Þjóðviljinn - 18.10.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 18.10.1985, Blaðsíða 5
...Tjarnarskóla Hjörleifur Guttormsson spyr menntamálaráðherra hvaða ástæður hafi legið til þess að ráðuneytið veitti heimild til stofnunar Tjamarskóla. Hann spyr hvort ráðherra telji rétt að ríkið stuðli að því að mismuna nemendum á grunnskólastigi með stcfnun skóla af þessu tagi. Hann spyr einnig hvert séfram- lag ríkisins, borgarinnar og annarra aðila til reksturs skólans og loks hver séu launakjör kenn- ara þar borið saman við laun grannskólakennara skv. kjara- samningum. ...athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur Guðrún Agnarsdóttir spyr heilbrigðisráðherra hvort nefnd um geðheilbrigðismál, skipuð 1981, hafi skilað heildartillögum eins og áætlað hafi verið, og hverjar séu tillögur hennar til úr- bóta varðandi athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur. Guðrún spyr einnig hvernig ráðherra hyggist bregðast við tillögu neftidarinnar í þessum efnum. ...innflutningstolla EBE á saltfiski og skreið Kjartan Jóhannsson spyr við- skiptaráðherra hvemig hann hafi beitt sér til að knýja á um Efna- hagsbandalagið að falli frá ákvörðun sinni um að leggja inn- flutningstollásaltfisk ogskreið og hvaða áform ráðherra hafi um áframhaldandi meðferð málsins af hálfu íslands. ...viðbrögð við kynþáttaaðskilnaðar- stefnunni Steingrímur J. Sigfússon spyr utanríkisráðherra hvað íslenska ríkisstjómin hafi gert á alþjóða- vettvangi til að mótmæla kynþáttaaðskilnaðarstefnu stjórnvalda í S-Afríku. Steingrímur spyr einnig hvort ríkisstjórnin hyggist grípa til að- gerða, svo sem að banna inn- flutning á vörum frá S-Afríku til að sýna í verki andúð á kynþátta- aðskilnaðarstefnunni. ...heilsugæslu á Vopnafirði Helgi Seljan spyr heilbrigðis- ráðherra hvaða ráðstafanir hann hafi gert til að leysa heilsugæslu- vandann í Vopnafirði. ...vaxtaálagningu banka á innheimtu skuldabréfa Guðrún Helgadóttir spyr við- skiptaráðherra hverjir hafi verið vextir hverrar einstakrar bank- astofnunar í landinu 1. október s.l. af skuldabréfum í innheimtu sem bundin em hæstu lögleyfðu fasteignalánavöxtum. Guðrún spyr einnig hvort ráðherra muni beita sér fyrir samræmingu vaxta- álagningar ef í ljós kemur að vextimir em misháir eftir banka- stofnunum. Föstudagur 18. október 1985 ÞJÓÐViLJINN - SÍÐA Þó þingfundir verði áreiðanlega stormasamir á köflum í vetur er jafn víst að viðræður þingmanna á göngum þinghússins verða með öðru sniði. Hér má sjá þá Mattías Bjarnason, Árna Johnsen og Guðmund J. Guðmundsson á slíkri stund. Ljósm. Sig. Guðmundur J. Guðmundsson: Býst við hörðu og sviptingasömu þingi Guðmundur J. Guðmundsson: Þekki engan sem er hrifinn af forfæringun- um innan ríkisstjórnarinnar. Þær boða bara harðari stefnu hjá íhaldinu. „Stefna ríkisstjórnarinnar hefur bara í för með sér vax- andi þrengingar. Ef hún lækk- ar eitthvað verðbólguna sem ég hef ekki mikla trú á að hún geri, þá gerir hún það á kostn- að launafólks. Hún lækkar launin þannig að verðbólgan eykst hjá því fólki þó svo Þjóð- hagsstofnun sýni útreikninga um eitthvað annað“, sagði Guðmundur J. Guðmundsson. „Andlitslyftingin minnir mann á þegar verið er að úthluta börn- um þroskaleikföngum. Því er lýst yfir nánast að allir ráðherramir séu óhæfir í því starfi sem þeir gegndu. Það er talið að ráðherra þurfi allt að 2 ár til að ná góðu valdi á sínu málasviði og þegar því marki er náð er þeim vippað yfir í annað og þeir látnir vitna um hvað þeir era hamingjusamir í nýja embættinu. Þetta þætti ekki gott ef það væri í Sovét! Ég þekki engan mann sem er hrifinn af þessum forfæringum. Þetta boðar bara harðari stefnu hjá íhaldinu og við því verða launamenn að bregðast hart. Ég býst við hörðu og sviptinga- sömu þingi, - mun harðari átökum en verið hefur. Sjálfstæð- isflokkurinn mun láta meira að sér kveða en Framsókn sem er dauðhrædd við kosningar mun beygj a sig fyrir ö llu. Þeir standa ákaflega illa og munu halda fast í stólana. í byrjun þings verður væntan- lega fyrst og harðast tekist á um fjárlögin og boðaðan niðurskurð í samneyslunni. En það verða kjaramálin fyrst og fremst og al- menn lýðréttindi og tryggingamál sem barist verður um, því þau em öll í hættu. Þetta eru þau mál sem Alþýðubandalagið mun beita sér í nú í byrjun vetrar. Sjálfur er ég lítill sólómaður en verð þó með nokkrar tillögur sem varða réttindamál verkafólks. Einnig verð ég með tillögu um afnám lánskjaravísitölunnar, sem er að svipta ungt fólk lífs- hamingjunni, vitinu og jafnvel lífinu. Þá mun ég áfram flytja til- lögur um endurskipulagningu á nýtingu sjávarafla og breytingu á þvf ófremdarástandi sem ríkir í kjömm fiskvinnslufólks og um aukna verðmætasköpun í sjávar- útvegi“, sagði Guðmundur J. Guðmundsson að lokum. -ÁI 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.