Þjóðviljinn - 10.09.1985, Síða 6

Þjóðviljinn - 10.09.1985, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN Til sölu 10 ára gömul ný-yfirfarin AEG elda- vél. Gamall vaskur og blöndunar- tæki. Selst fyrir lítið. Uppl. í síma 84153. Kettlingur Skemmtilegur og þrifinn kettlingur fæst gefins. Bólusettur gegn kattaf- ári. Uppl. í síma 686821, eftir kl. 19. íbúð óskast Lítil íbúð óskast til leigu. Tvennt í heimili. Uppl. í síma 75619. Til sölu Vegna fjölgunar í fjölskyldunni, er til sölu Premier trommusett lítið notað á minna en hálfvirði. Kostar nýtt yfir 80 þús. Einnig til sölu 15“ krómfelgur, breiðar, á sama stað. Uppl. í síma 12455 eftir kl. 19. Gólfteppi o.fl. Rauðrósótt gólfteppi ca 35 m2 til sölu. Einnig fæst gefins nokkuð stór pott- ofn, og 5k kappar í ýmsum lengdum. Uppl. í síma 11773. Barnavagn til sölu Til sölu ryðrauður barnavagn á kr. 3 þús. Einnig fjölskyldureiðhjól á kr. 1.500.- Uppl. í síma 15045. Til sölu Sem nýr svartur leðurjakki á 15-16 ára strák. Uppl. í síma 30933. Til sölu Svefnbekkur með þremur skúffum, dýnu og púðum. Verð 5 þús. Uppl. í síma 40988. Einstaklingsrúm með náttborði frá Línunni til sölu. Rúmið er úr reyr og er 2ja ára gamalt. Kostar nýtt um 12 þús., selst á kr. 5.000. Sími 30504. Til sölu Svalavagn, góður gærupoki, burða- rúm og ef til vill fl. barnadót. Uppl. í síma 46541. Blár Emmal Junga barnavagn með dýnu til sölu, aðeins notuð fyrir 1 barn. Einnig trébarnastóll með sessu frá Fálkanum. Upplýsingar gefur Birna í síma 44916 eftir kl. 18. Svefnbekkur fæst gefins og 3 hellna gamalt Rafha eldavéla- borð og bakaraofn af sömu gerð, með klukku selst ódýrt. Elva barna- bað, grind yfir baðker selst einnig ódýrt. Uppl. í síma 14309. íbúð óskast strax. Algjört neyðarástand hjá ung- um útlitsteiknara. Lítil íbúð eða stórt herbergi með eldunaraðstöðu. Uppl. á auglýsingadeild Þjóðviljans, eða í síma 15603 eftir kl. 19. Bíll óskast óska eftir að kaupa góðan og vel með farinn bíl, fyrir ca. kr. 25.000,- Þarf að vera sparneytinn. Upplýsingar í síma 72072. Bíll til sölu Lada 1500 árg. ’78. Ekinn 86 þús. km. Er í góðu lagi. Verð 40 þús. Stað- greiðsluafsláttur. Uppl. í síma 621276, eftir kl. 16. íbúð óskast Við erum barnlaust par í námi við Há- skóla Islands, 25 ára gömul. Okkur bráðvantar húsnæði nú þegar. Skil- vísum greiðslum, reglusemi, góðri umgengni er heitið. Húshjálp eða önnur sambærileg hjálp kæmi til greina. Uppl. í síma 25127. Svart/hvítt sjónvarp Á ekki einhver svart/hvítt sjónvarp, með U.K.W bylgju, sem hann er hættur að nota og vill losna við fyrir lítið? Mamma og pabbi vilja losna við okkarúrstofunni, þ.e.a.s. mig og tölv- una mína. svo að þau geti horft á sjónvarpið. Ég bíð spenntur í síma 33113 (J.K) dag hvern eftir kl. 5. Klassískur gítar óskast Óska eftir að kaupa notaðan klass- ískan gítar helst með nælonstrengj- um. Sími 71891. Baðborð til sölu, sem nýtt, ákaflega vel með farið. Uppl. í síma 621454. Dagmamma - sjónvarp Okkur bráðvantar dagmömmu bú- setta í Hlíðunum, til að gæta 1 Vfe árs stelpu í vetur. A sama stað óskast svart/hvítt sjónvarp og eldhússtólar gegn vægu verði. Uppl. í síma 621454. Hæ-hó! Vantar ekki einhvern ágætis græjur: útvarpsmagnara, plötuspilara og