Þjóðviljinn - 18.10.1985, Page 18
HEIMURINN
HM-einvígið
Jafntefli
Nýjung Karpovs dugði ekki
Moskvu - Jafntefli varð í 17. ein-
vígisskák þeirra Karpovs og
Kasparovs i Tsjaíkofskí-sainum í
Moskvu í gær. Kasparov var með
hvítt og heimsmeistarinn svaraði
með nimzo-indverskri vörn.
Skákin tefldist eins og 13. einvíg-
isskákin þar til Karpov bryddaði
upp á nýjung í 9. leik. Kom þetta
áskorandanum greinilega á óvart
því hann hugsaði sig um í þrjú
kortér.
Nýjungin nægði þó heims-
meistaranum ekki til vinnings því
eftir 29 leiki urðu þeir ásáttir um
að slíta taflinu. Staðan eftir 17
skákir er því sú að Kasparov hef-
ur 9 vinninga á móti 8 vinningum
heimsmeistarans.
Hvítt: Kasparov
Svart: Karpov.
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. Rf3 c5
5. g3 Rc6
6. Bg2 Re4
7. Bd2 Bxc3
8. b2xc3 0-0
9. 0-0 RaS
10. dxc5 Dc7
11. Rd4 Rxd2
12. Dxd2 Rxc4
13. Dg5 f6
14. Df4 Re5
15. Rb3 Hb8
16. Dd4 b6
17. f4 RÍ7
18. Hfdl Hd8
19. c4 Bb7
20. Bxb7 Hxb7
21. cxb6 Hxb6
22. c5 Hc6
23. Hacl d5
24. cxd6 Hdxd6
25. De3 Hxdl-I-
26. Hxdl g6
27. Hcl Hxcl+
28. Dxcl Db6
29. Dc5 jafntefli.
Er ekki tilvalið
að gerast
áskrifandi?
DJOÐVIUINN 81333
Suður-Afríka
Laugardaginn 19. okt. kl. 14, mun Aron Mnisi flytja
erindi og svara fyrirspurnum um S-Afríku í Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut.
Undirbúningsnefndin.
ÆSKULÝÐSFYIKINGIN
Leikhópur ÆFAB
Opið hús í kvöid!
f kvöld, föstudaginn 18. október verður opið hús í Rauða risinu að Hverfis-
götu 105 og hefst dagskrá kl. 20.00. Gestir kvöldsins verða þau Þorsteinn
Gunnarsson leikari og Guðrún Hólmgeirsdóttir söngkona. Margt fleira á
dagskrá. Allir velkomnir. - ÆFAB
Kaffihús 21. október
Hverfisgötu 105.
Miðameríka
Torfi Hjartarson ræðir þróunina í Nicaragua eftir byltingu og sýnir myndir.
Hólmfríður Garðarsdóttir segir frá tveggja og hálfs árs dvöl sinni í Costa
Rica.
Tónlist, pólitík, myndefni. Húsið opnað kl. 14.00. Láttu sjá þig. - ÆFR
Skuldakreppa Rómönsku Ameríku
Fundur nk. miðvikudag, 23. október.
( Rómönsku Ameríku er 23. október helgaður baráttunni gegn efnahags-
skipan alþjóðlegs bankaveldis og kröfunni um að neita að greiða erlendar
skuldir. Afborgun af vöxtum einum saman er að ganga af efnahag þessara
þjóða dauðum. Því boða Vináttufélag íslands og Kúbu (VÍK), El Salvardor-
nefndin og utanríkismálanefnd Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins til
fundar um þetta efni miðvikudaglnn 23. október kl. 20.30 að Hverfisgötu
105. Þar flytur Gylfi Páll Hersir erindi um skuldakreppu Rómöpsku Amer-
íku, en auk þess verður sagt frá ástandi mála á Kúbu og í El Salvador. Þá
verður flutt kúbönsk tónlist og boðið upp á kaffi og kökur.
VÍK
El Salvadornefndin
Utanríkismálanefnd ÆFAB
Fjallað er um kæru stjórnar Nicaragua í Haag; Auðu stólarnir fremst á myndinni voru ætlaðir Bandaríkjamönnum, en þeir
mæta ekki.
Alþjóðadómstóllinn í Haag
Tvöfalt siðgæði
Ríki snúa sér til Alþjóðadómstólsins þegar þau telja sér það hagstœtt
- annars hunsa þau hann
Eitt sinn voru miklar vonir
bundnar við alþjóðadómstói-
inn í Haag og enn eru ríki að
reyna að nota hann eða nota
ekki. Til dæmis vilja Bandarík-
in ekki, að dómstóllinn fjalli
um ákæru frá Nicaragua sér á
hendur - og eru þó ekki mörg
ár síðan Bandaríkjamenn
stefndu stjórnvöldum í íran
fyrir þennan sama dómstól
vegna gíslatöku í bandaríska
sendiráðinu í Teheran.
Þáverandi dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, Civiletti, sneri
sér þá til alþjóðadómara í Haag
með áminningu um að „hér er um
mannslíf að ræða, við komum til
ykkar í neyð og fullir beiskju".
Ekki alls fyrir löngu hafði sendi-
herra Nicaragua í Hollandi uppi
svipaða ræðu í Haag: „Hugsið til
þeirra manna sem myrtir hafa
verið, pyntaðir eða hafðir á brott,
um þennan átakanlega mannlega
harmleik“.
í fyrra dæminu létu íranir sig
vanta og í því seinna voru engir
fulltrúar frá Bandaríkjunum
mættir.
