðnum og er öllum
frjálst að gera ábendingu. Aug-
lýst var eftir ábendingum og bár-
ust allnokkrar.
Fósturskóli íslands
Innkaupastjóri
Verslunardeild Sambandsins óskar eftir aö ráöa
innkaupastjóra fyrir Heimilisvörudeild.
Starf hans er fólgið í yfirumsjón með innkaupa-
mönnum, stjórn á vöruflæði og birgðahaldi deildarinn-
ar.
Góð enskukunnátta er áskilin. Kunnátta í þýsku og
norðurlandamáli æskileg.
Þekking á raftækjum eins og tölvum og hljómflutnings-
tækjum æskileg.
Leitað er að ungum og frískum manni með
viðskiptafræði- eða góða verslunarmenntun.
Nánari upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
Umsóknaiirestur til 1. júlí n.k.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
LINDARGÖTU 9A
58 luku burtfararprófi
Valborg Sigurðardóttir sem verið hefur skólastjóri frá stofnun skólans
lætur afstörfum
Fósturskóla íslands var slitið
31. maí síðastliðinn að viðstödd-
um fjölmörgum gestum og afmæl-
isárgöngum. I byrjun skólaárs
voru 200 nemendur í skólanum og
skiptust þeir í 9 bekkjardeildir en
58 stúlkur luku burtfararprófi.
Settur skólastjóri, Gyða Jó-
hannesdóttir gaf yfirlit yfir starf-
semi skólans á síðastliðnu skóla-
ári og ræddi ýmis framtíð-
arverkefni. Skólastjóri ræddi um
brýna nauðsyn þess að endur- og
framhaldsmenntun yrði eðlilegur
þáttur í starfsemi skólans og um
nauðsyn á eigin íþróttahúsi.
Valborgu Sigurðardóttur sem
verið hefur skólastjóri Fóstur-
skóla íslands frá stofnun hans
árið 1946 voru þökkuð vel unnin
störf í þágu skólans og brautryðj-
andastarf í uppeldismálum á ís-
landi.
Fulltrúar 25 ára og 10 ára af-
mælisárganga fluttu ávörp og af-
hentu peningagjafir.
Kennarar athugið
Lausar kennarastöður við Hafnarskóla Höfn í Horna-
firði. Kennslugreinar: Almenn kennsla í 1.-6. bekk,
smíðar og íþróttir.
Góð vinnuaðstaða, húsnæði á staðnum.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-8148 og
formaður skólanefndar í síma 97-8181.
Listi yfir hótel og veitingastaði
Eiginmaður minn
Samband veitinga- og gisthúsa
hefur gefið út kynningarbækling
yfir hótel og veitingastaði á
landinu.
í bæklingnum er með táknmáli
getið um alla þá þjónustu og að-
stöðu sem viðkomandi hótel og
veitingastaðir hafa upp á að
bjóða. Ennfremur er í bæklingn-
um kort af bæði Reykjavík og
landinu öllu og staðirnir merktir
inn á.
Bæklingurinn liggur frammi á
S.V.G. hótelum og veitingahús-
um víðs vegar um landið, ferða-
skrifstofum og ennfremur fæst
hann í upplýsingaturni fyrir
ferðamenn á Lækjartorgi.
Sólmundur Sigurðsson
frá Borgarnesi
andaðist á Landakotsspítala 24.6.
F.h. aðstandenda.
Steinunn Magnúsdóttir.
Þriðjudagur 25. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13