Þjóðviljinn - 30.08.1985, Side 6
Iðnskólinn
í Reykjavík
Iðnskólinn verður settur mánudaginn 2. sept. kl. 14.
Þá eiga nýnemar að koma í skólann.
Nemendurframhaldsdeildarog samningsbundnir
iðnnemar á 2. og 3. stigi, sæki stundarskrár og bóka-
skrár sama dag kl. 10.30.
Nemendur Meistaraskóla sæki stundaskrár mánu-
daginn 2. sept. kl. 17.
Kennarafundur verður sama dag kl. 9, deildarstjóra-
fundur verður kl. 11.
Iðnskólinn í Reykjavík
Stjórn verkamanna-
bústaða í Hafnarfirði
auglýsir hér með eftir umsóknum um íbúðir í verka-
mannabústöðum í Hafnarfirði.
Um er að ræða 15 íbúðir, sem byggðar verða á árinu
1986 við Þúfubarð.
Þeir sem koma til greina þurfa að uppfylla eftirtalin
skilyrði:
1. Hafa lögheimili í Hafnarfirði, þegar sótt er um.
2. Eiga ekki íbúð, eða samsvarandi eign.
3. Hafa ekki haft hærri meðaltalstekjur árin 1982-1983
og 1984 en 318.000,- kr. á ári auk 29.000.- kr. á
hvert barn innan 16 ára aldurs.
Sérstök athygli er vakin á því, að eldri umsóknir þarf
ekki að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
verkamannabústaða að Móabarði 34, sem er opin á
mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl.
16.00-18.00.
Umsóknarfrestur er til 18. september n.k. og ber að
skila umsóknum á skrifstofuna í síðasta lagi þann
dag, eða í pósthólf 272, Hafnarfirði.
Umsóknir, sem síðar berast verða ekki teknar gild-
ar.
Bandalag kennarafélaga
og Kennaraháskóli
íslands
efna til ráðstefnu um
íslenska skólastefnu
laugardaginn 31. ágúst kl. 9.00 til 17.00 aö
Borgartúni 6, Reykjavík.
Erindi flytja:
Jónas Pálsson, rektor Kennaraháskóla ís-
lands.
Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í'
menntamálaráöuneyti.
Svanhildur Kaaber, formaöur Bandalags
kennarafélaga.
Dr. Wolfgang Edelstein, prófessor viö Max
Planck Rannsóknastofnunina í Vestur-
Berlín.
Ráðstefnan er öllum opin.
*< n *
Orðsending
til atvinnurekenda frá félagsmálaráðuneytinu.
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið hér með vekja athygli
atvinnurekenda á ákvæði 55. gr. laga nr. 13 10. apríl
1979 um stjórn efnahagsmála o.fl., en þar segir að
atvinnurekendum sé skylt að tilkynna Vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytisins og viðkomandi verka-
lýðsfélagi með tveggja mánaða fyrirvara ráðgerðan
samdrátt eða aðrar þær varanlegar breytingar í
rekstri, er leiða til uppsagnar fjögurra starfsmanna
eða fleiri.
Félagsmálaráðuneytið, 27. ágúst 1985.
MANNUF
„Áhugi kennara hefur verið alveg gífurlegur". Sigríður Jónsdóttir námsstjóri (t.v.) og Elín G. Ólafsdóttir deildarstjóri (t.h.).
Skólamál
Það veiða allir
að vera með
Margrét
Magnúsdóttir
kennari: Fáum nýjar
hugmyndir og
miðlum afreynslu
okkar
„Það er afskaplega gott að geta
komið hingað og skipst á skoðun-
um um þessa hluti og séð það
hvað er að gerast nýtt í þessum
málum.“ þetta segir einn kennar-
anna sem staddir voru í Kennslu-
miðstöðinni. Hún heitir Margrét
Magnúsdóttir og kennir í Hvera-
gerði.
„Hérna hefur maður allt á ein-
-J
Hór er allt sem þarf til kennslu. Margrét Magnúsdóttir kennari. Mynd Sig.
um stað, allt það efni sem hægt er
að fá á markaðnum og maður fær
leiðbeiningar um hvernig best er
að nota þessi efni. Yfirleitt er
hver í sínu horni við vinnu sína en
auðvitað keppum við kennarar
allir að sama marki, hér getum
við hist og skipst á skoðunum.
