Þjóðviljinn - 30.07.1985, Side 2

Þjóðviljinn - 30.07.1985, Side 2
FRÉTTIR Krafla Seld á rúman miljarð Heildarskuldir3.2 miljarðar. Ríkið tekuryfirrúma2 miljarða afskuldasúpunni. Tryggir óbreytt orkuverð, segir Landsvirkjun. Landsvirkjun tekur yfir rekstur áramót. Samkvæmt samningi Kröflu virkj unar um næstu sem undirritaður var í gær Neytendasamtökin Kartöflum illa við solina Það hefur færst mjög í aukana að kaupmenn hafi á boðstólum utandyra matvæli sem geyma á í kæli. Sérstaklega er kartaflan veik fyrir sólaráhrifum og getur myndað eiturefni (solanum) við mikla sól- og hitaböðun. Neytendasamtökin benda á að fráleitt sé að vörur séu með- höndlaðar á þennan hátt. Þó sé gott eitt að segja um þann nýja sið, að selja varning utan- dyra.Slíkir verslunarhættir setja oft skemmtilegan svip á mannlíf og umhverfi. En Neytendasam- tökin harma það að vara sem eðli sínu samkvæmt á að geymast við 0-4 gráður sé höfð úti, óvarin. Telja samtökin það harmaefni ef kaupmenn í hugsunarleysi eyði- leggja þann árangur í vöruvönd- un sem náðst hefur eftir mikla baráttu samtakanna og breyttra jákvæðra viðhorfa framleiðenda. kaupir Landsvirkjun Kröflu af ríkinu fyrir 1.170 miljónir sem greiðast með skuldabréfi til 25 ára. Heildarskuldir Kröfluvirkj- unar eru hins vegar rúmir 3,2 miljarðar og tekur ríkissjóður yfir skuldir að upphæð rúmir 2 miljarðar. Kaupsamningurinn var undir- ritaður með fyrirvara um sam- þykki Alþingis. Eigendur Lands- virkjunar, ríkið, Reykjavíkur- borg og Akureyrarbær, telja að þessi kaupsamningur muni ekki hafa í för með sér verðhækkun á raforku frá Landsvirkjun enda hafi það verið grundvallarfor- senda fyrir samningsgerðinni. í kaupsamningnum er sérstakt ákvæði um áhættuskiptingu aðila vegna hugsanlegs tjóns á Kröflu- virkjun af völdum jarðhræringa. Mun ríkissjóður bæta Lands- virkjun tjón umfram 40 miljónir og allt að 200 miljónum. Samhliða yfirtöku Landsvirkj- unar á Kröflu verða gerðar breytingar á skipulagi og rekstri og starfsmannahaldi við virkjun- ina. Þá eru aðilar sammála um að taka upp viðræður um kaup Landsvirkjunar á eigum Jarð- varmaveitna ríkisins í Bjarnar- flagi sem metnar eru á um 150 miljónir. Kröfluvirkjun framleiðir nú um 30 MW og að sögn talsmanna Landsvirkjunar eru ekki uppi ráðagerðir um frekari orku- vinnslu að sinni enda engin þörf fyrir viðbótarorku í landskerfinu. -íg- Hvenær hættir Shell að kaupa Moggann? Hjá ESSO færðu kuldann í kælikistuna! Á eftirtöldum bensínstöðvum Esso getur þú komið með þiðnaða kælikubba úr kælikistunni þinni og við látum þig fá frosna um hæl. Veitingastofan Þyrill Söluskálinn Skútan Bensínstöö Esso Esso skálinn Bensínstöð Esso Ábær Esso Veganesti Bensínstöö Esso Naustagili Söluskáli Esso Bensínstöð Esso Bensínstöðin Bensínstöðin Leirubakka Fossnesti Bensínstöð Esso Bensínstöð Esso Hvalfirði Akranesi Borgarnesi Blönduósi Varmahlíð Sauðárkróki Akureyri Húsavík Egilsstöðum Nesjaskóla Hornafirði Skaftafelli Landssveit Selfossi Þrastarlundi Laugarvatni * D < Það er eitthvað fyrir alla á bensínstöðvum Esso Olíufélasið hf Framfœrsluvísitala Víðbek neyslu- könnun hafin Nýr grunnur fyrir framfœrsluvísitölu líklega nœsta haust. Hagstofan hefur óskað eftir því við 600 einstaklinga alls stað- ar af landinu að halda nákvæmt bókhald yfir öll innkaup og út- gjöld sín og fjölskyldu sinnar. Til- gangurinn er að