Þjóðviljinn - 03.07.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvðldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Miðvikudagur 3. júlí 1985 148. tölublað 50. árgangur
DJOÐVIUINN
Bílainnflutningur
Klandur hjá Agli og Fíat
Skiptaráðandi veitir Agli Vilhjálmssyni hf. og Davíð Sigurðssyni hf. greiðslustöðvun í tvo mánuði.
Söluskattsvanskil. Hluti afeignum seldur ogstarfsfólki fœkkað. Magnús Sigurbjörnsson skiptaráðandi:
Gert til að fyrirtækin geti komifjármálum sínum í viðunandi horf.
Skiptaráðandinn í Reykjavík
hefur veitt stórfyrirtækjunum
Agli Vilhjálmssyni hf. og Davíð
Sigurðssyni hf. (Fíat) greiðslu-
stöðvun í tvo mánuði vegna alvar-
■egra fjárhagsörðugleika. Aðal-
eigandi þessara tveggja fyrir-
tækja er Sveinbjörn M. Tryggva-
son. Mun hafa staðið til að inn-
sigia þau vegna söluskattsvan-
skila. Magnús Sigurbjörnsson
skiptaráðandi sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að greiðslust-
öðvunin væri veitt til þess að fyr-
irtækið gæti komi fjármálum sín-
um í viðunandi horf. I fréttatil-
kynningu frá því segir m.a. að
hluti af eignum þess verði seldur,
starfsfólki fækkað og ítrasta að-
halds gætt í rekstri.
Meðan á greiðslustöðvun
stendur verður óheimilt að ganga
að fyrirtækinu með uppboðsað-
gerðum eða annarri aðför en því
er jafnframt óheimilt að stofna til
skuldbindinga. Markús Sigur-
björnsson sagði að töluvert væri
um að fyrirtækjum væri skv.
lögum gefin kostur á slíkri
greiðslustöðvun og væru um 10
slík tilfelli það sem af er þessu ári.
Þá sagði Markús að ekki væri
nákvæmlega ljóst í lögum hvenær
mætti beita þessu ákvæði en reynt
væri að njörva það niður eftir
dómum og teoríu og t.d. þegar
eignir væru orðnar aðeins 50-
60% af skuldum væri talið
óraunhæft að beita því.
Tekið er fram í fyrrgreindri
fréttatilkynningu að engin
breyting verði í framtíðinni á
starfsemi fyrirtækjanna, sem
hafa umboð fyrir General Motors
og Fíat. Þess skal að lokum getið
að Fíat var söluhæsta bifreiðin á
landinu í fyrra.
-GFr
Leiklist
Leikrit úr
verkum Ástu
Sigurðar-
dóttur
Helga Bachamnnfékk
styrk úr menningarsjóði
Félags íslenskra
leikstjóra og vinnur nú að
þvíað gera leikverk úr
sögum Ástu
Sigurðardóttur
r
Ifyrrakvöld var úthlutað úr
menningarsjóði Félags is-
lenskra leikstjóra og fékk Helga
Bachmann 30 þúsund krónur til
að Ijúka leikgerð úr smásögum
Ástu Sigurðardóttur.Flelga sagði
í samtali við Þjóðviljann að hún
væri komin langleiðina með þetta
leikverk sem væri heilskvöldssýn-
ing og væri hugmyndin að færa
hana upp í kjaliara eins hússins
sem konur hafa nýlega fest kaup
á við Vesturgötu. Það er kjallar-
inn undir trésmiðjunni sem nú er
íhúsinunæst Fischersundi. Helga
sagði að sögur Ástu væru myndir
úr Reykjavík sem tengdust af
sj álfu sér enda væri smásagnasafn
hennar tileinkað Reykvíkingum.
_______ ________ -GFr
Vegir:
Hálendið
að opnast
Kjölur og Sprengisandur voru
heflaðir í síðustu viku og cru orð-
nir færir norður í Skagafjörð og
Bárðardal en Eyjafjarðarleiðin
hefur ckki opnast enn, sagði Sig-
urður Hauksson vegaeftirlits-
maður í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Þá sagði hann ennfremur að
Kaldidalur væri fær og vegir í
Lakagíga, Kverkfjöll, Herðu-
breiðarlindir og Oskju. Fjalla-
baksleið nyrðri er fær frá Sigöldu
í Landmannalaugar og hinum
megin frá úr Skaftártungu í Eld-
gjá en ekki þar á milli. Athugað
verður með Fjallabaksleið syðri í
næstu viku. Sigurður sagði að á-
standið á vegunum væri svipað og
undanfarin sumur á þessum tíma.
-GFr
Skurðlæknir og vefari
Þetta eru þær Tinna Ottarsdóttir, og María Pétursdóttir sem voru aö tygja sig á hestanámskeið á Húsavík þegar við
hittum þær. María lék í ensku kvikmyndinni „Gullgrafararnir" og hún lék Julie Christie á unga aldri. Hún sagðist ætla að
verða vefari eða leikkona þegar hún yrði stór en Tinna ætlar að verða skurðlæknir eða leikkona. Og þar með voru þær
roknar. Ljósm. Einar.
