Þjóðviljinn - 07.09.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 07.09.1985, Blaðsíða 2
Kópavogur Brú yfir Nýbýlaveg í Kópavogi er nú verið að gera göng undir Nýbýlaveginn fyrir gangandi vegfarendur, en þarna er mikil umferð og erfitt fyrir börn að komast leiðar sinnar til skóla. „Þetta er hluti af stærra verk- efni, það er verið að breikka og færa Nýbýlaveginn til, svo hægt sé að koma fyrir húsagötu við húsin sem búið er að byggja þarna“, sagði Sigurður Björns- son bæjarverkfræðingur í Kópa- vogi í samtali við Þjóðviljann. „Það er ekki gott að segja alveg til um kostnað við þessar fram- kvæmdir en það er verið að semja um 12 miljónir núna, í því eru þá göngin og akbrautirnar meðtald- ar. En þessi áfangi sem áætlað er að klára í haust kostar 5,3 miljón- ir“. Það er verktakafyrirtækið Hlaðbær h.f. sem annast fram- kvæmdirnar. -vd. Auglysið í Þjóðviljanum ^Dale . Cameeie, námskeiðiÖ Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 11. september kl. 20.30 í Síðumúla 35, uppi. Allir vel- komnir. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast HUGREKKI og meira SJÁLFS- TRAUST. ★ Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staðreynd- ir. ★ Láta í Ijósi SKODANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti, í samræðum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐ- INGU og VIÐURKENNINGU. ★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu komin undir því, hvernig þér tekst að um- gangast aöra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustað. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 Einkaleyfi á islandi STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson FRÉTTIR Þeim fannst þetta ekki nógu flókið hjá sér í Kópavoginum. El Salvadornefnd Fundur í dag Fyrsti félagsfundur El Salva- dornefndarinnar verður haldinn í dag, laugardag, íMjölnisholti 14. í fundarboði segir meðal annars: Fjallað verður um stöðu mála í Mið-Ameríku og rætt um starf nefndarinnar á komandi misser- um. Meðal annars verður sagt frá alþjóðlegri friðargöngu í Mið- Ameríku sem haldin verður að frumkvæði einstaklinga og sam- taka í Noregi. Gangan mun hefj- ast í Panama í desember og henni lýkur í Mexíkóborg sex vikum síðar. Gengið verður um Costa Rica, Nicaragua, Honduras, E1 Salvador og Guatemala eða um 2000 km vegalengd. Fundurinn hefst klukkan 14.00 og er öllum opinn. Dagmæður Breytingar á gjaldskra Selma Júlíusdóttir: Viljum taka5 börn ígœslu. Barnaverndarnefnd: Verður rœtt á mánudag Þessa dagana eru Samtök dag- mæðra að kynna tillögur að breytingum á gjaldskrá sinni. Gjaldskráin hefur miðast við taxta verkakvennafélagsins Sókn- ar fyrir ófaglaert starfsfólk á dag- vistarheimilum sem hefur umsjón á deild. Frá þeim launum hafa dregist 35% vegna þess að álitið var að dagmóðir geti að einhverju leyti annast heimili sitt með gæsl- ustörfum og vegna óstöðugleika á gæslu á einkaheimilum. Stjórn samtakanna kynnir nú fyrir félagsmönnum sínum tillögu um að fella þessi frádráttar- ákvæði niður, að því undan- skyldu að fyrsta ár verði greitt 10% lægri taxti vegna óstöðug- leika dagvistunar, en eftir eitt ár þætti sannað hvort dagmóðir haldi starfinu áfram eða ekki. Að auki kynnir stjórnin tillögur um launaflokkahækkanir eftir nám- skeið og starfsaldurshækkanir samkvæmt Sóknartaxta. „Fyrir utan þessar sjálfsögðu breytingar, þá erum við að reyna að fá leyfi hjá barnaverndarnefnd fyrir því að ekki þurfi að sækja sérstaklega um að fá að hafa 5 börn í stað 4, sem er hámark núna. Að sjálfsögðu væri það líka hagstætt fyrir foreldra ef þessu væri breytt, því þá dreifist ýmis kostnaður á fleiri aðila“, sagði Selma Júlíusdóttir formaður Samtaka dagmæðra í samtali við Þjóðviljann. „Og auk þess viljum við enn og aftur vekja athygli á því óréttlæti sem viðgengst, að dagvistun sé aðeins niðurgreidd hjá foreldrum sem fá gæslu á dagvistarheimilum en ekki fyrir þá sem hafa börn sín hjá okkur. Það eru aðeins ein- stæðir foreldrar sem njóta þess“. 8 tíma gæsla hjá dagmóður kostar nú um 4500 krónur á mán- uði en fæðiskostnðaur er reiknaður 2860 krónur. Hjá barnaverndarnefnd fengust þær upplýsingar að beiðni um að há- marksfjöldi barna hjá dagmóður verði 5 börn verði rædd á fundi á mánudag. -vd. SH Afurðir á þratum Guðmundur H. Garðarsson: Kvótanum misskipt. Getum ekki horft upp á stöðvun veiðanna Engar birgðir eru lengur til af inga að láta slíkt gerast“, sagði ýsu og karfa hjá Coldwater, Guðmundur H. Garðarsson verksmiðju Sölumiðstöðvar blaðafulltrúi SH í samtali í gær. hraðfrystihúsanna í Bandaríkj-_ ______-lg. unum, og lágmarksbirgðir eru til af þorskflökum og 5 punda þorsk- pakkningum. Reynt er að eiga ávallt til minnst 3-4 mánaða birgðir hér heima og í Bandaríkj- unum en nú er farið að saxast all verulega á þær. Forráðamenn SH óttast mjög þær afleiðingar sem það getur haft fyrir freðfiskmarkaðinn verði ekki hægt að anna eftir- spurn. „Við getum ekki horft upp á að veiðarnar stöðvist nú fram til áramóta, hvorki með tilliti til af- komu húsanna og starfsfólksins, sem þar vinnur, né þeirra mark- aðshagsmuna sem eru í veði. Það er allt of mikil áhætta fyrir íslend- AB Landsfundur 7.-10. nóv. í viðtali við Kristján Valde- marsson skrifstofustjóra AB. í gær var ranghermt í undirfyrir- sögn að landsfundur Alþýðu- bandalagsins væri í október. Hið rétta er að fundurinn verður haldinn dagana 7.-10. nóvember. MIKILL SPARNAÐUR Raðveggir kosta ekki meira en efni í milliveggi þar sem hefðbundinni aðferð er beitt. Vegna þess að veggirnir koma samsettir frá verksmiðjunni og eru auðveldir ifppsetningu eru dæmi um allt að 80% tímasparnað. Sölustaðir Reykjavík Innréttingamiðstóðin Ármúla 17a Símar 91-84585. 84461 Akranes Guðlaugur Magnússon Skarðsbraut 19 Simi 93-2651 Siglufjörður Bútur hf. Pónargötu 16 Slmi 96-71333 Akureyri Bynor Glerórgötu 30 Simi 96-26449 Egilsstadir Trésmiðja Fljótsdalshéraðs Fellabae Sími 97-1700 Neskaupstaður Valmi hf. B-gótu 3 Sími 97-7605 Vestmannaeyjar Brimnes Strondvegi 54 Sími 98-1220 Selfoss Keflavík G. Á. Böðvarsson Byggingaval Austurvegi 15 Iðavóllum 10 Slmi 99-1335 Simi 92-4500 [ ] l flaaaoa FJALAR h/f Húsavík Sími 96-41346

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.