Þjóðviljinn - 03.07.1985, Síða 6
Heilbrigðisfulltrúi
Staða heilbrigðisfulltrúa fyrir Suðurnesjasvæði er laus
til umsóknar. Um laun fer samkvæmt kjarasamningi
við Starfsmannafélag Suöurnesjabyggða. Staðan
veitist frá 01. september n.k.
Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði reglugerðar nr.
150/1983 um menntun, réttindi og skyldur heilbrigðis-
fulltrúa.
Umsókn ásamt ítarlegum gögnum um menntun og
fyrri störf sendist fyrir 25. júlí n.k. til:
Jóhanns Ág. Sigurðssonar,
héraðslæknis Reykjaneshéraðs,
Heilsugæslu Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10
220 Hafnarfjörður.
Kennarar
2-3 kennara vantar að Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
næsta skólaár. Æskilegar kennslugreinar: eðlisfræði,
stærðfræði, handmennt pilta, myndmennt, tónmennt
og fleira. Ennfremur kennsla yngri bekkjadeilda.
Nýtt skólahús - gott ódýrt húsnæði rétt við
skólann.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-5159.
aair,
<Of Laus staða
Staða fiskmatsstjóra við Ríkismat sjávarafurða er laus
til umsóknar. Staðan verður veitt frá 1. ágúst n.k.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist Sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 20.
júlí 1985.
Sjávarútvegsráðuneytið,
1. júlí 1985.
DALVIKURSKDLI
Frá Dalvíkurskóla
Ennþá eru lausar til umsóknar kennarastöður við
Dalvíkurskóla. Kennslugreinar eru m.a. íslenska,
enska, danska og eðlisfræði í 7.-9. bekk.
Einnig vantar íþróttakennara við skólann.
Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast hafi samband við
Kristján Aðalsteinsson skólastjóra í síma 96-61665.
Skólanefnd
Egilsstaðir
Sjúkrahús/Heilsugæslustöð Egilsstöðum auglýsir
eftirtaldar stöður lausar til umsóknar.
- 3 stöður hjúkrunarfræðinga frá 1. september.
- 2 stöður sjúkraliða frá 1. september.
- Staða forstöðumanns í eldhúsi frá 1. ágúst
- staða sjúkraþjálfara.
- staða meinatæknis.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hjúkrunarforstjóri sjúkrahúss s. 97-1631 og 97-1400
Framkvæmdastjóri: s. 97-1386
Yfirlæknir: s. 97-1400
n Frá Skólaskrifstofu
^57 Kópavogs.
Starfsfólk óskast við grunnskóla Kópavogs.
1. Starf húsvarðar, fullt starf.
2. Starf skólaritara, hlutastarf.
3. Starf ritara á Skólaskrifstofu, fullt starf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Skólaskrifstofu
Kópavogs, Digranesvegi 12.
Þangað skal senda umsóknir fyrir 12. júlí n.k. Ofan-
greind störf veitast frá 15. ágúst n.k.
Skólaf ulltrúi
Auglýsið í Þjóðviljanum
ÞJÓÐMÁL
Vímugjafar
Engin
samstaða í ríkisstjóm
Tillögur stjórnskipaörar nefndar um stefnumörkun í áfengis-
og vímuefnamálum verða ekkiframkvœmdar
Vegna ágreinings í ríkis-
stjórninni hefur ekki verið
tekin nein afstaða til tiliagna
sem sérstök stjórnskipuð
nefnd sem marka átti stefnu í
áfengismálum hefur sett fram.
Þeim verður því ekki hrint (
framkvæmd. Þetta kom fram í
svari heilbrigðisráðherra við
fyrirspurn Helga Seljan um
hvað liði störfum nefndarinnar
og framkvæmd á tillögum
hennar.
Nefndin, sem skipuð var 1983
hefur skilað tvennum tillögum;
annars vegar um sérstakar ráð-
stafanir í áfengismálum í nóvem-
ber 1983 og hins vegar í vímuefn-
amálum, sem bárust ríkisstjórn-
inni í febrúar 1984. Þrjú ráðu-
neyti, heilbrigðis-, dómsmála- og
menntamálaráðuneytið skipuðu
menn í sérstaka nefnd til að leita
að einhverju sem ríkisstjórnin
gæti sameinast um í tillögunum,
en þar varð ekkert samkomulag
að heldur.
