Þjóðviljinn - 03.07.1985, Page 5
StraxeftirþingslitinhittistþingflokkurABtilundirbúningssumarstarfsinsogtókValdísþessamyndviðþaðtækifæri.Frá vinstri: Steingrímur J. Sigfússon, Garðar Sigurðsson, Helgi Seljan, Kjartan
Ólafsson, sem sat inni á þinginu síðustu vikunafyrirGuðrúnu Helgadóttur, Ragnar Arnalds, Guðrún Helgadóttir, Skúli Alexandersson, Hjörleifur Guttormsson og Svavar Gestsson. Guðmundur J.
Guðmundsson var ekki viðstaddur myndatökuna.
Pingmenn AB
Fluttu 125 mál inn í þingið
Annasömuþingi lokið. 8þingsályktanir ogfrumvörp AB voru samþykkt.
Mörgstórmál AB vorufelld, önnur bíða nœstaþings.
Þó margt hafi verið skrafað og
skrifað um þingstörfin s.l. vetur,
þá verður að viðurkennast að
mörg ágæt mál hafa fallið í skugg-
ann af bjórnum og útvarpinu að
ógleymdri málasúpunni sem rík-
isstjórnin hellti yfir þing og þjóð
síðustu þingvikurnar. Þingmenn
Alþýðubandalagsins fluttu t.a.m.
125 mál á nýafloknu þingi: 20
lagafrumvörp, 34 þingsályktun-
artillögur og 71 fyrirspurn. Að
auki voru þingmenn AB
meðflutningsmenn á fjölmörgum
málum, sem fulltrúar annarra
flokka báru fram.
Það er svo dæmigert fyrir störf
alþingis að einungis 14 mál af
þingsályktununum og frumvörp-
unum 54 hlutu afgeiðslu, en fyrir-
spurnum var öllum svarað, svo
sem skylt er. Hin málin 40 urðu
ýmist innlyksa í nefndum eða
voru sett útí kuldann síðustu
þingdagana. Verða mörg þeirra
efalítið flutt aftur á næsta þingi.
Réttarbætur fyrir
ekkjur, ekkla og
heimavinnandi
Tvö lagafrumvörp Alþýðu-
bandalagsmanna voru samþykkt
og tilheyra bæði félagsmálum.
Breyting á erfðalögum var flutt af
Guðrúnu Helgadóttur og fleirum
þannig að eftirlifandi maki ætti
alltaf rétt til að sitja á heimili
sínu, þó öðrum eignum búsins
væri skipt. í endanlegri mynd er
breytingin fólgin í því að eftirlif-
andi maki hefur nú heimild til að
halda heimili sínu utan skipta
enda sé ákvæði þar um í gagn-
kvæmri erfðaskrá. Þessi heimild
bindur þó ekki stjúpbörn,- þau
geta eftir sem áður krafist skipta
á búinu öllu, þó erfðaskrá kveði á
um annað.
Breyting á alniannatrygginga-
lögum var borin fram af Helga
Seljan og fleirum, þannig að
heimavinnandi fólk fái fulla
sjúkradagpeninga í stað fjórð-
ungs. í endanlegri mynd voru
sjúkradagpeningar heimavinn-
andi hækkaðir í helming og heim-
ild veitt til að greiða meira eftir
þvf hver kostnaður við heimilis-
hjálp er.
í þessum málum báðum eru
fólgnar miklar réttarbætur fyrir
þá sem í hlut eiga, þó löggjafinn
hafi reyndar gengið mun
skemmra í þá átt en tillögumenn
gerðu ráð fyrir.
Sex þingsályktanir
AB samþykktar
Alþingi samþykkti 6 þings-
ályktunartillögur sem þingmenn
AB báru fram.
Geir Gunnarsson var fyrsti
flutningsmaður tillögu um könn-
un á möguleikum á skóg- og trjá-
rækt á Suðurnesjum, sem m.a.
felur í sér að Skógrækt ríkisins
verði falið að leita eftir samning-
um við sveitarfélög og félagasam-
tök þar syðra um sérstakt átak til
trjáræktar þar sem aðstæður eru
bestar.
Þá var samþykkt þingsályktun
að tillögu Hjörleifs Guttorms-
sonar um eftlrlit með umsvifum
erlendra sendiráða hér á landi, og
utanríkisráðuneyti falið að ann-
ast það. Einnig var samþykkt
þingsályktunartillaga frá þeim
Hjörleifi og Helga Seljan um
áætlun til úrbóta í mengun frá
fiskimjölverksmiðjum, en því
hafnað sem þeir gerðu tillögu um
að strax á þessu ári verði veitt
verulegu fjármagni í því skyni.
