Þjóðviljinn - 02.10.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 02.10.1985, Blaðsíða 9
MENNING Beethoven og Bartók Fyrstu tónleikar36. starfsárs Sinfóníuhljómsveitar íslands verðafimmtudaginn 3. októ- beríHáskólabíóikl. 20.30. Stjórnandi verður gríski hljómsveitarstjórinn Miltiades Caridis en einleikarar verða fjórir af fremstu tréblásturs- hljóðfæraleikurum okkar, þeir Bernharður Wilkinson á flautu, Daði Kolbeinsson á óbó, Einar Jóhannesson á klarinettog Hafsteinn Guð- mundssonáfagott. Tónleikamir hefjast á sinfóníu nr. 6 eftir Beethoven, sem hlotið hefur viðumefnið Pastoral eða Sveitasinfónían. Annað verkið á tónleikunum er Quadruple conc- erto eftir Jean Francaix, eitt af þekktari núlifandi tónskáldum Frakklands. Tónlist hans ein- kennist af léttleika og kímni en er allt annað en auðveld í flutningi. Síðasta verkið á tónleikunum er „Mandaríninn makalausi” eftir Béla Bartók, balletmúsík samin árið 1919. Eins og ævinlega vill verða þegar tímamótaverk koma fram olli ballettinn miklum uppsteit þegar hann var frum- fluttur í óperuhúsinu í Cologne árið 1926, sjö árum eftir að verk- ið var samið. Hljómsveitarsvítu þá sem hér verður flutt samdi Bartók úr balletttónlistinni árið 1924 og er hún í dag talin vera eitt af öndvegis tónverkum tuttug- ustu aldar. Sinfóníuhljómsveit Is- lands hefur tvisvar áður sett „Mandaríninn” á verkefnaskrá, en orðið að hætta við vegna þess hve verkið er krefjandi. Með ári hverju hefur hljómsveitin ráðist í erfiðari verk og er þess nú um- komin að flytja „Mandaríninn makalausa”, sem er á sinn hátt merkilegur áfangi. Sjödœgra í kvöld lýkur í Gallerí Borg við Austurvöll myndlistasýningu Stefáns Axels Valdimarssonar, Sjödægru. Stefán opnaði sýningu sína sl. fimmtudag og eru sjö akrílmynd- ir á sýningunni unnar í ár og í fyrra. Aðsókn að sýningunni hefur verið með ágætum og er þegar helmingur verkanna seldur. Selkórinn Syngur á sjúkrahúsum Verkefni vetrarstarfsemi Selkórsins á Seltjarnarnesi verða að vanda fjölbreytt og mun léttleiki einkenna dag- skrána. í vetur sem og undanfarin ár stjórnar Helgi R. Einarsson kómum. Kórinn er blandaður, skipaður bæði konum og körlum og í hann vantar alltaf gott söng- fólk. Selkórinn hefur sjálfstæða tón- leika og syngur einnig á sjúkra- húsum og öðrum stofnunum. Sjálfu vetrarstarfinu lýkur svo með vorskemmtun í maí. Mikil hljómsveit - mikil verk Námskeið í lýsingu og látbragðsleik Helgina 19. og 20. sept. síð- astliðinn voru haldin 5 mis- munandi námskeið í ýmsum greinum leiklistar hjá Leikfé- lagi Akureyrar. Námskeiðin voru ætluð fólki frá áhuga- leikfélögum á Norðurlandi og voru haldin að beiðni leikfé- lagasambands Norðurlands. Það var starfsglaður fimmtíu manna hópur sem vann í þessum opna skóla myrkranna á milli í tvo daga. Ingvar Bjömsson ljósa- meistari L.A. kenndi lýsingu, Hilda Torfadóttir kennari og út- varpsmaður leiðbeindi um raddþjálfun, Sigríður Svana Pét- ursdóttir förðunarmeistari L.A. kenndi förðun, Þráinn Karlsson leikari kenndi leikmunagerð og Erla B. Skúladóttir leikari kenndi látbragðsleik og spuna. Að námskeiðinu loknu sýndu hópamir dæmi um árangur erfið- is síns á leiksviði Samkomuhúss- ins og var gerður góður rómur að. Margir höfðu lagt á sig langa ferð - nemendur komu allt frá Hvammstang og Þórshöfn. í tengslum við námskeiðið héldu