Þjóðviljinn - 07.11.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR
Vaxtaokur
Stjómvöld grípi í taumana
Neytendasamtökin skora á stjórnvöld á láta kanna áhrifvaxtaokurs á
verðlag. Jóhannes Gunnarssonformaður Neytendasamtakanna: Ef
grunsemdir okkar reynast réttar eiga stjórnvöld að grípa í taumana
Ef það reynist rétt að fyrirtæki í
framleiðslu og verslun velti
óeðlilega háum vaxtakostnaði
beint út í verðlagið finnst okkur
tvímælalaust að stjórnvöld eigi að
grípa í taumana. Neytendur geta
ekki með nokkru móti sætt sig við
að vöruverð hækki með þessum
hætti, það er óeðlilega hátt fyrir,
sagði Jóhannes Gunnarsson for-
maður Neytendasamtakanna í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Arrmesty-vikan
Stjórn Neytendasamtakanna
samþykkti á fundi á mánudaginn
ályktun þar sem bent er á að á
sama tíma og verðbólga er um
35% sé boðið upp á allt að 80%
ársvexti sparifjár hjá verðbréfa-
fyrirtækjum. Öllum megi vera
ljóst að þeir sem taka lán með
sölu slíkra verðbréfa verði að
greiða enn hærri vexti og hafa
tekjur til að standa undir svo
háum vaxtakostnaði. Það sé
Einn stúdentanna þriggja, Sher-
Mohd Mangrio: dæmdur til hýð-
ingar og fangelsisvistar.
Pakistan
Sjö ár
og tíu
vandarhögg
Árið 1981 stunduðu þeir Sher
Mohamm ad Mangrio, Moham-
mad Khan Solangi og Imdad
Hussain Chandio nám í háskólan-
um í Jamshoro í Pakistan. Þeir
voru jafnframt í stjórn Lýðræðis-
bandalags stúdenta. Þeir voru
handteknir 31. mars 1981 og
sagðir hafa í fórum sínum vegg-
spjöld og önnur gögn fjandsamleg
stjórnvöldum.
Þeir voru í haldi 17 mánuði án
þess að um mál þeirra væri fjallað
en ieiddir fyrir herdómstól í ágúst
1982 og dæmdir í sjö ára fangelsi
og tíu svipuhögg hver fyrir að
hafa yfir að ráða prentmáli sem
„stuðlaði að hatri milli stétta í
þjóðfélaginu".
Amnesty International lítur á
stúdentana þrjá sem samvisku-
fanga í haldi vegna skoðana
sinna. Samtökin hafa valið ár
æskunnar til að vekja sérstaka at-
hygli á málum þeirra, og annars
ungs fólks í haldi og á kynningar-
viku sinni nú hvetur íslands-
deildin til þess að pakistönskum
stjórnvöldum sé skrifað og þau
hvött til að láta þá lausa. Fjöirit-
uð bréf liggja frammi á sýningu
Amnesty-samtakanna í Norræna
húsinu og á skrifstofu AI á ís-
landi, Hafnarstræti 15.
ástæða til að taka lánastarfsemi
til athugunar þegar um óeðlilega
háa vexti og afföll sé að ræða og
allir geti séð að slíkt er að stórum
hluta fjármangað á kostnað
neytenda. Neytendasamtökin
skora því á stjórnvöld að láta
kanna „hvort takmörkuð lánafyr-
irgreiðsla lánastofnana til fyrir-
tækja í framleiðslu og verslun
hefur leitt til þess að þau fjár-
magni innkaup sín að verulegu
leyti með því að taka lán með allt
að 80% ársvöxtum“.
„Við höfum áhyggjur af þessu
fyrir hönd neytenda og teljum að
þessu sé velt beint út í verðlagið.
Vöruverð á íslandi er nú hærra en
víðast annars staðar í heiminum
og það er ástæða til að fara að
stokka hlutina upp ef þetta á að
bætast við. Þetta er meira en fólk
getur þolað,“ sagði Jóhannes í
gær. -gg
Fjársöfnun
Æskan þakkar öldruðum
Hjálparstofnun kirkjunnar
hefur orðið við beiðni
fimm landsambanda og stofn-
ana, að skipuleggja átak í
öldrunarmálum á ári
æskunnar, undir kjörorðinu:
Æskan þakkar öldruðum.
Þessir aðilar, sem allir eru
þátttakendur í Öldrunarráði
Islands eru: ASI, Lífeyrisdeild
BSRB, sjómannasamtökin,
Stéttarsamband bænda og
þjóðkirkjan.
Nú er ákveðið að átakið fari
fram helgina 8.-10. nóv. n.k.
Þá taka skólanemar um land
allt að sér sölu á sérstaklega
gerðum pennum, til einstak-
linga.
