Þjóðviljinn - 02.10.1985, Blaðsíða 14
AFMÆU
11
(tti
Iðntæknistofnun íslands
og
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS
9
auglýsa:
Námskeið á næstunni:
Vökvakerfi: 60 tíma námskeið haldið dagana 1. t.o.m. 9.
nóv.
Ætlað járniðnaðarmönnum og vélstjórum.
Málningarefnisfræði: Haldið 11. t.o.m. 15. nóv.
Ætlað málurum.
Grunnnámskeið í rennismíði og fræsingu: Haldið
laugardagana 5. okt. t.o.m. 2. nóv.
Ætlað járniðnaðarmönnum og nemum.
Örtölvutækni I: Nánar auglýst síðar.
Ætlað tæknimönnum, verkfræðingum og öðrum sem áhuga
hafa á notkun örgjörva I stýritækni.
Stofnun fyrirtækja: Haidið 21. og 22. október.
Ætlað fólki sem nýlega hefur stofnað eða hyggst stofna
fyrirtæki.
Verkstjórn: Röð námskeiða ætluð verkstjórum.
Stöðugt í boði.
Ráðstefna um stöðu og framtíð húsgagniðnaðar: Hald-
in í Borgarnesi 4. t.o.m. 5. október.
INSTA-bygg heldur námsstefnu um staðlastarfsemi á sviði
byggingariðnaðar á Norðurlöndum að Keldnaholti 14. októ-
ber.
Málmsuða: Fræðilegt námskeið, haldið dagana 21. t.o.m.
24. okt.
Ætlað verkstjórum.
Stúfsuða á rörum: Haldið 14. t.o.m. 18. okt.
Ætlað iðnaðarmönnum m. amk. 1 árs reynslu í rafsuðu.
Stjórn vinnuvéla: Hefst í næsta mánuði.
Upplýsingar og skráning í síma 687000
A
Kópavogskaupstaður
- deiliskipulag
Auglýst er deiliskipulag í Suðurhlíð Digraness í sam-
ræmi við grein 4.4. í skipulagsregiugerð frá 1. ágúst
1985.
Teikningar ásamt greinargerð, skilmáium og
leiðsöguteikningum fyrir reit merktan A, liggja frammi
á skrifstofu bæjarverkfræðings Kópavogs, Fannborg
2, 3. h., frá og með 2. október til 2. nóvember 1985.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar
og berast bæjarverkfræðingi fyrir 5. nóvember nk.
Bæjarverkfræðingur
V0FA*,,0
#
i
Bygging K
á Landspítalaióð
Tilboð óskast í að steypa upp og fullgera að utan 1. áfanga bygging-
ar K á Landspítalalóð í Reykjavík með grunnlögnum og fyllingu að
húsi. Byggingin er á fjórum gólfflötum auk inndreginnar þakhæöar
og eru tvær neðstu hæðirnar niðurgrafnar. Heildarflatarmál gólf-
flata er 4576 mz og rúmmál þessa byggingarhluta alls 19060 m3.
Þegar hefur verið grafið fyrir byggingunni og vinnusvæðið er afgirt.
Verkinu skal að fuliu lokið 31. desember 1986. Útboösgögn verða
afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7 gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 23. október 1985
kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
bréfbera
við nýja póst- og símstöð á Seltjarnarnesi. Nánari
upplýsingar veitir póstútibússtjóri í R-7 (vesturbæjar-
útibú) sími 26000.
Eiginmaður minn, faöir, tengdafaöir og afi
Björgúlfur Sigurðsson
Stóragerði 7
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins 1. oktober.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ingibjörg Þorleifsdóttir
Sigurður Björgúlfsson
Elísabet Pétursdóttir
Telma Sigurðardóttir
Halldór Kristfánsson
frá Kirkiubóli 75 ára
Fyrir meira en hálfri öld þeysti
önfirskur' bóndasonur fram á rit-
völlinn. Greinilegt var að þar var
enginn aukvisi á ferð. Skýrleiki
og rökvísi einkenndu málflutn-
inginn. Ljóst var að þessi ungi
maður vissi hvað hann vildi.
Kjörorð við hæfi hefði verið:
„Gróandi þjóðlíf með þverrandi
tár”.
Síðan fyrsta grein vestfirska
piltsins birtist í Skinfaxa hefur
margt breyst. Þó er enn tekist á
um sömu grundvallaratriði og
fyrrum. Og enn stendur Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli í
Önundarfirði á ritvellinum miðj-
um og er hvorki sár né vígamóð-
ur. Enn er hugsunin skýr og
penninn ef til vill hvassari en
nokkru sinni fyrr. Svo fer þeim
sem eiga sér hugsjón, þeim sem
„áttu land, elskuðu það og
vörðu”, þeim sem aldrei voru fal-
ir þótt hátt væri boðið í ritleikni
þeirra og snilli.
