Þjóðviljinn - 03.07.1985, Page 14
FRÉTTIR
TilkyBDingin m nyja einkaskólaim befur vakié gdwlega athygli
almermings og skóiamnaa og hefur Mn nýja forréttindastefna í
menntamálum vakift lítta hylli. Á aukafundi í fræðsluráöi Reykja-
víkurborgar í gær var hart deilt um skólann og lagðar fram bókanir,
þar sem hart er deilt á fræðsluyfirvöld ríkis og borgar og talift aft
verift sé aft veltast útaf þeirri jafnréttisbraut í skólamálum sem hér
hefur verift reynt að fara. Hér birtast bókanir og fyrirspurnir frá
fræftsluráftsfundinum í gær ásamt ályktun stjórnar Kennarafélags
Reykjavíkur um nýja einkaskólann.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fræftshiráði fögnuðu stofnun
nýja einkaskólans og töldu óþarfa aft ræfta málift í ráftinu. _m
Kennarar í frœðsluráði:
Fvrir fáa útvalda
Bókuinrá fulltrúum kennara
fræðsluráði:
Vegna frétta undanfariö um
stofnun Tjarnarskóla viljum við
undirritaðir kennarafulltrúar í
Fræðsluráði lýsa yfir undrun okk-
ar að ekki var rætt um undirbún-
ing að stofnun skólans í Fræðslu-
ráði Reykjavíkur og að hvorki
fræðslustjóri né fræðsluráð, svo
ekki sé minnst á skólastjóra
Námsflokka, Vesturbæjarsicóla
og Kvennaskólans, skuli hafa
verið höfð með í ráðum. Áteljum
við harðlega að þessir aðilar allir
skyldu vera sniðgengir við undir-
búning málsins.
Þegar þess er gætt að grunn-
skólarnir hafa verið í fjársvelti
undanfarið má furðu sæta að
ráðamenn ríkis og borgar ætli að
styrkja Tjarnarskóla og skerða
þar með enn fjárframlög til hinna
almennu grunnskóla umdæmis-
ins.
Samkvæmt 8. gr. laga um
skólakerfi ber ríki og sveitarfé-
lögum að tryggja nemendum,
hvar sem er á landinu, sem jafn-
asta aðstöðu til menntunar. Ljóst
er að ráðstafanir menntamála-
ráðherra og borgarstjóra ganga í
þveröfuga átt við lög þessi og
leiða til þess að nemendum verð-
ur mismunað eftir efnahag for-
eldra og búsetu.
Það er enn sem fyrr krafa kenn-
ara, nemenda og foreldra að bet-
ur sé búið að grunnskólum en
verið hefur. Því marki verður
ekki náð með stofnun einkaskóla
fyrir fáa útvalda.
Ingveldur Sveinbjörnsdóttir
Guðný Ýr Jónsdóttir
Jóhannes Pétursson
Kennarafulltrúarnir óskuðu
ennfremur eftir skriflegum
svörum við þessum spurningum:
1. í hverju felst aðstoð borgarinn-
ar við Tjarnarskóla?
2. Hver er styrkur borgarinnar til
annarra einkaskóla á grunn-
skólastigi?
3. Er fyrirhugað að Tjarnarskóli
fái afnot af sérgreinastofum, sem
fyrir eru í Miðbæjarskóla og nýtt-
ar eru af Vesturbæjarskóla,
Kvennaskólanum og Námsflokk-
um Reykjavíkur.
KFR
Fonéttindi fyrir greiðslu
Samþykkt stjórnar Kennarafé-
lags Reykjavíkur frá í gær:
Stjórn KFR telur það alvarlegt
mál að ríki og borg skuli styðja
opinberlega með fjárframlögum
og fyrirgreiðslu stofnun „einka-
skóla“. Stofnun Tjarnarskóla
hefur augljóslega í för með sér að
nemendum grunnskóla er mis-
munað hvað snertir námsmögu-
leika.