I þessu skyni hafa verið
settar á laggirnar 6 fram-
kvæmdanefndir, sín í hverjum
landshluta, sem í eiga sæti
einn fulltrúi frá ASÍ, Stéttar-
samband bænda og þjóðkirkj-
unni, en sá síðast taldi er
framkvæmdastjóri hverrar
nefndar.
Hlutverk framkvæmda-
nefndanna er að skipuleggja
sölu pennans með skóla-
stjórum og fræðslustjórum og
sjá um ráðstöfum söfnunar-
fjár á viðkomandi svæði, í
þágu aldraðra.
Þess má geta, að þegar hef-
ur verið ákveðið, að það sem
safnast í Reykjavík, renni til
Hjúkrunarheimilis aldraðra,
sem samtökin Skjól standa
fyrir byggingu á í Laugarási.
Þá er einnig tilgangur átaks-
ins sá, að vekja athygli lands-
manna á málefnum aldraðra.
Fer vel á því á ári æskunnar,
að unga fólkið hafi þar for-
ystu. Hjálparstofnunin vill
leggja sitt af mörkum, til að
virkja fólk til umræðna og.
vera málefnum aldraðra til
framdráttar. -mhg
-TORGIÐ-
Tilkynni herra höfuðsmaður:
Engin flugvél varð bensínlaus
í gær!
Viðskipti
SÍS semur
við Rússa
Samningur undirritaður í
nóvemberlok?
Nýlega kom Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Iðnaðar-
deildar SÍS, frá Rússlandi, þar
sem hann lagði drög að nýjum
fimm ára samningi Iðnaðar-
deildar við rússnesku samvinnu-
samtökin.
Ér nú unnið að því að ganga frá
samningnum en í lok nóvember
er von á rússneskri sendinefnd
hingað og verður hann þá vænt-
anlega undirritaður. Oljóst er
ennþá um hversu mikið vöru-
magn verður að ræða en viðræður
hafa gengið mjög vel að sögn
Jóns Sigurðssonar.
-mhg
Heilbrigðismál
Pörf á auka-
fjárveitingu
vegna ónœmistceringar
Aðalfundur Meinatæknifélags
íslands, haldinn 2. nóv. 1985,
skorar á Alþingi og ríkisstjórn að
veita aukafjárveitingu til
heilbrigðisþjónustunnar vegna
aukins álags við vinnu við þekkt
eða grunuð tilfelli af ónæmistær-
ingu.
Rannsóknastofur heilbrigðis-
þjónustunnar eru algerlega van-
búnar að taka að sér vinnu við
slík áhættusýni vegna þrengsla og
lélegs aðbúnaðar.
-mhg
Herstöðvaandstœðingar
NýsljómSHA
Landsfundur SHA var haldinn
í Reykjavík um síðustu helgi. Þar
var m.a. kjörin ný miðnefnd sam-
takanna. Miðnefndina skipa:
Ari Tryggvason, Árni Hjartar-
son, Arnþór Helgason, Bjarni
Hannesson,' Emil Bóasson,
Hanna Hallgrímsdóttir, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Jóhannes
Agústsson, Magnús Skarphéð-
insson, Rannveig Haraldsdóttir,
Sigurveig Sigurðardóttir, Tómas
Jóhannesson.
Til vara: Atli Gíslason, Ást-
ríður Karlsdóttir, Bergþóra Gísl-
adóttir, Birna Þórðardóttir,
Bjarni Harðarson, Eiríkur Jens-
son, Erling Ólafsson, Guðmund-
ur Georgsson, Hjördís Hjartar-
dóttir, Sigvarður Þ. Huldarsson,
Steingrímur J. Sigfússon, Una
Bergmann.
Á fyrsta fundi miðnefndar var
Ingibjörg Haraldsdóttir kosin
formaður samtakanna en Árni
Hjartarson lætur nú af því starfi
eftir þriggja ára formennsku.
Á landsfundinum voru gerðar
ýmsar samþykktir um starf næsta
árs. Ákveðið var að helga árið
átaki í útgáfu- og kynningarmál-
um fyrir samtökin, störf þess og
stefnu.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. nóvember 1985
Svíinn Lollo Asplund syngur vísur eftir Birger Sjöberg í Norraena húsinu
Einkunnarorð Asplunds: Það er ekki erfitt að vera svartsýnismaður, en
skelfing er það leiðinlegt.
Norrœna húsið
Dagskra u
Ikvöld verður efnt til dagskrár
um sænska vísnaskáldið Birger
Sjöberg í Norræna húsinu í tilefni
af aldarafmæli hans.
Þar koma fram Gunnar Gutt-
ormsson Katrín Sigurðardóttir,
Sigrún Jóhannesdóttir, Viðar
Gunnarsson og sænski vísna-
söngvarinn Lollo Asplund sem
kominn er til landsins-