Þjóðviljinn - 02.11.1985, Blaðsíða 1
HEIMURINN
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Vinnuveitendasambandið ósk-
aði í gær eftir viðræðum við
Dagsbrún um fyrirhugað upp-
skipunarbann félagsins á suður-
afrískum vörum. VSI telur að
uppskipunarbannið sé ólöglegt og
að sögn Þórarirts Þórarinssonar
lögfræðings VSI er ekki útilokað
að til málshöfðunar komi á hend-
ur Dagsbrún fyrir vikið.
ur, en að sjálfsögðu munum við
ekki skerast úr leik, Ég vona að
hægt verði að ná samstöðu um
þetta,“ sagði Sigurður T. Sig-
urðsson varaformaður Hlífar í
Hafnarfirði í samtali við blaðið í
gær
„Ég fagna því mjög að fleiri
skuli taka sömu afstöðu og við í
andstöðunni gegn aðskilnaðar-
stefnunni í Suður-Afríku, og
vona að sem víðtækust samstaða
megi nást um þetta hér á landi,“
sagði Þröstur Ólafsson þegar
Þjóðviljinn bar þetta undir hann í
gær- -gg
Uppskipunarbann
VSI hótar Dag '
VSÍtelur að uppskipunarbann ásuðurafrískum vörum sé ólöglegt. Óskareftir viðrœðum við Dagsbrún. Þórarinn Þórarinsson: Enn ekki
ákvörðun um lögsókn. Þröstur Ólafsson: Okkar afstaða ekki breyst. Hlífog Eining fara líklega að fordœmi Dagsbrúnar
„Við teljum að þessar aðgerðir
Dagsbrúnar séu ólöglegar og höf-
um því óskað eftir viðræðum um
málið. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um það innan VSI
hvort um lögsókn verður að
ræða, en ég tel eðlilegt ef ekki
næst samkomulag að dómstólar
verði látnir skera úr um þetta,“
sagði Þórarinn í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
„Okkar afstaða í þessu máli er
alveg skýr. Við höfum tekið
ákvörðun um að fara út í þessar
aðgerðir og boðað þær. Ég hef
ekki heyrt nein þau rök sem gætu
fengið okkur til að falla frá þessu.
Ef VSf vill fara í mál vegna þessa
er ekkert við því að gera,“ sagði
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar í gær.
Miðstjórn ASÍ samþykkti á
fimmtudaginn ályktun þar sem
andúð ASÍ á aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda í Suður-Afríku er
ítrekuð. Þar eru verkalýðsfélög
einnig hvött til að gera nauðsyn-
legar ráðstafanir til stuðnings
uppskipunar- og útskipunar-
banni Dagsbrúnar á suðurafrísk-
um vörum, sem taka á gildi um
miðjan mánuðinn.
„Við höldum fund með verka-
mönnum um þetta mál fljótlega
eftir helgina og mér þykir það
einsýnt að .við munum fara út í
svipaðar yfirlýsingar ef þeim er
ekki fylgt eftir í verki,“ sagði Jón
Helgason formaður Verkalýðsfé-
lagsins Einingar á Akureyri í gær.
„Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um þetta mál hjá okk-
Íshokkí
Ekki
við hæfi
stúlkna
Strasborg - Franskur dómstóll
komst að þeirri niðurstöðu í gær
að ísknattleikur væri ekki íþrótt
sem hæfði stúlkum. Foreldrar 13
ára stúlku sem höfðuðu mál á
hendur franska ísknattleikssam-
bandinu voru dæmdir til að
greiða 5 þúsund króna sekt fyrir
að trufla gang réttvísinnar.
Stúlkunni hafði verið meinað-
ur aðgangur að ísknattleiksfélagi
í Strasborg en því vildu foreldr-
arnir ekki una, töldu það brot á
jafnréttislögum. Dómarinn var
þeim ekki sammála og staðfesti
rétt ísknattleikssambandsins til
að hafna konum. Mörg aðildarfé-
lög sambandsins telja þessa reglu
stangast á við jafnrétti kynjanna
og fara ekki eftir henni.
