Þjóðviljinn - 30.07.1985, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN
LADA-Sport 1979
ekinn 78.500 til sölu. Útvarp-
segulband. Transistorkveikja. Verö:
140.000 - eöa 100 þús. gegn staö-
greiðslu. Upplýsingar í síma 71858.
Til sölu
Lítið notuð 7 ára Brother prjónavél
með borði á kr. 7000. Gamall svamp-
laus svefnbekkur kr. 500, lítið Winter
drengjareiðhjól 20“ kr. 500, 4 stykki
rafmagnsþilofnar með 5/termostati
kr. 2500 stk., 2 gamlir stólar með
góðri stálgrind með púðum klæddum
nautshúð, þurfa viðgerð kr. 300 stk.
Uppl. í síma 45663.
Til sölu
gólfteppi 3.80x4.20 11/2 árs gamalt.
Verð 3 þús. og Copco útigrill. Sími
27541.
ísskápur
til sölu, sími 44482.
Til sölu
borðstofuskápur (lengd 160, hæð
117) úr tekki, fjórir læstir skápar og
einn glerskápur 4- 4 skúffur, út-
skurður í skápum og skúffum, selst
ódýrt. Sími 28321.
Barnagæsla - Vesturbær
Frá 1. ágúst get ég bætt við mig 2
börnum í gæslu f.h. Hef leyfi. Sími
28321. Margrét.
Fallegur
grár kettlingur fæst gefins. Uppl. í
síma 31519, eftir kl. 15.00.
Túnþökur
til sölu, uppl. í síma 32742.
Húsnæöi
Róm - Reykjavík
Frá miöjum ágúst fæst 3 herb. ibúð í
Róm í skiptum fyrir húsnæði í Reykja-
vík eða nágrenni. Húsnæði vantar í
2-3 mánuði en hægt er að semja um
annan tíma. Uppl. í síma 71975.
íbúð óskast
24 ára reglusöm stúlka í góðu starfi
óskar eftir að taka á leigu 2ja herb.
íbúð. Helst í miðbæ eða Þingholtum
(þó ekki skilyrði). Einhver fyrirfram-
greiðsla möguleg. Upplýsingar í síma
84563 eftir kl. 17.
Sjúkraliði
óskar eftir 3-4 herbergja íbúð, helst í
Árbænum, ekki skilyrði. Til greina
kemur húshjálp sem hluti greiðslu.
Skilvísar greiðslur og alger reglu-
semi. Tilboð sendist til auglýsinga-
deildar Þjóðviljans merkt: LEIGA XX.
Herstöðvaandstæðingar
Munið að greiða útsenda gíróseðla
fyrir félagsgjöldum. Nú liggur mikið
við. Stuðningsframlög vegna Friðar-
búða má greiða beint inná ávísana-
reikning nr. 30703 við Alþýðubank-
ann.
Samtök herstöðvaandstæðinga
Hjónarúm
Til sölu er hjónarúm úr tekki með
áföstum náttborðum og dýnum. Selst
ódýrt. Hringið í sima 18404 milli
klukkan 6 og 7 í kvöld.
Stúdíó - París
Stúdíó til leigu í París í ágúst og sept-
ember. Leigist i lengri eða skemmri
tíma. Upplýsingar í síma 29775.
Volvo 242, árgerð 1975
til sölu með B 20 skiptivél, ekinn 50
þús. km, sprautaður í nóvember síð-
astliðnum. Upplýsingar í síma 29672
eftir klukkan 17.
Til sölu
Amerísk grá-blá dragt, kápa og rauð
buxnadragt, stærðir 50-52. Sími
15501.
Frystikista til sölu
Til sölu 470 lítra Gramfrystikista.
Sími 15501.
Óska eftir
að kaupa gamlan ísskáp, ekki hærri
en 1,36 m. Upplýsingar í síma 33396.
Herbergi til leigu
Til leigu er 10 fermetra herbergi í kjall-
ara í blokk í Neðra-Breiðholti. Kemur
bæði til greina sem íbúðar- og
geymsluherbergi. Upplýsingar í síma
75209 eftir kl. 17.30.
