Þjóðviljinn - 27.10.1985, Blaðsíða 15
Hljóðfæraslátturogsöngurfylgdiþessumblómskreyttavagnisemfórframarlegaígöngunni. Gangan nálgast Assisi. Til vinstri sést kirkja heilags Frans og klaustur Fransiskusarreglunnar, en Rocca
Maggiore er uppi á hæðinni til hægri.
mannhafi, þá var greinilegt að
þarna var engum meinað að sýna
sjálfan sig undir hinu sameigin-
lega merki um frið og afvopnun.
Jafnvel Fransiskusarmunkarnir í
sínum brúnu kuflum með snæris-
ól um mittið og sandala á fótum
létu sig ekki vanta í þessa fylk-
ingu, enda hefur regla þeirra
tekið virkan þátt í baráttunni
fyrir friði og afvopnun. Þarna
mátti líka sjá hestvagn, dreginn
af dverghesti, hijómsveit sem lék
af bílpalli, og foreldrar reiddu
börn sín á reiðhjólum. Allt bar
þetta svip af þjóðhátíð, þótt al-
vara hafi legið á bakvið.
Á slóðum
heilags Frans
Þegar gangan nálgast Assisi er
numið staðar við Santa Maria
degli Angeli. Þetta er gríðarmikil
kirkja, sem reist var á 17. öld yfir
þann helga stað þar sem heilagur
Frans, sem jafnframt ber sæmd-
arheitið patrón eða verndardýr-
lingur ftalíu, lagðist á bera jörð-
ina til þess að deyja drottni sínum
fyrir 750 árum síðan. Heilagur
Frans vígðist fátæktinni, gaf burt
eigur sínar, þjónaði hinum af-
skiptu í þjóðfélaginu og boðaði
frið á milli manna og á milli
manns og náttúru. Hann hefði
trúlega tekið þátt í þessari göngu
væri hann á meðal okkar í dag.
Heilagur Frans var einn áhrifa-
mesti umbótamaður innan kaþól-
sku kirkjunnar hér á Ítalíu. En
hann þurfti líka að sverja páfan-
um hollustueið. Það var á dögum
krossferðanna, en þessi samlík-
ing hefur orðið mönnum tilefni til
þess að spyrja hvort sú breiða
samfylking sem sköpuð var um
friðargönguna til Assisi hafi ekki
kostað sambærilegan hollustueið
við fimmflokka ríkisstjórn Bett-
ino Craxi, sem stóð að því að
setja upp skammdrægar eldf-
laugar með kjarnorkuvopnum á
Sikiley á síðasta ári.
Það voru ítalskir kommúnistar
sem stóðu að fyrstu friðargöng-
unni til Assisi. En ítalskir komm-
únistar hafa gert lýðræði og
frjálsa skoðanamyndun að
grundvallaratriði í stefnu sinni.
Hin fjölskrúðuga fylking í friðar-
göngunni er merki um nýjan og
efldan styrk friðarhreyfingarinn-
ar á Ítalíu, sagði Alessandro
Natta í samtali við blaðamann í
göngunni. Trúlega hefur hann
rétt fyrir sér.
Á Rocca
Maggiore
Leiðin frá Santa Maria degli
Angeli til Assisi var á brattann.
Þar var farið inn um gamla borg-
arhliðið upp að kirkju heilags
Frans, þar sem nokkrir munkar
stóðu og heilsuðu göngu-
mönnum. Þeir íbúar bæjarins
sem ekki höfðu tekið þátt í göng-
unni stóðu víða úti á götum og
fögnuðu göngumönnum. Það var
gengið upp þröngar og brattar
götur þessa fagra bæjar að Piazza
del Commune, þar sem rísa Tor-
re del Popolo og hof viskugyðj-
unnar Minervu frá dögum Róm-
verja. Þá var gengið að dómkirkj-
unni, sem kennd er við heilagan
Rufino og upp eftir þröngum vegi
þar sem sér yfir dalinn handan við
fjallið sem Assisi stendur á og
upp að Rocca Maggiore, gamalli
virkisborg frá lénstímanum, þar
sem gangan endar í miklum garði
með stórkostlegu útsýni yfir lág-
lendið allt í kring.
Á fundinum sem þar var hald-
inn voru lesnar kveðjur og stuðn-
ingsyfirlýsingar. Meðal þeirra
sem þannig sendu fundinum
kveðjur sínar voru Sandro Pert-
ini, fyrrverandi forseti Ítalíu,
Andreas Papandreo forsætisráð-
herra Grikklands, Michael Gor-
batsjov forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, Nilda Jotti forseti ítal-
ska þingsins og rithöfundurinn
Alberto Moravia.
Fyrir tveimur árum síðan, þeg-
ar Enrico Berlinguer, þáverandi
leiðtogi ítalskra kommúnista
hafði haldið lokaræðu friðar-
göngunnar til Assisi, gekk hann í
klaustur Fransiskusarmunkanna
og snæddi með þeim kvöldverð.
Sá kvöldverður var táknrænn
fyrir þann sameiginlega málstað
sem ítalskir kommúnistar hafa
fundið með mörgum kaþólikkum
í friðarmálum. Hann var líka
táknrænn fyrir þann skilning sem
ítalskir kommúnistar hafa sýnt á
sinni menningararfleifð. Það var
ekki að ástæðulausu að ítalskir
friðarsinnar völdu Assisi sem
sinn sameiginlega áfangastað
þennan sólríka sunnudag í októ-
ber. Friðarboðskapur heilags
Frans frá Assisi á erindi til
heimsins enn í dag.
Gömul kempa úr andspyrnuhreyfingunni stendur við vegkantinn uppi á fjallinu
fyrir ofan Assisi og býður L’Unitá, málgagn ítalskra kommúnista til sölu. Á
bringunni ber hann skilti þar sem þess er krafist að þeir Gorbatsjov og Reagan
semji um afvopnun.
Á áfangastað.
Sunnudagur 27. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15