Þjóðviljinn - 20.07.1985, Blaðsíða 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Verðbréfasala
Seðlabankinn í okurvextina
Nordalstofnar Verðbréfaþing íslands með stœrstu verðbréfasölum landsins.
Ekki spurning umfjárskort almennings heldur upplýsingar ogfrœðslu um gildi sparnaðaf
Seðlabankinn hefur fengið
stærstu verðbréfasala lands-
ins, Kaupþing og Fjárfestingarfé-
lagið auk Landsbankans í lið með
sér og stofnað til verðbréfamark-
aðar undir heitinu Verðbréfaþing
íslands. Viðskiptaráðherra hefur
staðfest starfsreglur fyrir mark-
aðinn en í þeim er lögð áhersla á
að hann sé sem sveigjanlegastur
og að markaðsaðilarnir ráði
sjálfír mestu um þróun hans og
skipulag.
Jóhannes Nordal Seðlabanka-
stjóri lagði á það áherslu er hann
tilkynnti um stofnun verðbréfa-
markaðarins í gær, að hér væri
stigið mjög tímabært skref í
frjálsræðisátt í peningamálum.
Forstöðumenn Kaupþings og
Fjárfestingarfélagsins upplýstu
að mikil gróska væri á verðbréfa-
markaðinum og einkum hefðu
skuldabréf gefin út af fyrirtækj-
um stórlega fjölgað undanfarið.
Með stofnun Verðbréfaþings-
ins er Seðlabankinn orðinn beinn
áhrifaaðili að þreföldu vaxtakerfi
sem nú þrífst hérlendis. f fyrsta
lagi eru það lögboðnir vextir sem
bankinn setur sjálfur, uppá 5%
raunvexti. Af skuldabréfum rík-
issjóðs sem bankinn sér um sölu á
um 6-8% raunvexti og nú síðast
hinn frjálsi verðbréfamarkaður
þar sem afföll eru gífurleg og
raunvextir af skuldabréfum allt
uppí 18-20%.
Seðlabankastjóri játti því á
fundi með blaðamönnum í gær að
hér eftir myndu vextir á verð-
bréfamarkaði hafa mun meiri á-
hrif á vaxtaþróunina en hingað
til. Svokölluð „okurlög“ væru
orðin úrelt og verið væri að undir-
Lánasjóðurinn
Ragnhildur
liggur á
reglunum
Stjórn Lánasjóðs fslenskra
námsmanna hefur samþykkt
úthlutunarreglur fyrir sitt leyti og
er þar meðal annars gert ráð fyrir
því að fyrsta árs nema fái víxillán.
En síðastliðið ár var þeim vísað í
bankana með misjöfnum árangri.
Hins vegar er Ragnhildur
Helgadóttir menntamálaráð-
herra búin að vera með reglurnar
til samþykktar eða synjunar í
rúman mánuð og hefur heyrst að
hún sé treg til að fallast á þá sam-
þykkt stjórnarinnar að veita
fyrsta árs nemum lán. Að auki
mun Ragnhildur eiga eftir að
skipa formann stjórnar þar sem
Sigurður Skagfjörð er hættur
störfum.
Þessi bið eftir ákvörðunum
ráðherra mun vera stjórn Lána-
sjóðsins mjög óþægileg, enda
haustar að og þessi mesti anna-
tími sjóðsins færist óðfluga nær.
Þjóðviljinn hefur undanfarna
daga ítrekað reynt að ná í Ragn-
hildi Helgadóttur vegna þessa
máls, en án árangurs og enginn
annar í ráðuneytinu gat svarað
spurningum um þetta mál.
-pv
búa breytingar á vaxtalöggjöfinni
í viðskiptaráðuneytinu. Taldi
Nordal öll skilyrði fyrir því að
verðbréfaviðskipti færu ört vax-
andi á næstu árum.
„Spurningin er ekki um fjár-
skort hjá almenningi heldur
miklu fremur um auknar upplýs-
ingar og fræðslu varðandi gildi
sparnaðar", sagði Pétur Blöndal
hjá Kaupþing og einn stjórnar-
manna Verðbréfaþingsins að-
spurður hvort verðbréfasalar
ættu von á að t.d. fiskverkunar-
fólk kæmi í hópum til að fjárfesta
á nýja markaðnum. - |g.
