Þjóðviljinn - 01.10.1985, Page 15

Þjóðviljinn - 01.10.1985, Page 15
HEIMURINN Bretland Yfir 200 handteknir í óeirðum Óeirðir í Brixton-hverfinu í London um helgina eru á ábyrgð Thatcher-stjórnarinnar Miklar óeirðir brutust út um helgina í hverfinu Brixton í London. Tíðindamaður Þjóð- viljans á Englandi, ívar Jóns- son, sendi eftirfarandi pistil um rósturnar í gær: Óeirðirnar í Brixton-hverfinu í London héldu enn áfram á sunnudagskvöldið. Yfir 40 manns voru handteknir í átökum lögreglu og íbúa eftir að fólk hafði safnast saman úti fyrir lög- reglustöðinni og grýtt hana með múrsteinum, flöskum og öðru til- fallandi. Sunnudagurinn hafði verið áfallalaus eftir óeirðirnar á laugardaginn sem voru þær mestu síðan 1981 í Brixton- hverfinu, en íbúar þess eru að mestu leyti blökkumenn og inn- flytjendur. Óeirðirnar á laugar- daginn hófust um kl. 17.15 þegar um 50 íbúar hverfisins efndu til mótmæla vegna skotárásar lög- reglu á blökkukonuna Cherry Groce. íbúarnir töldu hana hafa látist af skotsárum. Mótmælin voru í fyrstu frið- samleg, en eftir að lögreglan hafi látið til skararskríðaumkl. 18.15 og dreifði mótmælendum inn í nærliggjandi götur flykktust íbú- arnir úti á göturnar og óeirðirnar blossuðu upp. Bensínsprengjum og grjóti var varpað að lögreglu- sveitum, brynjuðum skjöldum og bareflum, kveikt var í 50 bflum í hverfinu, ráðist á fjölda verslana og kveikt í tveimur húsum. Um níuleytið var mesta púðrið úr óeirðunum, en þá hóf lögregl- an handtökur. Með hjálp liðs- auka voru 159 handteknir og göt- ÍVAR 4 \ JÓNSSON pH ur tæmdust. Upp úr miðnætti þyrptust íbúar að nýju út á göt- urnar, einkum yngra fólk, en á aðfararnótt sunnudags kom ein- ungis til minniháttar átaka. Að sögn lögreglu varð Cherry Groce fyrir einu skoti sem fór í gegnum öxl hennar og skaddaði hrygginn. Talið er að hún muni vera lömuð til frambúðar. At- burður þessi gerðist þegar hópur vopnaðra lögreglumanna réðust inn á heimili Groce í leit að nítján ára syni hennar, Michael. Cherry Groce veitti lögreglunni mót- spyrnu. Michael er talinn hafa mikilvægar upplýsingar um inn- brot sem framið var í septemb- ermánuði. Hann hafði verið í fel- um í langan tíma en hefur nú gef- ið sig fram. Óeirðirnar í Brixton nú um helgina sýna glöggt þá ólgu sem ríkir á Bretlandi í kjölfar öfga- stefnu nýfrjálshyggju Margaret Thatcher og borgarastéttarinnar. Gífurlegt atvinnuleysi, yfir 13%, og árásir ríkisstjórnarinnar á vel- ferðarkerfið hafa einkum komið niður á lágstéttarfólki og innflytj- endum á sama tíma og stefna stjórnarinnar hefur verið að lækka beina skatta hinna ríku. Ástandið er orðið svo alvarlegt að jafnvel borgarastéttin er klofin í afstöðu sinnar til stefnu Thatchers. í hennar eigin flokki, íhaldsflokknum, hafa hægfara íhaldsþingmenn myndað með sér samtök gegn Thatcher. Fyrrver- andi forsætisráðherra, Edward Heath, er þar fremstur í flokki. Við þennan pistil ívars má bæta því að lögreglan handtók 48 manns á sunnudaginn og hafa því alls 220 manns verið teknir fastur í óeirðunum í Brixton. Nærri 60 hlut meiðsli, tveim konum var nauðgað, fjögur hús og 99 bflar skemmdust af eldi og brotist var inn í 80 verslanir og íbúðir. Skemmdir eru metnar á tugi milj- óna króna. -ÞH/reuter Sprengjutilræðið gegn skipi Grænfriðunga, „Rainbow Warri- or“ í höfninni í Auckland, sem olli því að skipið sökk og maður úr áhöfninni beið bana, er nú orðið að einni helstu framhaldssögu sumarsins og. haustsins, og eru engin sögulok fyrirsjáanleg enn, - a.m.k. er nú þegar Ijóst að af- leiðingar málsins eiga eftir að verða mjög alvarlegar fyrir frönsku stjórnina og jafnvel Mitterrand forseta sjálfan. Frönsk stjórnmálahneyksli eru gjarnan í „tveimur þáttum“, eins og áður hefur verið bent á: fyrst kemur upp orðrómur um ein- hvers konar misbeitingu valds, gjarnan í sambandi við öryggis- mál landsins, en síðan setja stjórnvöld allt af stað til að fela málið og þagga það niður, neita öllu sem hægt er að neita og flækja sig þannig í net hálfsann- urkennt hefði verið. Þá breyttu frönsk stjórnvöld alveg um