í fyrsta lagi þurfa foreldrar að
greiða há skólagjöld sem ekki er
á allra færi.
í öðru lagi er nemendum boð-
inn samfelldur skóladagur og að-
staða til heimanáms.
í þriðja lagi er nemendum
Tjarnarskóla boðinn aðgangur
að ýmisri sérhæfðri kennslu, t.d.
tölvukennslu í formi aðkeyptra
námskeiða sem grunnskólinn
getur almennt ekki boðið nem-
endum sínum upp á.
í fjórða lagi er tryggt að nem-
endafjöldi í bekk fari ekki yfir 25.
í fimmta lagi er nemendum
tryggð kennsla kennara með
kennsluréttindi.
í sjötta lagi hafa forsvarsmenn
Tjarnarskóla lýst yfir að kennar-
ar verði yfirborgaðir.
Ef grunnskólalögum væri
framfylgt veitti grunnskólinn alla
þá þjónustu sem Tjarnarskóli
ætlar að bjóða upp á og miklu
meiri.
Rekstrarkostnaði grunnskóla
er haldið í algjöru lágmarki. T.d.
er viðhaldi á skólahúsnæði víða
mjög ábótavant, skólar búa við
kennslutækja- og námsgagna-
skort, aðstaða til sérgreina-
kennslu er víða engin t.d. fara
margir grunnskólanemendur á
mis við tónmenntarkennslu.
Grunnskólar búa margir við lé-
legt og þröngt húsnæði og of fjöl-
menna bekki. í örfáum skólum í
Reykjavík er hægt að koma við
einsetningu, sem er forsenda þess
að hægt sé að skipuleggja sam-
felldan skóladag fyrir alia.
Kennarar hafa s.l. ár vakið
rækilega athygli á lélegum
kjörum sínum. Nýgerðir kjara-
samningar fela ekki í sér
breytingar þará.þrátt fyrir endur-
mat á störfum kennara sem
Menntamálaráðuneytið lét gera í
vetur. Nú er ljóst að starfsréttindi
kennara verða ekki lögvernduð á
næstunni, og að grunnskólanem-
endum sem ekki njóta kennslu
kennara með full kennsluréttindi
mun fjölga mjög næsta vetur.
Stjórn Kennarafélags Reykja-
víkur átelur fræðsluyfirvöld ríkis
og Reykjavíkurborgar fyrir að
stuðla að stofnun skóla fyrir börn
sem njóta þeirra forréttinda að
foreldra þeirra geta greitt auka-
lega fyrir þjónustu sem öllum
börnum á að standa til boða end-
urgjaldslaust.
Ennfremur telur stjórn KFR
að ekki komi til greina að taka af
rekstrarfé grunnskóla til að styr-
kja einkaskólarekstur, né að
skólagjöld verði frádráttarbær til
skatts.
Þorbjörn Broddason
Gerður Steinþórsdóttir
Ríkisrekinn
klíkuskóli
Atelur laumuleg
vinnubrögð
Sjálfstœðismanna
Bókun Gerðar Steinþórsdótur,
fulltrúa Framsóknarflokksins í
fræðsluráði:
Ég átel harðlega laumuleg
vinnubrögð Sjálfstæðismanna í
málum Tjarnarskóla, þar sem
ekki er hirt um að ræða stofnun
hans í fræðsluráði, fræðslustjóri
er sniðgenginn, svo og samtök
kennara og foreldra.
Að sjálfsögðu kemur nýr
grunnskóli í Reykjavík fræðslu-
ráði við og gildir þá einu hversu
oft formaður ráðsins sver það af
sé.
Tjarnarskóli er, eins og honum
er lýst í fjölmiðlum, enginn „ein-
kaskóli" þar sem hann á að fá
jafnmikið fé frá ríki og aðrir
skólar og frítt húsnæði frá borg-
inni. Einstaklingsframtakið er
hins vegar fólgið í skólagjöldum,
sem „eigendur" skólans ákveða,
og vali á nemendum. Hér er því
verið að koma á fót ríkisreknum
klíkuskóla sem mun auka á
stéttaskiptingu sem við höfum
blessunarlega verið laus við mið-
að við aðrar þjóðir.