Akranes
Rækja unnin allt árið
s
Pórður Oskarsson hf. byrjar rœkjuvinnslu. Atvinna fyrir
12-15 manns.
Við erum komnir af stað með
eina vél í vinnslu og fáum hrá-
efni annars vegar frá Sólfara Ak
170, sem við eigum sjálfir, og hins
vegar frá Hafnarvíkinni frá Þor-
lákshöfn, sagði Óskar Þórðarson
á Akrancsi, sonur Þórðar Ósk-
arssonar, í viðtali við Þjóðvilj-
ann.
Fyrirtæki þeirra feðga sagði
upp nær öllu starfsfólki sínu í
haust vegna fjárhagserfiðleika og
seldi af þeim sökum ailar sínar
fiskvinnsluvélar og hluta af bygg-
ingum.Öll vinnsla hefur því legið
niðri hjá þeim í vetur. En um
mánaðamótin maí-júní sl. hófst
rækjuvinnsla hjá fyrirtækinu og
nú starfa 12-15 manns hjá fyrir-
tækinu, aðallega konur. Óskar
sagðist vonast til að geta haldið
uppi vinnslu allan ársins hring og
vinna þá frysta rækju þann tíma
sem veiðar eru ekki stundaðar.
Óskar sagði að lokum, að verð
á rækju væri fremur lágt sem
stendur og hefði verið síðan verð-
fall varð á henni í fyrra vegna of-
framboðs. Rækja fer aðallega á einnig í Bretlandi og á megin-
markað í Bandaríkjunum, en landi Evrópu. -gg
Fiskeldi
Fiskeldi í Höllinni
Súfyrsta sinnar tegundar á Islandi. Ráðstefna
umfiskeldi um sama leyti.
r
Ihaust, nánar tiltekið dagana 18.-19. september, verður haldin sýn-
ing í Laugardalshöll sem ber heitið „íslenska fískeldissýningin 1985“.
Fiskeldissýning þcssi er sú fyrsta sinnar tegundar á íslandi.
Sýningin byggist að mestu upp á erlendri framleiðslu, en þó eiga
íslenskir framleiðendur nokkra hlutdeild í henni. Þarna verður til sýnis
alls kyns búnaður og tæki, ker, fóður, umbúðir og raunar hvaðeina er
að fiskeldi lýtur.
Það er breska sýnsingarfyrirtækið ITFI sem stendur fyrir sýning-
unni, en sama fyrirtæki stóð fyrir Sjávarútvegssýningunni, í fyrra.
Patricia Foster, sölustjóri ITFI, sagði Þjóðviljanum, að Norðmenn
væru í fararbroddi, bæði hvað varðar fiskeldi og framleiðslu tækja til
fiskeldis og væru með góða markaði í Bandaríkjunum. En Foster bætti
við, að fslendingar ættu alla möguleika á að ná langt á þessu sviði.
Um sama leyti verður haldin þriggja daga ráðstefna um fiskeldi á
vegum Veiðimálastofnunar. Þar munu bæði innlendir og erlendir sér-
fræðingar um fiskeldi halda erindi um fagið. -gg
Verðlag
Söluskatts-
hækkun
Nú25%. Viðbótiní
húsnœðismál
Fyrsta júlí hækkaði sölu-
skattur úr 24% í 25. Það
jafngildir um 0,8% hækkun á
verðlagi, nema verði matvöru.
Söluskattsviðbótin á að færa
ríkinu um 250 milljónir króna á
þessu ári og á það fé að renna til
húsnæðiskerfisins samkvæmt ný-
samþykktum lögum.
Gervihnatta-
sjónvarp
Leyfi þarf
til
móttöku
Póstur og sími veita
leyfi til móttöku
sjónvarpsefnis frá
gervihnöttum að
uppfylltum
ákveðunum
skilyrðum.
I frétt frá Póst- og símamála-
stofnuninni er vakin á því athygli
að þeir sem hyggjast taka við efni
frá ECS gervihnöttunum verði að
fá til þess leyfi frá stofnuninni.
Segir í fréttinni að þessir hnettir
séu fjarskiptahnettir og í eigu
samtaka sem nefnast Eutclsat og
þess vegna verði að sækja um
leyfí til móttöku efnis sem þeir
senda út.
Það hefur komið fram hér í
blaðinu að fyrirtækið Hljómbær
hf. er farið að selja móttökutæki
sem nota má til móttöku á efni frá
ECS-1 sjónvarpshnettinum. í
fréttinni frá Pósti og síma segir að
slík móttaka sé háð samþykki
eiganda hnattarins, Eutelsat.
Einnig segir í fréttinni að um-
sækjandi verði að afla sér hei-
mildar frá rétthöfum sjónvarps-
efnisins til að taka á móti efninu.
Hann verður einnig að ábyrgjast
að greiða þau gjöld sem Eutelsat
setur upp fyrir móttöku.
-ÞH