Þjóðviljinn - 02.11.1985, Page 8
MENNING
ÍÍJ ! hofu.num ''L^j
kumhan^i W>
t’feítjfkiptM m/rki-itiu ^
,k |i
y^, ,.s,
É{ 4.! <irí> Funum y^jö
\»H\VSta lim
I
Fúsi froskagleypir (Davíð Þór Jónsson) í Firðinum. Mynd: Júlíus.
Á annarri sýningu var Bæjar-
bíó troðfullt af börnum á ýmsum
aldri sem öll virtust skemmta sér
vel, og því ungviði sem ég hafði í
för með mér fannst þetta alveg
æðislega skemmtilegt. Það ber
því að þakka fyrir þetta framtak
Leikfélags Hafnarfjarðar, sem ég
óttast að verði eina barnasýning-
in sem boðið er uppá á höfuð-
borgarsvæðinu á þessu leikári.
Þrátt fyrir mikið líf f leiklistar-
starfsemi virðast fáir hugsa til
barnanna. Þó eru börnin þakklát-
ust áhorfenda og hafa ber einnig í
huga að þau eru áhorfendur
framtíðarinnar - hvað gerist ef
þau komast aldrei í leikhús?
Leikfélag Hafnarfjarðar
Mannréttindi
Opinbert morð í Norrœna húsinu
Blessuð börnin
Leikarar leggja lið Amnesty International. Biko-
réttarhöldin sýnd einu sinni á mánudagskvöld
Leikarar eiga frí á mánudögum
og mánudagskvöldið næsta kom
því eitt til greina fyrir einstæðan
leikatburð í Norræna húsinu; þá
verðurflutturleikurinn Biko-
réttarhöldin undirstjórn Sveins
Einarssonar og er sú sýning einn
hápunkta á kynningarviku Amn-
esty International.
Leiktextann skrifuðu tveir
breskir blaðamenn uppúr dóms-
skjölum frá máli Steve Biko sem
árið 1977 var drepinn af lögreglu í
Suður-Afríku; að sögn kröftugt
leikrit um mannréttindi og kúg-
un.
Hallbergur Hallmundsson
þýddi og leikararnir sem leggja
fram vinnu sína í þágu mann-
legrar reisnar eru Árni Ibsen,
Arnór Benónýsson, Gísli Al-
freðsson, Guðmundur Pálsson,
Hákon Waage, Hallmar Sigurðs-
son, Júlíus Hjörleifsson, Kjartan
Ragnarsson, Pétur Einarsson,
Róbert Arnfinnsson og Viðar
Eggertsson.
Sýningin í Norræna húsinu
hefst kl. 20.30. _ m.
mí Tarsan, Ottó er nashyrningur
ofl. Ole Lund féll því miður frá
ungur að árum, þó að talað sé um
hann í leikskrá eins og hann sé
enn á lífi.
Fúsi froskagleypir er
ógnvekjandi persóna í augum
litlu strákanna sem segja þessa
sögu, hann er stór sláni og alltaf
að hrekkja einhvern. En litlu
strákunum tekst einlægt að koma
því þannig fyrir, að það gerist
fyrir tilviljun, að Fúsi fær skell-
inn. Af þessu skapast mörg
kostuleg atvik í fyrri hluta sýning-
arinnar, en seinni hlutinn lýsir
komu sirkus til smábæjarins þar
sem sagan gerist og hápunkturinn
er sirkussýning sem endar með
mjög óvæntum hætti.
Allt er þetta hin besta skemmt-
un, en seinni hlutinn er mun heil-
legri en sá fyrri, sem geldur þess
að vera settur saman úr mörgum
brotum sem fóru ágætlega á bók
en verða nokkuð sundurláus á
sviðinu. En sirkuskaflinn nýtur
þess að vera ein heild og hann
gengur ágætlega upp. Viðari
Eggertssyni hefur tekist ágætlega
að koma þessu á svið, þetta er
mjög hreinleg sýning og hópatr-
iði eru prýðilega skipulögð. Leik-
arar gera sitt eins og til er hægt að
ætlast, Hanna Björk Guðjóns-
dóttir og Halldór Magnússon fara
skýrt og skilmerkilega með hlut-
verk litlu strákanna og Davíð Þór
Jónsson gerir mjög skemmtilega
persónu úr Fúsa með stellingum
og göngulagi - hér er góð leik-
stjórn á ferðinni. Aðrir leikarar
eru fleiri en vert er upp að telja.
Olga Guðrún hefur þýtt leik-
inn áheyrilega, en ekki kann ég
við upphrópunina „Mildi Móses“
á íslensku. Ólafur Haukur hefur
aukið í leikinn söngtextum sem
eru hnittnir og til prýði. Þeir voru
yfirleitt vel fluttir þannig að orðin
komust til skila, og ber að þakka
Jóhanni Morávek fyrir áheyrileg
lög og prýðilegan flutning.
