Þjóðviljinn - 27.10.1985, Blaðsíða 20
Hreyfing, hollur matur og líflegt kynlíf
er það sem Jane Fonda ráðleggur
konum sem nálgast breytingaraldur-
inn. Sjálf er hún 46 ára og segist
aldrei hafa verið yngri.
Upp með
miðaldra
konur!
Jane Fonda heldur áfram í bóka-
útgáfunni, en fyrirskömmu kom
út bókin „Bestu árin“ þar sem
Jane, sjálf 46 ára, upphefurmið-
aldra konur á kostnað hinna
yngri. Þessi nýjasta bók hennar
hefur vakið mikla athygli.
„Ég ergrenjandi vond yfirþessari
unglingadýrkun. Konurmillifer-
tugs og fimmtugs eru miklu meira
spennandi en þessarkornungu.
Og sama er að segja um karl-
menn,“ segir Janeog bendirá
því til stuðnings að „ 10 glæsileg-
ustu karlmenn heims" (valdiraf
bandarískum tímaritum) séu allir
yfir fertugt og flestir yfir fimmtugt.
Sömuleiðis eru flestar á Iistanum
yfir „ 10 glæsilegustu konurnar"
komnar vel yfir fertugt.
Það er skylda mín að benda
konum á að þær eru ekki á leið á
grafarbakkann þótt þær verði
fimmtugar. Hrukkur eru fal-
legar, - þær eru líf og þroski. Við
eigum að vinna gegn þessu eilífa
unglingadekri, dekri á þroska-
leysi og sakleysi, eins og það sé
eitthvert markmið fyrir konur.
Þar með er ekki sagt að miðalda
konur eigi ekki að hugsa um út-
litið, það eiga þær einmitt að
gera, en ekki með því að reyna að
líkjast unglingum. Sjálf er ég
miklu sterkari og kraftmeiri en
nokkru sinni, stekk hærra, hleyp
hraðar og get dansað helmingi
lengur en þegar ég var tvítug. Þá
var ég víst ung. Nú líður mér eins
og ég sé ung,“ segir Jane í nýju
bókinni, sem er ekki minna en
450 blaðsíður.
Hún segir ennfremur að karlar
hafi afskræmt mjög myndina af
hinni miðaldra konu. f lækninga-
bókum standi gjarnan að konur á
breytingaraldri missi hluta af
kvenleika sínum og að kyngetan
minnki. „Þetta er alger misskiln-
ingur,“ segir hún.
„Látið ekki telja ykkur trú um
þetta. Þvert á móti, - kona á
breytingaraldri nýtur kynlífs
miklu betur en tvítug stúlka.“ Og
svo segir Jane að lokum að konur
skuli hafa góða reglu í mat og
drykk: Borðið vítamín og hollan
mat; grænmeti kemur í staðinn
fyrir taugapillur og sígarettur.
Drekkið mikið af vatni, hreinsið
þannig líkamann daglega og svo
auðvitað mikla og góða hreyf-
ingu. Og allra síðasta ráðið: Lifið
reglulegu og líflegu kynlífi.
Þar hafið þið það, miðaldra
konur!
Frá upphafi hafa hönnuðir STRIDE tölvunnar sett sér ströng
markmið. Þess vegna hefur STRIDE nú forskot, hún uppfyllir
kröfur framtíðarinnar NÚ.
STRIDE er öflug tölva fyrir stór sem smá fyrirtæki. Hægt er að
byrja með einn skjá og einn prentara, bæta síðan við
eftir þörfum í allt að 23 jaðartæki og tengja saman
margar STRIDE tölvur.
STRIDE býður fasta diska frá 20 Mb upp í 448 Mb.
STRIDE býður einnig segulbandsstöð til afritatöku.
STRIDE framúrskarandi hönnun - á afbragðsverði.
STRIDE keyrir BOS fjölnotendahugbúnað, heilsteypt kerfi forr-
ita, auðvelt og áreiðanlegt, sem hæfir STRIDE vel.
ACO hf. er söluaðili STRIDE á íslandi og leggur áherslu á góða
þjónustu og rekstraröryggi.
mU M
/ C R O
FYRIR STRÖNGUSTU
KRÖFUR
acohf
\i Laugavegi 168
105 Reykjavík Sími 27333