Þjóðviljinn - 30.08.1985, Qupperneq 9
HEIMURINN
Suður-Afríka
Miklar óeirðir í tvo daga
Yfirvöld örg út í erlendafjölmiðla
HÖFÐABORG - Gífurlegar
óeirðir voru í borgarhverfum
blökkumanna og „litaðra"
manna umhverfis Höfðaborg í
gær, daginn eftir að lögregla
og herlið Suður-Afríka stöðv-
aði mótmælagöngu, sem var á
leiðinni að fangelsinu, þar sem
Nelson Mandela, leiðtogi
blökkumanna, er nú í haldi. Að
sögn lögreglunnar hafa sextán
manns beðið bana í þessum
tveggja daga óeirðum.
í fyrradag sundruðu hundruð
lögreglumanna og hermanna,
sem beittu svipum, gúmmíkúl-
um, táragasi og jafnvel byssum,
mótmælagöngu sem ætlaði að
flytja Nelson Mandela í fangels-
inu „sendiboð frá alþýðunni“. í
þeim óeirðum, sem af því hlutust,
biðu níu menn bana. í nótt varð
lögreglan þremur mönnum að
bana nálægt Jóhannesarborg og
Höfðaborg, og suðurafríska
ríkisútvarpið skýrði frá því að
þriggja ára gamalt þeldökkt barn
hefði brunnið til bana af völdum
bensínsprengju.
í gær birti lögreglan af borgar-
hverfi blökkumanna umhverfis
Höfðaborg eftir að götubardagar
höfðu geisað milli andófsmanna
og lögreglu. í þessum atburðum
skaut lögregla þrjá blökkumenn.
j Trúmál
Gafst upp
að leita
að örkinni
hans Nóa
ANKARA - Fyrrverandi geim-
farinn James Irwin, sem
spásséraði á tunglinu árið
1971, hefur nú gefist upp á
fjórðu tilraun sinni að finna
leifarnar af örkinni hans Nóa,
sem hann telur víst að séu ein-
hvers staðar á fjallinu Ararat í
Tyrkiandi. Hætti hann við að
halda áfram á þriðjudaginn
eftir að einn af mönnum hans
veiktist svo að það varð að
bera hann niður af fjallinu.
Irwin hóf fjallgöngu sína á
laugardaginn í fylgd með fimm
strangtrúarmönnum kristnum,
leiðsögumanni og þrjátfu manna
herliði. Fór hann syðri leiðina
upp á Ararat, sem er 5165 m hátt
og hæsta fjall Tyrklands. Hann
kom sjálfur niður á mánudaginn
með tveimur öðrum en þrír héldu
áfram. Komust þeir upp á tindinn
og voru að fara yfir á norðaustur-
hlið fjallsins, þar sem Invin telur
að leifar arkarinnar sé að finna,
þegar einn þeirra veiktist. Sagði
Irwin fréttamönnum að hann
myndi sennilega ekki reyna aftur,
nema honum tækist að útvega
flugvél til að leita á þessu svæði.
Irwin hefur heimsótt Tyrkland á
hverju ári síðan 1982 til að svipast
um eftir örkinni hans Nóa. Hafa
kristnir strangtrúarmenn löngum
talið að leifar hennar séu á fjall-
inu Ararat og oft hafa verið gerð-
ir út leiðangrar til að leita þar.
Kunnugir menn telja þó að
Drottni allsherjar sé ekki mikið
um slíka leit gefið, því finnist
leifamar geti það ekki lengur tal-
ist til verðleika að trúa á 1. Mós-
ebók. Aðstæður til slíkrar leitar
hafa líka versnað mikið á síðustu
árum vegna uppreisnar Kúrda.
Þeldökkir námumenn í Suður-Afríku: verkfall þeirra gæti gert efnahag landsins, sem þegar er slæmur, ennþá verri.
