Þjóðviljinn - 03.07.1985, Side 3

Þjóðviljinn - 03.07.1985, Side 3
Vestfirðir Frystihús í vítahring Mannekla veldur lélegri afkomufiskvinnslunnar á Vestfjörðum. Neyðast til að vinnafiskinn í ódýrar og fljótunnarpakkningar. Uttektþjóðhagsstofnunar ekki kynnt Vestfirðingum Íúttekt sem Þjóðhagsstofnun hefur gert á stöðu og rekstri frystihúsa kemur fram að á Vest- fjörðum er staða þeirra 3-4% lak- ari en hjá öðrum frystihúsum á landinu að meðaltali í fyrra og þótt munurinn hafi eitthvað minnkað það sem af er þessu ári hafa þau ekki náð landsmeðaltali. Af úttektinni má sjá að afkoma vestfirsku frystihúsanna hefur versnað frá árinu 1983 en þá var hún ívið betri en afkoma annarra frystihúsa í landinu. Ástæðan fyrir þessum aftur- kipp á Vestfjörðum er m.a. sú að þar hefur verið skortur á vinnu- afli í frystihúsunum. Þar af leiðandi hafa húsin neyðst til að pakka fiskinum í fljótunnustu pakkningarnar sem eru um leið þær ódýrustu. Stuttu fyrir þingslit í vor vakti Kjartan Ólafsson varaþingmaður Alþýðubandalagsins athvgli á þessu ástandi í þingræðu. fræðu hans kom fram að á Hnífsdal varð fyrir nokkru að vinna 150 tonna togarafarm í ódýrustu pakkning-l ar vegna manneklu í frystihúsinu. Verðmæti þessa farms varð 3,5 milljónir króna sem rétt sleppur fyrir vinnslukostnaðinum. Með nægum mannafla hefði mátt pakka fiskinum í dýrari pakkn- ingar og auka verðmæti hans um 60% eða í 5,6 miljónir. Aðalá- stæðuna fýrir manneklunni taldi Kjartan vera lág laun fiskvinnslu- fólks. Bágur rekstrargrundvöllur frystihúsanna gerir þeim ókleift að greiða hærri laun og þar með komast þau í vítahring sem erfitt er að losna úr. Þjóðviljinn reyndi að kanna viðbrögð vestfirskra frystihúsaf- orkólfa við úttekt Þjóðhagsstofn- unar en þeir vildu ekki segja neitt vegna þess að þeir höfðu ekki fengið hana í hendur. „Það er eins og okkur komi þetta ekki við,“ sagði Jón Páll Halldórsson framkvæmdastjóri Norðurtang- ans á ísafirði þegar Þjóðviljinn leitaði álits hans. -ÞH Sjá leiðara. Allt fast Við erum enn í setuverkfallinu Það er allt fast. Þeir vilja ekki semja við okkur. Þetta sagði Guðlaug Vagnsdóttir, Þingeyri, þegar Þjóðviljinn ræddi við hana seint í gærkvöldi. En konur í fisk- vinnslunni hafa verið í setuverk- falli útaf refsibónus, frá því 25. júní. „Við viljum ekki láta brjóta á okkur" sagði Guðlaug. „Við vilj- um fara að vinna, en ekki nema bónusinn verði afnumin". Hún sagði að Sigurður Auðunsson frá Vinnumálasambandinu hefði rætt við þær en „hann má ekki semja. Meðan bíðum við bara“. -ÖS Vinnudagur fjölskyldunnar Vinnuskólinn í Kópavogi ásamt tómstundaráði gangast fyrir vinnudegi fjölskyldunar á morg- un fimmtudaginn 4. júlí. Markmiðið er að fá alla Kópa- vogsbúa til að taka þátt í snyrt- ingu bæjarins ásamt unglingum í Vinnuskólanum, einn eftirmið- dag, undir stjórn flokksstjóra Vinnuskólans. Um kvöldið verður bæjarbú- um sem tóku þátt í hreinsuninni boðið í félagsmiðstöðina Agnar- ögn við Fögrubrekku, þar sem verður grillað og tekin létt spor. Bæjarbuar eru beðnir um að mæta á eftirtalda staði á morgun kl. 17 með eigin verkfæri. 1. Vesturbær: Kársnesskóli, Rútstún, Hlégerði. 