Þjóðviljinn - 30.07.1985, Blaðsíða 8
MANNUF
Æskan í
keppnis-
skapi
Þjóðviljamenn litu við á Reykjavík-
urmóti barnannaí
inum um
Mér gekk æðislega í 100 metra
hlaupinu en þú færð ekkert að
vita um körfuboltann, sagði
Hlynur Freyr Ólafsson þar sem
við hittum hann að leik við pabba
sinn í Hljómskálagarðinum. „Það
er æðislega gaman hérna og mér
finnst að svona mót eigi að vera
miklu oftar. Það er bara verst að
pabbarnir og mömmurnar eru löt
að mæta og hætta allt of
snemma“, og faðir Hlyns, Ólafur
H. Matthíasson, tók undir það.
Það var skátafélagið Árbúar
Hljómskálagarð-
helgina
sem skipulagði Reykjavíkurmót
barnanna og var fjölbreytt dag-
skrá. Keppt var í fjölmörgum
greinum en keppnin var þó ekki
aðalatriðið heldur það að vera
með. Þó var keppnisskapið fyrir
hendi og er ekki að efa að margir
þeirra sem léku sér í garðinum
við Tjörnina eiga eftir að ná langt
í sinni grein síðar. Þá komu fjöl-
margar hljómsveitir fram en sér-
stakir tónleikar voru haldnir í til-
efni af Alþjóðaári æskunnar.
Pylsurnar eru ómissandi þegar mannamót eru haldin. Ljósm. Ari.
Ólafur Matthíasson bregður á leik með syni sínum Hlyni. Ljósm. Ari.
Húlahopp er að komast í tísku aftur. Þjálfar magavöðvana.... Ljósm. Ari.
Það er erfitt að halda knettinum lengi á lofti en með góðri fótamennt og einbeitingu hugans er hægt
að ná árangri. Ljósm. Ari.
/ minningu
Sigurðar Greipssonar
Leiðréíting
í minningargrein um Sigurð
Greipsson eftir Eystein Þorvalds-
son, sem birtist hér í blaðinu á
laugardaginn, urðu þau mistök,
að niður féll setning í málsgrein
þar sem fjallað var um skólastarf
Sigurðar. Biðst blaðið velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Rétt er málsgreinin svona:
„Sigurður var bóndi á föður-
leifð sinni, Haukadal í Biskups-
tungum, og gestgjafi og hótel-
haldari á sumrin. Margir munu
minnast hans fyrir frækilegan
íþróttaferil hans í æsku, fyrir ára-
tuga forystu hans í ungmennafé-
lagshreyfingunni og fyrir rekstur
hans á Iþróttaskólanum í Hauka-
dal í rúm 40 ár. Ég sótti þennan
skóla á unglingsaldri og æ síðan
er Sigurður mér minnisstæðastur
fyrir kennslu hans og þakklátur
er ég fyrir ævilanga vináttu hans
síðan og margar ánægjulegar
samverustundir. Kennslan og
skólastarfið er áreiðanlega merk-
asti þátturinn í lífsstarfi Sigurðar
Greipssonar. Hann var frábær
kennari, hvort sem var í íþróttum
eða inni í skólastofunni. Af bók-
legum greinum kenndi hann t.d.
íþróttasögu sem var í rauninni
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. júlí 1985*
mannkynssaga og íslandssaga út
frá sérstæðu sjónarhorni og með
öðrum áherslum en í hefðbundn-
um skólum. Hann náði óskiptri
athygli nemenda sinna, kennsla
hans var innblásin eins og margar
ræður hans.“