Þjóðviljinn - 16.07.1985, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 16.07.1985, Qupperneq 3
FRÉTT1R VMSÍ Bónusviðræöur að hefjast Samninganefnd VMSÍígœr áfundi um kröfur. Hluti bónussins áfastakaupið? Eyjamenn bíða eftir úrslitum uppá landi Viðræður milli Verkamanna- sambandsins og VSÍ um bón- ussamninga fískvinnslufólks eru nú að fara í gang. í gær hélt samn- inganefnd VMSÍ fyrsta fund sinn til að móta kröfur og er búist við öðrum fundi bráðlega. Við- ræðum um bónussamninginn í Vestmannaeyjum var frestað fyrir helgi þangað til úrslit fást uppá landi. Líklegt er að kröfur Verka- MatthildurSigurjónsdóttirfráHríseyeráundirbúningsfundinum. M-E. Ólason. mannasambandsins verði aðal- lega tvennskonar. Bónusinn er nú miðaður við taxta undir lág- markslaunum og má búast við að VMSÍ krefjist viðmiðunar við gildan taxta. Hinsvegar er rætt um ýmsar leiðir til að auka hlut taxtakaups miðað við bónus í heildarlaunum, til dæmis með beinni launauppbót eða fastri lágmarksgreiðslu bónusmegin á launaseðlinum. í Vestmannaeyjum, þar sem félögin hafa sérstakan bónus- samning, var ein af aðalkröfum að bónus yrði miðaður við taxta eftir 6 ára vinnu í stað einsárs taxta. Sá taxti gefur 80 krónur á tímann, en lágmarkslaun eru nú 88,60 krónur á tímann. Sexára- taxtinner92 krónur á tímann. Ekkert samkomulag náðist um þetta í Eyjum og var ákveðið að fresta viðræðum þartil línur skýrðust í Reykjavík. Atvinnu- rekendur í Eyjum lögðu þó fram yfirlýsingu um góðan vilja til minniháttar lagfæringa á Eyja- samningnum oghafatekið ekki fráleitlega annarri meginkröfu verkalýðsfélaganna um 100% meðalbónus aðstoðarmanna í sal (bakkaflutningar o.s.frv.) í stað 80% nú. Á fjögra klukkustunda fundi 20 manna nefndarinnar sem fj alla átti um bónusmálið í gær, voru kröfurnar ræddar. Voru nefndar- menn sammála um megin stefn- una í málinu. Undirnefnd var skipuð til þess að ganga frá end- anlegum tillögum hópsins. Er ætlunin að kröfur VMSÍ um breytingar á bónussamningnum verði lagðar fyrir VSÍ fyrir helgi. -m/H.Kr. Bónuskerfið Ómanneskjulegt Matthildur Sigurjónsdóttir: Leggja bónus- kerfið niður í áföngum Við höfum verið að sameina kröfurnar, - reyna það að minnsta kosti, sagði Matthildur Sigurjónsdóttir frá Hrísey, einn fulltrúa á fyrsta samningarnefnd- arfundi VMSÍ fyrir bónusvið- ræðurnar. - Eg tel að það eigi að breyta bónuskerfínu frá því sem er í dag, sagði Matthildur, - og helst að leggja það niður í áföngum. Byrja á að bæta tímakaupið miðað við bónusinn. Þetta er ósköp einfald- lega óréttlátt og ómanneskjulegt kerfi. Við eigum auðvitað að miða bónusinn við raunverulegan launataxta, en ég tel ekki rétt að lappa upp á það kerfi sem við búum við núna. Fyrsta skrefíð gæti verið að færa af bónusnum yfír á föst laun, - það væri þá fastur hluti af honum sem bættist við tímakaupið hjá öllum í físk- vinnu. -m Kína Fangar fá ekki áfrýjun Beijing 15/7 Reuter - Dagblað alþýðunnar í Kína skýrir frá því í dag að algengt sé að yfírvöld fang- elsa hundsi áfrýjunarbeiðnir fanga og nefnir sem dæmi mann sem dæmdur var og settur í fang- elsi árið 1953 fyrir morð sem hann hafði ekki framið. Hann slapp ekki úr prísundinni fyrr en árið 1977. Undanfarin ár hefur staðið yfir herferð sem beinist að því að um- skóla afbrotamenn og hafa þeir sem að henni standa fundið marga fanga sem hafa skrifað hundruð áfrýjunarbeiðna sem ekki hefur verið svarað hvað þá meira. Ástæðan er sú að sögn blaðsins að fangelsisstjórar taka skrif fanganna ekki alvarlega. Löggiltir endurskoðendur 50 ára í dag í dag eru liðin 50 ár frá stofnun Félags löggiltra endurskoðenda, og hefur afmælisins verið