Þjóðviljinn - 18.10.1985, Blaðsíða 3
Hafnarfjörður
Skák-
hátíð
Helgi Ólafsson með
fjöltefli ogfyrirlestur.
Skákfélag Hafnarfjarðar og
Sparisjóður Hafnarfjarðar
standa fyrir viðamikilli skákhátíð
í Firðinum á föstudag, laugardag
og sunnudag í næstu viku. Teflt
verður fjöltefli, fluttir fyrirlestr-
ar um skákfræði og haldið opið
mót með þátttöku flestra sterk-
ustu skákmanna landsins.
Skákhátíðin hefst föstudags-
kvöldið 25. október með fjöltefli
Helga Ólafssonar stórmeistara.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 40
og fer skráning fram í síma 54000
hjá Sparisjóðnum.
Á laugardag verður haldið mót
fyrir skákmenn með undir 2100
Eló stig í félagsálmu íþróttahúss-
ins. 20 efstu menn hljóta þátt-
tökurétt í A flokki daginn eftir.
Taflið hefst kl. 10.30 en kl. 15.15
heldur Helgi Ólafsson fyrirlestur
um skákfræði.
Á sunnudag verður teflt áfram
og þá koma stórmeistarar til sög-
unnar en þeir Guðmundur Sig-
urðsson, Helgi Ólafsson, Jón L.
Árnason, Karl Þorsteins, Jóhann
Hjartarson og Sævar Bjarnason
hafa tilkynnt þátttöku.
Vegleg verðlaun eru í boði í
öllum flokkum. Þátttaka tilkynn-
ist í síma 54000. -lg.
Skólamál
Ráðstefna
ABá
morgun
Fimm fyrirlesarar
Eins og skýrt hefur verið frá í
Þjóðviljanum hefst ráðstefna á
vegum Alþýðubandaiagsins um
skólamál á morgun. Þar er ætlun-
in að kynna hugmyndir skólamál-
ahóps flokksins um skipan fram-
haldsskólans. Fimm félagar úr
hópnum munu flytja erindi fyrir
hádegi en síðan verða málin rædd
fram eftir degi. Þeir sem vilja
taka þátt geta skráð sig í dag í
síma 17500 en einnig geta menn
komið við á ráðstefnunni án þess
að hafa tilkynnt sig.
í fyrramálið munu þessi flytja
erindi: Hannes Ólafsson um
þjóðfélagslegar forsendur að
breyttum framhaldsskóla, Þórð-
ur G. Valdemarsson um markmið
og námsskipan, Gunnar Gutt-
ormsson um stjórnun skólans,
Gerður G. Óskarsdóttir um
fjármögnun og Loftur Guttorms-
son um frumvarp til laga um
framhaldsskóla. -v.
BHMR
Stuðningur
við útvaips-
starfsmenn
BHMR fordæmir harðlega þá
aðför að forystumönnum starfs-
mannafélags Ríkisútvarps og
starfsmannafélag Sjónvarps. Að-
för þessi er í formi málssóknar
vegna vinnustöðvunar sem starfs-
mannafélögin gerðu þegar fjár-
málaráðuneytið stöðvaði venju-
legar launagreiðslur til ríkis-
starfsmanna vegna yfirvofandi
verkfalls BSRB 1984.
BHMR vekur athygli á því að
forstöðumenn útvarpsins standa
ekki fyrir þessum málarekstri
heldur er málið til komið vegna
kæru aðila sem stóðu að ólög-
legum útvarpsrekstri í verkfalli
BSRB.
FRÉTTIR
Suður-Afríka
Reiðin er hungrinu
yfirsterkari
Aron MnisifulltrúiAfrískaþjóðrráðsins: Hœttið að kaupa ávextifrá
Suður-Afríku. Fyrir gjaldeyrinn eru keypt vopn sem notuð eru gegn
blökkumönnum. Islendingar kaupa árlega fyrir 27 miljónir.
r
ÍSuður-Afríku verja stjórnvöld
23% þjóðarteknanna til her-
mála. íslendingar keyptu I fyrra
vörur frá Suður-Afríku fyrir 27
mi|jónir. Það er ekki stór upphæð
en ef við tökum fjórðung þess fjár
þá sést glöggt að það er hægt að
kaupa ansi margar byssur og
byssukúlur. Það er ykkar fram-
lag til viðhalds aðskilnaðarstefn-
unnar, sagði Aron Mnisi fulltrúi
Afríska þjóðarráðsins á blaða-
mannafundi í gær.
Mnisi er hingað kominn til að
útskýra málstað blökkumanna í
Suður-Afríku en einkum og sér í
lagi tii að kotna á framfæri þeirri
áskorun Afríska þjóðarráðsins
að íslendingar grípi til efnahags-
legra refsiaðgerða gegn stjórn
hvíta minnihlutans í Pretóríu,
hætti að kaupa vörur frá Suður-
Afríku og stuðli þannig að ein-
angrun apartheid-stjórnarinnar.
Mnisi sagði að atburðirnir í
Suður-Afríku kæmu öllum við,
hvar sem væri í heiminum. „Það
er skotið á okkur með vopnum
sem koma frá Nató-ríkjum og
þau eru keypt fyrir peninga sem
aflað er með viðskiptum við ríki á
Vesturlöndum," sagði hann.
