Þjóðviljinn - 02.11.1985, Side 9
MENNING
Gersemar safnarans
Sýning á Kjarvalsverkum í eigu Þorvaldar Guðmundssonar
Þegar menn ganga um sali
Kjarvalsstaða og virða fyrir sér
afmælissýningu Jóhannesar S.
Kjarvals, verður þeim ljóst hve
stór hluti verka hans er jafnan
hulinn sjónum almennings. Stór
og smá einkasöfn út um allt land
skarta verkum hans og varla er sá
maður með mönnum sem ekki á
eitt eða tvö Kjarvalsverk. Að
eiga verk eftir meistara Kjarval
hefur löngum verið talið bera
vott um trygga stöðu manna í
samfélaginu og er þá jafnan átt
við málverk, einkum stórar Þing-
vallamyndir.
Goðsögnin um stöðutáknið er
auðvitað ekki í neinu samræmi
við markaðsgengi, enda fara ís-
lenskar goðsögur sjaldan eftir
kauphallatíðindum. Staðreyndin
er nefnilega sú, að tiltölulega
auðvelt er að ná sér í Kjarvals-
verk, enda var listamðaurinn
með eindæmum afkastamikill og
annaði vel þeirri eftirspurn sem
var eftir verkum hans. Þótt ekki
eigi allir fslendingar Kjar-
valsmálverk, er næsta víst að
þeir, sem ekki geta án slíkra
verka verið, hafa mikla mögu-
leika á að eignast a.m.k. eitt
stykki, kunni þeir að bera sig eftir
björginni. Það er spurning hvort
ekki megi vísitölubinda Kjarval,
líkt og sjónvarp eða bifreið. Slíkt
gæti e.t.v. hækkað risið á ís-
lenskri menningu um nokkur
prósentustig.
En þótt mörg einkasöfn skarti
fínum Kjarvalsverkum, geta fáir
státað sig af annarri eins fjöld og
Þorvaldur Guðmundsson. Á sýn-
ingunni í Háholti í Hafnarfirði,
eru hvorki meira né minna en 152
verk, öll í eigu þessa ötula safn-
ara. Meðal þessara verka er að
finn stærstu mynd Kjarvals, sem
hann málaði á veggfóður vinnu-
stofu sinnar í Austurstræti á árun-
um 1929-36 og kallaði „Lífs-
hlaupið”. Þótt Tolli í Sfld og fisk
hefði ekkert annað gert en bjarga
þessu 17 metra langa verki frá
glötun, hefði það nægt til að
halda nafni hans á lofti.
HAUSTHEIMAR
STEFAN
SIGURKARLSSON j
„Haustheimar" Stefáns Sigur-
karlssonar. Kápumynd: Sigur-
borg Stefánsdóttir.
Ljóð
Haustheimar
Haustheimar heitir ný Ijóðabók
eftir Stefán Sigurkarlsson lyfsala
á Akranesi, og er þetta fyrsta bók
höfundar.
Stefán er fæddur 1930 og hefur
verið kennari við Menntaskólann
í Reykjavík, lyfjafræðingur og
lyfsali í Reykjavík, í Stykkis-
hólmi og á Ákranesi.
Hörpuútgáfan á Akranesi gef-
ur út.
Safn Þorvaldar er mikið að
vöxtum og ótrúlega fjölþætt. Þar
má finna myndir frá öllum tíma-
bilum í list Kjarvals. Þó er sýning-
in í Háholti ekki tæmandi úttekt á
einkasafninu, því myndirnar á
HALLDÓR
B. RUNÓLFSSOf
Hótel Holti eru enn á sínum stað.
Það er reyndar með herkjum að
safn Þorvaldar kemst inn í sýn-
ingarsalinn í Hafnarfirði. Mynd-
irnar sitja alltof þétt á veggjum og
skilrúmum, stundum svo að þær
kæfa hver aðra. Þetta er mikil
synd, því margar þessara mynda
krefjast olnbogarýmis og sumar
njóta sín alls ekki í svona
kraðaki. Helmingi stærri sal hefði
þurft undir þetta risastóra einka-
safn.
Samt sem áður verður að telja
þetta framtak Tolla lofsvert, því
fáar þessara mynda hafa sést op-
inberlega og varpa margar hverj-
ar ljósi á ýmis áður hulin atriði í
list Kjarvals. Að vísu eru þrjú eða
fjögur verk á sýningunni í Há-
holti, sem betur hefðu fengið að
hanga í friði þar til gengið hefði
verið úr skugga um að þau séu
ófölsuð. Það er ávallt hið mesta
leiðindamál þegar sá kvittur
kemst á kreik að málverk séu
ekki frá hendi þess sem skrifaður
er fyrir þeim. Því er besta ráðið
við slíku tilfelli, að ganga ræki-
lega úr skugga um að hvergi sé
maðkur í mysu, áður en verkin
eru höfð til sýnis.
HBR
%
m
Wfim
Óveðurskráka, olía á krossvið,
Ifavandi
Vesturgötu f, stmi 17445
HÍHmi ^ÖLUBOÐ
LENI Salernispappír 8 rúllur í pk
LENI Eldhúsrúllur 4 rúllur í pk
Gullkorn 325 gr
NORDTEND Sjampó: 200 ml
Kremkex Með súkkulaði Hunangskex
Kartöfluskrúfur venjulegar með papriku með salti og pipar
Sveppasúpa Tómatsúpa
é * Appelsínur
%jsW Aspassúpa, Grænmetissúpa Tómatsúpa, Sveppasúpa Lauksúpa, Kjúklingasúpa Kjúklingarjómasúpa
...vöruveró í lágmarki s*Mv»«osOtuaoONn n