Þjóðviljinn - 18.10.1985, Blaðsíða 9
Þrír fólagar úr Gamanleikhúsinu, Magnús Geir Þórðarson í miðið, Ásgerður Hafstein t.v. og Gottskálk Siguðrsson t.h.
Ljósm. E.OI.
Gaman leikhúsið
Frumsýnir
Töfralúðurinn
Nýtt leikfélag fyrir níu til tólf óra
ViðfrumsýnumTöfralúðurinn
á laugardag klukkan fjögur á
Hótel Loftleiðum sagði Magn-
ús Geir Þórðarson, einn af
forsprökkum nýstofnaða
leikfélagsins Gaman leik-
hússins.
Töfralúðurinn fjallar um fjóra
nágranna sem eru aldrei sam-
mála. Dag einn kemur svo stúlka
með dreka og þá verða allir ná-
grannarnir sammála um að losna
við drekann. Stúlkan reynir að
sýna nágrönnunum að það sé
hægt að vera glaður og drekinn
gerir kraftaverk og þá verða allir
glaðir.
Við erum búin að æfa þetta
leikrit í meira en mánuð og höf-
um fengið að æfa í kjallara Nes-
kirkju þar sem er samkomusalur
með sviði.
Gaman leikhúsið er þannig til-
komið að ég hef alltaf haft ofsa-
legan áhuga á leikhúsi. Ég fékk
leikrit hjá Bandalagi íslenskra
leikfélaga og við höfum sótt um
inngöngu í það og göngum senni-
lega í bandalagið á laugardag.
Leikendur eru sjö en alls eru 23
í leikfélaginu og sem taka þátt í
sýningunni. Það er til dæmis sýn-
ingarstjóri, ljósamaður, sviðs-
menn, hvíslari og fleira. Ég
teiknaði leikmyndina og við mál-
uðum hana í sameiningu. Það er
dýrt að setja upp leikrit, við höf-
um þurft að kaupa efni, leigja sal,
borga í Bandalag íslenskra leikfé-
laga, prenta leikskrá, útvega
leikmuni og svo er ýmislegt sem
þarf að kaupa. Við fjármögnum
leikskrána með auglýsingum og
tókum sjálf allar myndir í leik-
skránna. Þeir sem ekki leika tóku
myndirnar. f leikskránni eru líka
upplýsingar um Gaman leikhús-
ið.
f Gaman leikhúsinu eru krakk-
ar frá níu ára uppí tólf ára og það
geta flestir verið með þó allir geti
kannski ekki leikið.
Frumsýningin verður á laugar-
dag og svo verða tvær sýningar á
sunnudag kl. 1 og 4. Það fer eftir
aðsókn hvort sýningarnar verða
fleiri og hvort félög biðja okkur
um að leika. Við ætlum að leika
Töfralúðurinn í Neskirkju og svo
í kirkjunni á Seltjamarnesi en við
getum flutt sýninguna ef þess er
óskað.
Á frumsýningunni byrjum við
á því að hafa leiki sem áhorfend-
ur taka þátt í og svo verður spurn-
ingakeppni. Eftir hlé sýnum við
leikritið og miðum við að þetta
verði skemmtum fyrir alla fjöl-
skylduna.
Miða er hægt að panta í síma
14307 milli klukkan átta og níu á
kvöldin og þeir verða líka seldir
við innganginn. Miðinn kostar
100 krónur og fylgir leikskrá
hverjum miða. arrf
VEITINGAR
Fógetinn
Góð stemmning
í gömlu húsi
Því hefur verið hvíslað hér á
Þjóðviljanum að Fógetinn
væri að verða einn vinsælasti
staður í bænum. Ákveðið var
að gera út smakkara ásamt
fylgdarliði til þess að skera úr
um í hverju vinsældir staðar-
ins væru fólgnar.
Húsið sjálft á sinn þátt í að laða
fólk að því það er fallegt gamalt
bámjárnsklætt timburhús sem
hefur verið gert upp á mjög
smekklegan hátt bæði utan og
innan. Utan er það blámálað með
dökkri viðarhurð og fallegum
ljóskemm og innan er það dökka
viðarklæðningin sem skapar hina
vinsælu kráarstemmningu. Fóg-
etinn við Aðalstræti er í raun
sönnun þess að viðhald gamalla
húsa gefur borginni þann svip
sem manni finnst menningar-
borgir eiga að hafa. Því án gömlu
húsanna týnum við sögunni. Saga
hússins sem Fógetinn er í verður
ekki rakin hér en menn geta
bmgðið sér þangað og lesið sér til
um söguna innan á matseðlinum.