Njósnamálið
Stöðugur orðrómur
BONN - Njósnamálið í Vestur- er háttsettur embættismaður í
Þýskalandi vindurstöðugtupp gagnnjósnadeild vestur-
á sig, en erfitt er að greina þýsku leyniþjónustunnar,
sannleika frá kviksögum. í gær vegna þess að í Ijós hafði kom-
beindust grunsemdir að Ric- ið að náinn vinur hans var
hard nokkrum Liebetanz, sem austur-þýskur njósnari. Lie-
Þetta líka...
...Landsstjórnin í Tíbet hefur nú
bannað ferðamönnum aðgang að
grafreitum landsins, þar sem fer
fram svokölluð „greftrun undir
berum himni“, en hún er fólgin í
því að lík hinna látnu eru bútuð
sundur og gefin hrægömmum að
eta. Ástæðan fyrir þessu banni er
sú að framferði ferðamannanna og
Ijósmyndataka hneykslaði fjöl-
skyidur hinna látnu: í júní gerðist
það jafnvel að Tíbetbúar köstuðu
steinum á ferðamenn frá Hong
Kong, sem vildu horfa á slíka
„jarðarför". Mega ferðamenn því
ekki lengur koma á þessa „greftr-
unarstaði" og heldur ekki veiða þá
hrægamma, sem taka þátt í „jarð-
arförum". „Greftranir undir berum
himni“ hafa tíðkast í Tíbet öldum
saman, og er því trúað, að hræg-
ammarnir skveri sálum hinna
framliðnu inn í himnaríki.
betanz þessi var handtekinn í
gærmorgun, en síðar um dag-
inn var hann látinn laus, og var
þá tilkynnt að ekki léki nú eins
mikill grunur á því að hann
væri njósnari sjálfur.
Einnig var tilkynnt í gær að
háttsettur sendiráðsmaður í
austur-þýska sendiráðinu í Buen-
os Aires hefði flúið til Vestur-
Þýskalands og væri hann þar í
yfirheyrslum. Talsmaður sagði
að engin tengsl virtust vera milli
flótta þessa manns og flótta yfir-
manns vestur-þýsku gagnnjósna-
deildarinnar Tiedges til Austur-
Berlínar. En sendiráðsmenn frá
vesturlöndum giskuðu þó á að
austur-þýski sendiráðsmaðurinn
hefði í rauninni verið njósnari og
hefði hann nú óttast að Tiedge
myndi koma upp um sig.
Lambsdorff-málið
Réttarhöldum frestað
eftir aðeins fimm tíma
BONN - Réttarhöldum yfir
tveimur fyrrverandi ráðherrum
og iðjuhöldi, sem ákærðir eru
fyrir spillingu og mútuþægni,
var frestað í gær, aðeins fimm
klukkustundum eftir að þau
hófust, vegna þess að verjend-
ur sakborninga drógu í efa að
dómstóiiinn hefði rétt til að
fjalla um málið og héldu þvi
fram að hann væri fjandsam-
iegur hinum ákærðu.
Hans-Henning Buchholz dóm-
ari og forseti réttarins skipaði þá
svo fyrir að réttarhöldunum
skyldi frestað fram á næsta
fimmtudag meðan athugað væri
hvort mótmæli verjenda ættu við
rök að styðjast.
Þeir sem koma nú fyrir rétt eru
tveir fyrrverandi fjármálaráð-
herrar Vestur-Þýskalands, Hans
Friderichs og Otto Lambsdorff
greifi, sem gefið er að sök að hafa
þegið mútur frá Flick iðnaðar-
Lambsdorff greifi.
hringnum og veitt skattaívilnanir
í staðinn, og Eberhard von
Brauchitsch, fyrrverandi for-
stjóri Flick, sem gefið er að sök
að hafa borgað ráðherrunum
mútuféð. Báðir sakborningarnir
hafa neitað ákærunum. Verjend-
ur þeirra héldu því fram í dag að
vegna umfangsmikilla blaða-
skrifa um málið væru dómararnir
ekki lengur hlutlausir, og einnig
að þrír þeirra hefðu enga reynslu
í að fjalla um fjármálaafbrot.
