Þjóðviljinn - 03.07.1985, Blaðsíða 15
Grand-Prix
Hohn var
of sterkur
Einar annar og
vann Petranoff
Einar Vilhjálmsson varð að
láta í minni pokann fyrir sjálfum
heimsmethafanum í spjótkasti,
Uwe Hohn, á Grand-Prix mótinu
í Stokkhólmi í gærkvöldi. Hohn
sigraði með glæsilegu kasti, 95,52
metra, en Einar varð í öðru sæti
með 89,32 metra.
Einar bar nú sigurorð af
Bandaríkjamanninum Tom
Petranoff, fyrrum heimsmethafa,
sem varð þriðji með 85,94 metra.
Finni var fjórði með 81,22 metra
og sænski methafinn Dag Wen-
lund fimmti með 80,12 metra.
Einar er áfram hæstur í stiga-
keppni Grand-Prix mótanna,
hefur 35 stig eftir fjögur mót.
Oddur Sigurðsson keppti í 400
m hlaupi og varð fimmti á 47,68
sekúndum. Mark Roe frá Banda-
ríkjunum sigraði, hljóp á 45,56
sek.__________________—VS
Frjálsar
íslantísmet
Svanhildar
Svanhildur Kristjónsdóttir,
Breiðabliki, setti í gærkvöidi nýtt ís-
landsmet í 200 m hlaupi kvenna á móti
í Óðinsvéum í Danmörku. Hún bætti
fjögurra ára gamalt met Oddnýjar
Arnadóttur um 3/io úr sekúndu, hljóp
á 24,3 sekúndum og sigraði í
hlaupinu.
Aðalsteinn Bernharðsson, UMSE,
stóð sig vel og sigraði í þremur grein-
um. Hljóp 100 metra á 10,7 sek, 200
metra á 21,4 og 400 metra á 47,7 sek-
úndum. Unnar Vilhjálmsson sigraði í
hástökki með 2,05 metra og Valdís
Hallgrímsdóttir í 400 m hlaupi
kvenna á 57,4 sek. Þá urðu íslenskar
stúlkur sigursælar í kastgreinunum en
náðu ekki sérstökum árangri þrátt
fyrir það. _VS
★★★★★★★★★★★★★★★★
Stjörnuliðið
Valþór
nýliði
Guðmundur Torfa-
son inn á nýjan leik
Guðmundur Torfason, Fram,
og Valþór Sigþórsson, ÍBK, koma
inní Stjörnulið Þjóðviljans eftir 8.
umferð 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu. Guðmundur vinnur sig
inn á ný, á kostnað Inga Björns
Albertssonar, en Valþór er í lið-
inu í fyrsta sinn, í stað Hálfdáns
Örlygssonar.
í Stjörnuliðinu eru jafnan þeir
11 leikmenn sem flestar stjörnu
hafa hlotið í stjörnugjöf Þjóðvilj-
ans fyrir einstaka leiki. Liðið lítur
þá þannig út, stjörnufjöldi í svig-
um:
Markvörður:
Halldór Halldórsson, FH (9)
Varnarmenn:
Guðjón Þórðarson, (A (10)
Guðni Bergsson, Val (9)
Freyr Sverrisson, (BK (8)
Valþór Sigþórsson, (BK (7)
Tengiliðir:
Árni Sveinsson, (A (8)
Ómar Torfason, Fram (12)
Siguróli Kristjánsson, Þór (10)
Framherjar:
Ragnar Margeirsson, ÍBK (12)
Guðmundur Steinsson, Fram (9)
Guðmundur Torfason, Fram (7)
Ragnar er því í fyrsta sinn í
sumar ekki einn með flestar
stjörnur, Ómar Torfason hefur
náð honum.
-VS -
ÍÞRÓTTIR
Hörður Jóhannesson skorar fyrsta mark sitt og Skagamanna á KR-vellinum í gærkvöldi, minnkar muninn í 2-1. Þrír
KR-ingar fá ekki rönd við reist og þeir réðu ekki við Hörð í leiknum því hann skoraði þrjú marka ÍA. Mynd.: E.ÓI.
Bikarinn
Þrenna Harðar
Sveiflukenndur baráttuleikur á KR-vellinum, KR komstí2-0
en ÍA vann 5-3 eftirframlengingu. KR jafnaði3-3 á síðustu
mínútu. Bikarmeistararnir í8-liða úrslit.
Það var sannkallaður bikar-
leikur á KR-vellinum í gærkvöldi.