finna nýjan grunn fyrir framfærsluvísitöl- unni en síðast var gerð neyslu- könnun hérlendis fyrir fimm árum. Það er kauplagsnefnd sem sér um útreikning framfærsluvísitöl- unnar en nefndin hefur falið Hagstofunni að annast neyslu- könnunina. Mun könnunin standa fram á næsta sumar og niðurstöður að líkindum kunnar á næsta hausti. Auk þeirra búreikninga sem fjölskyldur verða beðnar að halda munu starfsmenn Hagstof- unnar heimsækja þátttakendur í könnuninni í byrjun næsta árs og afla upplýsinga um ársútgjöld helstu þátta heimilishaldsins. -*g- Athugasemd lögmanns í blaði yðar 26. júlí s.l. er á forsíðu birt grein er varðar skipti umbjóðanda míns Gísla Árnason- ar við Lárus Jónsson varðandi fasteignina Arnartangi 35 í Mos- fellssveit. Greinin hefur inni að- halda hlutdræga lýsingu á við- skiptum aðila. Virðist henni ætl- að að vekja þá trú lesandans, að brotinn hafi verið rétur á Lárusi Jónssyni í skiptum þessum. Hefur umbjóðandi minn óskað eftir að ég taki eftirfarandi fram við yður og óski birtingar athugasemd- anna í blaði yðar: 1. Lárus (kaupandi) hélt því fram að fasteignin hefði verið gölluð og hætti að greiða kaupverðið. Hélt hann eftir samtals kr. 850.000,- af kaupverðinu vegna galla, sem metnir voru á kr. 43.000,- 2. Kaupunum var aldrei rift af Gísla (seljanda) hálfu heldur krafðist hann þess að Lárus stæði við kaupin og greiddi kaupverð- ið. Var fallist á þá kröfu hans með dómi aukadómþings og Lárus dæmdur til að greiða kr. 807.000.- auk vaxta og kostnað- ar. 3. Rangt er í grein yðar að Gísli hafi ekki viljað greiða Lárusi skaðabætur vegna galla. Bauðst Gísli strax til að láta gera við gluggaþéttingar á sinn kostnað en meginhluti tjóns Lárusar var vegna þess atriðis. 4. Gísli gekk að fasteigninni með fjárnámi skv. dómi aukadóm- þings Kjósarsýslu, enda hefur Lárus ekki viljað greiða dóm- skuldina sjálfviljugur. Á upp- boðsþingi (fyrri sala) 6. maí 1985 var enginn mættur af hálfu Lárus- ar til þess að biðja um annað og síðara uppboð. Gísli gat því látið slá sér eignina þá. Það gerði hann ekki heldur hafði frumkvæði að því að annað og síðara uppboð færi fram. Vildi hann með þessu enn leyfa Lárusi að greiða kaupverðið skv. dóminum. Næst var uppboðsþing 12. júní 1985. Þá fékk Lárus frest til 5. júlí. Engin merki komu fram um að Lárus ætlaði að greiða skuldina. 5. Á uppboði 5. júlí var eignin slegin Gísla á 2.7 milljónir. Nægir kaupverðið til að greiða allar veðskuldir sem hvfla á eigninni framar kröfu Gísla. Sú krafa er hins vegar nú orðin ca. kr. 1,1 milljón. Það hefði því þurft að bjóða ca. kr. 3,8 milljónir til að bjóða upp fyrir Gísla. Með boði sínu er Gísli að beita þeirri aðferð sem lög bjóða til að gæta hagsmuna sinna. Þess skal getið, að söluverð eignarinnar, þegar Gísli seldi Lárusi, var kr. 3,0 milljónir og átti að greiðast á lengri tíma heldur en gildir í upp- boðskaupum. 6. Vera má að blaði yðar þyki að sá „réttur" eigi að gilda í landinu, að menn kaupi sér fasteignir af samborgurum sínum, neiti að greiða kaupverðið en fái samt að halda eignunum. Umbj. minn er þá ósammála yður og kveðst munu áfram reyna að verja sig fyrir því, að menn sem hann á viðskipti við leggi að vild undir sig eigur hans. Jón Steinar Gunnlaugsson, hrl. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. júlí 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.