Halldór Kristjánsson er
heilsteyptur maður. Hann kann
ekki að látast. Hann vinnur það
aldrei „fyrir vinskap manns að
víkja af götu sannleikans”.
Halldóri Kristjánssyni bregður
ekki við smámuni. Þrautseigja,
kjarkur og vongleði íslenskrar al-
þýðu eru honum í blóð borin.
Hann velkist ekki í vafa um að
fiskimaðurinn og bóndinn eru
síður en svo baggar á þjóðarbú-
inu. Aftur á móti kynni að hvarfla
að honum að þeir sem starfa að
innflutningi á karamellum og
kexi, tóbaki og áfengi væru eng-
inn hvalreki, hvorki fyrir þjóðar-
haginn né þjóðarsálina. Og ekki
held ég honum þyki öðru brýnna
að niðurgreiða áfengi svo ríflega
til vínsölulýðs og drykkjumanna
að við skattborgararnir greiöum
þrjár til fimm krónur með hverri
einni sem í ríkiskassann kemur
fyrir þann vökva. Það þættu
sumum drjúgar niðurgreiðslur og
þjóðhættulegar ef verið væri að
borga með lambakjöti eða
smjöri. Og kátlegt má það heita
að fjármálasnillingar vorir skuli
skylda Halldór Kristjánsson til að
taka þátt í að greiða drykkinn
ofan í Pétur og Pál úti um allar
þorpagrundir.
Halldór Kristjánsson þekkir
það lögmál að því víðar sem vara
er á boðstólum þeim mun meira
er keypt af henni að öðru jöfnu.
Þess vegna skilur hann vel
harmagrát vínsölumanna yfir því
að fá ekki að selja varning sinn
hvar sem er, hvenær sem er og
hverjum sem er. Ekki er ég þó
viss um að hann hafi mikla samúð
með þeim sem virðast ekki eiga
sér háleitari markmið en bera
mönnum görótta drykki og
þiggja fé fyrir.
Seint mundi Halldór Kristjáns-
son henda sú rökvilla að halda að
drykkjumein þjóðar verði lækn-
uð með fræðslu einni eða því að
þurrka einstaklinga, svo gott og
blessað sem það nú er. Jafnvel
þótt öll þjóðin „færi í meðferð”
mundi ekki alls böls batna. Ölv-
aðir ökumenn héldu til að mynda
áfram að slasa sjálfa sig og aðra
og drukknir ofbeldismenn færu
sínu fram. Gamlir bændur vita að
sullaveiki var ekki landræk gerð
með lækningum einum saman
heldur með því að brenna sulli.
Þegar menn skildu að með því
mátti á að ósi stemma var
auðveldur eftirleikurinn. Sulla-
sala var engum gróðalind og þess
vegna var ekki ausið út fé til að
villa um fyrir fólki.
Þeir sem hafa hag af að villa um
fyrir fólki í umræðum um vímu-
efnamál, málpípur þeirra og aft-
aníossar bregða Halldóri Krist-
jánssyni stundum um ofstæki.
Við nákvæman lestur greina hans
um áfengismál undanfarna mán-
uði hef ég hvergi rekist á að hann
gangi í berhögg við niðurstöður
Alþj óðheilbrigðisstofnunarinnar
og þeirra vísindamanna sem nú er
helst tekið mark á í fræðum þess-
um hér og erlendis. Það er meira
en sagt verður um ýmsa andstæð-
inga hans. Sumir heimsþekktir
rannsóknamenn, svo sem Kettil
Bruun, Per Sundby og Hans Olav
Fekjær, hljóta að vera meira en
litlir ofstækismenn ef Halldór
Kristjánsson á þá nafngift skilda
því að þeir ganga feti framar en
hann í staðhæfingum um áfengi,
seljendur þess og áróðursmenn.
Halldór er þar sem sé í góðum
félagsskap.
En ef til vill skiptir það Halldór
Kristjánsson litlu eða engu.
Heilbrigð skynsemi, sannleiksást
og samkennd með alþýðu hafa
verið honum leiðarljós. Hann
hræðist ekki stertimenni. Orður
og titlar eru honum úrelt þing.
Hátignum svarar hann upp í há-
stert eins og Skagfirðingar sögðu
í gamla daga. Og kvaðst ekki Jón
Marteinsson flauta á kónginn?
Halldór Kristjánsson man vel
þá tíð þegar doktor einn þýskur
tryllti fjölda fólks, jafnvel sæmi-
legustu menn, til óhæfuverka.
Hann hét Jósep Göbbels og var
ekki orð að marka sem sá doktor
sagði. Slíkir ofstækismenn, þó að
doktorar séu, raska ekkGró og
lífsgleði hins heilbrigða alþýðu-
manns frá Kirkjubóli. Hann þorir
að bera sannleikanum vitni. Þeim
frelsara afneitar hann aldrei. Þess
vegna ber honum virðing og
þökk. Vinir hans fjölmargir óska
honum langra lífdaga, gleðilegra
stunda á ritvellinum og margra,
góðra vinafunda.
