Þjóðviljinn - 26.06.1985, Page 3
FRÉITIR
Samningar
Aðeins öiiítið brat
Prentarar og blaðamenn semja íkjölfar ASÍ/VSÍ. Magnús E.
Sigurðsson: Aðeins örlítið bort afþvísem búið er að taka af fólki
r
Igær voru undirritaðir samn-
ingar milli Félags bókagerðar-
manna og VSÍ um svipaða krónu-
hækkun og samið var um milli
VSÍ og ASI. Þá sömdu blaðamenn
á svipuðum nótum.
Prentarar og blaðamenn fá 7%
hækkun frá og með deginum í gær
og 4% hækkun 1. september. Þá
verður einnig borguð áður um-
samin 3% hækkun. Samningarnir
eru til áramóta. Samningar FBM
voru samþykktir á trúnaðar-
mannaráðsfundi í gærkvöldi, en
félagsfundur á eftir að fjalla um
samninga blaðamanna.
„Við höfðum ekki stöðu til
annars en að skrifa undir tilboð
VSÍ“ sagði Magnús E, Sigurðs-
son formaður FBM við Þjóðvilj-
ann í gær. „Um áramótin verðum
við síðan með öðrum verka-
lýðsfélögum að rétta hlut launa-
fólks, - þetta er ekki nema örlítið
brot af því sem búið er að taka af
fólki. Um áramót verða menn að
stilla strengina saman og taka á
þessu máli.“
Samningar VSÍ við prentara og
blaðamenn giltu hvorirtveggju til
áramóta og hvorugur samningur-
inn uppsegjanlegur fyrren þá.
Undirskrift oddvita blaða-
manna fylgdi bréf þarsem þeir
lýsa vilja til að halda áfram við-
ræðum um að samræma laun
blaðamanna og fréttamanna á
ríkisfjölmiðlum sem nú hafa mun
hærra taxtakaup, og tóku VSÍ-
menn sæmilega í það erindi. Eftir
samninga Blaðamannafélagsins
og VSÍ er búist við að samskonar
samningar verði gerðir við við-
semjendur blaðamanna utan
VSÍ, Blaðaprentsblöðin NT,
Þjóðviljann og Alþýðublaðið.
-m
Friðarávarpið
Lokaátak
í vikunni
Nú um helgina lýkur undir-
skriftasöfnun Friðarhreyfingar
íslenskra kvenna og ’85-nefndar-
innar og hvetja aðstandendur
söfnunarinnar konur til að láta
ekki sitt eftir liggja nú síðustu
dagana. Friðarávarpið verður af-
hent Kvennaráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna sem haldin verður í
Nairobi í Kenya nú í júlí.
Söfnuninni lýkur á sunnudag,
30. júní, og fram að þeim tíma
verða konur víða á ferð við að
safna undirskriftum og listum
sem liggja frammi, segir í frétt frá
undirbúningsnefndinni. Enn er
hægt að fá lista og skrifa undir á
skrifstofu Friðarhreyfingarinnar
á Hallveigarstöðum, Túngötu 14,
Reykjavík. Síminn er 24800.
Hafnarbúðir
Bakkað með
söluna?
Vandamenn sjúkl-
inga mótmœla, -
stjórn sjúkrastofnana
líka
Stjórn sjúkrastofnana Reykja-
víkurborgar hefur lagst gegn því
að borgin selji ríkinu Hafnarbúð-
ir. Samþykkt stjórnarinnar kom
fyrir borgarráð í gær ásamt mót-
mælum aðstandenda sjúklinga í
Hafnarbúðum þarsem Borgar-
spítalinn rekur langlegudeild
aldraðra. Miklar líkur eru nú
taldar á að samningar borgar-
stjóra við fjármálaráðherra um
söluna nái ekki fram að ganga og
mun Davíð ætla að ræða málið á
ný við Albert.
Til stóð að ríkið keypti Hafnar-
búðir af borginni fyrir 55
milljónir og var ætlunin að
Landakotsspítali fengi húsið.
Borgarstjóri kynnti samninginn í
borgarráði fyrir nokkru, en
samningurinn var ekki af-
greiddur, og hefur síðan mælst
illa fyrir. Fyrir helgi mótmælti 51
starfsmaður í Hafnarbúðum söl-
unni, og nú vandamenn sjúklinga
og sjúkrastofnanastjórn, en þar
eiga sjálfstæðisflokkssæti borgar-
fulltrúarnir Páll Gíslason og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson. -m
Sovétviðskipti
Samið um
saltsíldina
Eftir nokkra hurðarskelli,
símhringingar og milligöngu
Matthíasar Á. Mathiesen
viðskiptaráðherra náðist loks
samkomulag um sölu á 200 þús-
und tunnum af saltsíld til Sovét-
ríkjanna. Voru samningar um
hana undirritaðir í Moskvu í gær-
morgun. Ekki er enn Ijóst hve
mikið íslenska samninganefndin
þurfti að slá af verðinu en talið er
að verðlækkunin milli ára sé 13-
14% miðað við dollaragengi.
