Þjóðviljinn - 02.10.1985, Qupperneq 7
Lúðrasveit verkalýðsins í hátíðarskapi
Tónlist
Tónlistarsamband alþýðu
Efnir til veglegra tónleika í Háskólabíói í nóvember
Tónlistarsamband alþýðu var
stofnað í júní 1977, sagði Torfi
Antonsson, einn af hljóðfæraleik-
urum Lúðrasveitar verkalýðsins.
Aðdragandinn að stofnun sam-
bandsins var sá að tveimur árum
áður höfðu frændsamtök
Menningar- og fræðslusam-
bands alþýðu á Norðurlöndunum
samband við MFA og buðu sam-
bandinu að senda þátttakendur á
ráðstefnu norrænna menningar-
og fræðslusambanda alþýðu.
Ráðstefnan var haldin á Ham-
ar í Noregi og þangað fóru full-
trúar úr Lúðrasveit verkalýðsins,
Samkór Trésmiðafélags Reykja-
víkur og MFA. Fulltrúar þessara
þriggja hópa fóru svo aftur á ráð-
stefnu norræna sambandsins ári
seinna. Eftir þá ráðstefnu var
gengist í því að stofna hér á landi
Tónlistarsamband alþýðu. Það
sem ýtti á eftir stofnun sambands-
ins varð það að í júlí 1977 var
haldið stórt tónlistarmót í Noregi
en þátt í því móti fengu eingöngu
félög úr samböndum á Norður-
löndum að taka en ekki einstak-
lingar.
Norræna tónlistarsambandið
var stofnað 1947 og í því eru nú
nálega 10 þúsund manns. Að
meginhluta eru það kórar en
Finnar og íslendingar eru einu
þjóðirnar sem eru með lúðra-
sveitir innan sinna vébanda. Tón-
Ustarsamband alþýðu tók þátt í
stóru móti í Finnlandi 1982 og þá
fóru Trésmiðakórinn og Álafos-
skórinn sem fulltrúar sambands-
ins. Næsta stóra tónlistarmót
verður í Óðinsvéum og stefnum
við að þátttöku í því móti. Auk
mótanna höfum við tekið þátt í
námskeiðum og ráðstefnum á
vegum norræna sambandsins.
Veglegir
tónleikar
í sambandinu eru nú fjórir kór-
ar og ein lúðrasveit. Þegar Tón-
listarsamband alþýðu var stofnað
1977 voru í því Lúðrasveit verka-
iýðsins, Samkór Trésmiðafélags-
ins og MFA. Síðan þá hafa þrír
kórar gengið í sambandið: Ála-
fosskórinn sem í eru starfsmenn
Álafossverksmiðjunnar, Kjarna-
kórinn sem starfsmenn áburðar-
verksmiðjunnar skipa og MFA-
kórinn sem var stofnaður fyrir ári
síðan og gekk nýlega formlega í
sambandið.
Árið 1979 var haldið námskeið
hér fyrir kórstjórnendur. Það
stóð til að halda ráðstefnu hér í
haust með þátttöku tónlistarsam-
banda frá hinum Norðulöndun-
um. Við vorum búin að fá styrk
frá Samnam, Samrádet för nor-
disk amatörmusik, en af ein-
hverjum ástæðum var styrkurinn
dreginn tilbaka. Allt okkar starf í
sambandi við undirbúning var því
unnið fyrir gýg. Við ætluðum
meðal annars að halda tónleika í
Norræna húsinu 29. september
og vorum búin að bjóða forsetan-
um en ekkert varð úr öllu saman.
Þá kom upp sú hugmynd að í
stað ráðstefnunnar efndi tónlist-
arsambandið til veglegra tónleika
og þeim verið ákveðinn staður og
stund í Háskólabíói laugardaginn
9. nóvember.
Við buðum fulltrúum annarra
norrænna sambanda að taka þátt
í tónleikunum en þeir ráku sig á
það sama og við höfum gert æ
ofan í æ að það er dýrt að ferðast
milli Norðurlandanna og treystu
sér því ekki til að koma.
Á tónleikunum í Háskólabíói
koma fram: Lúðrasveit verka-
lýðsins, Álafosskórinn, Kjarna-
kórinn, Samkór Trésmiðafélags
Reykjavíkur, og MFA-kórinn.
Hver hópur verður með tíu til
fimmtán mínútna dagskrá auk
þriggja sameiginlegra laga og er
nú æft að kappi.
MFA-korinn
MFA-kórinn er nú að hefja
vetrarstarfið. Kórinn hefur starf-
að í rúm tvö ár og hefur að mark-
miði að gefa áhugafólki kost á að
koma saman til að syngja og læra,
einnig nokkuð á sviði söngs og
tónlistar. Kórinn hefur komið
fram á vettvangi verkalýðssam-
takanna, m.a. á afmælishátíðum,
þingum og öðrum samkomum.
Stjómandi kórsins er Jakob Hall-
grímsson.
Kórinn mun hefja vetrarstarfið
nú í haust með kynningar- og
skemmtikvöldi, sem verður í sal
Múrarafélags Reykjavíkur, Síðu-
múla 25, laugardaginn 5. októ-
ber. kl. 21.00. Þar mun fólkið
„hita upp“ fyrir veturinn, enda
mörg verkefni framundan.
Nýir félagar eru hvattir til að
koma á kynningarkvöldið, því
enn eru tök á að bæta fólki í kór-
inn. Ekki er krafist sérstakrar
þekkingar eða þjálfunar í söng.
Áhuginn er mikilvægastur.
-aró
Samkór Trósmiðafélags Reykjavíkur.
KJamakórinn tekur lagið
Álafosskórinn
Mlðvikudagur 2. október 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7