Þjóðviljinn - 24.07.1985, Page 16
Miðvikudagur 24 júlí 1985 167. tölublað 50. árgangur
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
HIOÐVIUINN
Fiskvinnsla
VSI kúgar þá alla
Hrafnkell Jónsson formaður Árvakurs á Eskifirði: VSÍkemur í veg fyrir
launahœkkanir ífiskvinnslu með þvingunum. Margir vilja hœkka launin.
Bónusinn er ótœkur. Ill meðferð áfiskvinnslukonum.
r
Eg er þess fullviss og þekki
dæmi þess, að fjölmargir at-
vinnurekendur í fiskvinnslunni
hafa fullan vilja til að hækka
launin í fiskvinnslunni, en VSI
hreinlega stoppar þessa menn af.
Menn eru upp á lánastofnanir og
ríkisvald komnir að miklu leyti og
það er ákveðin samtrygging á
milli valdamestu manna í VSI,
bankakerfínu og í ríkisstjórn,
menn eru beittir þvingunum af
þessum þríhöfða þurs, sagði
Hrafnkell A. Jónsson formaður
verkalýðsfélagsins Árvakurs á
Eskifírði í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Hrafnkell sagði að einstakir
aðilar ættu mjög erfitt með að
brjótast út úr núverandi ástandi
hvað launamálin snertir, þeim
væri sýnt í tvo heimana ef þeir
sýndu tilburði til að borga þau
laun sem eðlileg væru fyrir þetta
starf. Laununum væri vísvitandi
haldið niðri af VSÍ.
„Annars held ég að bæði
eigendum fiskvinnslufyrirtækja
og fólkinu sem vinnur í fisk-
vinnslu sé að verða ljóst, að það
þarf að gera stórkostlegar endur-
bætur á launakerfinu í fiskvinnsl-
unni. Bónusinn eins og hann er er
með öllu ótækur og það verður að
auka hlutdeild tímakaupsins í
launum til muna. Bónusinn veld-
ur allt of miklu líkamlegu og and-
legu álagi og meðferðin á fisk-
vinnslukonum er oft á tíðum
beinlínis ómanneskjuleg að mín-
um dómi. T.d. er allri ábyrgð á
slæmri vöru varpað yfir á þær og
ef fyrirtæki verður á að senda
slæman fisk út til Ameríku eru
konurnar kallaðar saman og
haldinn yfír þeim reiðilestur. Oft
er þetta því líkast að verið sé að
hirta óþæga krakka þegar
beinum og ormum er veifað
framan í þær undir reiði-
lestrinum. Þetta er auðvitað fár-
ánlegt. Það á ekki að vera hægt
að taka eitt stig í vinnslunni út úr
og benda á það sem sökudólg ef
eitthvað fer úrskeiðis. Þess verð-
ur að gæta til dæmis, að það er
ekki alltaf sem konurnar eru að
vinna með úrvals hráefni,” sagði
Hrafnkell að lokum.
-gg
Margfaldur
skjálfti
íbúum í Kaíró í Egyptalandi
brá heldur en ekki þegar þeir sátu
fyrir skömmu í mestu makindum
fyrir framan sjónvarpstækið og
horfðu á bandarísku stórslysa-
myndina ,Jarðskjálftinn“
(„Earthquake"). Skyndilega skalf
jörðin undir sjónvarpsáhorfend-
um og menn vissu ekki sitt rjúk-
andi ráð. Þegar skelfíngu lostnir
Kaíróbúar hófu að athuga málið
kom í Ijós að jarðskjálfti hafði
orðið einmitt þegar verið var að
sýna , „J a rðs kj á 1 fta n n “.
Skjálftinn náði einungis yfir
takmarkað svæði og sem betur
fer urðu ekki meiðsl á mönnum.
Þess er að minnast að fyrir nokkr-
um árum var verið að sýna
Gullna hliðið eftir Davíð Stefáns-
son á Akureyri. Þegar mest gekk
á í særingum og formælingum
Kölska vildi einnig svo til að væg-
ur jarðskj álfti gekk yfir. Það þarf
ekki að orðlengja að Akureyring-
um þótti sýningin hin magnað-
asta, ekki síst leikbrögðin!
