Þjóðviljinn - 18.10.1985, Blaðsíða 6
Lyfsöluleyfi
er forseti íslands veitir
Lyfsöluleyfi Seyöisfjarðarumdæmis (Apótek Austur-
lands) er auglýst laust til umsóknar.
Verðandi iyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1.
janúar 1986.
Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu hafa borist
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 15.
nóvember n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
15. október 1985.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Suðurlands-
veg í Mýrdal.
Helstu magntölur:
Lengd 6,7 km
Fylling, fláafleygar og burðarlag 125.000 m3
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 1986.
Útborðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík, og Breiðumýri 2, 800
Selfossi, frá og með mánudeginum 21. október 1985.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 hinn 4. nóv. 1985.
Vegamálastjóri.
BLAÐBERAR
ÓSKAST
á Vesturgötu og nágrenni.
Seltjarnarnes.
DiðÐVIUINN
Auglýsing
Námskeið fyrir loðdýrabændur
Búnaðarfélag íslands og Samband íslenskra loðdýra-
ræktenda gangast fyrir námskeiðum þar sem
leiðbeint verður um flokkun skinna og mat á feldgæð-
um loðdýra.
Öllum loðdýrabændum er boðin þátttaka.
Hvert námskeið stendur í um 4 tíma.
Námskeiðin verða haldin á eftirtöldum stöðum og tím-
um.
Reykjavík: Rannsóknastofnun, 28. okt. kl. 9-13
landbúnaðarins Keldnaholti og “ 14-18
(fyrir Suður- og Vesturland) 29. okt. “ 9-13
og “ 14-18
Höfn í Hornafirði 29. okt. “ 1330 - 19
Egilsstaðir 30. okt. “ 15-19
Valaskjálf 31. okt. “ 9-13
Bíldudalur: 30. okt. “ 13-17
(fyrir Vestfirði) Sauðárkrókur: 31. okt. “ 9-13
(fyrir Norðurland Vestra °g “ 14-18
og Strandasýslu) 1. nóv. “ 9-13
Vopnafjörður: 31. okt. “ 16-20
1. nóv. “ 10-14
Eyjafjörður: Félagsheimilið Hlíðarbæ, Glæsibæjarhr. 2. nóv. “ 9-13
(fyrir Norðurland Eystra) og “ 14-18
3. nóv. “ 9-13
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku til Búnaðarfé-
lags íslands sími: 91-19200, eða Sambands ís-
lenskra loðdýraræktenda sími: 91-29099 í síðasta
lagi 23. október.
Kærar þakkir sendum við ykkur öllum sem sýnduð okkur
virðingu og vináttu vegna andláts og jarðarfarar
Björgúlfs Sigurðssonar
Stóragerði 7
Ingibjörg
Sigurður
Elísabet
Thelma
ÞJÓÐMÁL
Skúli Alexandersson:
Nýjar leiðir
í atvinnu-
uppbygg-
ingu
„Það er auðvitað fyrst og
fremst verið að leysa innan-
flokksvanda Sjálfstæðis-
flokksins. Að sumu leyti er
þetta þó updarleg ráðstöfun:
iðnaðarráðherra hefur t.d. ver-
ið með yfirlýsingar um að hann
eigi eftir þetta og hitt og nú er
honum kippt yfir í annað. Þeir
munu fá tíma fram að kosning-
um til að lofa framkvæmdum í
nýjum ráðuneytum en eftir
reynslunni munu þeir ekki
hafa tíma til að koma neinu í
verk“, sagði Skúli Alexanders-
son.
„Alþýðubandalagið hlýtur að
vera í því hlutverki að verja
samneysluna og andæfa gegn
þeirri stefnu sem er að grafa
undan því velferðarþjóðfélagi
sem okkur hefur tekist að byggja
upp. Auk þess munum við eins og
á síðasta þingi benda á nýjar
leiðir í félagslegri og atvinnulegri
uppbyggingu og hamla gegn frek-
ari útþenslu herstöðvarinnar á
Skúli Alexandersson: Sjávarútvegurinn hefur staðnað
vegna aðgerða- og stefnuleysis stjórnvalda. Hann á þó
ótal möguleika til að skila meiri verðmætum og þá verð-
um við að nýta.