leikfélög á Norðurlandi árlegan haustfund, þar sem þau ræddu vetrarstarfið og bám saman bækur sínar. Mikið og gott sam- starf er með leikfélögum á Norð- urlandi og er þetta fjórða árið í röð, sem þau koma saman á haustnámskeiðum. Blaðberar óskast Á Laufásveg, Smáragötu, Seltjarn- arnes, Kópavog - Grundir, Æsufell og Austurberg. Úrdrátturúr umsögnum franskra blaða umtónleikaferð --------------------- ÞJÓÐVUJINN Sinfóníuhljómsveitar Íslandsísumar Sinfóníuhljómsveit íslands fór ítónleikaferð um Frakkland í sumar og hlaut mjög iofsam- lega umfjöllun þarlendra blaða. Þar á meðal mátti lesa dóma eins og mikil hljómsveit mikil verk. Félagsmálaskólí alþýðu 1. önn 20. október - 2. nóvember NÚ FYRIR 25 ÁRA OG YNGRI „Koma sinfóníuhljómsveitar til Chalon er atburður sem dregur fjöldann að. Svo var einnig s.l. miðv.d. þegar Sinfóníuhljóm- sveit íslands og Jean Pierre Wal- les efndu hér til tónleika. Var tónlistarmönnum og hljómsveitarstjóranum Jean- Pierre Jacquillat fagnað með löngu lófataki.“ - Le Courrier, Chalon. Le Progres, Chalon: „Efnisskránna vantaði ekki óvenjulegt atriði. Mist, eftir ís- lenska tónskáldið Þorkel Sigur- bjömsson frá 1972 var ekki svo langt frá rómantík og endurtekn- ingareinkennum sinfóníu César Franck.“ VAR-Repubiique, To- ulon: „Á tónlistarhátíðinni í ár var eitt sem vakti sérstaka gleði okkar og undran. Eftir að hafa hlustað á marga mjög góða tón- leika fengum við tækifæri til að heyra tónlist úr Norðrinu. Túlk- unin var svo sönn og flutningur- inn svo frábær að okkur hlýnaði um hjartarætur." La Marseil- laise, Toulon: „Einkum fannst okkur áhugavrt að kynnast ís- lenskri tónlist: Choralis eftir Jón Nordal, samið 1982 er nútíma- verk, samhljóma og vel tengt með þema sem ýfíst og eflist í lokin. Verkið er byggt á hægum og tregablöndnum þjóðlögum.“ Midi-Libre, Nimes: „Konsert fyrir klarinett eftir Mozart K 622 var dásamlega leikinn af ungum og miklum einleikara Einari Jó- hannessyni... Við verðum að fylgjast með þessum unga snill- ingi.“ Les affíches de Grenoble et du Dauphine: „Það var beðið með spenningi eftir íslensku túlk- uninni á hinni frægu sinfóníu Cés- ar Franck. Undir öruggri stjórn Jean-Pierre Jacquillat flutti hljómsveitin okkur stórkostlega túlkun, ríka í andstæðum og Iitum. Að loknum fjörlegum lokakafla, fögnuðu áheyrendur bæði lengi og innilega þessari frá- bæru hljómsveit.” ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Hvað kannt þú fyrir þér í fundarstörfum og framsögn? Hvað veist þú um verkalýðshreyfing- una, starf hennar og sögu? Áttu auðvelt með að koma fram á fundum og samkomum? Tekurðu þátt í félagslífi? Viltu bæta þekkingu þína í hagfræði, félags- fræði og vinnurétti? Veitt er tilsögní þessum og öðrum hagnýtum greinum á 1. önn Félagsmálaskóla alþýðu,sem skólí fyrir þig? MFA verður í Ölfusborgum 20. okt.-2. nóv. n.k. Þá eru á dagskránni menningar- og skemmtikvöld auk heimsókna í stofnanir og fyrirtæki. Félagsmenn Alþýðusambands íslands eiga rétt á skólavist. Hámarksfjöldi á önn er 25 þátttakendur. Umsóknir um skólavist þurfa að berast skrifstofu MFA fyrir 17. okt. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA, Grensásvegi 16, sími 84233. Menningar- og fræðslusamband alþýðu ÞEKKING, STARF OG STERKARIVERKALÝÐSHREYFING

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.