Þjóðviljinn - 30.08.1985, Page 5
AWINNUUF
Bændur fylgja lömbum sínum til slátrunar.
Banaboxið er þessi bás kallaður. Þetta lamb fékk síðustu ósk sína uppfyllta, að komast í blöðin.
Sambandið
Sumarslátrun hafin
Afuröarsala Sambandsins er aö hefja mikla
herferð fyrir aukinni notkun á þíðu diikakjöti og
til að kynna nýtt vörumerki Afurðasölunnar,
sem er rauð slaufa. Af því tilefni var blaða-
mönnum boðið að fylgjast með sumarslátrun-
inni í Sláturhúsi Kaupfélags Borgfirðinga.
Fylgst var með vinnslu frá slátrun og þar til
kjötið var tilbúið í neytendapakkningum. 2000
lömbum verður slátrað í sumarslátruninni,
bæði í Borgarfirði og á Hvammstanga. En
myndir E.ÓI. segja alla söguna.
SA
í einum grænum hvelli er gærunni kippt af.
Fagmaður hreinsar innyflin úr lambinu.
Heldur óvirðileg stelling fyrir aum-
ingja lömbin. Verið er að skera gær-
una frá löppunum til að hægt sé að flá
þau.
Matsmaður kannar gæði vörunnar. Gott skal það vera.
Hór er vinnslan að hefjast. Vanir
menn blóðga lömbin.
David Jennings frá Nýja-Sjálandi hélt hér á landi námskeið í sláturhúsatækni.
Hér kveður hann að nýsjálenskum hætti.
Föstudagur 30. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5