Kæra frá Nicaragua
Sendiherra Nicaragua segir, að
um 3000 manns hafi verið myrt,
6500 hafi verið misþyrmt og um
150 þúsundir hafi verið hraktar
frá heimilum sínum og skólar og
brýr og önnur mannvirki hafi ver-
ið eyðilögð. Hér hafi verið að
verki leiguhermenn andstæðinga
Sandinistastjórnarinnar, sem
Bandaríkin hafi safnað saman og
styrkt með peningum og vopn-
um.
En Bandaríkjamenn, sem
vildu draga klerkaveldið í íran til
ábyrgðar í Haag fyrir nokkrum
árum, yppta nú öxlum. Þegar í
fyrra var því lýst yfir, að dóm-
stóllinn í Haag færi ekki með lög-
sögu í málum sem varða öryggi
Bandaríkjanna. Og séu Banda-
ríkjamenn þá aðeins reiðubúnir
að viðurkenna umboð dómstóls-
ins, að þar sé farið með lögfræði-
leg vandamál og þau sem lúta að
verslunarviðskiptum.
Það er svo sem ekki einsdæmi,
að Bandaríkjamenn og íranir
vilji ekki viðurkenna alþjóða-
dómstólinn í Haag. Frakkar hafa
neitað að láta dómstólinn fjalla
um tilraunir sínar með kjarn-
orkuvopn á Kyrrahafi. Suður-
Afríka hefur neitað að viður-
kenna úrskurði dómsins um
Namibíu, landssvæði sem það
nki fékk umboðsstjórn yfir frá
Þjóðabandalaginu að lokinni fyr-
ri heimsstyrjöld. Enn eitt dæmi:
Marokkó hefur neitað að láta
dómstólinn fjalla um Vestur-
Shara, sem áður var spönsk ný-
lenda og Marokkó hefur slegið
eign sinni á: á því landi hefur ver-
ið barist síðan undir fánum sjálf-
stæðishreyfingarinnar Polisario.
Innan kerfis S.Þ.
Sannleikurinn er sá, að af þeim
160 ríkjum sem nú eiga aðild að
Sameinuðu þjóðunum eru það
aðeins 44 sem hafa lýst sig reiðu-
búin til að leggja alþjóðlegar
deilur fyrir dómstólinn í Haag.
Og sannleikurinn er sá, enda þótt
mál hafi verið lagt fyrir dómstó-
linn, að ekkert það vald er til sem
tryggir að farið sé eftir úrskurði
hans í málum. Það er að vísu hægt
að bera upp kvörtun um slíka
hluti í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna. En oftast nær hlýtur
svo að fara, að málið deyi þar,
vegna þess að eitt af stórveldun-
um fimm getur vísað, málinu á
bug með neitunarvaldi sínu. Og
fá ríki eru svo aum, að þau geti
ekki falið sig á bak við einhvern
sem slíkt neitunarvald hefur.
Þess vegna mun máli Nicarag-
uamanna eytt - einnig þótt þeir
hafi hinar bestu röksemdir og
dómur falli þeim í vil. Bandaríkin
munu beita neitunarvaldi - og
loks er eins og ekkert hafi gerst.
Nema þó það, að í því erfiða
áróðursstríði, sem minni máttar
ríki eiga í, getur dómstóllinn haft
vissa þýðingu til að vekja athygli
á málsstað.
Brot úr sögu
Sögu alþjóðadómstólsins má
rekja til friðarráðstefnu sem
haldin var í Haag árið 1899 og
þótt undarlegt megi virðast var
Nikulas Rússakeisari einhver
helsti frumkvöðull hennar. Þá
var samþykkt að koma á stofnun,
sem átti að leysa úr deilum á al-
þjóðlegum vettvangi. Allir voru
hrifnir. Bandaríski miljónmærin-
gurinn Carnegie lagði fram stórfé
til að byggja yfir hugmyndina.
Svisslendingar byggðu turn með
dómsklukku sem var nákvæmari
en aðrar. Þrjú hundruð japansk-
ar stúlkur sátu í sex ár yfir þeim
silkiútsaumi sem salina prýddi.
Alþjóðadómarar fluttu svo inn í
húsakynnin seint í ágúst 1913.
Ári síðar braust út heimsstyrjöld-
in fyrri og má nærri geta að dóm-
stóllinn hafði þá ekki erindi sem
erfiði. Eftir þá styrjöld reyndi
þjóðabandalagið að hressa Al-
þjóðadómstólinn við og þegar
heimsstyrjöldin síðari braust út
var dómstóllinn fluttur til Genfar
í Sviss.
Þegar svo efnt var til Samein-
uðu þjóðanna á þingi í San Fran-
sisco árið 1945 var um leið ákveð-
ið að hressa upp á Alþjóða-
dómstólinn og gera hann að ein-
um þeirra hornsteina undir sam-
ræmingarþjónustu SÞ sem mestu
skipti. Af þessu hefur ekki orðið.
Dómararnir fimmtán (sem stofn-
anir S.Þ. kjósa reyndar) hafa síð-
an 1945 fellt fjörutíu og sex úr-
skurði. Blaðið Spiegel, sem hér
er stuðst við, segir að í um það bil
hclmingi mála hafi þau ríki sem
dómur féll á vísað frá sér umboði
dómstólsins. Og sú saga gerist
enn.
í framhaldi af máli því sem Nic-
aragua nú rekur fýrir alþjóða-
dómstólnum hefur hollenskur
þjóðréttarfræðingur, Pieter de
Waart, komist svo að orði:
„Bandaríkin grafa nú undan
dómstólnum. Svo virðist sem þau
telji hann nytsamlegan þegar það
er þeim í hag. Svo mæla þau gegn
dómstólnum þegar hann þjónar
ekki þeirra hagsmunum".
ÁB tók saman.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. október 1985