Þjóðviljinn - 30.08.1985, Side 2
________FRÉITIR
Fuglar
Amarstofninn í vexti
Af36pörum misheppnast varp hjá 20þeirra. Varpið vísvitandi eyðilagt
á sumum stöðum? Stofninn tvöfaldastsíðan 1964.
Nú í sumar gekkst Fuglavernd-
arfélag íslands fyrir ítarlegri
könnun á útbreiðslu og fjölda ha-
farna á Islandi. I Ijós kom að arn-
arstofninn telur 36 pör. Undan-
farið hefur ríkt nokkur óvissa um
arnarstofninn þrátt fyrir að fé-
lagið hafi árlega safnað upplýs-
ingum um arnarhreiður.
Það var Kristinn H. Skarphéð-
insson líffræðingur sem sá um
könnunina. Fuglaverndarfélagið
fékk styrk frá Arnarflugi og fjár-
veitingu frá menntamálaráðu-
neytinu til að standa straum af
kostnaðinum. Leitað var á svæð-
um allt frá Reykjavík að Horn-
ströndum. Þetta er mun stærra
svæði en áður hefur verið leitað
á. Árið 1964 var framkvæmd
svipuð leit á Breiðafjarðarsvæð-
inu og miklum hluta Vestfjarða.
Þá varð niðurstaðan sú að um 19
pör væru á landinu.
Niðurstaða úr könnuninni í ár
er sú, að arnarstofninn 1985 telur
36 pör auk ungra fugla. Það þýðir
að varpstofninn hefur nær því
tvöfaldast síðan 1964. Alls kom-
ust 24 ungar upp úr 16 hreiðrum
en hjá 20 pörum misheppnaðist
varpið. í nokkrum tilfellum er
annar fuglinn ókynþroska og egg-
in því ófrjó, nokkur pör hafa ekki
verpt, en í flestum tilfellum hefur
varpið eyðilagst. Er þar bæði um
að ræða að fuglarnir hafa orðið
fyrir truflun snemma á varptím-
anum og eins að varpið hefur ver-
ið vísvitandi eyðilagt.
Þarna er aðallega um tvö svæði
að ræða Vestanlands. Á einum
stað hafa ernir verpt á hverju ári í
tíu ár en varpið hefur alltaf verið
eyðilagt.
Grunur leikur á að varp hafi
sumsstaðar misfarist vegna
óvarkárni minnkaveiði- og þang-
skurðarmanna. En það er fleira í
dæminu, þannig fannst í sumar
ungur örn sem hafði verið
skotinn með riffli.
Fuglaverndarfélagið áætlar að
endurtaka nákvæma talningu,
eins og þá sem gerð var í sumar, á
5-10 ára fresti. IH
Ein fiskiræktarstöð með öllu! Þetta líkan að fiskiræktarstöð var á meðal sýningargripa á sýningunni í Þrándheimi. Þar kynntu íslenskir aðilar framleiðslu sína, þar á
meðal forráðamenn Pólsins á (safirði. Ljósm. kþd.
Prándheimur
Risastór fiskiræktarsýning
215 aðilar sýndu á 8000fermetra svœði. Sjávarútvegssýning
hér á landi í nœsta mánuði.
Gríðarmikil fiskiræktarsýning
var haldin í Þrándheimi dag-
ana 12.-15. ágúst sl. og sóttu hana
á milli 10 og 15 þúsund manns.
Meðal sýnenda var Póllinn á Isa-
firði en sýnendur voru alls 215
talsins.
Sýning þessi hét Aqua-Nor ’85
og var sú þriðja sem félag norskra
fiskiræktenda gekkst fyrir. Þessi
sýning var sú stærsta sinnar teg-
undar í heiminum tii þessa en
slíkar sýningar hafa verið al-
gengar að undanförnu, m.a. í
Frakklandi og á ftalíu. Svipuð
messa verður haldin í Laugar-
dalshöllinni dagana 18.-22. sept-
ember næstkomandi.
Sýningarsvæðið í Þrándheimi
var um 8000 fermetrar að stærð
og þar sýndu tækjaframleiðend-
ur, rannsóknastofnanir, skólar,
fóðurverksmiðjur, fjárfestingar-
félög og ótal aðrir það sem þeir
hafa upp á að bjóða.
-kþd
Af ávöxtunum skuluð þið
þekkja þá!!
