Þjóðviljinn - 02.10.1985, Page 2
FRETTIR
Slys
Há slysatíðni á bömum
Félag íslenskra barnalœkna gengstfyrir áróðursherferð til að
vara börn og fullorðna við slysagildrum
Félag íslenskra barnalækna
mun á næstunni gangast fyrir
stuttum auglýsingaþáttum í sjón-
varpi til að hamla eftir megni
gegn hinum tíðu og hörmulegu
slysum, sem verða á börnum hér
á landi og segir í frétt frá félaginu
að þessi árstími hafi verið valinn
vegna þess að nú fari í hönd vetur
með aukinni hættu fyrir börn í
umfcrðinni, svo og aukinni hættu
á slysum í heimahúsum samfara
aukinni inniveru barna um
vetrartímann. í tilkynningu Fé-
lags íslenskra barnalækna segir:
„Á undanförnum árum og ára-
tugum hefir náðst mjög góður ár-
angur í meðferð og fyrirbyggingu
sjúkdóma meðal barna á íslandi.
Tíðni burðarmálsdauða á íslandi
er nú með því lægsta sem þekkist í
heiminum, ungbarnadauði hefir
um áratugaskeið verið í lágmarki
á íslandi og bólusetningar og aðr-
ar ónæmisaðgerðir hafa verið
framkvæmdar með miklum ágæt-
um á heilsuverndarstöðvum
landsins.
Á fslandi er, hins vegar, slysa-
tíðni meðal barna hærri en gerist
meðal nágrannaþjóða, og virðist
síður en svo fara lækkandi.
í umferðarslysum einum sam-
an deyja árlega 2-3 börn og hátt á
annað hundrað slasast alvarlega,
sum til varanlegrar fötlunar.
Brunaslys á börnum eru algeng á
íslandi og sama er að segja um
eitranir.
Eins og öðrum, sem til þekkja
finnst barnalæknum mikil vá að
þessum tíðu slysum. Nú er svo
komið að þeir telja, að heilsutjón
af völdum slysa sé stærsta fyrir-
byggjanlega vandamálið, sem við
er að glíma innan barnalæknis-
fræði á íslandi. Félag íslenskra
barnalækna hefur því ákveðið að
BSRB
Kaupmatt-
inn verður
að tryggja
Meginsjónarmið okkar við
næstu kjarasamninga verða þau,
að launakjör verði bætt verulega
og kaupmáttur þeirra launa sem
samið verður um verði tryggður
með einhverju móti. En megin-
stefna í kjaramálum verður
mótuð á þingi bandalagsins sem
haldið verður dagana 22.-26. okt-
óber sagði Kristján Thorlacius
formaður BSRB í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Stjórn og samninganefnd
BSRB samþykktu einróma í síð-
ustu viku að segja núgildandi
kjarasamningi upp og verða þeir
lausir um áramót.
„Það hefur sannast enn einu
sinni, að yfirlýsingar stjórnvalda
duga ekki sem trygging fyrir
kaupmætti og það er því ljóst að í
samninga verður að koma ákvæði
um tryggingu kaupmáttar. Það er
hægt að gera með ýmsu móti en
við höfum ekki markað ákveðna
stefnu í þeim efnum.
Það sem maður heyrir helst frá
launafólki er að það á í erfið-
leikum vegna misræmis milli
vaxta, verðlags og kjara, verð-
lagið þýtur upp ásamt lánskjara-
vísitölunni en launin sitja eftir og
skuldirnar hrúgast upp hjá launa-
fólki. Þetta verður að lagfæra
enda getur enginn unað við þetta
ástand til frambúðar,“ sagði
Kristján. gg
gangast fyrir áróðursherferð til
að vara börn og fullorðna við
slysagildrum.
Þetta verður gert með sýning-
um stuttra kvikmynda í sjónvarpi
og verða myndirnar sýndar fyrir
auglýsingaþættina eftir fréttaþátt
kvöldsins. Ríkisútvarpið hefir
boðist til að sýna þessar kvik-
myndir endurgjaldslaust.
Til að fjármagna gerð mynd-
anna verður Fél. ísl. barnalækna
að leita eftir fjárframlögum ann-
SAGA film hefir riðið á vaðið,
gert fyrstu myndirnar og gefið all-
an kostnað við gerð þeirra. Síðan
mun verða leitað eftir stuðningi
tryggingafélaga, lyfjafyrirtækja,
hreinsiefnaframleiðenda o.fl. til
að standa straum af gerð fleiri
þátta.
Fél. ísl. barnalækna er mjög
þakklátt fyrir þær jákvæðu undir-
tektir, sem mál þetta hefir hlotið
og vonast til þess að almenningur
veiti athygli þessum kvikmynd-
um og dragi af þeim árang-
ursríkan lærdóm.
■TORGIÐ'
Kannski fær hann Steini litli
stólinn...
Tímarit Máls og menningar
Einkaviðtal við
Milan Kundera
Kaffihúsaspjall íslendings í París við frœgan
rithöfund
Einkaviötal við hinn þekkta
tékkneska rithöfund Milan
Kundera er að finna í nýjasta
hefti tímarits Máls og menningar,
tekið sérstaklega fyrir Tímaritið
af nemanda Kundera, Friðriki
Rafnssyni, á kaffihúsi í París í
vor. Viðtalið er stutt en merki-
legt, og allnokkur viðburður hér
nyrðra.