Vigdísi forseta var forkunnar vel fagnað í Neskaupstað. Hér sést hún með öðrum forseta Kristni V. Jóhannssyni, forseta bæjarstjórnar í Neskaupstað og
mannfjöldanum sem tók fagnandi á móti henni. Ljósm. GGO.
Forsetaheimsóknin
Vigdís er sameiningartókn
Frá Mjóafirði kom Vigdís Finn-
bogadóttir til Neskaupstaðar
með varðskipi uin miðjan dag á
fímmtudag og tók bæjarstjórn
staðarins á móti henni. Gengið
var beint í skrúðgarð bæjarins og
þar gróðursetti forsetinn hin
hefðbundnu þrjú tré.
Vigdís kom víða við í Nes-
kaupsstað, heimsótti meðal ann-
ars Náttúrugripasafn, undir leið-
sögn Hjörleifs Guttormssonar,
skoðaði kirkjuna og heimsótti
sjúkrahúsið og elliheimilið.
Kvöldverður var snæddur í boði
bæjarstjórnar í félagsheimilinu
Egilsbúð, þar sem Kristinn V. Jó-
hannsson forseti bæjarstjórnar
ávarpaði Vigdísi og ræddi um
hagsmunaátök á milli þéttbýlis og
dreifbýlis og hvernig hann liti á
forseta landsins sem sameining-
artákn fyrir þessi stríðandi öfl.
Kristinn lýsti einnig ánægju sinni
með það að forsetinn kynnti sér
af eigin raun viðhorf fólksins úti á
landi og gæti borið þau suður.
Síðan tók Vigdís til máls og þakk-
aði fyrir móttökurnar og veitti
viðtöku nokkuð sérstæðri gjöf,
en það var postulínsstytta af fjall-
inu Hellisfjarðarmúla og Búlandi
sem blasir við sunnan Norðfjarð-
Styttuna gerði Sigurborg
Ragnarsdóttir myndlistarmaður í
Neskaupsstað.
í gær fór Vigdís til Eskifjarðar
og Reyðarfjarðar þar sem sýslu-
maður Suður-Múlasýslu tók á
móti henni við sýslumörkin. Næst
mun forsetinn heimsækja Fá-
skrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og
Djúpavog.
gó/vd.
Reykjavíkurborg
Lokað á 32 böm á Hagaborg
Starfsmannaflótti úrfóstrustéttinni. 6 stöður lausar á Hagaborg. Vikufrestur til að ráða ístöður.
Efþað tekst ekki eru 32 börn á götunni. Eruflest börn einstœðra mœðra og námsmanna
QA börn eða helmingur þeirra
0*1 barna sem dvelja á Haga-
borg verða að hætta í byrjun sept-
ember vegna starfsmannaflótta
úr stéttinni. Þá hætta 6 starfs-
menn og er fyrirsjáanlegt af
reynslu annarra dagheimila að
ekki verður hægt að bæta úr þeim
skorti“, sagði Guðrún
Steingrímsdóttir forstöðumaður
Hagaborgar.
„Hagaborg lokar eftir næstu
viku í mánaðartíma vegna sumar-
fría og höfum við því aðeins
næstu viku til að ráða í lausu
stöðurnar.
Kauphækkunin sem fóstrur og
ófaglærðir starfsmenn fengu við
síðustu samninga, mun ekki laða
að fólk. Fóstrur hækkuðu um
1000 kr. þannig að mánaðarlaun
fóstru eru um 21.700.
Á fimmtudagskvöld héldum
við fund með foreldrafélaginu og
kynntum fyrir þeim ástandið og
hvernig gæti farið. Margir munu
lenda í vandræðum vegna þess að
flest börnin hér á Hagaborg eru
úr hinum svokallaða forgangs-
hóp, þ.e. börn einstæðra mæðra
og námsmanna. Það verður
óskemmtilegt að þurfa að sjá af
börnunum, og ég veit ekki hvern-
ig sumir foreldrar fara að.
Þetta er vanmetið starf, og er
svo komið að við verðum að taka
hvern þann sem býður sig fram til
starfa hvort sem aðilinn er hæfur
eða ekki“, sagði Guðrún
Steingrímsdóttir að lokum.
-sp