Þjóðviljinn - 24.07.1985, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. júlí 1985
Inn og út um gluggann
Krakkarnir á Kópaseli eru eins og litlir maurar, sem komast allt og bjarga sér ef í harðbakka slaer. Okkur datt einna helst í
hug leikurinn „inn og út um gluggann" þegar við sáum i rassinn á einum orminum, og forvitið andlitið á öðrum.
Ljósmyndarinn vakti óverðskuldaða athygli og ýmsum bröðgum var beitt til að ná athygli hans. Mynd Ari.
FRÉTTIR
■TORGIÐ'
Herinn
Atvinnuástandið hér hefur ein-
kennst af manneklu undan-
farið, eins og víða annars staðar“
sagði Guðjón Sveinsson rithöf-
undur á Breiðdalsvík í samtali við
Þjóðviljann í gær. Frá staðnum
eru gerðir út þrír bátar, þar af
einn 250 tonna togari, Hafnarey,
og vertíðarbátur í eigu frystihúss-
ins en síðan gerir fyrirtækið Sel-
nes h.f. út, 70 tonna vertíðarbát,
sem hefur nú nýlokið við humar-
kvóta sinn, um 2000 lestir.
Á Breiðdalsvík og í sveitinni
þar í kring eru um liðlega 370 íbú-
ar og hefur umtalsverður brott-
flutningur átt sér stað þaðan í
suðurátt að sögn Guðjóns. Tvær
meginástæður fyrir fólksflóttan-
um eru taldar þær að mikil ein-
hæfni ríkir í atvinnulífi og einnig
mun ýmsum ofbjóða kyndingar-
kostnaðurinn, en ljós og hiti
kosta að meðaltali á mánuði frá
fjögur-fimm þúsund krónum.
Reiknast mönnum til að mismun-
urinn í kyndingarkostnaði milli
Reykjavíkursvæðisins og Breið-
dalsvíkur nemi allt að einni sólar-
landaferð fyrir tvo.
Nýr grunnskóli er í byggingu á
Breiðdalsvík, en sá gamli, sem er
frá árinu 1958, er eina sjö kíló-
metra fyrir innan þorpið. Gert er
ráð fyrir því að nýi skólinn verði
fokheldur í haust og er 900 metra
grunnflöturinn nokkuð sérstakur
að því leyti að hann er þríhyrnd-
ur. Nokkur fjörkippur hefur ver-
ið í húsbyggingum undanfarið í
þorpinu og í fyrra voru fimm
íbúðarhús gerð fokheld og þrír
verkamannabústaðir teknir í
notkun. -vd
Hollendingar
fá fasta aðstöðu
30 manna lið fylgir kafbátaleitarvél
Breiðdalsvík
Síldveiðar
Hrognasíld til Japans
Tilraunaveiðar á hrognafullri síld. Strangargœðakröfur. Af200 tonnumreyndust
aðeins37 tonnfullnœgja gœðakröfum Japana. Afgangur í beitu og bræðslu.
Lokið er í Njarðvíkunum til-
raunum með veiði á hrogna-
fullri sfld fyrir Japansmarkað.
Gekk veiðin ekki sem skyldi en þó
tókst að frysta um 37 tonn af sfld,
sem væntanlega verður seld til
Japans.
- Þetta gekk því miður ekki
nógu vel hjá okkur, segir Jón
Karlsson hjá Brynjólfi hf. í sam-
tali við blaðið Fiskifréttir. Að
sögn Jóns lenti Hafberg GK, sem
stundaði veiðarnar, í óhöppum
og eins olli það líka miklum vand-
ræðum að veiða varð síldina á
mjög skömmum tíma vegna
hrognanna. Af þeim 200 tonnum
sem veidd voru töldu japönsku
eftirlitsmennirnir aðeins 37 tonn
fullnægja gæðakröfum, en þeir
vilja að hrognin séu um 10% af
heildarþyngd sfldarinnar og séu
jafnframt fullþroskuð. Til marks
um það um hve skamman tíma til
veiðanna er að ræða þá veiða
Kanadamenn þessa hrognafullu.
sfld fyrir Japansmarkað tvo daga
á ári hverju. Síldin sem ekki seld-
ist til Japans hefur verið fryst í
beitu en smæstu sfldina varð hins
vegar að senda í bræðslu.
- vd.
„Ákveðið hefur verið að verða
við beiðni Hollendinga um að-
stöðu á Keflavíkurflugvelli fyrir
eina kafbátaleitarflugvél af gerð-
inni Orion P-3, áhöfn hennar og
viðgerðarlið, samtals um 30
manns.