Rannsóknir í máli Lambsdorff
og félaga hans hófust í febrúar
1982, og voru þeir formlega
ákærðir fyrir tæpum tveimur
árum. Lambsdorff, sem hafði
verið fjármálaráðherra síðan
1977, neyddist síðan til að segja
af sér embætti í júní 1984. Fride-
richs var fjármálaráðherra frá
1972 til 1977. Sakborningarnir
eiga yfir höfði sér allt að fimm ára
fangelsisvist og háar sektir. Mál
þetta hefur vakið gífurlega at-
hygli í Vestur-Þýskalandi.
Um 650 menn hafa nú látið lífið,
síðan óeirðir hófust í borgar-
hverfum blökkumanna í Suður-
Afríku fyrir nítján mánuðum.
Hin voldugu samtök þel-
dökkra námumanna hafa nú boð-
að verkfall í gullnámum Suður-
Afríku, og á það að hefjast kl.
fimm á sunnudag. Þessi námu-
rekstur er mjög mikilvægur fyrir
efnahagslíf landsins, en það
stendur nú höllum fæti vegna
kynþáttadeilnanna: erlendir
fjármálamenn eru nú mjög
smeykir við að fjárfesta þar eða
veita Suður-Afríkumönnum lán,
og mikill flótti erlends fjármagns
er frá landinu. Af þessum ástæð-
um hefur bankastjóri Miðbank-
ans, Gerhard de Kock, nú flogið
til London til að eiga þar við-
ræður við evrópska bankamenn.
Frásagnir erlendra fjölmiðla af
atburðunum í Suður-Afríku virð-
ast nú mjög fara í taugarnar á
valdhöfum landsins og hefur
ríkisútvarpið ásakað þá um að
vera með einhliða frásagnir. Níu
erlendir og innlendir fréttamenn
og ljósmyndarar voru handteknir
í gær og fyrradag og var þeim gef-
ið að sök að tefja fyrir lögregl-
unni í starfi hennar. Máli þeirra
var frestað þangað til í næsta
mánuði.
Galeysi
í meðferð
geislavirkra
efna
STOKKHÓLMI - Leki er í sov-
éskum „öskuhaug" í Eistlandi,
sem notaður er fyrir geisiavirk
úrgangsefni úr kjarnorkuk-
afbátum og hefur sú geisiavir-
kni, sem þannig hefur borist
út, orðið a.m.k. einum verka-
manni að bana, að sögn sæn-
ska útvarpsins.
í útvarpinu var vitnað í sovésk-
an verkfræðing, sem flýði nýlega
til Svíþjóðar, og sagði hann að
geislavirkum úrgangsefnum væri
komið fyrir við mjög frumstæðar
aðstæður í „öskuhaug" fimmtán
krn fyrir sunnan höfuðborg Eist-
lands, Tallinn. „Enginn maður á
Vesturlöndum getur ímyndað sér
hvað farið er með geislavirku
úrgangsefni af miklu kæruleysi“,
sagði verkfræðingurinn. Hann
sagði að þessi úrgangsefni, sem
kæmu einkum frá sovésku kjarn-
orkukafbátabækistöðinni í Pali-
diski fyrir vestan Tallinn, væru
flutt í „öskuhauginn" í venju-
legum vörubfl, og væru engin
tæki höfð til að mæla geislunina.
Svo væri efnunum komið fyrir í
steinsteyptu byrgi. Venjulegir
verkamenn án nokkurrar sér-
þjálfunar sæju um þessa flutn-
inga, og hefði a.m.k. einn bfl-
stjóri látist af völdum geislunar
síðustu tíu ár.
Sænska útvarpið sagði að al-
þjóðlega kjarnorkustofnunin
hefði ekki nokkra hugmynd um
þennan „öskuhaug“.
REUTER
Umsjón:
EINAR MÁR JÓNSSON
Föstudagur 30. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9