Þjóðviljinn - 20.07.1985, Blaðsíða 15
MENNING
KjQrvQlsstaðir -
Fjölmenni á
lceland Crucible
Góð aðsókn hefur verið að Ice-
land Crucible, alþjóðlegri kynn-
ingu gróandi listalífs á Islandi,
sem opnuð var að Kjarvalsstöð-
um í Reykjavík laugardaginn 13.
júlí.
Efni kynningarinnar er þrí-
þætt: 1. Viðamikil sýning á ljós-
myndum og litskyggnum af ís-
lenskum listamönnum, eftir
heimskunnan ljósmyndara, Vla-
dimir Sichov. 2. Glæsileg mynda-
bók um allar listgreinar samtím-
ans á íslandi með texta eftir Sig-
urð A. Magnússon, rithöfund og
ljósmyndum Vladimirs Sichovs.
3. Athyglisverð litkvikmynd um
vakninguna, sem orðið hefur
undanfarin ár í listalífi þjóðarinn-
ar, eftir bandarísku Emmy-
verðlaunahafana Hal Calbom og
Phil Davies.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
verður opin frá klukkan 14 til 22
daglega fram til 28. júlí, en síðan
er ráðgert að hún fari um þver og
endilöng Bandaríkin og Kanada.
Hilda hf. stóð straum af kostn-
aði við ljósmyndir og kvikmynd,
en Bókaútgáfan Vaka gefur bók-
ina út.
Gestir við opnun kynningarinnar: Halldór Laxness, Auður Laxness og Guð-
mundur Daníelsson.
Tímarit
Vera komin út
Júníblað Veru er komið út. Að
venju kennir margra grasa í tíma-
ritinu en megin efnið að þessu
sinni eru fóstureyðingar. Sagt er
fráfundi samtakanna Lífsvon,
sem hafa það markmið að breyta
fóstureyðingalöggjöfinni í þá
lund, að félagslegar ástæður
nægi ekki til að kona fái eytt
burði. Birt eru viðtöl við konur,
sem þekktu af eigin raun ástand-
ið eins og það var áður en fóstur-
eyðingalöggjöfinni var breytt árið
1974.
Þá er í Veru fróðlegt viðtal við
Astrid Lindgren, sem var tekið
þá er rithöfundurinn ástsæli var
staddur hérlendis í vor og viðtal
við grænlenskar konur um barátt-
una þar í landi. Samtalið enda-
lausa er að þessu sinni við Nönnu
Ólafsdóttur sem ritstýrði kvenn-
atímaritinu Melkorka á 5. og 6.
áratugnum og var virk í Sósíal-
istaflokknum og kemur Nanna
víða við í því viðtali. Þá má nefna
forvitnilega grein um konur og
„bisness“ og aðra um vorkomuna
og safnhauga. Sagt er frá uppá-
komu fulltrúa Kvennaframboðs-
ins í borgarstjórn og birtar bók-
anir þeirra við það tækifæri.
Einnig eru í Veru greinar um
leiklist, myndlist og bókmenntir
og er þó enn eitthvað ótalið af
efni Veru.
Tímaritið Vera er málgagn
kvenfrelsisbaráttu og gefið út af
Kvennaframboðinu í Reykjavík
og Samtökum um Kvennalista. í
lausasölu kostar Vera kr. 130 og
hún á að fást á öllum bestu blað-
sölustöðum landsins. Áskriftar-
síminn er 22188 eða 21500 og
heimilisfang Veru er Kvennahús-
ið, Vallarstræti3,101 Reykjavík.
NVSV
Fjörunytjaferð
á Álftanes
N.V.S.V. ferfjörunytjaferð
laugardaginn 20. apríl. Skoö-
aöar verða fjörur á Álftanesi.
Farið veröur frá Norræna hús-
inu kl. 11.00 frá Náttúrugripa-
safninu Hverfisgötu 116
(gegnt Lögreglustöðinni) kl.
11.15 frá Náttúrufræðistofu
Kópavogs, Digranesvegi 12
kl. 11.30 og Álftanesskóla kl.
11.45. Til baka verður komið
aðskólanumkl. 14.15. Far-
gjald verður kr. 200 en 100 frá
Alftanesskóla. Frítt fyrir börn í
fylgdfullorðinna. Allireru
velkomnir hvort sem þeir eru
félagsmenn eða ekki.
Leiðbeinendur verða þau
Hrefna Sigurjónsdóttir líf-
fræðingur og Vilhjálmur Þor-
steinsson fiskifræðingur en
þau eru bæði í stjórn N. V.S.V.
Farið verður í fjöru við Garða,
ef til vill sjáum við Garðatjörn
rísa úr sæ og á öðrum stað mar-
hálm, háplöntu sem býr við
furðuleg skilyrði og heyrði til
fjörunytjaplantna hér áður fyrr.
Ekki er reiknað með að nýta þær
lífverur sem finnast þarna, heldur
að fræðast um þær, læra að
þekkja nokkrar þeirra og fá upp-
lýsingar um hvernig hægt er að
matreiða þær. Þátttakendum í
þessari ferð er heimil ókeypis
þátttaka í náttúruskoðunar- og
söguferðinni sem hefst við Álfta-
nesskólann kl. 14.15 um daginn.
BDaaDaDaDDaaaaaaaDoaDaoaoaaaoaaDBaaanoaaaaog
a
Þakrennur I
plasti
iEinfaldar í uppsetningu
Hagstætt verð
^ VATNSVIRKINN/i/
§
ARMULI 21 - POSTHÖLF Ö620 - 128 REYKJAVÍK
SÍMIAR: VERSLUN: 686455. SKRIFSTOFA: 685966
SOLUM: 686491
□□□DDaaaDoaDODoaaaaaaDaaooaaaooaaaDaaaaoaao
Auglysið í Þjóðvíljanum
^ : snmymnH ^SÖLUBOÐ
Kornflögur 1 kg.
Kornflögur 500 gr
RICE KRISPIES 375 gr
[JÍ Tekex
I 200 gr
Appelsínumarmelaði
r
* Súpur 5 tegundir: Blómkálssúpa Lauksúpa Spergilsúpa Sveppasúpa Tómatsúpa
...vöruverð í lágmarki 'BMIWMUSCLUMONR. 12
Laugardagur 20. júli 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15