Þjóðviljinn - 07.09.1985, Side 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
Noregur
Vinstri-
flokkum
spáð
meirihluta
Samkvæmt skoðanakönnun
sem norska Dagblaðið birti í gær
mun Verkamannaflokkurinn og
stuðningsflokkar hans tveir, SV
og Vinstri, hljóta nauman meiri-
hluta, 50,2% atkvæða, í þing-
kosningum sem fram fara í Nor-
egi á mánudaginn.
Óvíst er hvort svo naumur
meirihluti atkvæða nægi flokkun-
um að til að hljóta meirihluta
þingsæta því borgaraflokkarnir
hafa notfært sér heimildir í kosn-
ingalögum og tekið upp listasam-
starf sem þýðir að atkvæði þeirra
nýtist til fulls. Vinstriflokkarnir
hafa ekki tekið upp slíkt sam-
starf.
Samt sem áður sýnir þessi
skoðanakönnun að vinstriflokk-
arnir eru í þrumusókn því ekki er
langt síðan borgaraflokkunum
var spáð öruggum sigri.
Á bls. 15 í laugardagsblaðinu
er greint frá helstu viðburðum í
kosningabaráttunni. _]>H
„Ég hef alltaf verið jafnréttiskerling í mér, og stend og fell með meðal annars í opnuviðtali Helgarblaðsins í dag. Sjá bls. 10-11
mínum skoðunum, enda þótt ég fái á mig rauðleita stimpla á stund- Helgarblaði. Mynd E. Ól.
um" segir Ragnheiður Davíðsdóttir útvarpsmaður og lögreglukona -v<
BÚR/ísbjörn
Dan'ð faldi bréfið!
Forráðamenn Kirkjusands hf. óskuðu ísumar eftir að fá að taka þáttí viðræðum um
hagrœðingufiskvinnsluíborginni. Davíð Oddsson stakk erindinu undirstól.
Með því að stinga þessu bréfi
frá forráðamönnum Kirkju-
sands undan er Davíð Oddsson
borgarstjóri að tryggja að við-
ræðurnar um framtíð fiskvinnslu
í borginni snúist eingöngu um að
sameina Bæjarútgerðina og ís-
björninn en ekki um að finna
hugsanleoa hestn nýfingu á fisk-
vinnsluaðstöðu í borginni eins og
þó er yfirlýstur tilgangur við-
ræðnanna í sumar, sagði Sigur-
jón Pétursson borgarfulltrúi og
fulltrúi Alþýðubandalagsins í út-
gerðarráði BÚR í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Það var í júnímánuði sl. sem
borgarstjórinn í Reykjavík fékk
bréf frá Kirkjusandsmönnum þar
sem þeir óskuðu eftir aðild að
viðræðum sem þá voru í gangi um
framtíð fiskvinnslu í höfuðborg-
inni. Þegar spurt var um bréfið
hjá Reykjavíkurborg fengust þær
upplýsingar að það finnist ekki í
skjalasafni borgarinnar. Borgar-
Einvígi
Jarfntefli
í heimsmeistaraeinvíginu í
skák gerðist það í gær að þeir
Karpof heimsmeistari og Kaspa-
rof áskorandi sömdu um jafntefli
eftir 65 leiki. Nánar er greint frá
biðskákinni í Sunnudagsblaði.
Sjá bls. 18
ritari kvaðst hafa séð bréfið en að
það hefði hvergi verið lagt fram
og formaður samninganefndar í
viðræðum um hagræðingu í fisk-
vinnslu mun ekki hafa séð títt-
nefnt bréf.
„Það er því ljóst að Davíð
Oddsson borgarstjóri hefur
stungið þessu erindi forráða-
manna Kirkjusands undan,“
sagði Sigurjón Pétursson í gær.
„Sú málsmeðferð sýnir svo ekki
verður um villst að viðræður
varðandi framtíð fiskvinnslunnar
snúast um það eitt að sameina
BÚR og ísbjörninn hvað sem það
kostar og að borgarstjóri lætur
ekki svo lítið að sinna því verk-
efni sem haft er að yfirskini, þ.e.
að kunna alla möguleika til hag-
ræðingar fiskvinnslunnar í
Reykjavík sagði Sigurjón Péturs-
son að lokum.
-v.
Pósturinn
Enn vantar póst
9pokar hurfu íLuxemburgfyrir2 vikum. Ekkifundnirenn.