- ÞH/Reuter
Hildur og Pétur fá sér kaffisopa þegar úrslitin voru kunn. Þau röktu saman ættir áritað kort með boði í mat á Lækjarbrekku og bleiku slaufuna sem hún er með í
sínar og komust í raun um að þau höfðu bæði verið í íslensku í háskólanum hjá barminum. Mynd. Sig.
Nirði P. Njarðvík. Á milli þeirra eru verðlaunin sem Pétur hlaut, en Hildur fékk
Getraunin
Pétur Astvaldsson sigmði
Hvers dóttir var Anna á Stóru-Borg?
Eg hélt að Hildur myndi vinna,
sagði Pétur Ástvaldsson,
starfsmaður Orðabókar Há-
skólans hógvær, þegar honum
var tilkynnt að hann hefði unnið í
Getrauninni, sem birt hefur verið
í Sunnudagsblaðinu frá því í
sumarbyrjun, en er nú á enda.
„Nei, það var alveg ljóst að
Pétur hefði þetta,“ sagði Hildur
Finnsdóttir prófarkalesari,“ en í
gríni segist ég hafa látið þetta fara
svona til að bjarga hjónaband-
inu,“ bætti hún við. „Síðan ljóst
var að ég var komin í lokaúrslitin,
hefur maðurinn minn tekið á
móti stöðugum samúðaróskum
frá bláókunnugu fólki.“
Pétur sigraði í lokakeppninni
með 14 stigum en Hildur hlaut 8
stig. Þau fá bæði vegleg verðlaun,
Pétur hlaut Ritsafn Jóhanns Sig-
urjónssonar og kampavínsflösku,
en Hildur getur boðið hrjáðum
eiginmanni út að borða á Lækjar-
bekku.
Sjá nánar Getraunina
og úrslitin í Sunnu-
dagsblaðinu.
Byggung
A heljarþröminni
Framkvœmdir að stöðvast. Öllum iðnaðarmönnum hefur verið sagt upp.
Afhending íbúða ísmíðumfrestað.
Áfallfyrirfjölda einstaklinga sem keypthafa íbúðirhjá Byggung
Byggingaféiag ungra Sjálfstæð-
ismanna, Byggung virðist
vera að leggja upp laupana og fá
margir einstaklingar, sem fest
hafa kaup á íbúðum hjá Byggung
skell, þar sem ákveðið hefur verið
að draga úr öllum framkvæmd-
um. Það þýðir að afhending
þeirra íbúða sem nú eru í smíðum
og þær skipta tugum, mun tefjast
um óákveðinn tíma. Aðalverk-
taki byggingafélagsins, Gunnar
Dagbjartsson hefur sagt upp sín-
um starfsmönnum. Ákveðið hef-
ur verið að endurskoða þá fram-
kvæmdaáætlun, sem gerð hafði
verið fyrir næsta ár með það fyrir
augum að draga saman seglin.
Þeir sem gerst þekkja til halda því
fram að Byggung muni hætta
starfsemi.
Byggung hefur haft þann hátt á
að fólk sem keypt hefur íbúðir
hjá félaginu, greiðir inná þær á-
kveðna upphæð mánaðarlega
eða svo meðan á byggingartíma
hússins stendur. Nú mun svo
komið að Byggung er orðið á eftir
hvað varðar framkvæmdir miðað
við greiðslur félagsmanna.
Þjóðviljinn gerði árangurs-
lausar tilraunir í gær til að ná í
Þorvald Mawby, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Byggung, en
er hættur, og Jóhann Hafstein
núverandi framkvæmdastjóra.
Þeir voru báðir á skrifstofu Byg-
gung í gær en stúlka á símaborð-
inu sagði þá ekki taka síma.
- S.dór