Þjóðviljinn - 03.07.1985, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 03.07.1985, Blaðsíða 13
Ungtemplarareglan ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Spjallað við Halldór Kristjánsson í tilefni afaldarafmœli fyrstu stúkunnar í Reykjavík í dag Grundarfjörður 50 manns í Jóns- Það varð að samkomulagi, að Pjóðvilinn ætti viðtal við ein- hvern af fyrirmönnum templara í Reykjavík í tilefni þess að í dag eru rétt 100 ár liðin síðan fyrsta stúka templara var stofnuð í Reykjavík. Það var stúkan Verð- andi nr. 9, sem nú á hundrað ára feril að baki. Þingstúka Reykjavíkur er svæðissamband ' stúkumanna í Reykjavík formaður hennar er Halldór Kristjánsson. Hann svar- ar nú nokkrum spurningum. Hvaðan barst félagsskapur templara hingað? Góðtemplarareglan nam land á Akureyri. Það var norskur skósmiður, Ole Lied, sem stofn- aði þarstúkuna ísafold 10. janúar 1884 samkvæmt umboði frá stór- stúku Noregs. En meðal þeirra ísafoldarmanna voru tveir, sem höfðu kynnst reglunni í Skot- landi. Það voru þeir Björn Páls- son og Ásgeir Sigurðsson, sem lengi stjórnaði versluninni Edin- borg í Reykjavík. Stúkan ísafold sendi Björn Pálsson til Reykjavíkur og hann stofnaði stúkuna Verðandi nr. 9 með 33 mönnum 3. júlí 1885. Og þá urðu þáttaskil í menningarlífi höfuðstaðarins. Hvernig er það rökstutt? Þetta var í fyllingu tímans því að það var að myndast jarðvegur fyrir almenn félög. Stúkurnar voru fyrstu félög, sem alþýðu- menn tóku verulegan þátt í. Þarna sátu saman menn úr öllum stéttum, karlar og konur. Því sagði Gestur Pálsson, að reglan væri „til að þíða stéttaklakann kalda“, kenna í reynd að bræður erum við.“ Stúkurnar urðu félagsmála- skóli. Þá var talað um stúku- mælgi. Og út frá stúkunum mynduðust ýmis konar félög eins og Leikfélag Reykjavíkur og Glímufélagið Ármann. Svo má minna á það, að Sigurður Eiríks- son regluboði stofnaði jöfnum höndum stúkur og sjómannafé-- lög, Bárufélögin. Og eftir alda- mótin spruttu svo ungmennafé- lögin af þessari félagslegu vakn- ingu og þau bjuggu mjög að arfi frá templurum. Það tengist þessu margt annað en sjálft bindindisstarfið. En hvað um bindindismálið? Það má segja, að bindindis- boðun hafi átt upphaf sitt á ís- landi með Fjölnisbindindinu á fimmta tug aldarinnar. Það fjar- aði fljótt út, en þó var alltaf öðru hverju eftir það verið að stofna bindindisfélög. En það urðu auðvitað greinileg skil þegar bindindisfélög af alþjóðlegum tenglsum fóru að starfa í Reykja- vík. Ég held að Jón Ólafsson rit- stjóri og Indriði Einarsson hafi verið mestu áhrifamenn við að móta félagsskap templara hér á landi, en Ólafur Rósinkrans var tvímælalaust sá sem félagsstarf í Verðandi rnæddi mest á fyrstu áratugina. Og stúkurnar í Reykjavík áttu mikinn þátt í styrk og starfi bindindishreyfingu þjóðarinnar. Hvað hefur svo áunnist? Ég held að bindindisboðun í hundrað ár verði seint ofmetin. Þannig hafa ýmsir verið varðir fyrir því að byrja áfengisneyslu. Það er stundum spurt, hvað stúk- urnar geri fyrir vínhneigða menn. Hvers þurfa þeir? Þeir þurfa ♦~a» messu- gleði Unglingarnir böðuðu sig ísjónum um nóttina Alþýðubandalag Grundar- fjarðar gekkst fyrir sinni árlegu Jónsmessuhátíð 23. júní. Lagt var af stað frá Ásakaffi og ekið sem leið liggur til Sigurvins Bergssonar og konu hans Val- gerðar Haraldsdóttur, en þau búa að Krossnesi hér í sveit. Það- an var gengið undir þeirra leið- sögn að Krossnesvita og niður í Sandvík, þar sem unglingarnir Stjörnuljósin blika á Jónsmessunótt. Ölafur Guðmundsson Grundfirðingur útdeilir Ijósinu. Mynd: Rósant Egilsson. fengu sér sundsprett í köldum sjónum. Að því loknu voru grill- aðar pylsur, kveikt í flugeldum og alls kyns blysum, auk þess sem yngstu þátttakendurnir fengu stjörnuljós. Að þessu loknu var svo sest niður og sungið fram eftir kvöldi. Fólki í þessum ferðum fer stöðugt fjölgandi og í þessari ferð voru um 50 manns. Rósant. Halldór: Mörg rök til þess að íslensk bindindishreyfing eflist á komandi árum. bróðurlegt samfélag og áfengis- laust umhverfi. Þetta býðst þeim í stúkunum. Og þannig hafa þær mörgum hjálpað. Svo er í öðru lagi sú andlega fullnæging og lífsfylling, að vinna af heilum huga í góðum félags- skap. Og er ykkur nú bjart fyrir aug- um? Stundum svara menn já og nei eða bæði og. Útlitið er svart. Bindindissemi er lítil. Félög okk- ar hafa ekki endurnýjað sig eins og þarf síðustu árin. En nú virð- ist, sem krakkar 12-15 ára séu bindindissinnaðri en jafnaldrar þeirra fyrir nokkrum árum. Svo eru mörg jákvæð teikn víða um lönd. Þar má fyrst nefna nýbind- indið í bandaríkjunum. Það byrj- ar ekki beinlínis sem bindindis- hreyfing, heldur sem viðnám gegn ökuslysum og ölvun við akstur. En ætli maður að aka án ölvunar heim frá skemmtistaðnum heldur hann sér við óáfenga drykki. Þá er ekki annað rökrétt en að drekka skað- lausa drykki. Og það er bindindi. í öðru lagi má svo nefna þær tilraunir sem gerðar hafa verið á ýmsum stöðum til að bæta drykkjuvenjur fólks með því að auðvelda fólki aðgang að léttari tegundum svo sem áfengu öli. Þetta var líka svona á fyrri öld. Fyrsta viðnámið voru hófsemdar- félög, bjórfélög og þess háttar. Nú eins og þá munu menn átta sig á því, að slíkt er gagnslaust. Þessi mál hafa verið meira og betur athuguð síðustu ár, en nokkru sinni fyrr. Hér er frá mörgu að segja ef tími væri til. Aðalatriðið er það að nú vita þeir sem vilja vita að vandræði og tjón af áfengisneyslu stendur í föstu hlutfalli við það hvað drukkið er. Leiðin til betri tíma er því undir því komin, að minna og sjaldnar verði drukkið. Það næst með því, að þeim fjölgi sem aldrei hafa áfengi um hönd eða halda því að öðrum. Og það er eðlilegt að menn bindist félagsskap um þá lífsstefnu. Þannig eru mörg rök til þess að íslensk bindindishreyfing eflist á komandi árum. Mér virðist, að við getum nú tekið okkur í munn herhvöt Jóns Trausta: Heyrðu yfir höfin gjalla harmaslag hins nýja dags. Kenna í reynd að bræður erum við

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.