Húsnæði óskast
Kurteis, reglusamur, velættaður,
karlmaður á besta aldri í þrifalegri
vinnu óskar eftir stóru herbergi eða
lítilli íbúð. Helst í gamla bænum, þó
ekki skilyrði. Upplýsingar í síma
37429 til klukkan 16.
Til sölu
Gömul Haka þvottavél og notaður vel
með farinn ísskápur til sölu vegna
flutninga. Hagstætt verð. Uppl. í síma
38924.
Reiðhjól óskast
Óska eftir að kaupa vandað vel með
farið karlmannsreiðhjól. Óska einnig
eftir að kaupa Olympus OM-1 hús.
Uppl. í síma 621132.
Litlar barnakojur
óskast keyptar - sakar ekki þó að
þær fáist á gjafverði. Uppl. í síma
20771.
Sumarleyfisupplifun ársins
Hvernig væri að eyða hluta af sumar-
leyfinu í Friðarbúðum? Létt
stemmning og friðsæld að eigin vali.
Pantanir í síma 17966.
Samtök herstöðvaandstæðinga
Barnavinir
Okkur vantar inni- og útileikföng í
Friðarbúðir, 6.-9. ágúst. Kíkið íkjallar-
ann og á háaloftið. Uppl. í síma
17966. Móttaka að Mjölnisholti 14 3.
hæð.
Samtök herstöövaandstæðinga.
Til sölu
Barnarimlarúm, barnakerra, hopp-
róla o.fl. barnadót. Upplýsingar í síma
39064.
Vantar pípara
Vantar pípulagningamann í vinnu í
nokkra daga. Góð laun. Upplýsingar í
síma 24494 og 36091 (Guðmundur).
Til sölu
Colner keppnishjól, lítill skjalaskápur,
skrifborðsstóll, svefnbekkur, svefn-
herbergisgardínur (1,8x6 m), stóris
og strauborð. Upplýsingar í síma
36838 á kvöldin.
Nýsmíði - breytingar
viðhald
Tek að mér smærri og stærri verk fyrir
einstaklinga og fyrirtæki, viðhald,
breytingar og nýsmíði. Húsa- og hús-
gagnasmiður, sími 43439.
íbúð óskast
Ung kona utan af landi óskar eftir 2ja
herbergja íbúð í vesturbæ, miðbæ
eða Norðurmýrinni, til lengri tíma.
Góðri umgengni heitið. Uppl. í síma
93-1275.
Halló - halló
Við erum tvær ungar stúlkur sem
hyggjum á háskólanám í haust. Okk-
ur vantar 3ja herb. íbúð strax. Við
erum mjög reglusamar og báðar
gæðablóð. Við getum borgað leigu
upp að 12.000.- en sættum okkur við
minna. Helst af öllu viljum við vera í
vesturbænum, en allt kemur til
greina. Hringdu og talaðu við okkur í
síma 11884.
Til sölu
Barnavagn með dýnu, flauelisburð-
arrúm, skenkur frá 1910 með spegli,
úr dökkri bæsaðri furu, Zanussi
þvottavél notuð i eitt ár og Candy
þvottavél. Upplýsingar í síma 29672.
hátíðarmatur hjá þeim. En
keppikefli okkar er að ná lifrinni.
Þar eru mjög verðmæt efni sem
eru notuð í snyrtivöruiðnaði. Við
vinnum að því að einangra þessi
efni úr lifrinni og selja, því fyrir
þetta fæst þokkalegt verð. Þessi
efni eru m.a. notuð í varaliti og
húðkrem. Bandaríska
geimvísindastofnunin NASA
notar fituna úr þessari lifur í
geimskip og gervihnetti, því hún
er þess eðlis að hún þolir vel
kulda þar sem venjuleg smurolía
myndi frjósa. Þarna eru því mikl-
ir möguleikar á sölu og við stefn-
um að fullvinnslu á þessu á næsta
ári.
