Þjóðviljinn - 26.06.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 26.06.1985, Blaðsíða 5
Alþýðubandalagið Með álfum og tröllum á Snæfellsnesi Ferðakrónika Alþýðubandalagsins í Kópavogi Áð í Borgarnesi. Sumarferð Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi var farin helgina 22.-23. júní s.l. Óhætt er víst að segja að veðurguð- inn og vættir ailar góðar hafi leikið við hvurn sinn fingur, þvi betra hefði veðrið ekki getað verið. Farið var um Hvalfjörð og Mýrar og áð á fallegum stað við Hítará. Síðan var ekið vestur á Snæfellsnes og séra Rögnvaldur Finnbogason á Staðastað heim- sóttur. Eftir að hafa gengið í kirk- ju á Staðastað, nutum við leið- sagnar séra Rögnvaldar út að Búðum, þar sem litast var um. Skömmu fyrir kvöldmat komum við síðan á Arnarstapa, þar sem gist var í góðu yfirlæti á bænum Arnarfelli. Fyrirtaksaðstaða í fögru umhverfi. A laugardags- kvöldið var sameiginlegur kvöld- verður á vegum félagsins og síðan hófst kvöldvaka í léttum dúr sem náði hámarki þegar félagi Ingi, Hans frá Grundarfirði fór að skýra frá því hve mörg þjóðar- brot finndust í heimabæ sínum og fleira í þeim dúr eins og honum einum er lagið. Storbrotin fegurð Það var fjarri því að ferðalang- arnir úr Kópavogi væru búnir að lítast nógu vel um á Arnarstapa, þegar haldið var af stað á sunnu- dagsmorguninn. Þó voru sumir búnir að ganga niður á bryggju, eftir stórbrotinni fjörunni og yfir varpið hjá blessaðri kríunni a.m.k. 3 svar sinnum. En við átt- um langa leið fyrir höndum. Þó er ekki hægt að flýta sér á fallegum stað í fallegu veðri. Við stoppuð- um á Hellnum og skoðuðum stór- brotna fegurð fjörunnar, hella og skúta og svo ótrúlegt form kletta að því er ekki hægt að lýsa með orðum. Við fórum heldur ekki langt í næsta áfanga, því stoppað var á Djúpalónssandi. Þar hjálp- aðist allt að. Náttúrufegurðin, stórkostleg sýn jökulsins sem gnæfði svo tignarlega yfir sandin- um við bláan himininn. Þá var og komin þarna upp hálfgerð spán- arstemmning jjar sem allflestir voru farnir að vaða í fjöruborð- inu og láta ölduna bleyta sig svo- lítið. Enn aðrir spreyttu sig á aflraunasteinunum sem þarna eru. Það er á svona stundu sem fararstjóri fær það erfiða verk að láta hópinn halda áfram. Það vildi einfaldlega enginn fara. Ljúflega rann hann niður nestisbitinn. Myndir: Fr. Bald. Áfram veginn... Það varð þó úr að áfram skyldi haldið, en þó ekki fyrr en því hafði verið hótað að matarhlé yrði ekki fyrr en í Eyrarsveit. Þangað var u.þ.b. 2 klst. akstur. Við ókum framhjá þéttbýlis- stöðunum á norðanverðu nesinu Sandi, Rifi og Ólafsvík með smá stoppi í Ólafsvík. Á þessari yfir- ferð vakti Ingi Hans athygli okk- ar á olíuborna veginum þarna á smákafla, því yfirleitt eru vegir mjög slæmir á Snæfellsnesi. Þessi fíni vegarspotti er nefnilega á milli heimila þingmannanna Skúla og Alexanders. Rétt er líka að vekja athygli á rnjög góðum nýjum vegi undir Ólafsvíkurenni. Ingi Hans þakkaði Skúla heiður- inn af lagningu þess vegar og bætti því við að hver einasti bíll á Litið við á Staða- Sandi hefði verið kominn með sta^- dældaðan topp áður en nýi vegur- inn kom. Það gerði grjóthrunið. Fyrir mig persónulega þá varð ég veikastur fyrir Grundarfirði af Snæfellsnesinu norðanverðu og á Kirkjufellið ekki minnstan þátt í því. Þar fyrir utan mega Grund- firðingar vera hreyknir af fal- legum bæ sínum. Við áðum eins og áður hafði verið lofað í Eyrarsveit í nágrenni Kvíabryggju, í ágætri brekku með dýrðlega fjallsýn. Síðan var ekið um Berserkjahraun og Ber- serkjavegurinn gamli skoðaður. Fallegur og skjólsæli staður. Þangað mun Kjarval hafa sótt var haldið af stað heim á leið. Félagi Ingi Hans sem hafði verið með okkur frá kvöldinu áður kvaddi okkur við gatnamótin þar sem við lögðum yfir Kerlingar- skarð, en hann hélt af stað fót- gangandi til Grundarfjarðar. „Ingi Hans, sértu kominn heim og lesir þessar línur, hafðu miklar þakkir fyrir.“ Eins og lesa má af frarnan- sögðu tókst ferðin með miklum ágætum og hjálpaðist þar allt að. Ferðafélagarnir, tónlistarmaður ferðarinnar Örn Bjarnason, leiðsögumennirnir af Snæfells- Fagurt í fjallasal... mikið í myndefni. Loks var ekið niður í Stykkishólm með fjalla- hringinn á aðra hönd en Breiða- fjörð og Barðaströnd á hina. Axlar-Björn stilltur Að loknu stoppi í Stykkishólmi nesi og þá ekki hvað síst tröll og álfar sem létu alla kynlega at- burði og dularfulla um kyrrt iiggja á þessum miklu söguslóð- um Bárðar Snæfellsás, Axlar- Björns og fleiri garpa sem hafa þrátt fyrir allt skreytt sögu okkar myndum með tilveru sinni. Friðgeir Baldursson Miðvikudagur 26. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.