Fóstrur
Samnorræn
námstefna
í Finnlandi
Fjallað um málþroska
barna
í sumar var haldin samnorræn
fóstrunámstefna í Savolinna/
Nyslott í Finnlandi. Námstefnuna
sóttu þrjár íslenskar fóstrur, og
var aðallega fjallað um málupp-
eldi barna.
Samþykkt var ályktun með
yfirskriftinni „Frumbernskan
hefur úrslitaþýðingu fyrir mál-
þroska barnsins“. Þar segir með-
al annars:
Fyrstu ár barnsins leggja
grunninn að málþroska þeirra.
Með markvissu starfi er unnt að
örva málþroska barnsins bæði
innan heimilisins og á dagvistar-
heimilum. Til að ná því markmiði
þarf vel menntað starfsfólk, hæfi-
legan fjölda barna á deildum og
viðeigandi húsnæði. Samvinna
við foreldra er nauðsynleg. Enn-
fremur verður barnið að fá til-
sögn á móðurmálinu.
Hefðbundið hlutverk dagvist-
arheimila er að þroska alhliða
málkennd barnanna. Með
leikjum, viðtölum, kveðskap og
þulum, bókmenntum og leiklist
er hugmyndaflug og móðurmál
barnsins örvað. Á þeim grunni
getur skólinn síðan byggt.
Auka þarf og bæta samvinnu
milli fóstra og kennara til að sam-
ræma þá kennslu og það uppeldi
sem á sér stað á dagvistarheimil-
um annars vegar og í skólunum
hins vegar. Menntun fóstra og
kennara þarf að samræma og
gera jafn réttháa.
Grunnmenntun fóstra á
Norðurlöndunum, svo og fram-
haldsmenntun, þarf að aðlaga sí-
auknum kröfum nútímans. Gera
þarf fóstrum kleift að fylgjast
með þróun samfélagsins og að-
laga uppeldislegt starf örum
þjóðfélagsbreytingum.
Fóstrufélagið
Skorar á borgaryfirvöld
Óskar eftir viðrœðunefnd til að leysa vanda
dagvistarheimila
Réttarmál
Málið vannst
- fjármagn
tapaðist
Ríkisskip var nýlega gert að
greiða Skorra hf. skemmdir sem
urðu á rafgeymum sem skipafé-
lagið flutti. Dómur þessa cfnis var
felldur nýlega af Bæjarþingi
Reyjavíkur. Skorra hf. voru
dæmdar 12 þúsund krónur í
málskostnað en raunverulegur
kostnaður var mun meiri, og
meiri en tjónið sem fyrirtækið
varð fyrir.
í fréttabréfi Verslunarráðs
segir að Ríkisskip hafa ekki neit-
að að fyrirtækið væri bótaskylt
fyrir dómi.
Fóstrufélag íslands gaf í gær út
áskorun í sex liðum til borgar-
yfirvalda þar sem stjórn félagsins
skorar á þau að setja á laggirnar
nefnd til þess að Ieita lausna hið
allra fyrsta á vanda dagheimil-
anna.
í áskoruninni er bent á að
launahækkanir fóstra, sem mikið
hefur verið haldið á lofti, séu að
meðaltali lægri en allra borgar-
starfsmanna. Byrjunarlaun
fóstra hækkuðu um 8.06% en að
meðaltali hækkuðu laun borgar-
starfsmanna um 8.70%.
Einnig kemur frarn að nýtt
starfsmat á störfum fóstra á Ak-
ureyri færði fóstrum þar 4000
króna hækkun á mánaðarlaun.
Slíkt hefur ekki enn verið gert í
Reykjavíkurborg. Sagt erfrá nið-
urstöðum úr skýrslu Bergs Felix-
sonar til stjórnarnefndar Dag-
vistar barna þar sem í ljós kemur
að á árinu 1984 hættu alls 10 for-
stöðumenn störfum á leikskólum
og dagheimilum, 81 fóstra og 271
Sóknarstarfsmaður. Stjórnin lýs-
ir miklum áhyggjum vegna örð-
ugleika sem svo mikil hreyfing á
starfsfólki skapar í uppeldisstarf-
inu og minnir á að það eru börnin
sem gjalda mest þessa ástands.
Stjórn F.í. bendir á að ein-
göngu hefur verið reynt að fá ó-
faglært fólk til starfa og harmar
áhugaleysi borgaryfirvalda á að
fá fóstrur inn á heimilin.
Því er fagnað að námskeiða-
hald skuli endurbætt en jafnframt
undirstrikað að það kemur ekki í
stað fóstra.
-vd
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. ágúst 1985