ka- settutæki á 15 þús. Vel með farið. Á sama stað óskast lítið, Ijótt svart/hvítt sjónvarþ á slikk. Frekari uppl. í síma 20849. Odýr - skoðaður’85 Peugotinn okkar vantar nýja eigend- ur. Hann er kominn á fermingaraldur og nokkuð farinn að láta á sjá, en töluvert eftir, fái hann góða um- hyggju. Sími: 16557 Vantar þig húsnæði? Hef til leigu 2 herbergi með aðgang að snyrtingu og baði. Herbergin eru ekki stóren notaleg. Sanngjörn leiga. Leigjast reglusömu fólki frá 15. sept. Tilboð sendist á pósthólf 8711-128. Barnagæsla og heimilishjálp Óskum eftir konu til að annast 2ja ára telpu og til heimilisstarfa 2-3 eftirmið- daga í viku. Búum í Vesturbænum. Uppl. í síma 20762 eftir hádegi. íbúð óskast Ungt par í námi með eitt barn, óska eftir 2-3ja herbergja íbúð sem fyrst. Upplýsingar í síma 15938 eftir kl. 18.00 alla daga. Dagmamma óskast í vesturbæ, sem næst Grímsstaða- holti frá kl. 9.30-17 fyrir tæplega tveggja ára gamla telpu. Greiösla samkvæmt samkomulagi. Uppl. í síma 10253 e. kl. 17. Til sölu Volkswagen 71 (nýrri gerð) með vel nothæfri vél og nýjum geymi. Yfir- bygging léleg, selst ódýrt. Upplýsing- ar í síma 32742. Dagmamma Þorgerði Vz árs vantar góða dag- mömmu í Vesturbæ hálfan daginn í vetur. Uppl. í síma 62103 eftir kl. 19.00. Göngustafur er tapaður Silfurbúinn göngustafur tapaðist fyrir 2-3 árum. Merktur: NN á öðrum enda handfangs, en mánaðardagur og árt- al á hinum endanum. Sími 29869. Stólar, sófi sófaborð og fleira til sölu. Selst ódýrt. Sími 22928 eftir kl. 17. Notaður AEG bakarofn til sölu. Verð 1000.- kr. Sími 16544. Tauþrykk - taumálun Kvöldnámskeið verða í september og október. Innritun í síma 77393 á kvöldinog81699ádaginn. Steinunn. Saumanámskeið Tveir klæðskerar halda saumanám- skeið miðsvæðis í bænum þegar næg þátttaka fæst. Nánari uþplýsing- ar og skráning í símum 83069 og 46050. Fæst gefins Barnasvefnbekkur með dýnu og lítið skrifborð. Uppl. í sima 52901 eftir kl. 19. Óska eftir ræstingavinnu 4 kvöld í viku. Uppl. í síma 41450, eftir kl. 18. Morris bassagítar til sölu. Uppl. í síma 18054. Teitur. Ferðaritvél óskast keypt til sölu Vestf rost 271 L frystikista, nær ný. Sími 30181. Verksmiðjustörf Við óskum að ráða starfsfólk til verksmiðjustarfa í verksmiðju vorri. Mötuneyti er á staðnum. Upplýsing- ar veita verkstjórarnir Bergur Ásgrímsson og Jörundur Jónsson Kassagerð Reykjavíkur h/f Kleppsvegi 33. AWINNUUF Marika Nyström frá Helsinki í Finnlandi, nemandi við Tækniháskólann f Tammerfors, handleikur prufur úr þéttiborðum sem notaðir eru við samskeyti þakklæðninga. Marika starfar í sumar hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Ljósmynd: -sig. átak er eitt þessara verkefna, í því sambandi voru hús skoðuð á fjór- um stöðum á landinu þar sem ekki er að vænta hitaveitu. Á veg- um Rannsóknastofnunar bygg- ingariðnaðarins hafa 16 aðilar víða um land, einstaklingar og fyrirtæki, verið sérhæfðir hvað orkusparnaðarráðgjöf varðar. Rannsóknir sem hófust á vegum byggingaverkfræðinga 1979 með orkusparnað í huga hafa nú feng- ið raunhæfá þýðingu. Á okkar vegum er starfandi kostnaðardeild er m.a. fylgist með kostnaði við húsbyggingar. Hagstofan reiknar út bygginga- vísitölu, við könnum hina ýmsu