Þjóðviljinn - 25.06.1985, Qupperneq 13
Óttar B. Halldórsson, Kristinn Valdimarsson, Þorkell Helgason, Skúli
Siómenn bíða spenntir eftir þessu tæki til rannsókna á veiðarfærum. Frá vinstri Valdimar Jónsson, Þorleifur Einarsson
Alexandersson, Svavar Gestsson, Steingrímur Sigfússon og Sigmundur Guðbjarnarson.
Ný sókn
Mikið af nýjum hugmyndum
Þingmenn Alþýðubandalagsins íheimsókn í verkfrœði- og raunvísindadeild Háskólans.
Svavar Gestsson: Ánœgður með móttökur.
Rannsóknir Háskólans gœtu gagnast atvinnulífinu enn betur
Við erum mjög ánægðir með
þær móttökur sem við hlutum og
fengum fullt af nýjum hugmynd-
um um nýja sókn atvinnulífsins,
sagði Svavar Gestsson þingmað-
ur en í gær kynntu þingmenn Al-
þýðubandalagsins sér starfsemi
Verkfræði- og raunvísinda-
deildar Háskóla fslands, og
Reiknistofnunar. Þetta er bara
fyrsta heimsóknin af mörgum
sem farið verður í í sumar til að
kynna sér nýjar hugmyndir og
nýja möguleika í atvinnulífinu og
til að sjá hvað er verið að vinna að
inná ýmsum deildum Háskóla ís-
lands.
Mór til brennslu?
Meðal hugmynda sem þarna
komu fram er hugsanleg nýting á
mó. Valdimar Jónsson prófessor
útskýrti þetta nánar og sagði að
kol væru núna svo ódýr að verð
þeirra væri ekki nema 1/3 af olíu-
verði miðað við þann varma sem
þau gefa. Það væri því hagkvæmt
að nota kol við ýmsa iðnfram-
leiðslu, til dæmis við loðnu-
bræðslu í stað olíu. Og nú væru
menn farnir að spyrja sig ef við
erum komin svona mikið yfir í kol
hvort ekki mætti nota mó sem
væri vel samkeppnisfær. Nefndi
Valdimar að nálægt Akranesi og
Grundartanga væru miklar mó-
mýrar og þaraf leiðandi yrði
flutningskostnaður lítill ef mór
yrði notaður til dæmis í sements-
verksmiðjuna á Akranesi og
málmblendiverksmiðjuna á
Grundartanga. Við framleiðslu á
mó er mikilvægt að geta fundið
stóra notendur r.álægt vinnslu-
stað. f sementverksmiðjunni eru
notuð 20 þúsund af kolum við
framleiðsluna og 65 þúsund í
Grundartangaverksmiðjunni.
Þetta þýddi 85 þúsund sem væri
um 3 prósent innfluttrar orku.
„Úr því að kol eru svona stór
þáttur orkunnar er vert að gefa
því gaum hvort móframleiðsla
gæti ekki borgað sig, en enn sem
komið er eru rannsóknir á byrj-
unarstigi."
Reiknitækni
við glerskurð
Þá greindi Þorkell Helgason frá
reikniaðferðum til að auka nýt-
ingu glers við glerskurð. Sagði
Þorkell að til væru erlend forrit
og kerfi sem hægt væri að kaupa
en betra væri að geta þróað slíkar
reikniaðferðir sjálfir hér á landi.
Þannig yrðu aðferðirnar
gagnsærri og mætti auðveldar
laga þær að mismunandi aðstæð-
umíhverri glerverksmiðju. Sagði
Þorkell að nokkrir nemendur
Verkfræði og raunvísindastofn-
unar hefðu þetta sem prófverk-
efni, væru að skoða þetta og
reyna að þróa en þetta væri bara
eitt viðfangsefni af mörgum sem
mætti nota reikniaðferðir við.
Straumtankur
Það eru allir íslenskir sjómenn
spenntir fyrir þessu, sagði Skúli
Alexandersson, þingmaður þegar
mönnum var sýnt líkan af vatns-
straumstanki sem komið verður
fyrir í einum skála í nýju húsi
verkfræði- og raunvísinda-
deildar. Tankurinn sem verður
tveir og hálfur metri að breidd og
einn og hálfur metri að dýpt verð-
ur notaður til rannsókna og til-
rauna á veiðarfærum og öðru því
sem þarf að rannsaka í þessu sam-
bandi. Veiðarfærin verða sett of-
aní og straumnum síðan hleypt á.
En hingað til hefur fiskveiðiþjóð-
in orðið að láta sér nægja út-
reikninga á tölvu þar eð alla að-
stöðu til tilrauna hefur vantað.
-aró
Dýrasta tæki deildarinnar: Massagreinir sem er notaður til að rekja feril heits vatns neðanjarðar.
Þfiðjudagur 25. júní 1985' ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17