stöðu sjávarútvegsins. Þar verður
að fara að grípa til aðgerða ef
þessi atvinnuvegur á ekki að bíða
slíkan hnekki að ekki verði
lengur hægt að bæta þar um. Nú
ganga þau boð út að hver grein í
sjávarútvegi sé rekin með 4%
halla. Þegar Þjóðhagsstofnun
viðurkennir slíkt vita allir að
staðan er mun verri. Á sumum
landssvæðum er um hreinan voða
að ræða og hætt við að útgerð og
fiskvinnsla stöðvist alveg áður en
langur tími líður. Við hljótum því
að stefna að því að takast á við
stór verkefni á þessu sviði, ekki
síst breytta og bætta nýtingu á
sjávarafla. Sjávarútvegurinn hef-
ur staðnað hjá okkur en hann
hefur alla möguleika til að skila
meiri verðmætum með bættri
stöðu fyrirtækjanna og ekki síst
með bættum kjörum, aðbúnaði
og menntun fólks sem við hann
starfar‘% sagði Skúli Alexanders-
son að lokum.
landi, í efnahagslífinu og í menn-
ingarlífinu.“
„Sjálfur mun ég vitaskuld
standa að ýmsum frumvörpum
sem við flytjum sameiginlega Al-
þýðubandalagsmenn auk þess em
ég mun trúlega koma fram með
tillögu um nýjar námsleiðir fyrir
sjóvinnu- og fiskvinnslufólk. Þá
mun ég trúlega huga að endur-
flutningi frumvarps um Sements-
verksmiðju ríkisins frá síðasta
þingi.“
„Eg verð líka með ákveðnar
tillögur í sjávarútvegsmálum og
mun beita mér gegn því að kvóta-
frumvarp sjávarútvegsráðherra
verði samþykkt í núverandi
mynd. Á hinn bóginn mun þing-
flokkurinn sameiginlega leggja
fram tillögur um stefnumótun í
sjávarútvegsmálum og gagnrýna
það stefnuleysi og það aðgerðar-
leysi sem núverandi sjávarút-
vegsráðherra hefur sýnt“.
„Við hljótum að halda uppi
vörn og sókn í sambandi við
Helgi Seljan: Hef ekki trú á að fjárlagafrumvarpið taki
miklum breytingum.
Helgi Seljan:
Eflum
varðstöðu
um
velferðar-
málin
„Það er nær óhugsandi ann-
að en stjórnin reyni að lafa.
Það er orðið sameiginlegt
áhugamál beggja formann-
anna, Steingríms og Þor-
steins", sagði Helgi Seljan.
„Ég hef ekki trú á að fjárlaga-
frumvarpið taki miklum
breytingum nú, enda erfitt um
vik fyrir Þorstein þar sem það
er komið frá ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins, enda eru það
Sjáffstæðismenn sem fara
með eyðslufrekustu ráðuneyt-
in. Hann mun því lenda í harka-
legum innanflokksátökum
með frekari niðurskurði. Hins
vegar. hlýtur Þorsteinn að
verða að leggja fram sitt eigið
fjárlagafrumvarp áður en kos-
ið verður og um leið að sýna
hvað hann getur í starfi að
öðru leyti. Ég hef því trú á að
ríkisstjórnin. sitji langt fram á
næsta ár.“
„Hvað þingmál Alþýðubanda-
lagsins varðar er af mörgu að
taka, en fyrst og síðast snúast þau
um lífskjör fólksins í landinu. Við
skulum líka vona að ríkisstjórnin
leggi fram sín mál þannig að hægt
verði að takast á við hana hið
fyrsta en ekki rétt undir sumar
eins og gerðist á síðasta þingi.
Rík'isstjórnin mun þó vart koma
fram með stefnumarkandi mál al-
veg nú á næstunni vegna ráð-
herraskiptanna því þó þarna séu
miklir atgervismenn á ferð, þurfa
þeir væntanlega tíma til að kynna
sér stöðu mála í nýjum ráðuneyt-
um. Alþýðubandalagið mun í
fáum orðum sagt efla varðstöðu
sína um velferðarmálin sem nú
eru í hættu svo og jafnréttismálin
eins og heilbrigðis- og
menntamál."
„Sjálfur er ég að huga að til-
lögu um frekari lausn á málefnum
aldraðra, um áfangaskref varð-
andi fæðingarorlofið en þar
hyggst ég láta reyna á hvort vilji
er hjá Framsókn til að jafna það
og lengja. Einnig mun ég væntan-
lega vekja athygli á þeirri hættu
sem landsbyggðin er í vegna
þeirrar útboðsstefnu sem nú hef-
ur sigrað í verklegum fram-
kvæmdum og loks mun ég endur-
flytja ýmis mál t.a.m. um sjúkra-
og iðjuþjálfun í landinu. Það er
ljóst miðað við slysatíðni og at-
vinnusjúkdóma í landinu, að
ekkert verður þarfara gert í
heilsugæslu en að efla sjúkra- og
iðjuþjálfun. Ég hef aðallega ver-
ið í félags-, heilbrigðis- og trygg-
ingamálum og mun áfram reyna
að þoka þar hlutum til betri vegar
ef unnt er“, sagði Helgi Seljan að
lokum. -AI
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. október 1985