Slíkt verður aldrei ofgert. Hérna
fáum við nýjar hugmyndir hvert
frá öðru, getum miðlað okkar
reynslu og betrumbætt það sem
við höfum verið að gera í okkar
kennslu. Þetta er afskaplega
hvetjandi að koma hérna og hitta
fólk sem er að vinna að sömu
hlutum. Hérnaert.d. hugmynda-
banki sem fólk getur bæði gengið
í og notað í sinni kennslu og einn-
ig komið því að sem maður hefur
sjálfur verið að gera. Þetta er al-
veg ómetanlegt,“ sagði Margrét
og hélt áfram við vinnu sína.
111
„Okkur sýnist áhugi kennara á
þessari dagskrá vera alveg hrcint
ótrúlegur. Það hefur verið alveg
fuUt út úr dyrum á öllum þeim
dagskrárliðum sem verið hafa.
Þetta er auðvitað afskaplega
ánægjuleg staðreynd, sérstaklega
í ljósi þess að andrúmsloftið í
þjóðfélaginu gagnvart kennurum
hefur of oft verið heldur
neikvætt.“
Það er Elín G. Jónsdóttir
deildarstjóri sem er að tala um
Dagskrá um byrjendakennslu
sem verið hefur í Kennslumið-
stöð Námsgagnastofnunar þessa
vikuna.
Þjóðviljinn ræddi við hana og
Sigríði Jónsdóttur námsstjóra um
þessa dagskrá. Það var mikið að
gera hjá þeim stöllum og greini-
lega mikill hugur í þeim varðandi
þetta mál.
„Þetta verður að byrja á því að
leiðrétta þann misskilning sem
virðist vera ríkjandi hjá almenn-
ingi varðandi orðið byrjenda-
Skólamál
kennsla", sagði Elín. „Með því er
ekki aðeins átt við kennslu á
fyrsta ári barnsins í skóla, sex ára
kennsluna. Með byrjenda-
kennslu er átt við kennslu barna
frá sex til níu ára“.
„Og markmiðið með þessari
dagskrá er að minna bæði kenn-
ara og foreldra á það hvað fyrstu
námsárin eru mikilvæg, jafnvel
þau mikilvægustu í skólagöngu
barna,“ bætti Sigríður við. „Og
svo auðvitað að veita kennurum
aðstoð í upphafi skólaársins.
Þessi aðstoð er með tvennum
hætti, með fjölbreytilegum nám-
skeiðum, fræðilegum erindum,
umræðum um skálamál, en einn-
ig með þessum verkstæðum sem
við höfum sett upp hér á staðn-
um. Á þessum verkstæðum geta
kennarar kynnst öllu því efni sem
þeir eiga völ á, hvort sem það eru
bækur og fjölrit eða efni til
kennslu í hinum ýmsu hand-
menntum.
Við viljum vekja athygli á því
hvað þessi fyrstu ár barnsins á
skólastiginu eru geysilega mikil-
væg. Þarna fer mótunin fram,
þarna mótast mynd barnsins af
umhverfi sínu og sjálfu sér. Þessu
tímabili í lífi barna verða allir að
gefa gaum og einnig að meta að
verðleikum það starf sem þarna
fer fram. Yfirvöld taka undir
þetta á hátíðlegum stundum og
ræða mikilvægi þessa starfs en
okkur finnst þessi hugur yfirvalda
ekki koma nægilega fram í
verki,“ sagði Sigríður.
Elín bætti því við að það hefði
mikið verið gert í þessum málum
innan menntamálaráðuneytsins.
„En það er í raun og veru ekki
nóg,“ sagði hún. „Við verðum að
fá hinn breiða fjölda með í þetta
og fá hann til að segja sitt. Al-
menningur verður að vera með í
þessu af heilum hug, öðruvísi
verða ekki gerðar neinar veru-
legar úrbætur á þessu sviði. Og
við erum að vona að þessi dag-
skrá nái til almennings ekki síður
en til kennara.“
1H
Alveg
ómetan-
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. ágúst 1985