Frá samlestri á Biko-réttarhöldunum. Á myndinni sjást Pétur Einarsson, Árni
Ibsen, Sveinn Einarsson leikstjóri, Hákon Waage og Viðar Eggertsson. Mynd:
Sig.
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir
FÚSA FROSKAGLEYPI
eftir Ole Lund Kirkegaard
Leikstjóri: Viðar Eggertsson
Þýðandi: Olga Guðrún Arnadóttir
Söngtextar: Olafur H.Símonarson
Tónlist: Jóhann Morávek
Fúsi froskagleypir er íslensk-
um börnum að góðu kunnur af
bók um hann sem gefin var út
fyrir allmörgum árum og maður
hafði sanna ánægju af að lesa
fyrir börnin sín, enda Ole Lund
Kirkegaard fágætlega fyndinn og
athugull höfundur, sem var laus
við allar predikunartilhneigingar
en hafði margt að segja um stöðu
SVERRIR
HÓLMARSSON
barna í heimi fullorðinna í bókum
eins og Fúsa froskagleypi, Gúm-
Skeleton Crew: Tom Cora, Zeena Parkins og Fred Frith.
MH
Smith og Beinagrindur
Fyrrihluti tónlistarhátíðar í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
á sunnudagskvöld. Þar koma
fram stórstjörnur þrennskonar
og er fyrst að nefna ensk-amrísku
hljómsveitina Skeleton Crew sem
hér bindur lokahnút á Evrópu-
ferðalag.
í hljómsveitinni eru Tom
Cora, Zeena Parkins og Fred
Frith og leika á ótal hljóðfæra.
Frægastur þremenninganna er
Fred Frith sem haldinn er einn af
bestu „sessjón“-gítarleikurum og
hefur unnið með mörgum helstu
rokkurum samtímans.
Þá treður upp trompetleikar-
inn Leo Smith, íslenskum tón-
listarmönnum vel kunnur af fyrri
heimsóknum. Hann leikur með
hljómsveit skipaðri þeim Sig-
tryggi Baldurssyni, Þorsteini
Magnússyni og Skúla Sverrissyni.
í þriðja lagi kemur fram hljóm-
sveitin Vonbrigði eftir allnokkurt
hlé, með nýtt efni sem brátt skal á
plötu.
Tónleikarnir hefjast í hátíðasal
MH klukkan hálf níu.
Dúkljóð
Draumaslý
„Sem viðleitni til að eyða
dauðahlátri þjóðarinnar og opna
innri sýnir landsmanna fyrir and-
legri sviðum í þessu hávetrar-
myrkri efnishyggjunnar hefur
Draumaútgáfan Data gefið út
bókina SLÝ eftir ísak Maðkland
og Vígni Oyoyo”, segir í fréttatil-
kynningu frá bókaútgáfunni
Data;
„Slý er fyrsta íslenska hryll-
ingsljóðabókin sem slík og fyrsta
bókin sem algjörlega er unnin
sem dúkrista; þ.e. myndir og
texti eru skorin í dúk og fléttuð
saman í heilsteyptan vef, sem
birtir á meitlaðan hátt vanda
nútímamennisins í hnotskurn. ”
Frá sýningunni í Nýlistasafninu: Sicheres Auftreten eftir Peter Fichli og David
Weiss.
Nýló
Nútímasvissarar
Fyrsta dag nóvembermánaðar
hófst í Nýlistasafninu við Vatns-
stíg sýning á verkum átta mynd-
listarmanna frá Sviss og má þar
kynnast ýmsum hliðum sviss-
neskrar nútímalistar. Sýningin
stendur til 17. nóv.
í sýningarskrá segir Halldór
Björn Runólfsson að á ofanverð-
um sjöunda áratugnum hafi
svissneskir myndlistarmenn sagt
skilið við aðlögun að ríkjandi
straumum í grannlöndum og
mótað sér sjálfstæðari stefnu
gagnvart hinni alþjóðlegu fram-
úrstefnu „án þess þó að hafna
henni alfarið, eða falla niður á
stig þjóðlegrar einangrunar.
Svissneskir myndlistarmenn fóru
einfaldlega að gefa meiri gaum að
rótum eigin menningar.“
„Það sem einkenndi fyrst og
fremst hina nýju strauma í
svissneskri list, var hve fjölþættir
og víðfeðmir þeir voru. Með ár-
unum hafa þessi einkenni sund-
urleitrar tjáningar orðið skarp-
ari.
Sýnendur eru: Helmut Fe-
derle, Jean-Fréderic Schnyder,
John Armleder, Klaudia Schif-
ferle, Martin Disler, Olivier
Mosset, Peter Fichli og David
Weiss. _ m
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. nóvember 1985