Þjóðviljinn - 03.07.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.07.1985, Blaðsíða 7
Um Ríkisútvarpið Ákvæðin um Ríkisútvarpið í nýju lögunum eru ummargt breytt frá þeim gömlu sem sett voru fyrir 14 árum. Veiga- mestu breytingarnareru á kaflanum um hlutverkstofn- unarinnar. Hérverðurekki lagt mat á þær breytingar en lesendum til glöggvunar birt- um við kaflann eins og hann varogeinsog hannverður þegar nýju lögin taka gildi. í gömlu lögunum segir svo um hlutverk Ríkisútvarpsins: „Ríkisútvarpið skal stuðla að almennri menningarþróun þjóð- arinnar og efla íslenska tungu. Það skal meðal annars flytja efni á sviði lista, bókmennta, vísinda og trúarbragða, efla alþýðu- menntun og veita fræðslu í ein- stökum greinum, þar á meðal umferðar- og slysavarnarmálum. Pað skal kappkosta að halda uppi rökræðum um hvers konar mál- efni, sem almenning varða, á þann hátt, að menn geti gert sér grein fyrir mismunandi skoðun- um um þau. Það skal halda uppi fréttaþjónustu og veita frétta- skýringar. Það skal flytja fjölþætt skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri. Útvarpsefni skal miða við fjölbreytni íslensks þjóðlífs, svo og við þarfir og óskir minni hluta og meiri hluta. Veita skal alla þá þjónustu, sem unnt er með tækni útvarpsins og almenn- ingi má að gagni koma. Ríkisút- varpið skal í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvall- arreglur. Það skal virða tjáning- arfrelsi og gæta fyllstu óhlut- drægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í opinberum málum, stofnunum, félögum og einstak- lingum.“ í nýju lögunum hljóðar sam- svarandi kafli þannig: „Ríkisútvarpið skal leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóðar- innar og menningararfleifð. Ríkisútvarpið skal halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Pað skal gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Ríkisútvarpið skal m.a. veita almenna fréttaþjón- ustu og vera vettvangur fyrir mis- munandi skoðanir á þeim málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða. Það skal flytja fjölbreytt skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri. Sérstak- lega skal þess gætt að hafa á boð- stólum fjölbreytt efni við hæfi barna, jafnt í hljóðvarpi og sjón- varpi. Ríkisútvarpið skal flytja efni m.a. á sviði lista og bók- mennta, vísinda og sögu auk tón- listar. Það skal veita almenna fræðslu og gera sjálfstæða dag- skrárþætti er snerta ísland og Is- lendinga sérstaklega. Útvarps- efni skal miða við fjölbreytni ís- lensks þjóðlífs. Veita skal alla þá þjónustu sem unnt er með tækni útvarpsins og þjóðinni má að gagni koma.“ Það sem kannski vekur mesta athygli í þessum kafla laganna er að ákvæðið um að útvarpið skuli miða efni sitt við „óskir og þarfir minni hluta og meiri hluta“ er fallið út. Skyldi það vera með ráðum gert? Útvarpsráð í kaflanum um útvarpsráð hafa orðið nokkrar breytingar. í báð- um útgáfum segir að ráðið skuli taka „ákvarðanir um hversu út- varpsefni skuli haga í höfuðdrátt- um“ en felld er brott viðbótin „og leggur fullnaðarsamþykkt á dag- skrá, áður en hún kemur til fram- kvæmda". Þess í stað koma orðin „innan marka fjárhagsáætlunar". Eins og í gömlu lögunum segir í þeim nýju að ákvarðanir ráðsins séu endanlegar en bætt er við málsgreininni „Útvarpsstjóri get- ur þó stöðvað gerð þegar sam- þykkts útvarpsefnis þyki sýnt að það reynist fjárhagslega ofviða". Aðrar breytingar eru litlar nema hvað stofnuninni er nú heimilt „að hafa samvinnu við aðra aðila um dagskrárgerð og útsendingar". Einnig skal að því