Fram til þessa hafa hollenskar
vélar af þessari gerð, sem og slík-
ar vélar frá öðrum þjóðum At-
lantshafsbandalagsins, haft hér
viðkomu en enga fasta aöstöðu".
Frá þessu er skýrt í fréttatil-
kynningu frá utanríkisráðu-
neytinu. „Hollendingar munu að
öllu leyti lúta stjórn yfirmanns
bandaríska varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli meðan á dvöl
þeirra hér á landi stendur. Við
komu hollensku vélarinnar mun
varnarliðið fækka um eina vél í
kafbátaleitarsveit sinni, þannig
að ekki verður um fjölgun í varn-
arliðinu að ræða.
Fyrirhugað er, að Hollending-
ar skipti reglulega um vélar og
áhafnir, enda mun fyrirkomulag
þetta fyrst og fremst hugsað til að
þjálfa hollenskar kafbátaleitar-
sveitir í þágu sameiginlegra varna
Atlantshafsbandalagsins", segir í
fréttatilkynningunni.
- vd.
Fœreyjar
Fiskeldi
þrefaldast
Fiskeldi er nú í miklum vexti í
Færeyjum. Á síðasta ári voru
þannig framleidd um 550 tonn
samtals af laxi og regnbogasil-
ungi. Þetta magn mun nú stór-.
aukast, og munu Færeyingar að
Iíkindum næstum því þrefalda
framleiðsluna í ár, og slátra um
1500 tonnum.
Stjórnvöld þar í landi hlúa vel
að fiskeldi með rausnarlegum
lánum til byrjenda og nú eru víða
vogar og eyjasund full með flot-
kvíar.
Skólahúsnæði vantar
Börn íÞingholtunumfá ekki inni ískólanum íhverfinu. Einkaskólinn hafði forgang
framyfir yngstu börnin íÞingholtunum. Ibúasamtökin biðjafræðsluráð að taka upp málið.
Ibúasamtök Þingholtanna hafa
nýlega sent fyrirspurn til
fræðsluráðs og vflja fá að vita
hvers vegna einkaskólinn hefur
verið látinn ganga fyrir með hús-
næði í Miðbæjarskólanum, en
yngstu bekkjardeildum Austur-
bæjarskólans var úthýst þar „þar
sem ekkert húsnæði er aflögu“
eins og segir í bréfí fræðsluráðs
13. ágúst í fyrra þegar eftir þessu
var leitað.
Sumarið 1984 sendi vinnuhóp-
ur, sem stofnaður hafði verið á
fundi íbúasamtaka Þingholt-
anna, haustið 1983, um skólamál,
bréf til fræðsluráðs. Báðu
samtökin um að gerð yrði athug-
un á fjölda 6, 7 og 8 ára barna
neðst í Þingholtunum. Fóru sam-
tökin jafnframt fram á að fá hluta
Miðbæjarskóla til kennslu þess-
ara barna, ef könnunin leiddi í
ljós þörf og grundvöll fyrir slíkri
tilhögun. Skólahverfi Austurbæj-
arskólans hefur hæstu slysatíðni
barna á grunnskólastigi borgar-
innar. Börnum fer fjölgandi í
Þingholtunum og er leið þeirra,
sem búa neðst í hverfinu, mjög
löng og erfið að Austurbæjar-
skólanum, einkum fyrir yngstu
börnin.
Á haustfundi 1983 voru skóla-
stjóri Austurbæjarskólans og
fræðslustjóri Reykjavíkur við-
staddir og tóku þeir þessum hug-
myndum vel og studdu það, að
gerð yrði athugun á þessari þörf.
Gæti orðið um nokkurskonar úti-
bú að ræða frá Austurbæjarskól-
anum, þó aðeins fyrir 2-3 yngstu
bekkjardeildirnar.
Þann 20. ágúst 1984 var erindi
þessu hafnað af fræðsluráði á
þeirri forsendu, að húsnæði væri
ekki fyrir hendi.
fbúasamtökin hafa nú farið
fram á það við fræðsluráð að er-
indi þeirra verði tekið upp aftur,
þar sem nú virðist vera húsnæði á
lausu í Miðbæjarskólanum. -vd
A
...það er draumur að vera með
dáta...
Mannekla
í frystihúsinu
Guðjón Sveinsson: Fólksflótti vegna einhœfni
í atvinnulífinu. Gífurlega hár kyndingar-
kostnaður.