Gífurieg barátta og harka og ann-
ars ágætur dómari þessa erfiða
leiks, Sveinn Sveinsson, leyfði
mönnum að komast upp með full
mikla hörku og röfl. Bikarmeist-
arar síðustu þriggja ára, Skaga-
menn, hófu bikarvörnina með því
að ieggja KR-inga að velli 5-3
eftir framlengdan leik!
KR-ingar voru betri í upphafi
og eftir 15 mínútna leik náðu þeir
forystunni með mark Willums
Þórssonar eftir að Birkir mark-
vörður Kristinsson hafði ekki
haldið skoti Sæbjarnar Guð-
mundssonar. KR-ingar héldu
áfram að sækja ívið meira og
náðu tveggja marka forystu eftir
30 mínútur - Ásbjörn Björnsson
skallaði í mark eftir hornspyrnu.
Þá fyrst fóru Skagamenn að sýna
hvað í þeim býr og þeir pressuðu
stíft það sem eftir var hálfleiks. Á
41. mín. náðu þeir að minnka
muninn og það var Hörður Jó-
hannesson sem skoraði fallegt
mark eftir laglegt spil.
Skagamenn hófu seinni hálf-
leik með mikilli sókn og pressuðu
ákaft. En þeir voru þó heppnir að
Birni Rafnssyni skyldi ekki takast
að skora eftir mikil mistök í
Skagavörninni en þá skaut hann
framhjá eftir að hafa komist
framhjá Birki markverði. Það var
síðan á 62. mín. sem Hörður jafn-
ar með mjög fallegu skallamarki
eftir sendingu Árna Sveinssonar,
2-2. Þá komu KR-ingar aftur
meirainníleikinnená75. mín. er
dæmd vítaspyrna á KR, nokkuð
hæpinn dómur, eftir að Hörður
var felldur í vítateigshorni. Júlíus
Ingólfsson skoraði örugglega, 2-
3. Þær 15 mín. sem eftir voru
pressuðu KR-ingar og lögðu allt í
sölurnar til að jafna. Það var ekki
fyrr en á 90. mínútu, þeirri síð-
ustu, sem það tókst - Hálfdán
Örlygsson átti langa sendingu
fyrir markið og Stefán Pétursson
skallaði í netið, 3-3. Framlenging
tók við.
Hún hafði ekki varað nema í 4
mínútur þegar Sveinbjörn Há-
konarson slapp í gegnum KR-
vörnina og skoraði örugglega, 3-
4. Við þetta virtust KR-ingar
missa vonina og Skagamenn voru
allan tímann sem eftir var mun
harðari á boltann og nær því að
bæta við en KR að jafna. Það var
síðan á næst síðustu mínútu fram-
lengingarinnar, 119. mínútu
leiksins, sem Hörður gulltryggði
sigur ÍA með fallegu skoti af
markteig. 3-5 og Hörður með
þrennu.
Karl Þórðarson, Sveinbjörn og
Hörður voru bestir Skagamanna
sem sýndu mikla baráttu en Sæ-
björn, Júlíus Þorfinnsson og
Hálfdán sýndu bestan leik KR-
mga
-pv
Hafsteinn
láðinn!
Hafsteinn Tómasson hefur tekið við
þjálfarastöðunni hjá X. deildarliði
Víkings í knattspyrnu og stjórnaði
hann fyrstu æfingunni sinni í gær-
kvöldi. Hann tekur við af Birni Arna-
syni en mikil misklíð var búin að eiga
sér stað innan félagsins áður en af
þessu varð.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um Þjóðviljans frétti Björn ekki af
þessu fyrr en hann las eitt dagblað-
anna í gærmorgun en leikmönnum
var tilkynnt þessi ákvörðun stjórnar-
innar í fyrrakvöld. Leikmenn höfðu á
fundi um helgina ákveðið að standa
við bakið á Birni en munu, að því er
Þjóðviljinn hermdi í gærkvöldi, samt
sætta sig fyllilega við nýja þjálfarann.
-VS
Bikarinn
Fjörugt í Sandgerði
Reynir komst í 2-0 og 3-2 en Þór vann að lokum
Þórsarar frá Akureyri máttu hafa
fyrir því að komast í 8-liða úrslit bik-
arkeppninnar í knattspyrnu - þeir
sigruðu Reyni 5-3 í Sandgerði í fjör-
ugum og spennandi leik í gærkvöldi.
3. deildarliðið var óvænt komið í
2-0 eftir 17 mínútur. Á 13. mín. tók
Þórður Þorkelsson aukaspyrnu,
Baldvin Guðmundsson markvörður
Þórs hélt ekki skoti hans og Ari
Haukur Arason skoraði af stuttu færi.