Matseðillinn er fremur hefð-
bundinn og fátt um óvenjulega
matseld. Fógetinn virðist sérhæfa
sig í fiskréttum en þegar betur er
að gáð sést að matseldin á fisk-
inum er fremur venjubundin þótt
að fiskréttimir séu fleiri en kjötr-
éttirnir. Lambakjötið varð fyrir
valinu hjá undirrituðum en ost-
rukokteill í forrétt. Það má segja
að kvöldið hefði orðið fullkomið
hefðu ostmrnar verið jafnljúf-
fengar og lambalundirnar. Kjöt-
rétturinnvar borin fram á mjög
svo hefðbundinn hátt með hálf-
bakaðri kartöflu og upphituðu
frosnu grænmeti, en lambalund-
irnar gióðuðu voru fyrsta flokks.
Það verður sjálfsagt langt að bíða
þess að veitingahús bæjarins fari
að átta sig á þeim reginmun sem
er á nýju og frosnu grænmeti.
Fylgdarmenn létu vel af sínum
skömmtum, þ.e. djúpsteiktum
skötusel annars vegar og nauta-
steik hins vegar. Nautasteikurað-
dáandinn sagði að kjötið væri
„gott en ekki fínt“. Ég þyrfti nú
að fá eitt stykki Jónas Kristjáns-
son til að leysa svoleiðis dæmi.
Skötuselsætan sagði fiskinn vera
frábæran en sósumálin öll í skötu-
líki. Sagðist hann helst vilja fá
sænskættaðar sósur á graflaxinn
(forréttinn) og þýskættaðar og
skötuselinn og helst allt saman í
stríðum straumum.
Það má segja að Þjóðvilja-
menn hafi átt náðuga kvöldstund
á Fógetanum sem endaði með
sósumálsumræðum yfir rjúkandi
kaffibollum. Og það er ekki of-
sögum sagt af vinsældum staðar-
ins; má heita að það hafi verið
hvert borð setið og fylltist stöðugt
er líða tók á kvöldið. Þjónustan
var svo góð að maður tók ekki
eftir henni. R.
TIL DÆMIS
Síðasti dagurinn á kvikmyndahátíð kvenna er í dag,
föstudag og því tilvalið að velja sér eina góða mynd í
kvöld. Hvernig væri t.d. Varda eða „Á hjara veraldar"
ef þú skyldir hafa misst af henni á sínum tíma?
Tónverk eftir innlendar og erlendar konur verða
flutt á Gerðubergi á sunnudag kl. 20.30. Og munið:
Það kostar ekkert inn á Gerðuberg. Ef þú átt heima á
Akureyri, bendum við á sýningar Rutar Hansen og
kynningu á verkum Kristrúnar Sigfúsdóttur. Þá verður
opnuð samsýning í Dynheimum kl. 17 á laugardag og
gjörningur við opnunina.
Á ísafirði verður norræn vaka á sunnudagskvöld og
hefst hún kl. 20.30 í menntaskólanum. Sýnd verður
kvikmynd, lesið úr verkum Antti Tuuri, sungið og
spjallað.
Ef þú býrð í bænum og ert að hugsa um að gera
eitthvað skemmtilegt á laugardagskvöldið annað en að
fara á dansleik, bendum við á skemmtilega miðnætur-
sýningu í Austurbæjarbíói: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk
f leikstjóm Þórhalls Sigurðssonar.
Og svo má taka einn hring Kjarvalssýningamar í
bænum á sunnudaginn: Listasafnið, Kjarvalsstaðir og
Háholtið.
Að lokum: Þeir sem búa fyrir norðan hafa úr ýmsu
að veija: Bubbi Mortens heldur tónleika í Hrísey á
föstudagskvöld, Dalvík á laugardagskvöldið og á Ak-
ureyri á sunnudagskvöldið.
Föstudagur 18. október 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 9