Laun kennara á öllum stigum
skólakerfisins eru smánarleg og
ættu að vera öllum áhyggju- og
umhugsunarefni. „Einkaskóli“
eins og Tjarnarskóli er hins vegar
engin lausn á þeim vanda.
Gerður Steinþórsdóttir.
Fé tekið frá öðmm skólum
Nýi skólinn: pilsfaldakapítalismi í þágu efnamanna
Bókun Þorbjarnar Brodda-
sonar fulltrúa Alþýðubanda-
iagsins í fræðsluráði:
Nýmæli í skólamálum eru alla-
jafna fagnaðarefni og hafa frum-
kvæðismenn þeirra oftast verið
hugsjónaríkir kennarar og skóla-
menn, sem hafa leitað eftir stuðn-
ingi við hugmyndir sínar fyrir
opnum tjöldum meðal almenn-
ings og opinberra aðila. Önnur
vinnubrögð eru nánast óþekkt á
þessu sviði og raunar óhugsandi
ef vel á að fara. Það vekur því
mikla furðu þegar einu sérkenni-
legasta nýmælinu, sem um getur í
reykvískum skólamálum, er
laumað eins og vandræðalegu
feimnismáli fram hjá öllum eðli-
legum umsagnaraðilum.
Þriðjudaginn 25. júní síð-
astliðinn, daginn eftir að fræðslu-
ráð Reykjavíkur hafði haldið síð-
asta reglulega fund sinn fyrir
sumarleyfi, spurðist það í fjöl-
miðlum að stofnað hafði verið til
nýrrar grunnskólaeiningar í
Reykjavík. Nú er komið í ljós að
stofnendur skólans hafa heimild
menntamálaráðuneytisins og
njóta fulltingis þess á annan hátt,
auk þess sem formaður fræðslu-
ráðs hefur unnið ötullega að
framgangi málsins.
Þótt fátt bendi til þess að stofn-
un hinnar nýju grunnskólaeining-
ar, Tjarnarskóla, muni valda
nokkrum þáttaskilum í skóla-1
sögunni, þá er hér eigi að síður
nýbreytni á ferðinni, sem orkar
ákaflega mikils tvímælis, og getur
haft neikvæð áhrif á allt skóla-
starf í borginni. Einmitt þess
vegna hefði verið brýnt að undir-
búningur málsins hefði farið fram
fyrir opnum tjöldum og í and-
rúmslofti yfirvegunar, í stað þess
að lokast af í einum armi Sjálf-
stæðisflokksins eins og raun hef-
ur orðið á.
Menntamálaráðherra hefur
við undirbúning þessarar ráð-
stöfunar algerlega sniðgengið
fræðslustjórann í Reykjavík,
helsta embættismann sinn á vett-
vangi reykvískra skólamála. Ekki
var einu sinni látið svo lítið að
tilkynna honum hvað stæði til.
Með þessu móti hefur ráðherr-
ann óvirt embætti fræðslustjóra
og lítillækkað persónulega mann,
sem er nýtekinn við því starfi við
erfið skilyrði. Þó er ráðherrann
sjálfum sér verstur því enginn
vafi leikur á því að Þráinn Guð-
mundsson hefði reynst hollur
ráðgjafi í þessu máli.
Formaður fræðsluráðs hefur
farið gersamlega á bak við ráðið í
ráðgjafarstarfi sínu við stofnun
Tjarnarskóla. Ekki verður betur
séð en vísvitandi hafi verið beðið
þess að fræðsluráð færi í sumar-
leyfi áður en látið var vitnast um
ofangreint ráðabrugg. Þetta til-
tæki formannsins rýrir þann trún-
að, sem nauðsynlegt er að geti
ríkt milli allra ráðsmanna og for-
mannsins. Ekki bæta úr skák til-
raunir hans til að þvo hendur
fræðsluráðsformannsins Ragnars
Júlíussonar af athöfnum borgar-
fulltrúans Ragnars Júlíussonar.