Samvinna við sjómenn
Lárus: „Við höfum reynt að
hafa samvinnu við sjómenn í
þessu efni. Hákarlinn kemur oft í
veiðarfærin hjá þeim og við
kaupum lifur og ugga á 30-35 þús-
und. Þetta byggist alit á því að
góð samvinna takist við sjómenn.
Þeir kalla það stundum Mesóp-
ótamíu, landið milli fljótanna á
norð austurlandi þar sem Húsey í
Hróarstungu er staðsett. Það býr
Orn Þorleifsson, þekktur bar-
áttumaður fyrir nýjungum í land-
búnaði og hefur kynnt sér sér-
staklega ýmis nytjadýr, grasætur
sem geta lifað á innlendu fóðri og
hægt væri að flytja út afurðir
þeirra.
Örn ferðaðist í fyrra til Austur
og Vestur-Þýskalands og Tékk-
óslóvakíu og kynnti sé hvernig
ræktun og meðhöndlun slíkra
dýra er háttað þar.
„í Austur-Þýskalandi vakti at-
hygli mína önd sem þeir kalla
Carina 2000. Það er nú víst ekki
sannað hvort þetta er önd eða
gæs. Á íslensku er hún kölluð
mosku önd. Þeir hafa þar náð
mjög góðri ræktun og kynbótum
ATVINNUUF
Við höfum góða samvinnu við
útibú Hafrannsóknastofnunar í
Ólafsvík og saltfiskdeildin hjá
BÚR hefur verið mjög hjálpleg
við þurrkun á uggunum. Það þarf
samstillt átak í þessu.“
„Það vantar herslumun á að
þetta gangi fullkomlega upp og
sjómenn hirði hákarlinn og komi
til okkar með lifur og ugga.
Beinhákarlinn er hérna við
landið og sjómenn fá hann stund-
um í veiðarfærin. Ef okkur tekst
að selja þessi verðmætu efni beint
erlendis þá fáum við þokkalegt
verð fyrir þau. Við höfum líka
verið að kanna náttúrlega fitu í
öðrum fisktegundum sem hægt
væri að flytja út. Þær rannsóknir
eru í gangi.“
„í sambandi við Lýsi og mjöl þá
höfðum við augastað á verk-
smiðju til þess að vinna fitusnautt
fiskimjöl, sem er lyktarlaust en
með mikið af eggjahvítuefnum.
Það er notað til manneldis, t.d. í
hjálparstarfi í Afríku, en einnig
er góður markaður fyrir þetta í
á þessari önd. Hún lifir eingöngu
á grasi og grænfóðri. Afurðir
hennar selja þeir svo á markað á
vesturlöndum. Kjötið er hvítt og
magurt, öfugt við ýmsar aðrar
andartegundir hverra kjöt er
feitt.“
„Svo eru kanínur sem vega allt
uppí 7 kíló lifandi. Þessar kanínur
eru auðvitað af ýmsum stærðum
og ég þori ekkert að fullyrða um
hvort þessar stóru eru heppilegar
fyrir okkur. Það eru til meðal
kanínur, svona þrjú til fjögur kíló
á fæti. En það má nefna að 1980
framleiddu Austur-Þjóðverjar
13000 tonn af kanínukjöti, en
1984 fór það uppí 24000 tonn.
Markaðurinn í Evrópu er geysi-
mikill fyrir þetta kjöt. Og þessi
markaður vex ört, t.d. vegna þess
að þetta er magurt kjöt og nú eru
allir svo hræddir við hjartasjúk-
Bandaríkjunum í sambandi við
gæludýrafóður; hunda og katta-
mat. Þarna eru miklir mögu-
leikar, en við lögðum ekki í þetta
einir því þetta kostar mikið fé.