stefnu: í stað þess að reyna enn að klóra í bakkann var Charles Hernu varnarmálaráðherra látinn segja af sér og Pierre Lac- oste, yfirmaður leyniþjónustunn- ar, hreinlega rekinn, og í kjölfar þess viðurkenndi Laurent Fabius forsætisráðherra, að starfsmenn frönsku leyniþjónustunnar hefðu framkvæmt sprengjutilræðið „samkvæmt skipun“, þótt ekki væri nánar frá því sagt hver hefði gefið þessa skipun. Gekk Fabius jafnvel svo langt að lýsa því yfir við Nýsjálendinga að hann harm- aði þessa atburði mjög. Rétt er að leggja áherslu á, að með þessu sýna frönsk stjórnvöld mikinn frumleika og hugrekki, því að hingað til hafa þau aldrei „viður- kennt“ neitt og aldrei tekið á sig pólitíska ábyrgð á bellibrögðum, glópsku: hvernig gat þeim yfir- leitt dottið í hug að hægt væri að framkvæma þetta sprengjutilræði í Auckland án þess að böndin bærust beint að Frökkum sjálf- um, hvort sem tilræðismenn slyppu eða ekki; málið yrði Grænfriðungum til framdráttar og skaðaði álit manna á Frökkum og franska hagsmuni miklu meira en „Rainbow Warrior" gæti nokkurn tíma gert meðan það fengi að fljóta á yfirborði sjávar. Auk þess verður málið vatn á myllu þeirra mörgu, sem halda því fram, að kjarnorkubrölt af því tagi sem Frakkar stunda í Kyrrahafsnýlendum sínum hafi jafnan í för með sér alls kyns undirferli og bellibrögð leyni- þjónustu-stofnana, sem skirrist einskis þegar kjarnorkumál eru annars vegar og hegði sér af undarlegu dómgreindarleysi: ráðum. Sprengjutilræðið gegn „Rainbow Warrior“ varð því ekkert stórmál í Frakklandi í byrjun: ýmsir menn í stjórnar- andstöðunni lýstu því jafnvel yfir opinberlega - og enn fleiri hugs- uðu slíkt hið sama í lágum hljóð- um - að það hefði verið sjálfsagt og eðlilegt að koma í veg fyrir mótmælaaðgerðir Grænfriðunga í eitt skipti fyrir öll. Slíkar skoð- anir virtust hafa talsverðan hljómgrunn í landinu, og þeir vinstri menn, sem gátu ekki fallist á sprengjutilræði gegn friðarsinn- um, létu lítið á sér bera. Sam- kvæmt stjórnarandstæðingum voru afglöp frönsku leyniþjón- ustunnar, og þeirra stjórnvalda, sem báru pólitíska ábyrgð á gerð- um hennar, þau ein að klaufska málinu svo mjög að allt komst upp. Svo virðist að þessir menn hafi Iandi hvað kunni að gerast eftir kosningarnar að vori: talið er lík- legt að þá muni sósíalistar missa meirihlutann á franska þinginu, en hins vegar nær kjörtímabil Mitterrands til ársins 1988. Hann hefur sjálfur lýst því yfir, að hann hyggist sitja í forsetastóli til enda þess. Meðal stjórnarandstöð- unnar hefur ríkt nokkur ágrein- ingur um stefnuna eftir hugsan- legan sigur hennar: ýmsir helstu leiðtogarnir eins og Jacques Chir- ac, leiðtogi Gaullista, og Giscard d’Estaing, fyrrverandi forseti, hafa lýst því yfir - sennilega til að draga úr ótta manna við alvarlega stjórnarkreppu - að þeir væru reiðubúnir að mynda ríkisstjórn þótt Mitterrand væri áfram fors- eti. Raymond Barre hefur hins vegar lýst því yfir að sigri stjórn- arandstaðan skuli hún láta kné fýlgja kviði, knýja Mitterrand til Franska stjómin játar að lokum allt Kann að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir Mitterrand eftir nœstu þingkosningar Charles Hernu: látinn segja af sér. leika og hreinna lyga, sem verður þeim að lokum til enn meiri álits- hnekkis en þótt sannleikurinn hefði komið fram. f „Rainbow Warrior" málinu fóru frönsk yfir- völd fyrst inn á þessa braut - eins og fyrri stjórnir höfðu áður gert í Frakklandi - með skýrslu Bern- ards Tricots, þar sem því var haldið fram að Frakkar hefðu að vísu sent njósnara til Nýja Sjá- lands til að fylgjast með Græn- friðungum en ættu alls enga sök á sprengjutilræðinu. Um leið var þeim orðrómi komið á kreik í París, að eins víst væri að enska leyniþjónustan, eða kannski sú bandaríska, hefðu verið að bralla eitthvað á þessum slóðum til að koma óorði á Frakka. Stefnubreyting En skýrslu Bemards Tricots var ekki tekið með öðru en háðsglósum þegar hún birtist, og jafnframt fóru að koma fram upplýsingar sem sýndu að lítið var að marka það sem í henni stóð og sök Frakka