Þjóðviljinn - 07.09.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.09.1985, Blaðsíða 6
r Stadan í 2. deildarkeppninni í knattspyrnu eftlr sigur ÍBV á KA í gærkvöldi: IBV.............. 17 10 6 1 40-13 36 KA............... 17 10 3 4 32-16 33 Breiðablik.......16 9 4 3 29-15 31 KS................16 7 3 6 24-23 24 Völsungur........16 6 3 7 24-23 21 UMFN............ 16 5 4 7 13-20 19 Skallagrímur..... 16 5 4 7 21-35 19 ÍBl.............. 16 3 7 6 15-25 16 Fylkir........... 16 3 3 10 13-23 12 Leiftur.......... 16 3 3 10 14-34 12 Aðrir leikir í 17. og næstsíðustu umferð verða leiknir í dag og á morg- un. í dag leika ÍBÍ-KS og Leiftur- Skallagrímur og á morgun UMFN- Völsungur og Breiðablik-Fylkir. Skotland Celtic úr leik Celtic féll óvænt útúr skoska deildabikarnum í knattspyrnu í fyrrakvöld, tapaði þá í víta- spyrnukeppni fyrir Hibernian sem enn hefur ekki hlotið stig í úrvalsdeildinni. Staðan var 3-3 að loknum venjulegum leiktíma. Ásamt Hibernian leika Aber- deen, Dundee United og Ran- gers í undanúrslitunum. Aberde- en vann Hearts 1-0, Dundee Utd. vann St. Mirren 2-1 og Rangers sigraði Hamilton 2-1 á útivelli. í undanúrslitunum drógust saman Dundee United og Aber- deen annars vegar og Hibernian og Rangers hinsvegar. -VS/Reuter England Dalglish kaupir Kenny Dalglish gekk í gær frá sínum fyrstu kaupum síðan hann tók við stöðu framkvæmdastjóra enska knattspyrnufélagsins Li- verpool. Hann festi kaup á Steve McMahon, miðvallarspilara frá Aston Villa, fyrir 350 þúsund pund. McMahon lék áður með hinu Liverpoolliðinu, Everton, en Villa keypti hann þaðan fyrir sömu upphæð fyrir tveimur árum. j -VS/Reuter _______________ÍÞRÓTTIR____________ 2. deild Eyjamenn öruggir með 1. deildarsæti! Unnu KA sanngjarnt. Aðeins ótrúleg úrslit koma í vegfyrir að þeirfari upp. Blikar og KA berjast um annað sætið KA-ÍBV 0-2 (O-O) ** Eyjamenn eru komnir með annan fótinn og íjórar tær af hin- um í 1. deildina í knattspyrnu eftir tveggja ára fjarveru. Þeir voru öllu betri aðilinn í þessum hálfgildings úrslitaleik deildar- innar á Akureyri í gærkvöldi og eru vel að 1. deildarsætinu komn- ir. Hins vegar kom deyfðin í KA- liðinu á óvart, þar sást ekki að færi lið á barmi 1. deildar. „Það verður barist til síðasta blóðdropa,” lýsti Kjartan Más- son þjálfari ÍBV yfir rétt áður en leikurinn hófst - og lærisveinar hans sýndu strax að honum var alvara. Strax á fyrstu mínútunni komst Hlynur Stefánsson í gott færi eftir þvögu en skaut í varnar- mann KA. A 17. mínútu vildu Eyjamenn fá vítaspyrnu. Þor- valdur Jónsson markvörður KA missti boltann klaufalega yfir sig til hliðar við markið og í tilraun sinni til að ná til hans datt hann á Viðar Elíasson sem var kominn framhjá honum. En hornspyrna var úrskurður Magnúsar Jónat- anssonar. Eftir nokkra pressu ÍBV fyrstu 20 mínúturnar jafnaðist leikurinn nokkuð. Ómar Jóhannsson átti þó gott skot að marki KA á 30. mínútu sem Þorvaldur varði og rétt á eftir skaut Viðar íhliðar- nstið eftir hornspyrnu. ÍBV hafði síðan undirtökin í síðari hálfleik og náði forystu á 51. mínútu. Hlynur skaut af 25 metra færi - það var eins og mynd væri sýnd hægt þegar boltinn rann framhjá svífandi Þorvaldi og í netið, 0-1. Síðan gerðist fátt uppvið mörkin, þar til ÍBV gerði útum leikinn 9 mínútum fyrir leikslok. Ómar Jóhannsson fékk boltann innfyrir vörn KA og skoraði af öryggi, 0-2. KA reyndi að klóra í bakkann í lokin og Tryggvi Gunnarsson skaut fram- hjá úr eina umtalsverða færi liðs- ins í leiknum á síðustu mínút- unni. Steingrímur Birgisson lék einn af eðlilegri getu í liði KA. Ómar var bestur Eyjamanna, ógnandi og með góðar sendingar. Þórður Hallgrímsson, sú gamalreynda kempa, lék nú í vörninni og var öruggur. Breiðablik getur farið stigi uppfyrir KA á morgun, en þá mætir Kópavogsliðið Fylki á heimavelli. f