Við fengum ekki þá fyrirgreiðslu
úr opinberum sjóðum sem við
vorum að vonast eftir og hefði
gert gæfumuninn. En hráefni og
þekking er til staðar í þessum efn-
um og við erum tilbúnir þegar og
ef fé fæst.“
„Hydrol getur framleitt 10-12
þúsund tonn á ári af harðfeiti,
sem er notuð í smjörlíki og djúp-
steikingarfeiti. Við breytum
loðnulýsi í harðfeiti og aukum við
það verðmæti þess um 25%. Við
bindum það íslenskri orku, þ.e.
vetni frá Áburðarverksmiðjunni
til þess að herða lýsið. Þetta er
það sem mestu máli skiptir fyrir
íslenska framleiðslu almennt. Að
hætta að selja hrávöru endalaust,
heldur vinna þess í stað verðmæt-
ari vöru úr okkar auðlindum með
innlendri þekkingu."
dóma þannig að þetta er hættu-
minna að því leyti en feita kjötið.
Skinnið fer svo í pelsa og annað
þvíumlíkt. Það er sem sagt ekki
verðlaust."
Fenjabjór
„Síðan er dýr sem ættað er frá
Brasílíu og heitir fenjabjór. Það
var flutt á þriðja áratugnum til
Þýskalands. Austur-Þjóðverjar
framleiða 185 þúsund skinn af
þessum dýrum á ári, og selja í
Vestur-Evrópu. Þessi dýr lifa ein-
göngu á heimafengnu fóðri. Þeir
ala þau aðallega á grasi og græn-
fóðri, mest grasi og maísstöng-
lum á sumrin en á vetrum gefa
þeir fenjabjórnum . kartöflu-
smælki líkt eins og til er hér.
Fenjabjórinn eignast á tveimur
árum fimm sinnum unga.“
„Fenjabjórnum myndi henta
vel að búa t.d. í gömlum fjárhús-
um. Það sem skiptir höfuðmáli í
sambandi við lífsskilyrði fenja-
bjórsins er að bólið þeirra þarf að
vera hlýtt. Hins vegar þola þeir
vel 20-30 stiga gadd, bara að ból-
ið sem þeir sofa í sé hlýtt.“
„Búnaðarþingsfulltrúar okkar
hér á Austurlandi hafa lagt til á
búnaðarþingi að þessi mál verði
könnuð, sérstaklega að hefja
ræktun á fenjabjórnum og mosku
öndinni. Ég vil nú að það verði
líka kannaðir möguleikar okkar á
kanínuræktuninni. Ég held að
það yrði bæði auðveld og hentug
hliðargrein fyrir bændur."
„Fenjabjórinn hefur ekki bara
verðmætt skinn. Kjötið má borða
og svo eru framtennurnar notað-
ar til skrauts. Einhverjir hafa sótt
um að fá að flytja hann inn. Við
Austfirðingar viljum að tilrauna-
stöðin á Skriðuklaustri byrji á að
rækta fenjabjór. Það er okkar
miðstöð Austfirðinga í landbún-
aðarvísindum og rétt að byrja
þar.“
„Ég vona að það fari að verða
einhver hreyfing íþessum efnum.
Við verðum að beina sjónum
okkar að öllum nýjum mögu-
leikum í landbúnaði og kanna þá
vel. Ég held að í þessum grasét-
andi nytjadýrum, dýrum sem
geta lifað á innlendu fóðri og
hægt er að flytja afurðir utan, séu
að mörgu leyti framtíðarbúgrein
á íslandi.“
Útboð Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í styrkingu og lögn malarslitlags á Norðausturvegi austan Kópa- skers. (Lengd 5,4 km, burðarlag 10.600 m3, malarslitlag 3.300 m3) Verkinu skal lokið fyrir 1. október, 1985. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) og á Akureyri frá og með 31. júlí, 1985. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 12. ágúst, 1985. Vegamálastjóri.
—pv
Fenjabjór
á Skriðuklaustri?
Örn Porleifsson á Húsey vill látakanna hagkvœmni innflutnings á
nýjum grabítum. Nytjakanínur, Mosku-endur og Fenjabjór. Vaxandi
markaðurfyrir hvítt kjöt. Gætu lifað á innlendufóðri og orðið
verðmœt útflutningsvara. Framtíðarbúgrein á Islandi?