Slíkar kúnstir gera hlut for-
mannsins enn verri en ella og
setja blett á allt fræðsluráð.
Tjarnarskóli hefur verið
nefndur einkaskóli. Öllum má þó
ljóst vera að hann rís illa undir
slíku nafni. Skólinn mun njóta
nákvæmlega jafnmikilla hlunn-
inda af opinberri hálfu og þeir
ríkis- og borgarreknu grunn-
skólar, sem fyrir eru í höfuð-
staðnum og honum ber í einu og
öllu að fylgja grunnskólalögum. I
rauninni er einfaldlega um það að
ræða að útsjónarsamir einkaaðil-
ar eru að gera út á ríki og borg.
Þeir stofna fyrirtæki, sem er nán-
ast alfarið kostað af fé skatt-
borgaranna, leggja fram sáralítið
eða ekkert eigið fé, en ætla síðan
að láta neytendur þjónustunnar
hvern um sig greiða tugi þúsunda
króna á ári til viðbótar, ekki til
hins opinbera, heldur til eigenda
skólans. Á íslensku hefur þessi
tegund af rekstri verið kölluð
pilsfaldakapítalismi. íslenskir at-
hafnamenn, sem svo eru kallaðir
á vettvangi viðskipta og fram-
leiðslu, hafa löngum þótt miklir
snillingar pilsfaldakapítalismans
og ef til vill þykir því einhverjum
viðeigandi að hann hasli sér nú
völl í skólakerfinu undir forystu
núverandi ríkisstjórnar.
Tjarnarskóli mun ekki leiða til
neins sparnaðar í hinu almenna
skólakerfi borgarinnar á kom-
andi vetri. Hvergi mun fækka
bekkjum eða stöðugildum kenn-
ara. Þess vegna bætist sá kostnað-
ur, sem af honum hlýst og sóttur
er í sameiginlega sjóði, algerlega
við þá kostnaðarliði, sem fyrir
eru, og verður því í raun tekinn
frá öðrum skólum í borginni.
Þannig blasir nú þegar við að til-
vist Tjarnarskóla ein sér minnkar
svigrúm annarra skóla og verður
alger viðbótarbaggi á herðum
skattgreiðenda. Af þessari á-
stæðu einni hlýtur fræðsluráð að
vara alvarlega við þessu tiltæki í
núverandi mynd sinni.
Sú ákvörðun að taka svo há
skólagjöld af nemendum Tjarn-
arskóla að einungis hinir betur
megandi geta nýtt sér starfsemina
felur í sér óþolandi misréttissjón-
armið, sem samrýmist ákaflega
illa anda og bókstaf grunnskóla-
laganna og því verður að átelja
harðlega að menntamálaráðu-
neytið skuli ganga fram fyrir
skjöldu um að stofna til slíkrar
starfsemi.
Eigendur Tjarnarskóla hafa
látið hafa eftir sér ótrúlega van-
hugsaðar yfirlýsingar um að ák-
varðanir um slík viðbótarútgjöld
á heimili snúist ekki um fjárhag
heldur viðhorf foreldra. Staðhæf-
ingar af þessu tagi hljóta að verka
eins og blaut tuska í andlitið á
láglaunafólki, sem telur sig ekki
verri uppalendur en aðra jafnvel
þótt það geti ekki séð af 20% af
mánaðarkaupi sínu í skólagjöld
fyrir hvert barn sitt. Slíkar yfirlýs-
ingar dæma sig sjálfar en gefa um
leið vísbendingu um þann anda,
sem ríkja mun í skólanum. Jafn-
framt vekja þær spurningar um
reynsluheim hinna ungu eigenda
skólans og siðferðislegan sjón'-
deildarhring þeirra.
