Þjóðviljinn - 10.09.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 10.09.1985, Blaðsíða 7
Tómstundir Þú hleypur ekki á fjöll meira Þjóðviljinn sækir heim Gunnar Gunnarsson fjallgöngu- og leiðsögumann Ég hef Iagt stund á fjallgöngur frá barnsaldri, frá því ég var skáti á uppvaxtarárum mínum á Akur- eyri og við áttum margar ferðirn- ar í skálann Fálkafell undir Súl- um vestan Eyjafjarðar, hefur Gunnar Gunnarsson, efna- fræðingur, kennari, veiðivörður og löngum leiðsögumaður til ijalla, frásögn sína þá blaðamenn Þjóðviljans hafa sótt hann heim til viðræðna um fjallgönguíþrótt- ina. „Eitt sinn sem oftar fórum við upp til Fálkafells, í 4-5000 metra hæð, 10-15 skátar, undir forystu Tryggva Þorsteinssonar. Vorum við á skíðum, að sumu leyti illa búnir, án bakpoka með svefn- poka bundna á bakið. Þá gerðist það u.þ.b. sem við vorum að koma að skálanum að ég valt nið- ur brekku. Ekki var það nú svo að Tryggvi kæmi á eftir mér til þess að stumra yfir mér, heldur hrópaði hann aðeins til mín: Stattu á fætur drengur. Þessi orð hans urðu mér mikilvægt vegnesti útí fjallalífið - þar verður hver og einn fyrst og fremst að treysta á sjálfan sig. Þegar ég hóf nám við Mennta- skólann á Laugarvatni stofnuð- um við þar fjallgönguklúbb, fyrs- ti formaður hans var Freysteinn Sigurðsson, nú jarðeðlisfræðing- ur. Fyrsta ferðin sem við fórum var til hellisins við Laugarvatns- velli. í þeim helli bjuggu hjón ein um skeið á þessari öld eða fram til 1922, fæddist þeim barn í hellin- um um 1920. Annars er hellir nokkur við Laugarvatn í Stóra- Gili rétt austan við þorpið upp af tjaldstæðinu og er sá hellir mér eftirminnilegur. Þennan helli vildi ég kanna 1976, er hann um 10 metra djúp- ur og hátt mjög til lofts. í svo sem 15 metra hæð frá hellisgólfi er af- hellir, uppí þennan afhelli ætlaði ég mér að klífa en komst þá í sjálfheldu, komst hvorki upp né niður, í 6-7 metra hæð. Án þess að íhuga málið frekar náði ég taki á steinnibbu og sveiflaði ég mér niður á syllu, til hliðar í hellis- veggnum, en hún reyndist of langt fyrir neðan og hrasaði ég og hrapaði niður á grýtt hellisgólfið og hælbrotnaði. Kona mín var með í för og kom mér undir læknishendur. Þegar læknarnir fengu litið sár mín varð þeim að orði: Þú hleypur ekki á fjöll meira. í þessu tilviki gerði ég þá skyssu að ég greip umhugsunar- laust til skjótra ráða en það skyldi enginn gera þegar um klifur eða fjallgöngur er að ræða. Það var bót í máli að ég var ekki einn á ferð en slíkt skyldu menn varast í fjallaferðum. Eftir þetta ævintýri mitt í hellinum í Stóra-Gili hafa gárungarnir kallað hann Gunn- arshelli. fjárgirðinga milli Norður- og Suðurlands nú í sumar á Arnar- vatnsheiði. Efst á Arnarvatnsheiði Frá því ég kom heim til íslands, en ég var við nám í Noregi, hef ég stundað fjallaferðir með Ferðafé- laginu og Útivist og farið árlega á að giska 10 lengri ferðir. Sem leiðsögumaður hefi ég starfað á vegum Útivistar frá 1976 og hef að baki næstum 200 daga sem slíkur, sérstöku leiðsögumannan- ámskeiði lauk ég 1982. Nei, ég hef ekki safnað fjöllum en þó eru það nokkur sem ég vildi íá tækifæri til þess að ganga á. Herðubreið, eitt fegursta fjall landsins, Snæfell, austur af Vatnajökli, og Kerling við Eyjafjörð eru meðal þeirra. Á meðal merkari fjalla sem ég hef stigið eru að sjálfsögðu Öræfa- jökull, Hekla, Eiríksjökull og Snæfellsjökull. Það er alltaf jafn merkileg tilfinning að ganga á Heklu, port Helvítis, þó hef ég aðeins einu sinni gengið hana í góðu skyggni. Á Öræfajökul gekk ég í þoku og mistri, eitt sinn fór ég sem leiðsögumaður með hóp á Eiríks- jökul,.skafrenningur var og nán- ast ekkert skyggni. Með hjálp korts og áttavita komumst við þangað þar sem við töldum vera hábunguna og síðan niður aftur áfallalaust. Hraustir fjallamenn telja slíkar ferðir ævintýrum lík- astar, ímynda sér helst að þeir séu á ferð um