Þjóðviljinn - 02.11.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.11.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI Þjóðarbókhlaóan Ekki getur vansalaust talist hvernig bóka- þjóöin býr aö bókasöfnum sínum. í Safnahúsinu við Hverfisgötu hefur Landsbókasafn um 2 þús- und fermetra til ráðstöfunar en hitt aöalsafniö, Háskólabókasafn, hefur sjö hundruö fermetra til umráöa í aðalbyggingu Háskólans. Um þriðjungur Háskólabókasafnsins er hins vegar hýstur í 18 útibúum víös vegar um höfuö- borgina. Vegna þessa nauma húsakosts hefur skipu- leg upplýsingaþjónusta veriö mjög af skornum skammti. Mikið skortir á aö núverandi aöstaöa leyfi sýningar, fyrirlestra, fundi og annaö þvíum- líkt, sem gerir nútíma bókasafn að lifandi vett- vangi einstaklinga og hópa. Mörg aökallandi verkefni bíöa úrlausnar í báöum söfnunum, svosem lósmyndun blaöa og efnisskráning auk fjölda bókfræöiverkefna sem bíöa betri aðstöðu. Vitaskuld er langur vegur frá því aö skóla- nemendur geti haft eölileg not af þjóöarbóka- söfnunum sem og fræðimenn og vísindamenn. I aðalsafni Háskólabókasafnisins er nú lestrar- aðstaða fyrir 15 manns, í Landsbókasafninu fyrir 45 manns. Þessi þrengsli eru auövitaö óþolandi. í Þjóðarbókhlöðunnu er gert ráö fyrir aöstööu 800 manna til lestrar og vinnu. Af þessu ætti aö vera augljóst aö bygging Þjóðarbókhlöðu getur ekki beöið lengur. Meö byggingu hennar veröur húsnæöisþörf tveggja stærstu rannsóknarbókasafna landsins full- nægt og þau sameinuð. Tæpast þarf aö fjölyrða um þaö hversu mikill léttir það veröur fyrir vís- indamenn og aðra sem þurfa að leita uppi ritað mál þegar allt er orðið tiltækt á einum og sama staðnum. Vinnuaðstaöa myndi aö sjálfsögöu einnig batna fyrir starfsfólkiö, söfnunum yröi kleift aö bæta þjónustuna við notendur og svig- rúm ætti aö skapast til verkefna, sem söfnunum ber aö sinna lögum samkvæmt, en hafa ekki haft aðstööu til fram að þessu. Þaö er orðið langt síöan sú stefna var mörkuö á alþingi aö byggö skyldi Þjóöarbókhlaöa, eöa á árinu 1957. I tíð síðustu ríkisstjórnar var gert myndarlegt átak til að steypa húsiö upp og áriö 1981 lagði Vigdís Finnbogadóttir hornstein Þjóöarbókhlööu. Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur ekki sýnt þessu máli mikinn skilning, fremur en ýmsu ööru er til framfara horfir. Á sama tíma og hundr- uðum miljóna króna er varið til byggingar flug- stöövar á hverju ári. Það er fátæk þjóö sem treystir sér fremur til aö reisa höll yfir bari og stórverslanir en eiga myndarlegt þjóðarbóka- safn. Á þessu ári hefur aöeins 15 miljónum króna veriö varið til byggingar Þjóöarbókhlöðunnar. Á fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár er gert ráö fyrir 5 miljónum króna. Hins vegar vantar 280 miljónir til að Ijúka verkinu. Oft er haft á oröi hversu óhagkvæmar fjárfestingar geta oröiö hjá hinu opinbera, einmitt þegar er verið að setja smáslettur í miklar framkvæmdir. Það er mun hagkvæmara, í krónum taliö, aö Ijúka verkum á borö viö þessi á skömmum tíma. Og þegar horft er til annarra verðmæta, sem ekki veröa taldar í krónum eöa aurum veröur þörfin fyrir Þjóöar- bókhlööuna enn brýnni. Það er nauösynlegt aö sjálfstæö þjóð leggi á hverjum tíma í myndarlegt átak fyrir menningu sína. Bókelsk þjóö á ekki annað skiliö en myndarlegt þjóðarbókasafn. Bókmenning okkar er óaöskiljanlegur hluti sjálf- stæöis þjóöarinnar og aö því verðum við aö huga. Þjóðviljinn bendir aö aö ný öld er aö ganga ígarö í atvinnumálum. Ef okkar nýja sókn í atvinnumálum á að geta heppnast, er alger forsenda aö búiö sé vel aö menntun og rann- sóknum. Þarmeð má leiöa aö því margvísleg rök, aö ef rétt er haldið á spööunum, geti dugn- aður við Þjóöarbókhlööuna verið ein leiöanna aö bættum lífskjörum á íslandi. Þjóöviljinn skorar á alþingi að taka nú meö rausnarskap á byggingu Þjóöarbókhlöðunnar. Þann rausnarskap getur alþingi sýnt viö af- greiðslu fjárlaganna á næstu dögum. Viö skulum Ijúka við Þjóðarbókhlöðuna. -óg Ó-ÁLIT DIÚOVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rit8tjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór- unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarfcalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. L)ó8myndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útllt: Sævar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason. Símvarsla: Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Ágústa Þórisdóttir, Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóoa Sigurdórsdóttir. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Utbroíðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýslngastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýslngar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Utkeyrsla, afgroiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 35 kr. Sunnudagsblað: 40 kr. Áskrlft á mánuði: 400 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. nóvember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.