Helgi Seljan flutti tillögu um
betra skipulag á þjónustu vegna
tannréttinga úti um land en Ellert
Schram fékk því framgengt að
orðin „úti um land“ voru felld
niður. Þannig var tillagan sam-
þykkt, en ljóst er að við fram-
kvæmd hennar hlýtur sérstaklega
að vera tekið tillit til landsbyggð-
arinnar þar sem þessi þjónusta er
nær engin.
Þá var samþykkt tillaga frá
Steingrími J. Sigfússyni um átak
til að bæta merkingar akvega og
setja upp aðvaranir við hættu-
legar ökuleiðir á hálendinu, þar
sem þær vantar eða eru ófull-
nægjandi.
Loks var samþykkt tillaga frá
þeim Helga Seljan og Geir Gunn-
arssyni um tölvunámskeið fyrir
fatlaða og var félagsmálaráðu-
neyti falin framkvæmd og skipu-
lagning þeirra.
Tvær þingsályktunartillögur
AB voru felldar. Vantrauststil-
laga á ríkisstjórnina sem flokkur-
inn flutti í kjölfar BSRB-
verkfallsins s.l. haust var felld en
fyrsti flutningsmaður var Svavar
Gestsson. Tillaga um að falla frá
byggingu bandarískra ratsjár-
stöðva fyrir norðan og austan var
einnig felld en fyrsti flutnings-
maður hennar var Steingrímur J.
Sigfússon.
Fiskverkunarfólki
neitað um
sjálfsögð
mannréttindi
Þremur lagafrumvörpum AB
var hafnað og þeim vísað til ríkis-
stjórnarinnar. Fyrst skal frægan
telja þann atburð er stjórnarliðar
höfnuðu frumvarpi Guðmundar
J. Guðmundssonar og fleiri um
uppsagnarfrest til handa fisk-
verkunarfólki. Frumvarpið gerði
ráð fyrir að heimild atvinnurek-
enda til að senda starfsmenn í
launalaust starfshlé vegna hrá-
efnisskorts væri þrengd verulega.
Þá var hafnað frumvarpi Hjör-
leifs Guttormssonar um íög-
verndun á starfsheiti kennara, en
sem kunnugt er hefur mennta-
málaráðherra þráskallast við að
leggja fram slíkt frumvarp í allan
vetur. Röksemd stjórnar-
flokkanna var að kennarar vildu
bara þrengja aðgang að kennara-
starfinu og því voru þeir and-
snúnir.
Loks var hafnað frumvarpi
Guðrúnar Helgadóttur og fleiri
um að skilyrði fyrir leyfi til bygg-
ingar opinberra stofnana og at-
vinnufyrirtækja væri að gengið
yrði frá lóðum svo fljótt sem unnt
væri og teikningum skilað af lóð-
um jafnt og húsum til bygginga-
nefndar.
Rekstrarvanda
sjávarútvegs vísað
til föðurhúsanna
Tillögu allra þingmanna AB
um kosningu þingnefndar vegna
rekstrarvandans í sjávarútvegin-
um var einnig hafnað og vísað til
ríkisstjórnarinnar. Tillagan gerði
m.a. ráð fyrir að nefnd sjö þing-
manna gerði fyrir næsta haust
smanburð á rekstrarskilyrðum
útgerðar og fiskvinnslu hér á
landi og í samkeppnislöndunum,
svo sem olíuverði, orkuverði,
viðhalds- og þjónustukostnaði,
fjármagnskostnaði, flutnings-
kostnaði útflutningsafurða,
launakostnaði f veiðum og
vinnslu og ríkisstyrkjum.
Bann við
kjarnorkuvopnum
náði fram
Þá eru talin þau 14 mál sem
hlutu einhverja formlega af-
greiðslu á þinginu en sem dæmi
um mál sem ekki var afgeitt sem
slíkt, en bar tilætlaðan árangur
engu að síður má nefna þings-
ályktunartillögu Guðrúnar
Helgadóttur og fleiri um bann við
geymslu og notkun kjarnorku-
vopna á íslensku yfirráðasvæði. í
tillögunni var gert ráð fyrir að
undirbúin yrði löggjöf um bann
við geymslu og notkun á hvers
konar kjarnorkuvopnum hér á
landi, jafnt á tímum friðar sem
ófriðar. Bannið skyldi einnig ná
Framhald á bls. 6
Miðvikudagur 3. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5