Þjóðviljinn - 10.09.1985, Page 2
ístak
FRÉTTIR
Ekki mikið tjón
Þctta var ekki alvarlegt tjón.
Bruninn hefði getað orðið
miklu verri t.d. ef það hefði verið
vindur, sagði Páll Sigurjónsson
framkvæmdastjóri ístaks um
brunann í birgðageymslu ístaks á
Keflavíkurflugvelli.
Ég hef enga trú á aö um í-
kveikju sé að ræða. Eldurinn
hefði vel getað komið upp í fata-
geymslu starfsmannanna, ef log-
andi sígaretta hefði verið skilin
eftir. Annars er ég enginn sér-
fræðingur á þessu sviði. SA
ABR
Slagurinn hafinn
Steinar Harðarsonformaður ABR: Veturinn mun taka mið afþvíað
borgarstjórnarkosningar verða næsta sumar. Málin rœdd á
félagsfundi ABR annað kvöld
Við höfum opnað aftur eftir gagngerar endurbætur
sem gera okkur kleift að veita fljótari og betri þjónustu.
Nú getum við tekið við bílum af öllum stærðum og gerðum.
Tryggðu þér öruggt eftirlit og umhirðu þess búnaðar
bílsins sem mest mæðir á. Með því að ...
... taka upp símtólið og
panta tíma í síma 21246, eða
renna við á smurstöð Heklu hf.
Laugavegi 172. Þar sem ...
oo
... þú slappar af i nýrri
vistlegri móttöku, færð þér
kaffi og lítur í blöðin.
A meðan ...
... við framkvæmum öll
atriði hefðbundinnar smurningar,
auk ýmissa smáatriða t.d.
smurningar á hurðalömum og
læsingum. Auk þess...
... athugum við ástand viftu-
reima, bremsuvökva, ryðvamar og
pústkerfis og látum þig vita
ef eitthvert þessara atriða
þarfnast lagfæringa. Allt...
... þetta tekur aðeins 15-20
mínútur og þú ekur á brott með
góða samvisku á vel smurðum bíl.
Við erum með fund á miðviku-
dagskvöldið um vetrarstarfið
framundan. Auðvitað er Ijóst að
veturinn mun taka mikið mið af
því að það verða borgarstjórnar-
kosningar í lok hans, og við verð-
um að fara að búa okkur undir
þær.
Þetta sagði Steinar Harðarson,
formaður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík við Þjóðviljann í gær,
en á miðvikudagskvöldið mun
hann hafa stutta framsögu á
fyrsta félagsfundi vetrarins, þar
sem hann mun reifa hugmyndir
stjórnarinnar um starfið á næst-
unni.
„Við vorum með öflugt starf í
fyrra, marga fundi, og þó þátt-
taka hafi auðvitað verið mis-
mikil, þá var að jafnaði fjöl-
mennt. Mér heyrist að það sé
verulegur hugur í fólki, og hvet
alla til að koma og helst með hug-
ann fullan af frjóum hugmynd-
um. Við hvetjum sérstaklega full-
trúa okkar í borgarstjórn og á
þingi til að koma, því oft finnst
okkur að sambandið á milli
þeirra og félagsmannanna mætti
vera sterkara.
Svo hvet ég að lokum alla fé-
lagsmenn til að koma og hafa
áhrif á mótun vetrarstarfsins, það
er um að gera að kasta fram sem
flestum hugmyndum. Einungis
þannig verður starfið í flokknum
frjótt, að sem flestir taki þátt,“
sagði Steinar að lokum.
-óg
Steinar Harðarson formaður ABR:
Félagsfundur að Hverfisgötu 105
annað kvöld. Ljósm. E.ÓI.
Tjarnarskóli
75 nemendur
Einn karlkyns kennari við skólann
r
Aföstudag var hinn umdeildi
einkaskóli Tjarnarskóli settur
í fyrsta sinn. Eins og menn muna
var talað um að skólinn tæki við
100 nemendum í þrjár bekkjar-
deildir 7., 8. og 9. bekk, en nú
hefur komið í ljós að skólinn mun
aðeins taka við 75 nemendum.
Einnig vekur athygli að aðeins
einn kennari er karlkyns, það er
handa vinnukennari.
„Ástæðan fyrir því að ákveðið
heftir verið að fækka nemendum
um 25 er sú að fyrir 2-3 vikum
kom endanlega í ljós að ekki er
rúm fyrir fleiri nemendur en 75 í
þessu húsnæði," sagði María Sol-
veig Héðinsdóttir annar af
tveimur skólastjórum einka-
skólans í samtali við Þjóðviljann.
Hún var að því spurð hvernig á
því stæði að þetta kæmi svo seint í
ljós og svaraði hún því til að mál-
ið hefði verið í athugun frá upp-
hafi. „Þetta liggur ekki í augum
uppi strax, ákveðinn fermetra-
fjöldi segir ekki svo áþreifanlega
til um hve mörgum nemendum er
hægt að taka við. Og varðandi
karlkyns kennara, þá mun einn
slíkur starfa við skólann, auk
tveggja sem eru á vegum Stjórn-
unarfélagsins og sjá um tölvu-
kennslu í hlutastarfi. Ástæðan
fyrir því að aðrir kennarar eru
konur er sú að flestir karlkyns
umsækjenda sóttu um mjög
mikla kennslu, allt upp í 48 stund-
ir á viku og svona lítill skóli ræður
ekki við slíkar óskir.“
Hvað telur þú að valdi því að
karlar sœkja um meiri kennslu en
konur?
„Eins og allir vita þá lyfti Ragn-
hildur Helgadóttir menntamála-
ráðherra yfirvinnuþaki af kenn-
urum í síðustu viku en af hvaða
ástæðu karlar nýta sér það frekar
en konur vil ég ekki dæma um,“
sagði María Solveig að lokum.
-vd.
Alþingi
Yfirfýsing 20
þingmanna
Styðja friðarumleitanir Contador-ríkjanna í
málefnum Mið-Ameríku
Tuttugu fslenskir alþingismenn
undirrituðu yfirlýsingu þar
sem m.a. segir: „Við undirrituð,
þingmenn á Alþingi' Islendinga,
lýsum yfir stuðningi við friðar-
umleitanir Contadora-ríkjanna í
málefnum Mið-Ameríku.
Við fordæmum viðskiptabann
Bandaríkjastjórnar á Nicaragua
og teljum að það gangi þvert á
alla viðleitni til friðsamlegrar
lausnar á vandamálum þessa
heimshluta.
Við hvetjum allar vestrænar
þjóðir til aukinna viðskipta og
samstarfs við Nicaragua, enda
teljum við að þannig megi best
styðja lýðræðislega þróun í
landinu.“
Sex þingmenn Alþýðubanda-
lagsins skrifuðu undir, 5 þing-
menn Alþýðuflokksins, 2 úr
Bandalagi jafnaðarmanna, 3
kvennalistakonur og 1 þingmað-
ur Sj álfstæðisflokksins.
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 10. september 1985