Ólafur Haukur Árnason
_________LESENDAHORNIÐ____
íhaldið á undanhaldi
Það fer ekkert á milli mála
samkv. fréttum er berast víðsveg-
ar að að hægri bylgjan, er hefur á
undanförnum árum komið íhaldi
og afturhaldsflokkum í valda-
stóla, er nú sem óðast að hjaðna.
Breska íhaldið með frjálshyggj-
una í fararbroddi er að gefast
upp, sókn vinstri manna í Þýska-
landi og á Norðurlöndum gefa
einnig vísbendingu um þetta.
Um ísl. stjórnmál er það að
segja, að eins og kunnugt er hefur
Sjálfstæðisflokkurinn ásamt Fra-
msókn stjórnað landinu í tvö ár
með þeim afleiðingum að stór
hluti fólks er að gefast upp í
vinnuþrælkun og skattpíningu.
Verkalýðsfélögin reyna eftir
mætti að stöðva ránfugla íhalds-
ins í báðum þessum flokkum, en
ránfuglarnir fara sínu fram. Ætl-
ar fólk að láta bjóða sér þetta?
Það þýðir ekkert fyrir íhaldið að
vera með nein skrípalæti, fólk er
komið í spreng með lífskjör sín og
lætur ekki bjóða sér þetta öllu
lengur að það verði flokkað inn í
atvinnuleysi eða um þau kjör er
frjálshyggjan ætlar því, Hvað
segir unga fólkið sem á að erfa
landið? ætlar það að láta bjóða
sér þetta? Það þýðir ekkert að
mæna á Kanann, þeir geta farið
héðan ef heimsmálin snúast
þannig og samin verði friður einn
góðan veðurdag, og þjóðir heims
fara að snúa sér að öðru og hætta
manndrápum. Unga fólkið, er
mænir á Bandaríkin sem ein-
hverja guðsfrelsun, ætti heldur
að huga að sínu eigin landi og sjá
til þess að í framtíðinni geti fólk
lifað hér frjálsu og hamingju-
sömu lífi við gott og réttlátt
stjórnarfar.
Ólafur Ragnar segir í viðtali
við DV. um daginn að minnihluti
hægri manna stjórni íslandi og fer
um það nokkrum orðum.
Auðvitað er þetta alveg rétt hjá
stjórnmálafræðingnum, og enn-
fremur að það sé stundum að
koma til íslands eins og að ganga
inn í þröngan klefa, í það má
leggja margar merkingar, og víst
er að þröngt er orðið hjá mörg-
um, en meginkjarninn er að allur
sá auður er við eigum á landi og í
sjó er bæði í mannheimum og
undirheimum stjórnað af harðs-
keyttri íhaldsklíku sem svífst ein-
skis til að halda hlut sínum. Þetta
ætti fólk að hafa hugfast.
Nú eru vinstri flokkarnir á
tvístringi, en segjast jafnframt
vera að berjast fyrir verkalýðinn
sem eigi í vök að verjast í þjóðfé-
laginu og þá auðvitað fyrir rán-
fuglunum. En hvað er uppi á ten-
ingnum hjá þessum flokkum?
Ekkert annað en hver vinnur í
sínu horni.
Sá flokkur sem er sterkastur í
verkalýðshreyfingunni og íhaldið
hræðist mest er Alþýðubandalag-
ið. Hinir vinstri flokkarnir, ef
hægt er að kalla þá því nafni, eru
á tvístringi, eins og áður segir, og
ná ekki saman til mikillar ánægju
fyrir íhaldsöflin. Nú á þetta fólk
að hætta þessum tvístringi og
taka saman höndum og vinna að
því sameiginlega að fella núver-
andi ríkisstjórn í næstu kosning-
um, og reyna að koma hér á
heiðarlegri og réttlátri stjórn, er
komi í veg fyrir m.a. að ungt og
efnilegt fólk tapist okkur í
trylltum dollaradansi eins og
gerðist fyrir rúmum 100 árum
þegar flóttinn héðan hófst til
Vesturheims. Langar fólki að
hreppa slík örlög og harma svo
ættjörðina alla tíð? Það er engin
ástæða fyrir ungt fólk að flýja
héðan ef hér er almennileg ríkis-
stjórn, það eru bjartari tímar nú
en áður var því íhaldið hefur ver-
ið knúið af verkalýðshreyfing-
unni til þeirra framfara, er nú er
undirstaðan fyrir mannlífi í þessu
landi, það skyldi fólk hafa í huga.
Páll Hildiþórs
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN MI6vikudagur 2. október 1985