Kundera kenndi um árabil við
Kvikmyndaháskólann í Prag, þar
sem á meðal nemenda hans voru
helstu framámenn tékknesku ný-
bylgjunnar í kvikmyndum, þeirra
á meðal Milos Forman, sem gerði
Amadeus þann sem nú er í Há-
skólabíói. Eftir innrás Rússa í
Tékkóslóvakíu 1968 var Milan
Kundera rekinn frá Kvikmynda-
háskólanum, bækur hans bann-
aðar og nafn hans máð út úr
tékkneskri bókmenntasögu.
Árið 1975 fluttist hann svo til Par-
ísar.
Síðan hefur hann orðið frægur
rithöfundur, og nýtur sívaxandi
álits. Einna þekktust er skáldsaga
hans Óþolandi léttúð tilverunnar.
f viðtalinu í Tímaritinu er spurt
um stöðu smáþjóða, sem Kund-
era hefur hugleitt mikið og skrif-
að um. „Tilvera smáþjóðarinnar
vekur sífelldar spurningar," svar-
ar Kundera, „og er einlægt vanda
undirorpin, þess vegna neyðist
smáþjóðin til þess að velta sífellt
fyrir sér merkingu tilverunnar...
Ef við erum íslenskir eða tékkn-
eskir verðum við að réttlæta til-
veru okkar án afláts. Hvernig
getum við réttlætt tilveru okkar?
Einkum á sviði menningarinnar,
með því að sýna fram á að okkar
viðhorf til tilverunnar sé áhuga-
vert, dálítið öðruvísi, og þetta
sjónarmið geti hugsanlega auðg-
að heimsmenninguna".
-ÖS
Kaup og kjör
Atvinnurekendur tekjulægstir
Athugun Húsnœðisstofnunar leiðir margtfróðlegt íIjós. Karlmenn með eigin
rekstur með 300þús. að meðaltali í árslaun ífyrra. Einstœðar mœður höfðu 340
þúsundog karlar sem störfuðu hjá öðrum 420 þúsund krónur
Pað virðist ekki gefa mikið í
aðra hönd að vera með eigin
atvinnurekstur á íslandi nú á
þessum síðustu og verstu tímum.
Sú er að minnsta kosti niðurstað-
an úr samanburðarathugun sem
Húsnæðisstofnun ríkisins gerði á
tekjum þeirra aðila sem sóttu um
sérstök lán vegna greiðsluerfið-
leika fyrr á árinu.
Meðaltekjur umsækjenda sem
sóttu um greiðsluerfiðleikalán
voru á si, ári 525 þúsund kr, með-
altekjur hjóna eða sambýlinga
þar sem hvorugur aðilinn stund-
aði eigin atvinnurekstur voru 535
þúsund krónur, meðaltekjur
karla sem störfuðu hjá öðrum
voru á sl. ári 420 þúsund kr, með-
altekjur einstæðra mæðra á sama
tíma voru 340 þúsund krónur en
lægstar meðaltekjur höfðu karl-
menn sem stunda eigin atvinnu-
rekstur eða 300 þúsund krónur.
f fróðlegri greinargerð Hús-
næðisstofnunar kemur jafnframt
fram að lægstar meðaltekjur karl-
manna sem stunda eigin atvinnu-
rekstur var í Norðurlandskjör-
dæmi vestra eða aðeins 170 þús-
sóttu um lán og störfuðu hjá öðr-
um en sjálfum sér, ríflega helm-
ingi hærri en atvinnurekendanna
Meðaitekjur Meðaltekjur
karla 1984 sem karla 1984 sem
stunda eigin starfa hjáöðrum
atvinnurekstur og sóttu um lán
og sóttu um lán vegna greiðslu-
vegna greiðs- luerfiðleika. erfiðleika
Reykjavík 305.000.- 405.000.-
Reykjanes 315.000.- 430.000.-
Vesturland 205.000.- 450.000,-
Vestfirðir 500.000,-
Norðuri. v 170.000.- 365.000,-
Norðurl. e 325.000.- 425.000,-
Austurland 410.000,-
Suðurland 330.000.- 380.000,-
Meðaltal 300.000.- 420.000,-
tekjur launamannsins töluvert og
allt að ríflega tvöfalt hærri en at-
vinnurekandans eins og sést á
meðfylgjandi töflu.
Það þarf ekki að taka fram að
tölur um launatekjur viðkomandi
eru teknar úr skattskýrsium.
-•g-
und krónur á sl. ári, en á sama
tíma voru meðaltekjur annarra
karla úr sama kjördæmi sem
eða 365 þús. kr. Svipaða sögu er
að segja úr öllum öðrum kjör-
dæmum landsins, alls staðar voru
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 2. október 1985
Afram
Luxus
í síðasta Sunnudagsblaði var því
haldið fram að tímaritin Storð og
Luxus hefðu lagt upp laupana.
Rétt mun vera að útgáfu Storðar
hefur verið hætt en Luxus mun
áfram verða til staðar. Kváðu
menn þar á bæ allar sögusagnir
um að tímaritið hefði lagt upp
laupana, úr lausu lofti gripar.
Næsta tölublað kemur út í mán-
aðarlok.