Þjóðviljinn - 03.07.1985, Side 1
Einkabarnaskólinn
Ríkisrekinn klíkuskóli
Harðorðar bókanir ífrœðsluráði. Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur átelur frœðsluyfirvöld ríkis og
borgar vegna forréttindaskólans
munað um námsmöguleika.
Stjórnin „átelur fræðsluyfirvöld
ríkis og Reykjavíkurborgar fyrir
að stuðla að stofnun skóla fyrir
börn sem njóta þeirra forréttinga
að foreldrar þeirra geta greitt
aukalega fyrir þjónustu sem
öllum börnum á að standa til
boða endurgjaldslaust.“ ~ m
Sjá síðu 14
r
Aaukafundi í fræðsluráði
Reykjavíkurborgar í gær
urðu miklar umræður um nýja
einkagrunnskólann sem nú er far-
inn að auglýsa eftir kennurum til
starfa í haust. I bókun frá fulltrú-
um kennara í ráðinu sagði að ráð-
Stafanir menntamálaráðherra og
borgarstjóra til að stofna skólann
gangi í þveröfuga átt við grunn-
skólalög um sem jafnasta aðstöðu
til menntunar. „Það er enn sem
fyrr krafa kennara, nemenda og
foreldra að betur sé búið að
grunnskólum cn verið hefur“,
segja fulltrúarnir í bókun sinni:
„Því marki verður ekki náð með
stofnun einkaskóla fyrir fáa út-
valda“.
f bókun Gerðar Steinþórsdótt-
ur er talað um „ríkisrekinn klíku-
skóla“ sem muni auka á stétta-
skiptingu í borginni.
Þorbjörn Broddason segir í
sinni bókun að opinber kostnað-
ur við nýja skólann muni bætast
við þá kostnaðarliði sem fyrir eru
og verði opinbert fé til hans því í
raun tekið frá öðrum skólum í
borginni. „Þannig blasir nú þegar
við“, segir Þorbjörn, „að tilvist
Tjarnarskóla ein sér minnkar
svigrúm annarra skóla og verður
alger viðbótarbaggi á herðum
skattgreiðenda.“
í samþykkt stjórnar Kennara-
félags Reykjavíkur um málið
segir að stofnun skólans hafi
augljóslega í för með sér að nem-
endum grunnskóla verði mis-
júlí
1985
miðviku-
dagur
148. tölublað 50. órgangur
ÞJ0ÐV1UINN
ÞJÓPMÁL
MENNING
Orrustuflugvélin F-15 lendir á Keflavíkurflugvelli í gær. Ljósm.: E.ÓI.
Miðnesheiði
Vopnum
heilsað
Viðtakendur: Þóttust
vartfegurrifugl hafa
séð. HverF-15 vél
kostar milljarð
Hann má þola margt, spóinn
sem býr við flugbraut númer tutt-
ugu á Keflavíkurflugvelli. Þegar
máfurinn hafði hrellt hann
nokkra stund með atgangi í gær,
steyptu tvær F-15 orrustuflugvél-
ar sér yfir hann í fyrsta en líklega
ekki síðasta sinn.
Þetta voru hinar fyrstu af 18
nýjum orrustuflugvélum af þess-
ari gerð sem koma í stað 12 F4E
véla. Þessar munu vera
fullkomnari í öllum merkingum
þess orðs.
Það ríkti mikil gleði á herstöð-
inni í Keflavík í gær. Aðmírálar
og liðsforingjar héldu ræður og
þóttust vart fegurri fugl hafa séð.
Þetta væri stór dagur fyrir herinn,
„a great day at Keflavík" og þess-
ar vélar ættu eftir að verða stolt
bæði íslands og Amríku. Það þarf
varla að taka fram að þessar flug-
vélar geta borið kjarnorkuvopn
og ein flugvél mun kosta um það
bil miljarð íslenskra króna. Þær
hafa líka einkennisstafina ,,IS“ á
stélinu, sum sé merktar Islandi
sem er nýlunda á þessunt víg-
stöðvum.
- pv
Bandalag jafnaðarmanna
Allt uppíloft í BJ!
Harðar deilur á landsnefndarfundum. Óánægja með frjálshyggjuþingflokksins og linku. Skipulagður
andstöðuhópur með fundahöld
Pað voru harðar deilur á síð-
ustu tveimur landsnefndar-
fundum BJ og því er ekki að leyna
að það gætir vaxandi óánægju
með frjálshyggjublæ þingflokks-
ins og linkulega stjórnarandstöðu
hans á þingi, sagði einn úr and-
stöðuhóp innan BJ, sem hefur
verið myndaður vegna óánægju
með hægri blæinn á forystu
bandalagsins.
Þessi óánægja er nú farin að
birtast í vel skipulögðum funda-
höldum í lokuðum sal eins af
veitingahúsunum í miðborginni,
nú síðast í gær.
Tildrög þessa munu vera megn
andúð á þeim einhliða málflutn-
ingi sem forysta BJ hefur haft í
frammi, einkum ofurkappi henn-
ar á stjórnarskrárbreytingarnar.
„Þessa menn virðist fátt skipta
máli nema hvort það á að kjósa
forsætisráðherra beint eða ekki“,
sögðu viðmælendur Þjóðviljans.
A hinn bóginn þykir mönnum
sem heldur lítið fari fyrir sam-
stöðunni með hinunt vinnandi
stéttum af hálfu forystunnar, og
jafnframt þykir grasrótinni í
flokknum sem þingflokkurinn
hafi stigið fullmikið í vænginn við
stjórnarliðið á lokadögum þing-
haldsins.
Forsprakki og aðalhvatamaður
að andófsfundunum mun vera
Garðar Sverrisson, en hann er
jafnframt starfsmaður þing-
flokksins, sem sýnir hversu mikil
ástúð ríkir innan þess kærleiks-
heimilis. Aðrirþekktir BJ-menn í
hópnum eru Jónína Leósdóttir,
sem líka er starfsmaður BJ, Vald-
imar Unnar Valdimarsson, sagn-
fræðingur, Árni Sigurbjörnsson,
deildarstjóri, Guðni Baldursson,
viðskiptafræðingur, Porlákur
Helgason skólameistari Fjöl-
brautaskólansáSelfossi.Þorííemn
Einarsson verkfræðingur og
Kristján Jónsson sagnfræðingur.
„Við ætlum ekki að sitja að-
gerðarlaus hjá og horfa á BJ sigla
inní faðmlög fjármagnsaflanna í
Sjálfstæðisflokknum", sagði einn
úr andstöðuhópnum í gær.