Þjóðviljinn - 02.11.1985, Page 3
nóvember
alNGVAR HELGASON HF
Rauðíiyerði, simi 33560
Ókeypis Ijósastiliing
Eigendur Nissan, Datsun, Subaru, Trabant
og Wartburg bila fá ókeypis
Ijósastillincju í umboðinu við
Melavelli í
Rauðagerði til
Fóðurráðunautur
Samband ísl. Samvinnufélaga óskar að ráða fóðurr-
áðunauttil starfa hjá Fóðurvörudeild Búnaðardeildar.
Starfið felur m.a. í sér að hafa á hendi ábyrgð á sam-
setningi allra fóðurblandna, ráðgjöf til bænda, ásamt
nokkurri söiustarfsemi og námskeiðahaldi.
Starfið útheimtir talsverð ferðalög við beina ráðgjöf og
fundarhöld.
Framhaldsmenntun í búfræði eða sérnám í fóðurfræði
áskilið.
Umsóknarfrestur til 10. nóv. 1985.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra er
veitir upplýsingar.
S
SAMBAND ÍSL. SAM VINN UFÉLAGA
STARFSMANNAHALD
LiNDARGÖTU 9A
H| LAUSAR STÖÐUR HJÁ
W REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Ritari óskast í unglingadeild fjölskyldudeildar,
Tryggvagötu 12.
Upplýsingar eru veittar hjá Guðrúnu Kristinsdóttur í
síma 25500.
Umsóknum ber að skila tii starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð, á sér-
stökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir
kl. 16.00, mánudaginn 11. nóvember 1985.
m LAUSAR stöður hjá
W REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Forstöðumaður við dagheimilið Laugaborg v/
Leirulæk frá áramótum.
• Fóstrur og starfsmenn við dagh./leiks. Rofaborg,
nýtt heimili í Árbæ. Fóstrustöður allan daginn,
starfsfólksstöður eftir hádegi, skilastöður í 4 tíma
seinni part dags.
- dagh. Laugaborg v/Leirulæk
- dagh./íeiksk. Ösp, Asparfelli 10.
- dagh. Hamraborg v/Grænuhlíð.
-dagh. Völvuborg v/Völvufell.
- leiksk. Holtaborg, Sólheimum 21.
- dagh. Suðurborg v/Suðurhóla.
- dagh./leiksk! Grandaborg v/Boðagranda.
- dagh./leiksk. Hraunborg v/Hraunberg.
Einnig vantar fóstrur, þroskaþjálfa eða annað
starfsfólk með uppeldislega menntun til þess að
sinna börnum með sérþarfir.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónar-
fóstrur á skrifstofu dagvistar í síma 27277 og for-
stöðumenn viðkomandi heimila.
Umsókn ber að skila til starfsmannahalds Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þarfást, fyrir kl. 16.00 föstu-
daginn 15. nóvember 1985.
Hlaðvarpinn
Hlutabréfasala
gengur vel
Bergljót Gunnarsdóttir:
Hvet konur til að kaupa hlutabréf
Það hefur gengið mjög vel að fá
konur til að kaupa hlutabréf í
Hlaðvarpanum og hefur kvenn-
afrídagurinn haft mikið að segja í
þeim efnum sagði Bergljót Gunn-
arsdóttir hjá Menningarmiðstöð
kvenna í Hlaðvarpannum, Vest-
urgötu 3.
Næsta greiðsla er 5. nóvember
að upphæð ein miljón og þrjú
hundruð þúsund og hefur safnast
fyrir þeirri upphæð. Þetta er
þriðja greiðsla af sjö og hvetur
Bergljót allar konur til að kaupa
hlutabréf.
í menningarmiðstöðinni eru
konur með leiksýningu í gangi
sem heitir Reykjavfkursögur
Ástu. Bæði leika kvenmenn og
karlmenn í sýningunni sem hefur
gengið mjög vel. Uppselt hefur
verið á allar sýningar til þessa.
Lítið hefur verið í notkun af hús-
inu þar sem stór hluti er í útleigu
ennþá. Einungis er aðstaða fyrir
skrifstofu og leiksýningu eins og
er.
E.L.H.
FREfHR
Síldin er komin til Vestmannaeyja. I gærmorgun kom Höfrungur II GK með 130 tonn af síld sem veiddist á Kaldbakss-
væðinu. Þjóðviljamenn fóru á stúfana og eftir helgi mun birtast syrpa úr síldarævintýri Eyjaskeggja. Ljósm. E.ÓI.
Útvarpsráð
Olafur Haukur vrttur
Harmað í bókun Útvarpsráðs að minning Ólafs Thors skuli hafa verið svert í
leikritinu Galeiðan semfluttvarsl. þriðjudagskvöld
Utvarpsráð sendi í gær frá sér
bókun þar sem það er harmað
að Ríkisútvarpið skuli hafa verið
notað til að vanvirða minningu
látins manns í útvarjpsleikritinu
Galeiðunni eftir Olaf Hauk
Símonarson, en það var á dag-
skrá ríkisútvarpsins sl. þriðju-
dagskvöld. Þar mun ráðið eiga
við Ólaf heitinn Thors fyrrum
forsætisráðherra en í leikritinu
var nafn hans nefnt með óvið-
eigandi hætti að mati ráðsins.
f bókun útvarpsráðs, sem sam-
þykkt var einróma segir m.a.:
„Það ber að harma að Ríkisút-
varpið skuli hafa verið notað til
að vanvirða minningu látins
manns og fjalla um nafngreinda
persónu með jafn ósæmilegum
hætti og þarna var gert. Útvarps-
ráð telur nauðsynlegt að stofnun-
in biðjist opinberlega afsökunar á
þeim mistökum sem þarna áttu
sér stað. Brýna verður fyrir
starfsmönnum Ríkisútvarpsins
að vera ávallt á verði gagnvart
slíkum vinnubrögðum. - v.
Hafnarfjörður
Bæjarfulltmar órolegir
Áhugi meðal andstœðinga vínveitingaleyfa í
bœjarstjórn að hafa skoðanakönnun um opnun
áfengisútsölu á undan nk. bœjarstjórnarkosningum.
Skiptar skoðanir um málið
Ahugi er meðal nokkurra
bæjarfulltrúa í Hafnarfirði á
að láta skoðanakönnun um af-
stöðu bæjarbúa til opnunar á-
fengisútsölu í bænum, fara fram
áður en bæjarstjórnarkosningar
verða haldnar nk. vor. Slíkar
kannanir hafa hingað til ætíð ver-
ið látnar fara fram samhliða
bæjarstjórnarkosningum.
Nokkuð skiptar skoðanir eru
um ágæti þessara hugmynda og
telja margir óeðlilegt að slíta
þessar kosningar í sundur. Þeir
bæjarfulltrúar sem lagt hafa til að
skoðanakönnun um áfengisút-
sölu fari fram á undan bæjar-
stjórnarkosningum eru þeir sömu
og harðast hafa beitt sér gegn vín-
veitingaleyfum til veitingahúsa í
bænum. Fjöldi bæjarbúa hefur
formlega óskað eftir því að kann-
aður verði vilji bæjarbúa til opn-
unar áfengisútsölu.
Nú hefur dómsmálaráðherra
ákveðið eftir mikinn þrýsting
meirihluta bæjarstjórnar að úth-
luta tveimur nýjum veitingahús-
um í bænum takmarkað vín-
veitingaleyfi, en stærstan hluta
þessa árs hefur hvergi verið hægt
að fá keypt vín í Hafnarfirði.
-lg-
Laugardagur 2. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3