Suðurskautslandið. Séu menn vel útbúnir og reyndir fjallarefir með í för, tel ég slíkar ferðir engar glæfraferðir. Menn ættu ekki að þurfa að láta veður aftra sér. Leiðsögumannsstarfið getur verið mjög skemmtilegt, ekki síst þegar vel gengur. Að sjálfsögðu er það krefjandi, reynir á úthald, kunnáttu og þá er þekking á sál- arfræðinni og reynsla af mann- legum samskiptum ekki síður mikilvægar. Takmark hvers leiðsögumanns er að sjálfsögðu að reyna að gera alla þátttakend- ur í viðkomandi gönguferð ánægða.” Gunnar, þú hefur einnig verið veiðivörður á heiðum upni. „Já, ég hef, á vegum Upp- rekstrarfélags Miðfirðinga, starf- að sem veiðivörður við Arnar- vatn stóra á Arnarvatnsheiði sl. tvö sumur. Starf mitt hefur verið í því fólgið að verja vatnið fyrir veiðiþjófum og krefja menn um gjald fyrir veiðileyfi, jafnframt því að sjá til þess að umgengni sé góð við vatnið. Þetta hefur Sérlegur verndari Gunnar Gunnarsson: Þetta með ónytjulabbið, það orð er nú sannkallað öfug- mæli. Gildi fjallgangna í íslenskri náttúru fyrir almenning eykst eftir því sem fleiri gerast kyrrsetumenn í æ tæknivæddara samfélagi. Hvaö er hollara en koma út í íslenska náttúru og teyga fríska fjallaloftið? Ljósmynd: -sig. gengið mjög vel, það hefur verið mjög ánægjulegt að vera þarna enda samskipti við veiðimenn góð. Flesta daga hef ég töluverð samskipti við fólk, það hefur ver- ið gestkvæmt í kofa mínum. Einveran hefur ekki beinlínis valdið mér kröm og neyð líkt og Gretti Ásmundarsyni þá hann hafðist við í Grettisbæli við vatn- ið. í Arnarvatni er töluverð sil- ungsveiði en einnig í Réttarvatni, þar stunda miðfirskir bændur að- allega veiðar og gista þá hjá mér í því sambandi. Bændur unnu einnig við gerð og endurbætur Hvort ég hafi stundað klifur? Jú það hef ég gert en ekki mikið. Ég hef iðkað dálítið ísklifur með félögum mínum í Alpaklúbbn- um. Á vetrum er lögð stund á ísklifur í fossum sem eru í klaka- böndum, á sumrum klífa menn jökulbrúnir og fara jafnvel í jökulsprungur. Mikilvægt er að vera vel búinn, hafa meðferðis ís- axir, kaðla og allskonar festingar, skrúfur og nagla sem menn festa við ísvegginn. Maður skyldi ætíð gæta þess í sambandi við klifur að hafa þrjá fasta punkta þannig að einungis annar fóturinn eða önnur höndin sé laus. Klifur er að sjálfsögðu nokkuð dýr íþrótt, en fjallgöngur ekki, þar eru það að- allega skórnir sem fjárfesta þarf í, annan útbúnað s.s. klæðnað eiga menn fyrir. Sl. haust hóf ég kennslustörf við Fjölbrautaskólann á Akra- nesi. Þar settum við nokkrir kennarar á fót Fjallgöngufélagið Hamrabeltið og er ég sérlegur verndari félagsins. Við höfum farið í nokkrar fjallgöngur, aðal- lega á Vesturlandi, t.d. á heiðar- horn og Hvalfell. í byrjun júní gengum við yfir Miðnesheiði, milli Keflavíkur og Hvalsness. Ekki þykir okkur norðlendingum heiðin sú há en margt bar þó merkilegt fyrir augu þá við gengum þar móa og mela.” Hvað viltu ráðleggja þeim sem hyggjast leggja stund á ónytju- labb, eins og fjallgönguíþróttin var gjarna nefnd fyrrutn? „Fyrst vil ég fá að svara þessu með ónytjulabbið, það orð er nú sannkallað öfugmæli. Gildi fjall- gangna í íslenskri náttúru fyrir al- menning eykst eftir því sem fleiri gerast kyrrsetumenn í æ tækni- væddara samfélagi. Ég vildi ráð- leggja mönnum að ganga aldrei einirumfjöll ogfirnindi, aldreier að treysta veðri. Þá ættu menn ætíð að búa sig vel til farar hvað varðar fæði jafnt sem klæði og hafa meðferðis áttavita og landa- kort og ekki síst sjúkrakassa. Fólk ætti alltaf að láta vita um ferðir sínar, hvenær farið er, hvert og hvenær komið til byggða og láta þá þegar vita af sér. Ég vil svo að lokum vona að íslendingar haldi áfram að stunda fjallgöngur af kappi en með fors- já, því hvað er hollara en koma út í íslenska náttúru og teyga fríska fjallaloftið?” -já Þriðjudagur 10. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.