Þjóðviljinn - 16.07.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.07.1985, Blaðsíða 1
HEIMURINN ATVINNUUF ÍÞRÓTTIR MANNLÍF Nýsköpun í fiskvinnslu Ný skýrslafrá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins: Tvífrysting afla varðveitir ferskleikaeinkenni fisksins enn betur en með geymslu í ís. Vatnstap eykstekki. Hefurekkiáhrifááferð. Gœti stórbœtt hag fiskvinnslufólks og fiskvinnslunnaríheild. Avallt til úrvals hráefni Niðurstöður rannsókna, sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins gerði fyrir Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna og Sjávarafurða- deild SÍS sýna, að gæði aflans minnka ekki við tvífrystingu. Þetta kemurfram í skýrslu, sem Alda Möller hefur nýverið gert á vegum Rannsóknastofnunar- innar. Tvífrysting afla, sem felur í sér að fiskurinn er fyrst heilfrystur um borð í frystiskipi og síðan þíddur og unninn í landi, getur skapað grundvöll fyrir algjöra ný- sköpun í fiskvinnslu. Tvífrysting myndi tryggja að ávallt væri til úrvals hráefni í frystihúsum, og hægt væri að velja hráefni til vinnslu eftir þörfum markaðarins hverju sinni, í stað þess að nú fer vinnslan eftir því hve mikið aflast hverju sinni. Áhrif aflatoppa eins og oft verða myndu hverfa að mestu, en einmitt nú þessa dagana eru fisk- vinnslufyrirtækin í vandræðum vegna þess hve mikill afli berst á land en aftur á móti fólksfæð í vinnslunni. Það breytta fyrir- komulag, sem tvífrystingin mun hafa í för með sér, gæti stórbætt kjör fiskvinnslufólks og hin sí- felldu mannréttindabrot, sem framin eru á þessu fólki, yrðu jafnvel úr sögunni. í skýrslu Öldu Möller segir, að með frystingu um borð í veiði- skipum skapist aðstæður til að vernda ferskleikaeinkenni fisks- ins mun betur en við geymslu í ís. Vatnstap fisksins yrði síst meira en þyngdarrýrnun við geymslu í ís fyrir venjulega landvinnslu. Tví- frysting hefur ekki áhrif á áferð físksins. Það er því ljóst ef marka má þessar niðurstöður og fleiri sem gerðar hafa verið erlendis, að nú eru allar forsendur fyrir því að hefja nýsköpun í sjávarútvegi á íslandi og þær fregnir, sem Þjóð- viljinn hefur haft af tilraunum frystihúsa með þessa nýju aðferð vekur von um framkvæmd henn- ar. -gg- Sjá bls. 5-6 Áfengi Rússar brjóta lögin Moskvu 15/7 Reuter. - Lög- reglan í Sovétríkjunum hefur skráð 15.000 brot á lögum um áfengissölu sem sett voru fyrir mánuði. Samkvæmt lögunum er óheimilt að selja áfengi nema milli kl. 14 og 19 á daginn og alls ekki á opinberum stöðum eða í nágrenni við vinnustaði. Sovésk blöð hafa birt margar frásagnir af afskiptum lögreglu af ólöglegum bruggstöðum og öðr- um brotum á nýju áfengislöggjöf- inni. Þykir það benda til þess að slík brot séu afar útbreidd og að yfirvöld vilji beita umfjöllun fjöl- miðla til að vinna gegn áfengis- vandanum. Erlendar dagsfréttir frá Reuter hófust í Þjóðviljanum um helgina. Sjá í dag bls. 17. Það blés hraustlega á dönsku víkingana sem léku víkingasýningu austur á Laugarvatni á föstudagskvöidið. Meðal gesta voru Elisabet prinsessa, maður hennar Claus Hermannsen og sendiherra Dana á íslandi, H.A. Djurhus. Ljósm: ÞS. Víkingarnir Kóngafolk í kuldanum Ofsarok á Víkingahátíðinni á Laugarvatni. Flúið til Reykjavíkur. Fjármálið í „alvarlegri athugun(i „ Við erum aö byrja að skoða reikningana, en það er Ijóst að tapið á Víkingahátíðinni er mjög mikið. Við teljum að veðrið hafi ráðið úrslitum, en ekki verðið, sem var kr. 1000.- Miðað við það sem átti að bjóða upp á á Laugar- vatni var þetta ekki hátt verð“, sagði Þorvaldur Geirsson, einn forsvarsmanna Víkingahátíðar- innar, sem halda átti á Laugar- vatni um helgina síðustu. Leiksýning dönsku víkinganna var sýnd á Laugarvatni á föstu- dagskvöldið í ofsaroki og kulda, en um nóttina fauk megnið af leikmyndinni. Var ákveðið að aflýsa hátíðinni og leika í staðinn í Laugardalshöllinni á sunnudag. „Við ætluðum reyndar að reyna að halda áfram fyrir austan á laugardag, þegar veður fór að lægja, en þá hafði verið sagt í út- varpinu að búið væri að aflýsa hátíðinni og fólk var þegar farið að streyma af svæðinu,“ sagði Þorvaldur. Ekki tókst að fá mikla aðsókn í Laugardalshöllina, enda lítill tími til undirbúnings og auglýsinga. Það er því ljóst að mikið tap varð á þessari víkinga- heimsókn. Þorvaldur sagði enn- fremur að allt væri óvist um styrki frá Ferðamálaráði og öðrum aðil- um og fjármálin almennt væru í mjög alvarlegri athugun. Sjá nánar bls. 7 Katla Gos í aðsigi? „Það kom nokkuð snarpur skjálfti síðdegis á laugardaginn og ég veit til þess að hann hafi fundist niðri í Vík, en annars hafa verið að koma smáir skjálftar al- veg síðan á þriðjudaginn í síðustu viku,“ sagði Einar O. Einarsson, skjálftavörður á Skammadalshóli í Mýrdal við Þjóðviljann að- spurður um jarðhræringarnar í Mýrdalsjökli undanfarna daga. Skjálftinn á laugardag mældist um 3 stig á Richter. Önnur eins skjálftavirkni hefur ekki verið á þessu svæði síðan árið 1971 að sögn Einars, en þá tók hann við mælunum í Mýrdal. Mjög grannt er fylgst með mælunum nú, því þetta er óvenjulega mikil virkni. Á sunnudag og mánudag mæld- ust margir smáskjálftar. -gg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.