Á 17. mín. lék Þórður Ólafsson að
endamörkum og sendi fyrir Þórs-
markið, Sigurður Guðnason kom á
fleygiferð og þrumaði í netið, 2-0.
En Þórsarar svöruðu strax á næstu
mínútu. Jónas Róbertsson var felldur
í vítateig Reynis og skoraði sjálfur úr
vítaspyrnunni, 2-1. Fyrri hálfleikur
var jafn og mátti vart á milli sjá.
Þórsarar náðu góðum tökum á
leiknum eftir hlé og á 50. mínútu jafn-
aði Kristján Kristjánsson með óverj-
andi lágskoti eftir varnarmistök
Sandgerðinga. En heimamenn gáfust
ekki upp, strax á næstu mínútu gaf
Pétur Brynjarsson á Sigurð sem lék á
Baldvin og skoraði sitt annað mark,
3-2.
Á 59. mínútu jöfnuðu svo Þórsarar
og það var búið að liggja í loftinu.
Oskar Gunnarsson tók aukaspyrnu
og Siguróli Kristjánsson skallaði í
netið, 3-3. Nú voru Þórsarar komnir
með undirtökin og á 69, mín. fékk
Kristján boltann óvænt eftir varn-
armistök Reynismanna og skoraði,3-
4. Fimm mínútum fyrir leikslok gaf
svo Siguróli á Jónas sem gerði sitt
annað mark og tryggði Þór endanlega
sæti í 8-iiða úrslitunum, 3-5.
Fjörugur og skemmtilegur leikur
og góð frammistaða Reynismanna.
Skúli Jónsson markvörður var besti
maður vallarins og Sigurður og Júlíus
Jónsson léku einnig vel. Jónas, Sigur-
óli og Kristján voru bestir Þórsara.
Ragnar Örn Pétursson dæmdi leikinn
mjög vel.
-ÞBM/Suðurnesjum
Bikarinn
Víðir þurfti vítakeppni
Árvakur nálœgtsigrigegn 1. deildarliðinu
Það var án efa erfitt fyrir ókunnug-
an að skera úr um hvort Árvakur eða
Víðir léki í 1. deild ef dæma átti eftir
leik liðanna í 16-liða úrslitum bikar-
keppninnar í gærkvöldi. Árvakur,
sem leikur í 4. deild, stóð fyllilega
uppi í hárinu á Garðsliðinu en varð að
lúta í lægra haldi, 3-5, eftir vitakepp-
ni.
Haukur Arason fékk fyrsta fætið, á
8. mínútu, og skaut þá framhjá marki
Víðis. Einar Ásbjörn átti tvö góð skot
að marki Árvakurs, framhjá og varið,
áður en hann hvarf meiddur af velli á
23. mín.
Árvakur tók forystu á 25. mínútu.
Skyndisókn, stungusending á Árna
Guðmundsson sem skoraði laglega,
1-0. Víðismenn sóttu mjög eftir
markið, en náðu ekki að skapa sér
hættuleg færi fyrir hlé.
Víðismenn efldust eftir hlé en leik-
menn Árvakurs börðust fyrir sínu og
áttu mörg skyndiupphlaup með
Ragnar Hermannsson fremstan í
flokki. Á 75. mín. fékk Víðir horn-
spyrnu og Rúnar Georgsson potaði
boltanum í netið eftir að bjargað
hafði verið á línu, 1-1. Ragnar komst
síðan einn innfyrir Víðisvörnina
þremur mínútum fyrir leikslok en
Gísli Heiðarsson markvörður Víðis
bjargaði glæsilega.
Framlengingin einkenndist af
miðjuþófi, Árvakur fékk besta færið í
síðari hlutanum en Ragnar lét Gísla
verja frá sér. Víðir vann síðan víta-
keppnina - Árvakur úr leik eftir
hetjulega frammistöðu.
Leikmenn Árvakurs voru rnjög
frískir, fljótir og mun sneggri í öllum
sínum aðgerðum en Víðismenn.
Ragnar Hermannsson, Ólafur Ólafs-
son og Lárentínus Ágústsson mark-
vörður voru bestir hjá 4. deildarlið-
inu. Hjá Víði var Gísli markvörður
langbestur og einnig léku Guðjón
Guðmundsson, Gísli Eyjólfsson og
Rúnar Gerogsson þokkalega. Gísli
Guðmundsson dæmdi vel.
- hs
Miðvikudagur 3. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15