síðustu umferðinni fer svo Breiðablik til Húsavíkur en KA til Siglufjarðar þannig að baráttan um annað sætið er geysi- hörð. ÍBV á hinsvegar heimaleik við UMFN og er með það góða markatölu að það þarf eitthvað ótrúlegt að gerast til þess að Eyjamenn leiki ekki í 1. deild að ári. Maður leiksins: Ómar Jó- hannsson, ÍBV. -K&H/Akureyri Kvennaboltinn KAféll með hvelli! KA féll með hvelli í 2. deild kvenna í knattspyrnu f gær- kvöldi. Akureyrarliðið tapaði þá 13-0 fyrir Breiðabliki á Kópa- vogsvellinum, fyrir sama liði og það tapaði naumlega um síðustu helgi. Breiðablik átti allan leikinn og voru KA-stúlkurnar heppnar að ekki fór verr. Blikaliðið spilaði mjög skemmtilega en mótherj- arnir voru heldur ekki uppá marga fiska. Staðan í hálfleik var 7-0 og voru mörg marka Blikanna glæsi- leg. Mörkin skoruðu: Ásta B. Gunnlaugsdóttir 4, Erla Rafns- dóttir 3, Asta María Reynisdóttir 3, Lára Ásbergsdóttir 2 og Þjóð- hildur Þórðardóttir eitt. KA leikurídagkl. 11.30við ÍA á Akranesi. f A dugir jafntefli til að tryggja sér íslandsmeistaratit- ilinn, og miðað við frammistöðu KA í gærkvöldi ætti það að haf- ast! -MHM Þm6 verður væntanlega víða mikið um að vera i vítateigum knattspyrnuvall anna í dag, eins og á þesari mynd sem E.OI. tók í leik Vals og Víðis um síðustu helgi. Fjórir þýðingarmiklir leikir eru í 1. deild - FH-Fram, Þróttur-Þór og 'ÍBK-Valur hefjast kl. 14 en leikur IA og Víkings kl. 14.30. Þá eru í dag þrír þýðingarmiklir leikir 12. deildogeinnámorgun.ogeinnigverðurleikiðtilúrslitaí 3. og 4. deild. Fatlaðir Trimmlandskeppnin byrjar á morgun Sigrarísland eins og ítvö síðustu skiptin? Sjögreinar- þrískiptkeppni Dagana 8.-21. september fer fram hér á landi þriðja Norræna Trimmiandskeppnin fyrir fatlaða. Samskonar keppni fór fram 1981 og 1983 og tóku þá alls um 1000 ein- staklingar þátt í keppninni í hvort skipti. Þcss má geta að íslendingar sigruðu með miklum glæsibrag í bæði skiptin. Keppnin í ár mun fara fram með Iíku sniði og áður. Keppnisgreinarnar eru: Ganga, hlaup, skokk, hjólastólaakstur, hjólreiðar, róður og hestamennska. Lág- marksvegalengd sem þarf að trimma í hvert skipti er 2,5 km og aðeins er unnt að fá eitt stig á dag. Til þess að auðvelda" þátttakendum að skrá niður árangur sinn í trimminu hafa verið útbúin sérstök skráningarskírteini. Að loknu trimmi á síðan að senda þau til íþróttasambands fatlaðra. Skírteinin og all- ar nánari upplýsingar um keppnina er unnt að fá hjá íþróttasambandi fatlaðra, íþrótta- félögum fatlaðra, Sjálfsbjargarfélögum, héraðssamböndum og hjá flestum þeim fé-' lögum sem vinna að málefnum fatlaðra. Keppnin er þrískipt að þessu sinni. í fyrsta lagi er keppni milli Norðurlandanna. Það land sem flest stig hlýtur miðað við íbúafjölda sigrar og hlýtur að launum glæsi- legan farandbikar sem gefinn er af íþrótta- sambandi fatlaðra í Svíþjóð. Þá er innan- landskeppni milli héraðssambanda og íoks einstaklingskeppni. Ejnstaklingskeppnin fer þannig fram að 10 einstaklingar sem ná fullu húsi stiga, 14 stigum, verða verð- launaðir. Fái fleiri en 10 þátttakendur 14 stig verður dregið úr hópi þeirra um verð- launin. Þó svo að í keppninni verði keppt unt glæsileg verðlaun er megintilgangur hennar að hvetja alla fatlaða einstaklinga til að stunda íþróttir og útivist. Margir sem nú leggja reglulega stund á íþróttir hafa ein- mitt kynnst þeim í fyrri trimmlandskeppn- um. Rétt til þátttöku eiga allir þeir sem eru félagsbundnir í íþróttafélögum fatlaðra og einnig ófélagsbundnir fatlaðir. Skilgreining á fötlun er erfið, en átt er við alla þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki tekið þátt í íþróttakeppni hinna ófötluðu á jafnréttisgrundvelli. Einnig má benda á að aldraðir eiga einnig rétt á að taka þátt í keppninni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.