Þeir eru margir ráðstefnu- og námskeiðsstaðirnir á íslandi. Einn þeirra er Reynisfjall, en þar lauk um helgina leiklistarnámskeiði, sem Kevin Khulkefrá New York University hélt. Námskeiðið
sóttu ungir leikarar, leiklistarnemar og áhugamenn frá íslandi og Bandaríkjunum og eru allmörg þeirra nemar við N.Y. University. Námskeiðið fór að verulegu leyti fram úti í náttúrunni, en á myndinni
sjáum við hópinn uppi á fjallsbrúninni með Dyrhólaey í baksýn. Kevin er sjötti frá hægri á myndinni. Nánar verður sagt frá námskeiðinu í helgarblaðinu. Mynd: -eik.
Lánasjóðurinn
Árdís formaður stjómar!
Ragnhildur skipar höfund umdeildrar úttektar semformann
stjórnar. Fyrsta árs nemum vísað í bankana.
Ríkisútvarpið
Viðar
Víkingsson
leiklistar-
ráðunautur
Pétur Guðfínnsson fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins hafði
samband við blaðið vegna fréttar
um skipulagsbreytingar á stofn-
uninni og vildi koma eftirfarandi
á framfæri:
Viðar Víkingsson dagskrár-
gerðarmaður hjá sjónvarpinu
mun sinna starfi leiklistarráðu-
nauts um tíma í hálfu starfi og
staðan verður þar af leiðandi ekki
auglýst laus á næstunni. -vd
Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra hefur
staðfest nýjar úthlutunarreglur
fyrir Lánasjóð íslenskra náms-
manna. Stjórn Lánasjóðsins
hafði fyrir nokkuð löngu síðan
samþykkt tillögur fyrir sitt leyti
sem Ragnhildur samþykkir nú
með nokkrum breytingum.
Sú veigamesta snýr að lán-
veitingum til fyrsta árs nema.
Stjórnin hafði samþykkt að veita
þeim víxillán, en breyting Ragn-
hildar á því ákvæði mun í reynd
þýða að fyrsta árs nemum verði
aftur vísað í bankana, eftir því
sem fróðir menn um lánamál
sögðu Þjóðviljanum í gærdag.
Hins vegar munu námsmenn
næsta vetur fá 100% af áætlaðri
fjárþörf þeirra.
En það eru fleiri tíðindi úr
lánamálunum. Menntamála-
ráðherra hefur skipað Árdísi
Þórðardóttur rekstrarhagfræðing
formann stjórnar Lánasjóðsins í
stað Sigurðar Skagfjörð. Árdís
Þórðardóttir er aðallega þekkt
fyrir úttekt sem hún gerði á sínum
tíma á Lánasjóðnum fyrir
menntamálaráðherra og olli
miklum deilum. Meðal annars
mótmæltu öll samtök náms-
manna skýrslunni sem flausturs-
legri og illa unninni og var það
einnig álit ýmissa fagmanna.
Þótti námsmönnum sem lítill
skilningur hefði komið fram hjá
skýrsluhöfundi um hlutverk og
gildi sjóðsins fyrir námsmenn,
auk fleiri athugasemda þeirra í
sama dúr. -pv
Skaftamálið
Jón kærir
Jónas
Jón Oddsson hæstaréttarlög-
maður hefur kært Jónas
Kristjánsson ritstjóra DV vegna
skrifa hans um Skaftamálið í
leiðara DV í gær.
Ýmis ummæli Jónasar í leiðar-
anum í gær svo og leiðari hans frá
byrjun desember 1983 eru lögð til
grundvallar kærunni. Jón vísar
einnig til fleiri „óvandaðra skrifa
þessa Jónasar”. í skeyti sínu til
ríkissaksóknara leggur Jón
áherslu á að erindi hans fái
embættislega umfjöllun án tafar.
Jón Oddsson er lögmaður Guð-
mundar Baldurssonar.