minnst á ýmsan hátt að undanförnu. Félagið hélt hátíðarfund í hát- íðasal Háskóla íslands laugar- daginn 6. júlí sl. í tilefni afmælis- ins. Meðal gesta á fundinum voru formenn allra endurskoðenda- félaganna á Norðurlöndum og varaforseti Alþjóðasambands endurskoðenda, auk fjármála- ráðherra, sem flutti ræðu á fund- inum. Það var á árinu 1926 sem fyrst voru sett lög um löggilta endur- skoðendur á íslandi. í árslok 1934 höfðu 8 menn hlotið löggild- ingu og voru þeir allir stofnendur félagsins 16. júlí 1935. Fyrsti for- maður félagsins var Björn E. Árnason. Félagsmenn eru nú 159 talsins. -gg- BHMR Af stað í haust Birgir Björn Sigurjónsson: Skrítinn kjaradómur, - allir samningar metnir hœrra Ríkisstarfsmenn innan BHM ætla að endurmeta kjarastöðuna eftir mánuð eða svo, og búast við að þá muni til gögn sem sýna ótví- rætt að kauphækkun hjá BSRB, ASÍ og fleiri samtökum sé mun hærri en prósentin fímm sem BHMR-mönnum voru úrskurðuð á föstudag. „Okkur finnst þetta skrítinn dómur“, sagði Birgir Björn Sig- urjónsson hagfræðingur BHMR við Þjóðviljann í gær, „við fáum fimm prósent frá fyrsta júlí, en samningar annarra samtaka eru allir um meiri hækkun, og frá fyrsta júní.“ Birgir sagði samninga banka- manna metna á 8,3% hækkun strax, ASÍ-samningana á um 7% í nýlegu fréttabréfi Alþýðusamb- andsins og fjármálaráðuneytið mæti samninga sína við BSRB á 7,5-8%. „Við fórum fram á að fá meðalhækkunina hjá öðrum“, sagði Birgir, „en fáum það sama og þeir hópar í ASÍ sem hækkuðu minnst. Ég dreg reyndar í efa að nokkur fái aðeins fimm prósent, - iðnaðarmenn innan ASÍ eru til dæmis í þeirri stöðu að kaup þeirra hækkar meira. Sagan sýnir okkur það.“ Stjórn BHMR áskildi sér á föstudag rétt til að krefjast nýrrar málsmeðferðar fyrir Kjaradómi. Birgir sagði að ekki væri senni- legt að af því yrði næstu vikur. Óyggjandi gögn ættu hinsvegar að liggja fyrir í ágúst eða sept- ember og mundu BHMR-menn þá fara að hugsa sér til hreyfings. - m Hinar nýju íbúðir fyrir aldraða í Keflavík. Nýjar íbúðir aldraðra Þann 13. júní sl. var tekið í notkun nýtt hús fyrir aldraða í Keflavík. f húsinu eru 12 íbúðir 45 og 52 fermetra, auk félagsaðstöðu og aðstöðu fyrir ýmiskonar þjónustu fyrir íbúa þess og aðra aldraða íbúa bæjarins. Brúttóflatarmál hússins er 1058 fermetrar, og er það staðsett nálægt skrúðgarði bæjarins og helstu þjónustustofn- unum s.s. heilsugæslu, verslun- um og umboði Tryggingarstofn- unar. Húsið er í eigu Keflavíkur- bæjar og eru íbúðirnar leigðar út. Keflavíkurbær leigir nú út 30 íbúðir fyrir aldraða og er auk þess eigandi að sameign í fjölbýlishúsi með 8 íbúðum í einkaeign. -vd Norsk loðdýraskinn Stóraukin sala Á síðasta ári voru flutt út frá Noregi loðskinn fyrir sem svarar 1.850 miljónum íslenskra króna. Það var um 500 miljónum krón- um meira en árið 1983. Samtals voru flutt út 547.955 minkaskinn fyrir um 550 miljónir fsl. króna. Flutt voru út 363 þúsund bláref- askinn fyrir sem svarar 930 milj- ónir ísl. króna. Mest aukning var í útflutningi á silfur- og platínurefaskinnum en þau voru um 50.000 að verðmæti um 370 miljónir ísl. króna. Aukin eftirspurn hefur verið bæði á minka- og refaskinnum. Helstu kaupendur eru í Vestur-Evrópu, Japan, Hong Kong og Bandaríkj- unum. Sérstaklega hefur salan aukist til Hong Kong og Japan. í upphafi ársins voru um 2.300 loð- dýrabú í Noregi og þar störfuðu samtals um 2.600 manns. Auk þeirra er talið að um 7.000 manns hafi atvinnu óbeint vegna loðdýr- aræktarinnar. Það er við fóður-. framleiðslu, flutninga, verkun skinna og sölu. - vd. Þriðjudagur 16. júlí 1985 pJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.