meiri en við- - í hæsta lagi fórnað undirtyllum. Segja má að fyrir tilstilli Mitterr- ands sé Frakkland nú ekki lengur landið, þar sem öll hneyksli eru þögguð niður. En greinilegt er að þessi við- brögð koma nú of seint, - skaðinn er þegar skeður og hann greinilega mun meiri en menn hefðu búist við. Þegar er farið að tala um málið sem mesta stjórnmálahneykslið síðan Mitterrand tók við völdum, og eru frönsku sósíalistarnir komnir í vonda aðstöðu vegna þess. Ólíkt því sem verið hefur í fyrri stjórnmálahneykslum, sem kom- ist hafa á spjöld sögunnar, er skaðinn tvíþættur: hann er bæði inn á við og út á við. Utanlands Á alþjóðavettvangi telst þessi „játning" frönsku stjórnvaldanna naumast til meiri háttar opinber- ana, þar sem menn virðast yfir- leitt ekki hafa verið í neinum vafa um að Frakkar bæru ábyrgðina á sprengjutilræðinu, en hún veldur því þó áreiðanlega að menn sjá ýmsa hluti í nýju ljósi. Pað verður sem sagt augljóst að í frönsku leyniþjónustunni ráða ferðinni beinasnar, sem gera sig ekki að- eins seka um glæp heldur og um stafi bein hætta af því brambolti öllu. Afleiðingin getur ekki orðið önnur en sú að andstaðan gegn kjarnorkutilraunum Frakka, sem þegar var mikil í löndunum við Kyrrahaf, magnist enn meir, þannig að úr því verði voldug hreyfing og Frakkar lendi í mikl- um erfiðleikum í alþjóðamálum. Þá er enn ótalið það sem kannski er alvarlegast: hætt er við að þetta mál brjóti niður þá mynd, sem franska sósíalistastjórnin hefur reynt að skapa af sjálfri sér, að hún virði betur siðferði í al- þjóðamálum er fyrirrennarar hennar. Á fræðgarskjöld hennar eru nú komnar ljótar beyglur og ryðblettir. Innanlands f Frakklandi sjálfu er staðan öðru vísi en sennilega enn alvar- legri fyrir stjórnina. Þótt vinstri flokkarnir hafi í öndverðu verið andvígir kjarnorkuvígbúnaðin- um, sem de Gaulle forseti kom á laggirnar, er staðan nú breytt, og virðast allir stjórnmálafloíckar - jafnvel kommúnistar - vera hon- um hlynntir. Stjórn sósíalista heldur áfram að efla hann, og því er stjórnarandstaðan alveg sam- mála og telur rétt að vernda þennan vígbúnað með öllum litið svo á, þótt ekki hafi það ver- ið sagt berum orðum, að úr því, sem komið væri, ættu stjórnvöld að bregðast við með hörku, viðurkenna aldrei neitt og kæra sig kollótt um afleiðingarnar. í þeirra augum eru viðbrögð stjórnarinnar nú þau verstu sem hugsast geta: með því að viður- kenna aðild Frakka gerir Fabius þá hlægilega, hann veikir leyni- þjónustuna og herinn líka, og stefnir jafnvel kjamorkutil- raunum í hættu. Nú hefur sam- bandið við herinn og leyniþjónu- stuna lengi verið veiki punktur frönsku sósíalistanna, og var það hlutverk Charles Hernu, sem var sérfræðingur flokksins í hermál- um löngu áður en hann varð land- varnarmálaráðherra, að reyna að skapa gagnkvæmt traust milli flokksins og yfirmanna hersins. Það hafði honum tekist svo vel, að hann var einn af þeim ráðherr- um sósíalista sem nutu virðingar meðal stjórnarandstöðunnar. Afsögn hans nú er því mikill hnekkir fyrir sósíalista. Horfur eftir kosningar Síðustu mánuðina hefur mjög mikið verið rætt um það í Frakk- Pierre Lacoste: rekinn. að segja af sér og efna tii nýrra forsetakosninga í kjölfar þing- kosninganna. Stefna hinna tveggja fyrr- nefndu hefur haft meiri byr í segl- in, og hafa margir giskað á að eftir kosningar kæmist á einhver málamiðlun milli forseta og vænt- anlegs nýs meirihluta, hvort sem einhver af leiðtogum núverandi stjórnarandstöðu myndaði stjóm eða sett yrði á laggirnar mið- flokkastjórn, sem hefði stuðning sósíalista og einhverra frjáls- lyndra flokka (í hefðbundinni merkingu þess orðs): var Charles Hernu nefndur sem einn þeirra ráðherra sem kynnu að halda embættum sínum við slíkar nýjar aðstæður. „Rainbow Warrior“ málið gæti veikt stöðu Mitterr- ands svo mjög, að það verði hon- um dýrkeypt eftir næstu þing- kosningar, - ekki síst ef það er rétt sem ýmsir halda fram, að sitthvað eigi enn eftir að koma í ljós. e.m.j. Þriðjudagur 1. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.