Þegar saltsíldarsamningarnir
voru í höfn settust þeir niður,
Matthías Á. Mathiesen og Nikol-
ai S. Patolichev ráðherra
utanríkisviðskipta í Sovétríkjun-
um, og undirrituðu nýjan
viðskiptasamning ríkjanna. Sá
samningur gildir fyrir árin 1986-
1990 og gerir hann ráð fyrir rýmk-
uðum sölukvótum á flestum þeim
afurðum sem íslendingar selja so-
véskum.
Ekki verða miklar breytingar á
kaupum íslendinga á sovéskum
vörum.
Tóbaksvarnir
Reykingar
-þreytt
fýrirbæri
Þrenn veggspjalda-
verðlaun
„Hugmyndin var að sýna hvað
það er hreinlegt og jákvætt að
reykja ekki,” sagði Dean Þór
Magnússon sem vann fyrstu verð-
laun, 50 þúsund krónur, í sam-
keppni Tóbaksvarnanefndar um
gerð veggspjalda.
Veggspjald Deans sem ber
yfirskriftina Nýtt og betra líf -
framtíð án reykinga og sýnir ungt
og nútímalegt fólk þar sem reyk-
leysi er hluti af lífsstílnum.
Önnur verðlaun vann Gunnar
Karlsson sem nýkominn er frá
myndlistarnámi í Stokkhólmi,
Þorvaldur Þorsteinsson vann
þriðju verðlaun. Aukaverðlaun
hlaut Svala Jónsdóttir.
Tóbaksvarnarnefnd hélt
keppnina í tengslum við keppni
alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
ar, Evrópudeild. Munu myndirn-
ar 4 verða sendar í alþjóðakeppni
um veggspjöld gegn reykingum
sem verður haldin í september.
Dómnefnd skipuðu fulltrúar
frá félagi íslenskra teiknara, fé-
lagi íslenskra myndlistarmanna,
landlæknisembættinu og tóbaks-
varnanefnd.
-aró
Verðlaunahafarnir Þorvaldur, Dean Þórog Gunnar. „Niðurlæging sígarett-
unnar er orðin svo mikil að meira að segja reykurinn liðast niður á við” sagði
Þorvaldur um mynd sína (innfelld) sem hlaut þriðju verðlaun í samkeppn-
inni. Ljósm.: Valdís.
Borgin
Hundsar Hagvangstaxta
Hagvangur reiknaði út taxta tannlœkna. Leiddi til 45prósenta
hœkkunar. Formaður Tannlæknafélagsins: Hœkkanir okkar ekki
umfram aðra
Igær samþykkti borgarráð ein-
róma að greiða tannlæknum
ekki eftir töxtum, sem Tann-
læknafélagið sjálft lét Hagvang
reikna út fyrir sig. I stað þess að
nota útreikninga Hagvangs ákvað
borgarráð að grciða
tannlæknunum samkvæmt gamla
taxtanum, þangað til brúklegir
útreikningar frá Hagstofunni
lægju fyrir.
Forsaga málsins er sú, að Hag-
stofan hefur áður reiknað taxta
tannlækna út frá tíu efstu launa-
þrepum BHM. En eftir Kjara-
dóm í málum þeirra tekur engin
laun samkvæmt þessum töxtum,
og starfsmaður Hagstofunnar
neitaði því að reikna út taxtana.
Tannlæknafélag fslands lét þá
Hagvang reikna taxta sína út með
þeim afleiðingum að þeir hækk-
uðu um 45 prósent!
Birgir J. Jóhannsson, formað-
ur Tannlæknafélagsins sagði að
ákvörðun borgarráðs kæmi
tannlæknum spánskt fyrir sjónir.
„Okkar laun hafa ekki hækkað
meira en laun annarra í landinu“
sagði Birgir. ÞH/SG/ÖS
Ránskjörin
Vísitalan upp tæp 3%
Lánskjaravísitalan hækkaði um
2,97% í júní en samkvæmt út-
reikningi Seðlabankans gildir vís-
italan 1178 fyrir júlímánuð. I
frétt frá bankanum segir að
hækkunin stafi einkum af því að
„taxtar útseldrar vinnu hækkuðu
vísitölu byggingakostnaðar”.
Þessi hækkun lánskjaravísitöl-
unnar er talsvert meiri en verið
hefur undanfarna mánuði en í
frétt bankans segir að lfkur bendi
til „að meðaltalshækkun næstu
mánaða verði talsvert lægri“.
Miðvikudagur 26. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3