Ýmsir andmælendur refsiað-
gerða, svo sem Botha forseti
Suður-Afríku, Reagan og Thatc-
her, hafa haldið því fram að refsi-
aðgerðir bitni harðast á blökku-
mönnum. „Nú fyrir skömmu
voru gerðar tvær sk.oðanakann-
anir meðal blökkumanna á refsi-
aðgerðum, í annarri reyndust
73% þeirra fylgjandi refsiaðgerð-
um og í hinni 77%. Þótt fólk sé
soltið er það líka reitt og þegar
valið stendur á milli þess að vera
soltinn eða vera drepinn tekur
reiðin yfirhöndina. Það er það
sem hefur gerst,“ sagði Mnisi.
Hann gerði einnig að umtals-
efni skáldið Benjamin Moloise
sem í dag, föstudag, á að hengja
fyrir meint morð á lögregluþjóni.
„ANC hefur sent lögfræðingi
hans játningar manna sem drápu
þennan lögregluþjón en þeir eru
nú utan landamæra Suður-
Afríku. Samt neitaði Botha for-
seti um endurupptöku málsins og
staðfesti dauðadóminn. Ég vil
biðja íslensk stjórnvöld að mót-
mæla þessu við Botha,“ sagði
Mnisi.
-ÞH
Tóm rúm I tugatali kosta ríkissjóð yfir 100 miljónir króna á þessu ári á Borgarspitalanum einum. Ástæðan fyrir tapinu: Lágt
kaup kvenna í heilbrigðisstótt. Ljósm. E.ÓI.
Borgarspítalinn
Biðlistar frystir
Gunnar Sigurðsson yfirlœknir á öldrunardeild: „Þýðir
ekki að lengja listann umfram 50 manns. -
Forkastanlegur rekstur og vinnubrögð. “
að er forkastanlegt að ekkert
skuli vera gert í þessu. Við
erum þeirrar skoðunar að þó öll
rúm væru nýtt, væri það á mörk-
um þess að spítalinn gæti starfað,
hvað þá þegar 70 rúm eru ónotuð
mánuðum saman, sagði Gunnar
Sigurðsson, yflrlæknir á Borgar-
spítalanum í gær.
Gunnar sagði ljóst að rúma-
skorturinn kæmi tilfinnanlega
niður á sjúklingum. „Við verðum
að senda sjúklinga heim fyrr en
æskilegt væri og án þess að þeir
séu rannsakaðir nægilega vel til
að rýma fyrir bráðasjúklingum,"
sagði hann. „í dag er ekki bráða-
dagur á spítalanum, en samt er
legið á göngum á hjartadeild."
Gunnar er yfirlæknir á öldrun-
ardeild Borgarspítalans þar sem
eiga að vera 56 rúm en eru aðeins
um 40 í notkun vegna skorts á
starfsfólki. „Biðlisti eftir plássi
hér segir afar takmarkaða sögu,“
sagði hann. „Hann var um 50
manns síðast þegar ég vissi og það
þýðir lítið að lengja hann umfram
það. Hann er því styttri en hann
ætti að vera samkvæmt þörfinni."
„Það er auðvitað fyrir neðan
allar hellur að reka spítalann á
þennan hátt og stefnir í tug og
jafnvel hundrað miljóna tap á
þessu ári. Hér er húsbúnaður og
starfslið geysilega vannýtt fyrir
vikið en ekkert heyrist frá ráðu-
neytinu um betri aðbúnað eða
betri laun. Borgin samþykkti á
þriðjudag að reisa nýtt barna-
heimili og það er spor f rétta átt
sem við fögnum. Það þarf hins
vegar meira að koma til,“ sagði
Gunnar Sigurðsson að lokum.
-Á1
Iðnverkafólk
Verðtrygging höfuðkrafan
Fundarhöld hjá iðnverkafólki víða um land
Stjórn Landssambands iðn-
verkafólks fundaði á Akureyri
á dögunum þar sem m.a. var rætt
um kröfugerð og undirbúning
fyrir komandi samninga.
„Við lítum svo á að höfuðkraf-
an í næstu samningum hljóti að
vera einhvers konar verðtrygging
launa. Hjá slíku verður alls ekki
komist, auk þess sem við erum
uppi með ýmis sérmál iðnverka-
fólks sem þarf að fá afgreidd,“
sagði Guðmundur Þ. Jónsson for-
maður Landssambandsins í sam-
tali við Þjóðviljann.
Mikil fundahöld hafa verið hjá
Iðjufólki á undanförnum vikum.
Trúnaðarmannaráð Iðju í
Reykjavík fundaði um kröfugerð
fyrir skömmu og fyrr í haust hélt
Guðmundur Þ. Jónsson fundi
með Iðjufólki víða um landið um
kjaramál.
„Þessi mál hafa fengið mikla og
góða umræðu í félögunum um allt
land og menn ætla að undirbúa
sig vel fyrir komandi baráttu,“
sagði Guðmundur. Stjórn lands-
sambandsins hefur verið kölluð
aftur saman til fundar í byrjun
nóvember.
Föstudagur 18. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3