Pósturinnfrá Glasgow kominn tilskila.
IÞjóðviljanum 5. þ.m. er haft
eftir Sveini Sæmundssyni
blaðafulltrúa Flugleiða að
Skotum sé ókunnugt um flutning
pósts með flugvélum og forgang
hans fram yflr annan flutning.
Þessu er erfitt að trúa. Gildandi
alþjóðareglur um þetta efni fela í
sér eftirfarandi: Bréfapóstur hef-
ur forgang fram yfir allan fiutn-
ing. Böggíapóstur gengur fyrir
vöruflutningi. Reglur þessar hef-
ur Alþjóðasamband flugfélaga
samþykkt árið 1948...Geta má
þess að enn vantar franskan flug-
póst, 3 bréfpoka og 6 bögglapoka,
sem áttu samkvæmt flutningsskrá
að koma með Flugleiðum frá
Luxemborg 22. ágúst sl.“
Svo segir í bréfi sem Þjóðvilj-
anum barst frá blaðafulltrúa
Pósts og síma í gær. „Ég vil nú að
það komi fram að blaðið umorð-
aði það sem ég sagði, þó ekki
muni miklu. Ég sagði að Skotar
„áttuðu sig ekki á reglunum“ en
því var breytt í „þekkja ekki regl-
ur“, „sagði Sveinn Sæmundsson
hjá Flugleiðum. „Ég get ekki út-
skýrt þetta á annan veg en að
þetta hafi verið hrein handvömm
hjá Skotunum. En varðandi
þennan franska flugpóst, þá hef-
ur það mál verið í vinnslu frá upp-
hafi og er enn,“ sagði Sveinn að
lokum.
„Þessi póstur frá Glasgow kom
til skila á fimmtudagskvöld“
sagði Árni Þór Jónsson póst-
rekstrarstjóri í samtali við Þjóð-
viljann. „En það vantar enn pó-
stinn frá Luxemborg og það hefur
skapað okkur mikil óþægindi og
málarekstur víða.
En varðandi útskýringar
Sveins um að Skotar átti sig ekki
á þessum forgangsreglum, þá vil
ég segja að mér finnst það furðu-
legt ef Skotar eru farnir að gefa
fyrirmæli á skrifstofu Flugleiða,
það finnst mér billeg skýring, því
auðvitað eru það Flugleiðamenn
sem eiga að sjá um slfkt.“
Þessi ummæli voru borin undir
Svein Sæmundsson og sagði hann
að hann endurtæki sínar fyrri
skýringar sem birtust í blaðinu á
fimmtudag og bætti því við að
stöðvarstjóri Flugleiða hefði ver-
ið í fríi þennan ákveðna dag, það
gæti hugsanlega átt einhvern þátt
í þessum mistökum.
-vd.
Bónussamningar
Svartsýni
Líklega verkfall á
mánudag
Ég er mjög svartsýnn á að
samningar takist áður en bónus-
verkfallið hefst á mánudaginn.
Atvinnurekendur báðu um frest
þar til á morgun en það er óhætt
að segja að samningar hafi ekkert
þokast, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson formaður Verka-
mannasambandsins í samialj yjð
Þjóðviljann í gær að loknum
samningafundi með VSÍ um bón-
usmál fiskverkunarfólks.
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum mun á ýmsum stöðum á
landinu hefjast bónusverkfall í
næstu viku. Guðmundur tjáði
blaðinu að samfara verkfallinu
myndu Dagsbrún og Verka-
kvennafélagið Framsókn boða
samúðarvinnustöðvun og jafnvel
væri von á að fleiri félög myndu
gera slíkt hið sama.
„Það verður að gera eitthvað
til að stöðva fólksflóttann úr fisk-
vinnslunni. Þetta hefur gengið
svo langt, að mér er kunnugt um
að verkstjóri í frystihúsi hafi sagt
við yfirboðara sína að ef hann
missti enn eina konu úr húsi
myndi hann segja upp og hætta“
sagði Guðmundur.
„Það verður full þátttaka í bón-
usverkfalli hjá okkur hér fyrir
austan. Það er hugur í fólki og því
er ljóst að ekki er lengur hægt að
sitja aðgerðarlaus“ sagði
Hrafnkell A. Jónsson formaður
verkalýðsfélagsins á Eskifirði í
samtali við blaðið í gær gg
Sjá leiðaraopnu í
Sunnudagsblaði