kostnaðarliði sem byggingavísi- talan byggir á. Yfirlit yfír kostn- aðarliði þessa eru síðan gefin út í formi bæklinga. Með því móti ætti verðmeðvitund manna að aukast. í þessu sambandi mætti minn- ast á upplýsinga- og fræðslu- deildina en hún hefur einmitt út- gáfu rita og bæklinga á sinni könnu. Gefin eru út svonefnd RB-tækniblöð, efni þeirra varðar ýmis afmörkuð verkefni, þarfar upplýsingar um efni og fram- kvæmdir. Geta áskrifendur þeirra, sem nú eru um 1400, safn- að tækniblöðunum í þar til gerðar möppur. Upplýsinga- og fræðslu- deildin sér einnig um útgáfu stærri og viðameiri rita, allt að 2-300 bls. að umfangi. Sum þess- ara rita eru notuð sem handbæk- ur og við kennslu. Nýlega hefur hafið starfsemi sína vísir að tölvudeild. Öll stærri verkefni á vegum stofnunarinnar eru unnin í tölvum. Framkvæma þarf ýmsa útreikninga, útbúa töflur og línurit. Pá hefur notkun tölva sparað vélritunarvinnu“. Verkefnin óþrjótandi Viltu nefna nokkur dœmi um þau verkefni sem nú er unnið að á vegum stofnunarinnar? „Það eru mörg verkefni í gangi, ég get t.d. nefnt nokkur þeirra sem verið er að vinna að á vegum húsbyggingartæknideild- ar. Hljóðeinangrunarrannsóknir eru þar á meðal. Menn gera sér nú betur grein en áður fyrir vand- amálum af völdum hávaða í íbúð- arhúsum og á vinnustöðum og vilja kanna leiðir til úrbóta. Slíkt hefur átt vaxandi skilningi að mæta hjá sveitarfélögum. Þá eru leiðir til orkusparnaðar að sjálf- sögðu eitt verkefnanna, upphitun og loftræsting húsa. Til rannsóknar er nú klæðning á húsum og veðrunarþol. I því sambandi hafa verið settar upp ýmsar gerðir klæðningar við veðurstofuna á Vatnsendahæð í Reykjavík en einnig í Þorláks- höfn þar sem veðrunaráhrif salts eru athuguð sérstaklega. Niður- stöðu er að vænta eftir 5-8 ár. Nýjasta verkefni deildarinnar varðar viðhaldsvenjur í íslensk- um íbúðarhúsum. Rannsaka á hvað muni verða best og hag- kvæmast í þeim efnum. Ljóst er að þáttur viðhalds í húsbygging- um mun aukast í framtíðinni. Af rannsóknarverkefnum sem stofnunin vinnur stöðugt að má t.d. nefna ástand innfluttra ein- ingahúsa. Innflytjendur verða að fá vottorð frá stofnuninni, að öðrum kosti fá þeir ekki byggð einingahús sín hér á landi. Sem dæmi um niðurstöðu rannsóknar má taka athugun sem fram fór á endingu einangrunarglers. í ljós kom að af 3 árgöngum einangr- unarglers sem hafði verið í notk- un í 10 ár hafði móða komist milli glerja hjá 30-35% úrtaksins, þess sem rannsakað var“. Hvað viltu segja að lokum, Jón? „Verkefni Rannsóknastofnun- ar byggingariðnaðarins eru óþrjótandi en því miður - grát- lega lítið fjármagn er látið af hendi rakna til starfseminnar". -já Jón Baldvinsson stendur hér við geymsluker fyrir steypuhólka. Sjitastig í geymslukerinu er 38°C, rakastigið er einnig fastákveðið. Jón fæst við alkalí- rannsóknir, í steypuhólkunum eru ræktaðir alkalíeiginleikar. Ljósmynd: -sig. Kári Eysteinsson, einn elstu starfsmanna stofnunarinnar, getur allt að sögn Jóns Sigurjónssonar. Kári fékkst við að prufa þjöppunareiginleika jarð- vegsefna þá Þjóðviljinn leit inn. Hér fæst hann við lok hólks sem notaður er við rannsóknirnar. Ljósmynd: -sig. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.