„Það virðist ljóst að tillögum
þeim, sem nefndin sendi frá sér
sem bráðabirgðatillögur, verður
ekki hrint í framkvæmd“, segir í
svari ráðherra, „og er sennilegast
að ríkisstjórnin bíði eftir lokatil-
lögum nefndarinnar. Þá mun
heilbrigðisráðherra taka afstöðu
til málsins.“
Áætlað er að nefndin ljúki
störfum á árinu 1986, og er búist
við að hún sendi frá sér tillögur í
haust um áfengisvarnir, upplýs-
ingastarfsemi, rannsóknir og um
fyrirkomulag meðferðarstofn-
ana. Það fer svo eftir því, segir í
svari ráðherrans, hvaða samstaða
næst í ríkisstjórn um þær tillögur,
hvernig málinu vindur fram á
þessu ári.
Ýmsir fullyrða að kókaín sé tekið að flæða inn í landið, en tillögur stjórnskipaðrar nefndar í ávana- og fíkniefnamálum
verða ekki framkvæmdar í bráð sökum ágreinings í stjórnarflokkunum.
Markaðsleit
Nýtl
landnám í sjávarútvegi
2 miljónumþegar varið í könnun á útflutningi áþekkingu og
reynslu á sviði sjávarútvegsins
Sjávarútvegsráðuneytið
hefur varið rúmlega 2 miljón-
um króna í könnun á flutningi á
þekkingu og reynslu á sviði
sjávarútvegs og er nú unnið að
því að draga saman niðurstöð-
ur um hverjir möguleikarnir
eru á þessu sviði. Þetta kom
m.a. fram í svari við fyrirspurn
frá Steingrími J. Sigfússyni á
alþingi rétt fyrir þinglok.
í svarinu kom fram að 5 manna
nefnd sem skipuð var 31. janúar
s.l. hefur unnið að þessum mál-
um. Komið hefur verið á nánum
tengslum viðalþjóðlegar stofnan-
ir sem hafa mikilvægu hlutverki
að gegna við uppbyggingu sjávar-
útvegs í þróunarlöndum, svo sem
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
SÞ (FAO), Alþjóðabankann og
IFC, Alþjóðlega efnagasstofnun.
Einnig hefur verið haft samband
við Norræna fjárfestingasjóðinn
og nokkur verkfræði- og ráðgjaf-
arfyrirtæki í Bandaríkjunum.
Þá hafa verið kannaðir mögu-
leikar í samvinnu við íslensk fyr-
irtæki á verkefnum í Costa Rica,
Oman, S-Yemen og Alaska.
Ekki hafa verið teknar ákvarðan-
ir um hvernig brugðist verður við
óskum frá Yemen um samvinnu á
sviði fiskveiða og fiskveiðatækni.
Loks kom fram að í ráði er að
stofna útflutningráð sem nái til
allra atvinnuveganna, en nú er
starfandi sem kunnugt er sérstök
útflutningsmiðstöð iðnaðarins.
-ÁI
Framhald á bls. 5
til siglinga með kjarnorkuvopn,
flutninga í lofti eða á annan hátt
um eða yfir íslenskt yfirráða-
svæði.
Þessari tillögu var vísað til
utanríkismálanefndar, sem
seinni part vetrar samþykkti sem
kunnugt er einróma „Stefnu ís-
lendinga í afvopnunarmálum.“
Þar áréttar alþingi þá stefnu ís-
lendinga að hér verði ekki stað-
sett kjarnorkuvopn og hvetur til
þess að stuðlað verði að allsherj-
arbanni við tilraunum, fram-
leiðslu og uppsetningu kjarn-
orkuvopna.
Sömu sögu má reyndar segja af
fleiri málum, þau náðu fram, þó
ekki hafi þau verið formlega sam-
þykkt. Svavar Gestsson var t.d.
fyrsti flutningsmaður frumvarps
til laga um jafnréttismál og lagði
það fram gegn frumvarpi
Alexanders Stefánssonar,
félagsmálaráðherra um sama
mál. 19. júní varð frumvarp Al-
exanders svo að lögum, en þá
höfðu verið gerðar á því veiga-
miklar breytingar til samræmis
við frumvarp Svavars.
Og kannski er svo skemmst að
minnast yfirlýsinga samgöngu-
ráðherra, Matthíasar Bjarna-
sonar um að nú ætli hann að láta
gera áætlun um jarðgangnagerð á
Islandi, en tillaga frá Steingrími
J. Sigfússyni og fleirum þar um
náði þó ekki samþykki þingsins.
Af þessu má sjá að þingmenn
Alþýðubandalagsins hafa haft
meiri áhrif en ætla mætti ef litið er
eingöngu á tölur um afgreidd mál
og samþykkt. Fjölmörg og það
veigamikil mál flokksins náðu þó
engum liljómgrunni í þinginu
eins og vonandi verður hægt að
greina frá síðar. -ÁI
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. júlí 1985