stefnt að „koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og hljóðvarps í öllum kjördæmum landsins“. Hingað til hefur einungis verið rætt um landsfjórðunga. Loks er ákvæði um að útvarpinu sé skylt „að starfrækja fræðsluútvarp í samvinnu við fræðsluyfirvöld og skal veita til þess fé á fjárlögum“. -ÞH Fjölmiðlun Allt skal frjálst Nýju útvarpslögin eru ákaflega opin og óljós. Þess vegna veltur á miklu hvernig reglugerð Ragnhildursetur. Nýju útvarpslögin Ný útvarpslög uröu að veru- leika á síðustu dögum þings- ins nú í vor. Meðferð þeirra á Alþingi verður sennilega lengi í minnum höfð og einkenndist af miklum flýti og flaustri eins og Eiður Guðnason rakti ný- lega í ágætri grein í ákveðnu síðdegisblaði. Héráeftirverð- ur greint frá höfuðatriðum þessara laga og gerð tilraun til að rýna í einstök atriði. Eftir að hafa skilgreint hvað er útvarp segir í 2. grein að öðrum en Ríkisútvarpinu megi veita leyfi til útvarps. „Skal starfa sér- stök nefnd, útvarpsréttarnefnd, sem veitir slík leyfi... og fylgist með að reglum sé fylgt. Útvarpsréttarnefnd skipa sjö menn. Skulu þeir, ásamt jafn- mörgum varamönnum, kosnir hlutfallskosningu á Alþingi til fjögurra ára. Menntamála- ráðherra skipar formann og vara- formann úr hópi hinna kjörnu nefndarmanna.” Þetta er sami háttur og hafður er á við kjör í útvarpsráð. Nú er búið að gefa réttinn til útvarps frjálsan og þá vaknar spurningin hvort báðir njóti góðs af frelsinu, sendandinn og móttakandinn. Skilyrt svœðisútvarp f 3. grein segir að útvarps- réttarnefnd geti veitt „sveitar- félögum og öðrum lögaðilum tímabundið leyfi til útvarps fyrir almenning á afmörkuðum svæð- um.” Leyfi til svæðisútvarps (bæði sjónvarps og hljóðvarps) eru háð ýmsum almennum skil- yrðum og meðal þeirra eru eftir- farandi. Leyfin eru bundin við metra- og desimetrabylgjur og sér Póst- ur og sími um úthlutun senditíðna og segir fyrir um afl sendis. „Óheimilt er að veita er- lendum aðila leyfi til útvarps- rekstrar, né félagi eða stofnun þar sem eignarhlutdeild erlendra aðila er meiri en 10%.” Á þessu er þó undantekning hvað varðar útvarpsstöð hersins á Keflavíkur- flugvelli. „Útvarpsstöðvar skulu stuðla að almennri menningarþróun og efla íslenska tungu. Útvarps- stöðvar, er leyfi fá til útvarps, skulu í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallar- reglur. Þeim ber að virða tjáningarfrelsi og stuðla að því að fram komi í dagskrá rök fyrir mis- munandi skoðunum í umdeildum málum.” Einnig er ákvæði um að þeim sem telja tiltekna útvarps- stöð brjóta í bága við þetta skil- yrði og að þeim hafi verið synjað um að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í dagskránni geta lagt málið fyrir útvarpsréttarnefnd og kveður hún upp „eins fljótt og við verður komið” úrskurð sem er bindandi. Útvarpsstöðvum er skylt að lesa tilkynningar sem varða al- mannaheill og jafnvel rjúfa dag- skrá ef svo ber undir. Eftiriit með dagskrá „Útvarpsstöðvar, er fá leyfi til útvarps, skulu gera útvarps- réttarnefnd grein fyrir þeirri dag- skrárstefnu sem fyrirhuguð er.” Einnig ber að tilkynna ábyrgðar- mann stöðvarinnar og er hann ábyrgur fyrir efni stöðvanna fyrir lögum. Næst kemur klausa sem fáum hefur tekist að skilja, en hún hljóðar svo: „Óheimilt er að aðrir aðilar en sá, sem leyfi hefur til útvarpsrekstrar, kosti almenna dagskrárgerð þótt ekki gildi það um einstaka dagskrárliði.” Þarna mun vera átt við það að utanað- komandi aðili, td. stórfyrirtæki, megi ekki fjármagna alla Miðvikudagur 3. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.