Ekkert hefur komið fram, sem-
bendir til þess að eigendur Tjarn-
arskóla búi yfir ferskari hug-
myndum eða betri lausnum en nú
þegar standa í blóma meðal
kennara í velflestum eða öllum
reykvískum grunnskólum. Marg-
ar bestu hugsjónir þeirra hafa
hins vegar strandað á tímaleysi,
aðstöðuleysi og umfram allt
skorti á fjármagni. Eftir því sem
næst verður komist mun Tjarnar-
skóli innheimta 3200 kr. á mán-
uði af hverjum nemanda og hafa
sem næst 25 manna bekki. Þetta
táknar að í hverjum mánuði hafa
eigendur skólans úr að spila
80.000 kr. á hvern bekk umfram
það sem aðrir grunnskólar í borg-
inni njóta.
Með slíkan aukafarareyri sýn-
ist ekki örvænt um að skólinn
„verði skemmtilegur og lifandi"
eins og segir í einu blaðaviðtali.
En í Reykjavík eru kennarar
hundruðum saman, sem hefðu
jafngóðar forsendur og aðstand-
endur Tjarnarskóla til að gera
skóla sína skemmtilegri og líflegri
en þeir nú eru, ef þeir hefðu úr
jafndigrum sjóðum að ausa og
þeir. Skyldi það vera raunveru-
legt markmið þeirra, sem nú
hvetja til stofnunar Tjarnarskóla
að aðrir kennarar í landinu feti í
fótspor eigenda hans, segi störf-
um sínum lausum og bjóðist síð-
an til að reka einkaskóla í húsa-
kynnum hins opinbera fyrir börn
efnaðri helmings þjóðarinnar?
Hvernig mun þá skólakerfið
líta út að nokkrum árum liðnum?
Hver verður þá talinn árangur
þess þrotiausa hugsjónastarfs,
sem Guðmundur Finnbogason
lagði grunninn að fyrir réttum 80
árum og staðið hefur óslitið síðan
með jafnrétti að leiðarljósi?
Óskað svara
Spurningar sem óskað er skrif-
legra svara við frá formanni
fræðsluráðs, fræðslustjóra,
menntamálaráðherra, fjármála-
ráðherra og eigendum Tjarnar-
skóla eftir því sem við á:
1. Verður foreldrum barna í
Tjarnarskóla veittur árlegur
viðbótarstyrkur í formi
skattaafsláttar upp á rúmlega
eina milljón króna, svo sem
eigendur skólans virðast hafa
farið fram á?
2. Af hvaða gjaldaliðum fjár-
laga og fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar verður
reksturskostnaður Tjarnar-
skóla tekinn á komandi
hausti?
3. Hversu mikið rými í Miðbæj-
arskólahúsi kemur í hlut
Tjarnarskóla?
4. Hvar verður nemendum
Tjarnarskóla kennd leikfimi,
handavinna og matreiðsla?
5. Hvar verður bókasafn Tjarn-
arskóla til húsa?
6. Eftir hvaða reglum verða
nemendur teknir inn í Tjarn-
arskóla ef umsækjendur
reynast verða fleiri en 100
talsins?
7. Hvaða samráð hefur verið
haft við skólastjóra Vestur-
bæjarskóla og forstöðumann
Námsflokka Reykjavíkur?
8. Verða kennarar Tjarnar-
skóla aðilar að stéttarsam-
tökum kennara?
9. Verða önnur sveitarfélög
tolluð vegna aðkomubarna í
Tjarnarskóla líkt og nú er
gert varðandi aðkomuung-
linga í reykvískum fram-
haldsskólum?
10. Verður sálfræðiþjónusta
innifalin í skólagjaldi Tjarn-
arskóla eða verður foreldrum
gerður sérstakur reikningur
fyrir henni?
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. júli 1985