2. Miðbær: Kópavogsskóli Hlíðargarður Leikskólinn við Bjarghólastíg 3. Austurbær: Digranesskóli Hjallaskóli Snælandsskóli Hólmagarður. “SP- Millisvœðamntið Margeir með peð yfir gegn Jansa Millisvæðamótið í skák sem Margeir Pétursson teflir nú á í Biel í Sviss hófst á mánudag og tefldi hann í fyrstu umferð á móti stigahæsta manni mótsins, so- véska stórmeistaranum Vaganj- an. Skákin fór tvisvar í bið og hefur Margeir lakari stöðu, peð undir. f gærkvöldi tefldi Margeir svo við tékkneska stórmeistarann Jansa og fór sú skák einnig í bið en Margeir hafði peði yfir og veika vinningsvon. Alls taka 18 stórmeistarar og alþjóðlegir meistarar þátt í mót- inu og eftir tvær umferðir var mikill fjöldi biðskáka. Tveir skákmenn höfðu þó unnið báðar sínar skákir. Þeir eru Gutmann frá ísrael og Ljubojevic frá Júg- óslavíu. -GFr AB ísbjörninn heimsóttur I dag og næstu daga munu for- ystumenn úr Alþýðubandalaginu í Rcykjavík heimsækja fískiðju- ver í höfuðborginni. Fyrir hádegi í dag munu þeir Svavar Gestsson og Sigurjón Pétursson heimsækja Isbjörninn. # W W W m ^ * * yt W v W W JL JLr W tr * ir w ★ ★ ★ *+*i * * * * * Gleði og stolt einkenndu móttökuathöfnina í Keflavík, þegar nýjustu tækjum flugflotans var fagnað. Ljósm. E.ÓI. Hjónagarðar Hundsa hækkunina Óskar Sigurðsson íbúi Hjónagarða: Greiðum ekki hœkkunina. Viljum jákvœð samskipti við FS Eins og komið hefur fram i frétt Þjóðviljans síðastliðinn laugar- dag standa Félagsstofnun stú- denta og stúdentar í hörðum deilum vegna hækkunar húsa- leigu á hjónagörðum. Félagsstofnun stúdenta sendi þeim stúdentum uppsagnarbréf sem skulduðu húsaleigu og var uppsagnarfresturinn 7 dagar. í dagblaðinu í gær kemur fram að einhverjir stúdentar væru bún- ir að greiða húsaleiguna fyrir júní og hafði Þjóðviljinn samband við Oskar Sigurðsson en hann er einn ábúandi hjónagarða og spurði hann hver staðan væri. „Við gerðum með okkur sam- komulag um að hundsa hækkun- ina og greiða einungis 4000 krón- ur fyrir júní mánuðinn. Við telj- um hækkunina óraunhæfa, ef ekki verður hægt að komast að samkomulagi um lægri greiðslu ætla ég og reyndar fleiri að flytja út.“ -sp Lax Rokveiði í net - dauft á stöng Elliðaár og Langá á Mýrum skástar. Búist er við smálaxagöngum í Það hefur verið rokveiði í net að undanförnu en stangveiði í ám hefur verið dræm. Þó sæmileg í Elliðaám og Langá á Mýrum, sagði Þór Guðjónsson veiðimála- stjóri við Þjóðviljann í gær. Þór sagði ástæðuna vera þá, að lítið er um stærri lax og lítið vatn er í ánum. Srnálax, það er lax, sumar sem aðeins hefur verið eitt ár í sjó er aðeins byrjaður að ganga og Þór sagðist búast við heldur meiri smálaxagöngu í ár en verið hefur undanfarin ár, því í þeim ám sem veiðimálastofnun hefur vitneskju um var góð seiðagengd til sjávar í fyrra. Verði sú raunin, má búast við að laxveiði verði allvæn næsta sumar og meira um stærri lax. Nokkur von virðist um að veiðin í ár fari að glæðast, því nú veiðist mjög vel í net í Borgar- fjarðarám og mokveiði hefur ver- ið í Hvítá í kjölfar stórstraums. -gg Miðvikudagur 3. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Kvöldferð um Laugames Á fímmtudagskvöldið fer Nátt- úruverndarfélag Suðvesturlands kynnisferð um land Laugarness, en það náði áður fyrr frá Sundum suður í Fossvogsdal. Farið verður frá Norræna hús- inu kl. 20.00 og Náttúrugripa- safninu Hverfisgötu 116 (gegn Lögreglustöðinni) kl. 20.15. Ekið verður suður í Skógræktar- stöð, hún skoðuð og gengið um Fossvogsdal ef veður leyfir. Það- an ekið yfir í Laugardal og grasa- garðurinn skoðaður. Úr Laugar- dalnum verður ekið út á Köllun- arklett, þaðan að Laugarnes- bænum en við hann og út á Laugarnestöngum eru merkar mannvistarminjar. Þar lýkur ferðinni. Fargjald verður 150 kr, frítt fyrir börn. Leiðsögumenn verða Þorleifur Einarsson jarðfræðingur, Guð- laugur R. Guðmundsson sagn- fræðingur, Vilhjálmur Sigtryggs- son forstöðumaður Skógrækt- arfélags Reykjavíkur og Sigurður Albert Jónsson forstöðumaður Grasagarðsins, Guðmundur Ól- afsson fornleifafræðingur, og Bjarni Vilhjálmsson fyrrverandi Þjóðskjalavörður. Fararstjóri verður Ólafur H. Óskarsson landfræðingur.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.